Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2011, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2011, Blaðsíða 8
8 | Fréttir 18. maí 2011 Miðvikudagur Skatttekjur Reykjavíkurborgar langt umfram áætlun: Viðsnúningur í rekstri Reykjavíkur „Það eru margar samverkandi ástæður en ef maður skoðar sam- stæðuna í heild sinni eru það fyrst og fremst gengisbreytingarnar sem eru að snúa við þeirri þróun sem var orðin á skuldunum hjá okkur í samstæðunni. Gengishagnaðurinn ræður mjög miklu um niðurstöðu samstæðunnar,“ segir Birgir Björn Sigurjónsson, fjármálastjóri Reykja- víkurborgar. Niðurstaða almenns reksturs Reykjavíkurborgar, svokallaðs Aðal- sjóðs, var jákvæð um 803 milljónir króna á síðasta ári. Gert hafði verið ráð fyrir því í fjárhagsáætlun borg- arinnar að sjóðurinn myndi skila tapi upp á tæpa 2,4 milljarða króna. Niðurstaðan var því 3,1 milljarði króna betri en gert hafði verið ráð fyrir. Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A- og B-hluta, er einnig jákvæð um 13,7 milljarða króna. Viðsnúningurinn í rekstri Reykja- víkurborgar útskýrist að mestu leyti á því að skatttekjur borgarinnar voru umfram áætlun og að fagsvið borgar- innar héldu sig að mestu innan þess fjárhagslega ramma sem þeim var settur, þrátt fyrir þungar hagræðing- arkröfur. Þetta kemur fram í tilkynn- ingu frá Reykjavíkurborg. Eiginfjár- hlutfall Reykjavíkur jókst þá einnig á milli ára úr 26,4 prósentum árið 2009 í 30,8 prósentur árið 2010 og skuld- setningarhlutfall lækkaði á sama tíma úr 239 prósentum í 191 prósent. Í tilkynningunni kemur einnig fram að rekstarniðurstaða Eigna- sjóðs borgarinnar hafi verið jákvæð um 670 milljónir króna, sem er tals- vert minna en fjárhagsáætlunin gerði ráð fyrir. Reiknað var með 2,3 millj- arða króna hagnaði. Útskýrist þetta að mestu leyti af niðurfærslu krafna um 1,1 milljarð króna og breyttum reikningsskilaaðferðum vegna leigu- skuldbindinga. adalsteinn@dv.is Reykjavíkurborg hefur varið um milljarði króna í uppbyggingu við Laugaveg 4 til 6, 580 milljónum til kaupa á húsunum sem þar voru auk þess sem uppbyggingin átti að kosta 390 milljónir. Á myndinni má sjá af- raksturinn. „Mér finnst sjálfum Reykjavík fal- legri svona en með einhverjum gler- og stórbyggingum,“ segir Guðmund- ur Oddur Magnússon, prófessor í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands, aðspurður hvernig honum lítist á þá uppbyggingu sem hef- ur átt sér stað en markmiðið var að viðhalda 19. aldar götumynd. „Mér finnst líka skipta svo miklu máli að búa til miðbæ sem er vinalegur,“ bætir hann við. Guðmundur Oddur er hins veg- ar ósáttur við hvað uppbyggingin þurfti að kosta mikið, en Reykjavík- urborg lagði til 580 milljónir króna til kaupa á húsunum árið 2008. Það var eignarhaldsfélagið Kaupangur ehf. sem átti húsin. Félagið hugð- ist rífa þau og reisa tvö þúsund fer- metra verslunarhúsnæði á reitnum. Búist var við að borgin þyrfti samtals að reiða fram tæpan milljarð króna vegna reitsins en kostnaður við upp- byggingu hans var metinn á tæpar 390 milljónir króna. Kaupin voru umdeild á sínum tíma vegna þess hve miklum fjármunum var eytt. Rökin fyrir kaupunum voru að borg- in hygðist viðhalda götumyndinni en ætlaði sér jafnframt að stækka rýmið sem myndi nýtast í verslun eða aðra þjónustu. Járngirðing til lýta Húsin á reitnum eru að mestu til- búin en stór og mikil járngirðing hefur verið reist fyrir framan port- ið á milli þeirra. Girðingin stingur í stúf og hafa margir bent á hve mikið lýti hún er. Egill Helgason er sáttur við uppbygginga en gerir járngirð- inguna að umtalsefni á bloggi sínu. Þar ritar hann: „...en hins vegar er mikil járngirðing sem hefur verið sett upp fyrir framan portið við hús- in til mikilla lýta. Það er spurning hvort hún eigi að halda ölvuðu fólki burtu um helgar – en manni sýnist að hún sé ekki nógu rammgerð til þess.“ Íbúar vilja ekki fá næturlífið inn í garð Gísli Marteinn Baldursson, borg- arfulltrúi Sjálfstæðisflokks, svarar Agli í athugasemdakerfinu á blogg- inu. Hann bendir á að girðingin sé tímabundin lausn, enda eigi að reisa nútímalega tengibyggingu þar sem portið er. „Á meðan það er ógert höfðu íbúar við Skólavörðustíg áhyggjur af því að fá næturlífið inn í bakgarð hjá sér. Því var þessi ljóta girðing sett upp. Það þarf að endur- skoða hana,“ segir Gísli Marteinn. Guðmundur Oddur segist ekki hafa skoðað girðinguna nógu vel til að dæma um það hvort þessi tíma- bundna lausn sé afleit. Hann bend- ir hins vegar á að „... menn ættu að hafa vit á því og auga fyrir því að gera hlutina í samhengi.“ n Kostnaður við uppbyggingu Laugavegar 4 til 6 var metinn á allt að milljarð n Uppbyggingunni að ljúka n Járngirðing reist fyrir framan port á milli húsanna Þetta kostaði milljarð króna „Menn ættu að hafa vit á því og auga fyrir því að gera hlutina í samhengi. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður skrifar solrun@dv.is Ósáttur við kostnaðinn Guðmundi Oddi Magnússyni prófessor í grafískri hönnun finnst mikilvægt að búa til vinalegan miðbæ. Járngirðing Mörgum þykir járngirðing- in fyrir framan portið við Laugaveg 4 til 6 vera mikið lýti. Borgarfulltrúi segir hana tímabundna lausn. Mynd SigtRyggUR ARi Langt frá áætlun Niðurstaða árs- reiknings borgarinnar er 3,1 milljarði betri en fjárhagsáætlunin gerði ráð fyrir. Fitch Ratings: Í ruslflokki næstu tvö árin Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Rat- ings breytti á mánudag horfum fyrir lánshæfiseinkunn Íslands úr nei- kvæðum í stöðugar. Þrátt fyrir það gæti Ísland þurft að dúsa í ruslflokki hjá fyrirtækinu í allt að tvö ár til við- bótar. Og jafnvel ekki fyrr en gjald- eyrishöftunum verður aflétt sem hugsanlega verður ekki fyrr en árið 2015, miðað við fyrri yfirlýsingar ís- lenskra yfirvalda. Þetta kom fram á fréttaveitu Bloom berg á þriðjudag þar sem fjallað var um ákvörðun Fitch á mánudag. Þrátt fyrir að breytingar hafi orðið á horfum fyrir lánshæfis- einkunn Íslands er einkunnin sjálf óbreytt. Ísland er í BB+ flokki sem þýðir að íslensk ríkisskuldabréf eru í ruslflokkinum. Bloomberg hefur eftir forsvars- manni Fitch að þrátt fyrir betri horfur „... búumst við ekki við að einkunnin breytist á næstu 12 til 24 mánuðum.“ Þetta segir í svari Pauls Rawkins við fyrirspurn Bloomberg. Rawkins fer með málefni Íslands hjá Fitch. Hann bætti við að lykilatriðið í framvindu mála varðandi lánshæfis- einkunn Íslands væri að gjaldeyris- höftunum yrði aflétt.  Dældu dísilolíu af bíl í brúsa Tveir karlmenn voru handteknir af lögreglu í Víðidal í Reykjavík á þriðjudagsmorgun. Lögregla greip þá glóðvolga þar sem þeir voru að dæla dísilolíu af bifreið og í brúsa sem þeir höfðu með sér. Lögregla handtók báða mennina og voru þeir frjálsir ferða sinna eftir yfirheyrslu. Þá varð umferðarslys á þriðju- dagsmorgun á gatnamótum Eiðs- granda og Boðagranda í Vestur- bænum þegar fólksbifreið valt. Ökumaðurinn, sem var einn í bíln- um, slapp án teljandi meiðsla. Bif- reiðin skemmdist hins vegar töluvert en ökumaðurinn er grunaður um að hafa ekið ölvaður. Passaðu upp á farangurinn Dæmi eru um banaslys hér á landi í umferðinni sem rekja má til áverka vegna farangurs sem ekki var gengið tryggilega frá. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Umferðarstofu. Á næstu vikum má búast við aukinni umferð ferðamanna um vegi lands- ins og eru bílar og farartæki oftar en ekki hlaðin ýmiss konar varningi og nauðsynjum fyrir útileguna. „Við vissar aðstæður geta lausir hlutir í bíl orðið mjög hættulegir ef ekki er gengið rétt frá þeim í upphafi ferðar,“ segir í tilkynningunni. Árið 2005 varð banaslys á Norðurlandsvegi sem rekja má til farms sem var ekki búið að ganga tryggilega frá. Hvetur Umferðarstofa ökumenn til að ganga vel frá farangri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.