Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2011, Blaðsíða 18
18 | Umræða 18. maí 2011 Miðvikudagur
„Það er ömurlegt að koma
á fund fjölskyldunnar við
þessar aðstæður járnaður
í belti.“
n Guðlaugur Helgi Valsson situr í
fangelsi og vill geta fylgst með systur
sinni sem liggur þungt haldin á spítala.
Hann segir fangelsismálayfirvöld ekki
sýna aðstæðunum skilning. – DV.is
„Ef leikmenn eru
ekki samnings-
bundnir þá er
ekki verið að
brjóta neinar
reglur þegar þeir ganga á
milli félaga.“
n Rúnar Kristinsson, þjálfari karlaliðs
KR í knattspyrnu. Þróttarar saka KR-inga
um ósæmilega hegðun í tengslum við
félagaskipti efnilegs leikmanns í þriðja
flokki. – fotbolti.net
„Andskotans kona ertu!“
n Þórsarinn Jóhann Helgi Hannesson
lét Bjarna Guðjónsson, fyrirliða KR, heyra
það eftir byltu þess síðarnefnda í leik
liðanna á þriðjudag. Hljóðnemar Stöðvar
2 Sports sendu ummælin heim í stofu
þeirra sem horfðu á útsendinguna. – Stöð
2 Sport
„Ég á mér engar málsbæt-
ur og tek fulla ábyrgð á
því að hafa sært svo
marga.“
n Arnold Schwarzenegger, leikari og
fyrrverandi ríkisstjóri Kaliforníu, átti barn
með konu sem starfaði á heimili hans og
konu hans Mariu Schriver. – DV.is
„Mín hugmynd er að
leggja streng til Íslands,
og þaðan til Evrópu, með
legg yfir til Færeyja.“
n Össur Skarphéðinsson utanríkisráð-
herra greindi á Alþingi frá viðræðum við
forsætisráðherra Grænlands og Færeyja
um sæstreng til að flytja orku á milli
landanna þriggja. – Alþingi
Blóm og illgresi
Þ
ær hugmyndir ríkisstjórnar
innar að auka strandveið
ar eru vel til þess fallnar að
brjóta upp kvótakerfi sem
stuðlað hefur að þenslu og spillingu.
Ráðamenn verða þó að gera sér grein
fyrir því að sú aðgerð verður að vera
varanleg. Strandveiðar mega ekki
verða til þess að mynda veiðireynslu
sem gæti orðið að glópagulli fyrir
sjómenn.
Saga kvótakerfisins er mörkuð
átökum um auðlindina. Smábáta
eigendur höfðu sig mikið í frammi á
fyrstu árunum og töluðu um nauð
syn þess að krókaveiðar væru frjáls
ar. Þeir heimtuðu hlutdeild í veið
unum á kostnað gömlu sægreifanna
sem upphaflega fengu úthlutað. Þeir
sögðust vera blómin innan um ill
gresið. Það furðulega sem gerðist var
að smábátamenn fengu sínu fram
gengt og þeir stórjuku veiðar sín
ar. Í beinu framhaldi efldust sam
tök þeirra sem loksins fengu það í
gegn í nokkrum þrepum að fiskurinn
sem frelsið færði þeim varð að kvóta.
Blómin urðu sjálf að illgresi. Allt
gerðist í gegnum fjölda kerfa sem á
endanum voru lögð niður með þeirri
niðurstöðu að nýir sægreifar spruttu
upp til hliðar við þá gömlu. Í stað
fjölda veiðikerfa voru aðeins tvö eftir.
Smábátakerfið og þetta sem smíðað
var utan um stærri skip. Síðan komu
strandveiðarnar undir þeim yfirlýsta
tilgangi að frelsið til að veiða fisk
væri mikilvægt.
Flestir sem ekki eiga hagsmuni
í því að braska með óveiddan fisk
eru sammála því að þjóðin eigi fisk
inn í sjónum. Á sama hátt er meiri
hluti fólks á því að einkavæðing fiski
stofnanna hafi leitt af sér spillingu og
þenslu sem á endanum stórskaðaði
samfélagið.
Ríkisstjórnin verður að gera sér
grein fyrir því að þessu gullgrafara
æði með sjávarútveginn verður að
linna. Breytingar á borð við aukn
ar strandveiðar mega ekki ganga
til baka undir þeim formerkjum að
kvóti komi í stað frelsis. Menn mega
ekki enn eina ferðina leggja upp í
för í átt til frelsis sem engu skilar á
endanum öðru en skyndigróða fyrir
einstaklinga. Þetta er sú staða sem
blasir við sjávarútvegsráðherra og
ríkisstjórn. Frelsið er fram undan en
þar eru gildrur kvótans einnig.
Leiðari
Er MR alltaf best í
öllu?
„Fólk ætti að taka þessu með
ákveðnum fyrirvara þar sem Versló er
í þriðja sæti,“ segir Halla Sif Svans-
dóttir, forseti Nemendafélags MH
en MR er besti framhaldsskóli
landsins, að mati tímaritsins
Frjálsrar verslunar, sem hefur
borið framhaldsskólana
saman í 17 ólíkum flokkum.
MH varð í öðru sæti og
Versló í því þriðja.
Spurningin
Bókstaflega
Reynir Traustason ritstjóri skrifar„Saga kvótakerf-
isins er mörkuð
átökum.
Jónas Fr. fékk vinnu
n Meðal þeirra fyrstu sem þurftu
að gjalda með starfi sínu í kjöl
far hrunsins var Jónas Fr. Jónsson,
fyrrverandi for
stjóri Fjármála
eftirlitsins, sem
hætti um leið
og Björgvin G.
Sigurðsson við
skiptaráðherra
sagði af sér. Víst
er að starfsmiss
irinn var Jónasi
Fr. sár. Hann var um tíma atvinnu
laus en nú hefur rofað til og hann
starfar nú á lögfræðistofu föður
síns, Jóns Magnússonar. Víst er að
mikill fengur er að honum þar,
enda reynslubolti á ferð þegar litið
er til viðskiptaklækja.
Bingi brotlegur
n Þess er beðið með nokkurri
eftirvæntingu að útgefandi Press
unnar, Björn Ingi Hrafnsson, opin
beri ársreikn
ing félags síns,
Caramba, sem
átti greiða leið
inn í kúlulána
heim Kaup
þings. Félagið
fékk tugmillj
ónir að láni út á
andlit þáverandi
aðstoðarmanns forsætisráðherra
en óvíst er með endurgreiðslu. Fé
lag Binga er brotlegt við lög að því
leyti að ekki hefur verið skilað árs
reikningi frá því árið 2007.
Faðmlag Jónanna
n Jón Gerald Sullenberger virðist
vera á sæmilegu róli með verslun
sína, Kost, sem fær vikulega vörur
frá Bandaríkj
unum. Eins og
alkunna er þá er
Jón Gerald höf
uðóvinur þeirra
sem kenndir eru
við Baug og þá
sérstaklega Jóns
Ásgeirs Jóhannes-
sonar. Það þykir
því mörgum skondið að eigandi
Kosts auglýsir grimmt á Vísi, sem
er í eigu Jóns Ásgeirs og eiginkonu
hans Ingibjargar Pálmadóttur. Þar
fallast því fjendur í faðma.
WC í Mosó
n Mosfellsbær þykir vera einn
mesti heilsubær landsins og eru
íbúar þar hvattir til þess að gefa
undurfagurri
náttúru bæjar
ins gaum á
gönguferðum
um hóla og fell.
Í samræmi við
hvatninguna
var í síðustu
viku efnt til
verðlauna
samkeppni á meðal fólks sem
treysti sér til að ganga á þrjú fell í
bænum, Helgafell, Reykjaborg og
Úlfarsfell. Fjölmargir tóku þátt í
atburðinum sem hafði þó yfir sér
þann skugga að kennitöluferða
langar World Class, Björn Leifsson
og frú, gáfu aðalverðlaunin.
Sandkorn
tRyGGVAGötu 11, 101 ReyKjAVíK
Útgáfufélag: DV ehf.
Stjórnarformaður:
Lilja Skaftadóttir
Ritstjórar:
jón trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir traustason, rt@dv.is
Fréttastjóri:
Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is
Ritstjórnarfulltrúi:
jóhann Hauksson, johann@dv.is
Umsjón helgarblaðs:
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is
Umsjón innblaðs:
Ásgeir jónsson, asgeir@dv.is
DV á netinu: dv.is
Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010,
Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050.
Smáauglýsingar: 512 7004.
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins
á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
F yrir þá sem trúa því að einstaklingar skipti máli í sögunni, og á Íslandi er erfitt að trúa
öðru, er varla hægt að finna sterkari
persónuleika en þá Davíð Oddsson
og Ólaf Ragnar Grímsson. Deilur
þeirra settu sterkan svip á stjórn
málin á síðustu árutugum 20. aldar,
en þrátt fyrir (eða vegna) ásakana
Ólafs um skítlegt eðli Davíðs var
ljóst að Davíð hafði yfirhöndina. Á
meðan Ólafur skipti úr einum flokki
í annan fór Davíð frá því að vera
borgarstjóri og yfir í að verða for
sætisráðherra.
Staðan varð snúnari árið 1996
þegar Ólafur var kosinn forseti. Þó
að Davíð færi með völd var hann
strangt til tekið undir Ólaf settur
og virtist eiga erfitt með að kyngja
slíku. Kóngarnir tveir ríktu og
mændu til hvors annars yfir tafl
borðið, annar frá Stjórnarráðinu
og hinn frá Bessastöðum, en hvor
ugur lét sverfa til stáls. Það var ekki
fyrr en árið 2004 sem Ólafi tókst þó
loks að koma höggi á andstæðing
sinn með því að hafna fjölmiðla
lögunum. Hvort þetta hafði áhrif á
það að Davíð hvarf úr stjórnmálum
skömmu síðar skal ósagt látið, en
þetta var þó einn fyrsti meiriháttar
ósigur Davíðs á stjórnmálasviðinu
eftir svo til óslitna sigurgöngu þang
að til.
Hrókeringar hrunsins
Í góðærinu báru þessir tveir menn
höfuð og herðar yfir aðra og varla er
hægt að segja að það hafi breyst eftir
hrun. Þó hefur ákveðin hlutverka
skipting átt sér stað. Davíð Oddsson
var sá sem mest völd hafði þegar
kom að einkavæðingu bankanna en
var nú, sem ritstjóri Morgunblaðs
ins, í hlutverki klappstýru. Ólafur
Ragnar Grímsson hafði lítil raun
veruleg völd í góðærinu en hvatti
bankamenn áfram, nú var það hann
sem var megingerandinn á meðan
Davíð jánkaði með.
Þó að mennirnir tveir hafi
löngum staðið hvor sínum megin
víglínunnar í stjórnmálum er varla
hægt að sjá hjá þeim mikinn hug
myndafræðilegan ágreining. Ólafur
lærði það með fyrri synjun Icesave
laga að best er að biðla til þjóðernis
kenndarinnar til þess að hreinsa sig
af syndum fortíðarinnar, og Davíð
lagði við hlustirnar. Þegar Ólafur
svo endurtók leikinn rúmu ári síðar
voru þessir tveir fornu fjendur orðn
ir ansi samstíga.
Oddson og Nixon
Hvar annars staðar en á Íslandi geta
tveir menn ráðið svo miklu, og svo
lengi? Í svissneska vinstriblaðinu Die
Wochenzeitung segir greinarhöfund
ur að líklega sé besta leið Íslendinga
til að ljúka Icesavedeilunni að bíða
þar til Ólafur láti af embætti eftir ár og
semja þá á ný. En mun svo verða? Þó
að enginn fyrirrennara Ólafs hafi ver
ið lengur í starfi heldur en 16 ár er þó
alls ekki víst að hann fylgi fordæm
um. Hver veit hvenær við losnum við
hann?
Hvað Davíð varðar segir hið virta
franska blað Le Monde diplomati
que að Davíð hafi ávallt hafið sig yfir
íslenskt samfélag sem hann hefur
aldrei virst sérstaklega áhugasamur
um. Ef það á við um hann sem for
sætisráðherra á það líklega enn betur
við nú. Sem ritstjóri er hann frekar að
birta sína eigin heimsmynd en fjalla
um íslenskt samfélag sem slíkt. Grein
arhöfundur lýkur grein sinni á eftir
farandi orðum: „Það að Davíð sé rit
stjóri Morgunblaðsins þar sem hann
er að hylma yfir efnahagshrunið er
eins og Richard Nixon hefði gerst rit
stjóri The Washington Post meðan á
Watergatehneykslinu stóð.“
„Það eru engir seinni hlutar í líf
um Bandaríkjamanna,“ sagði skáldið
F. Scott Fitzgerald eitt sinn. Á Íslandi
heldur sýningin endalaust áfram. Ef
réttir aðilar eiga í hlut.
Óli og Dabbi: Hliðstæð líf
Kjallari
Valur
Gunnarsson„Þó að mennirnir
tveir hafi löngum
staðið hvor sínum megin
víglínunnar í stjórnmálum
er varla hægt að sjá hjá
þeim mikinn hugmynda-
fræðilegan ágreining.