Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2012, Page 14
E
ld
sn
ey
ti Bensín Dísilolía
algengt verð 255,6 kr. 263,5 kr.
algengt verð 254,6 kr. 260,6 kr.
höfuðborgarsv. 254,5 kr. 260,5 kr.
algengt verð 254,9 kr 260,9 kr.
algengt verð 257,9kr. 263,8 kr.
Melabraut 255,3kr. 260,9 kr.
14 Neytendur 27. febrúar 2012 Mánudagur
Eldislax framleiðir Omega 3 fitusýrur
n Nýr norsk rannsókn gefur vonir um sjálfbæra þróun auðlinda hafsins
E
ldislax, sem fær plöntufóð-
ur, býr sjálfur til fjölómettaðar
fitusýrur, eða Omega 3, sem
gæti verið þróun í rétta átt að
sjálfbærri lausn fyrir auðlindir hafs-
ins. Þetta er niðurstaða rannsóknar
sem framkvæmd var við Nasjonalt
institutt for ernærings- og sjømat-
forskning (NIFES) í Noregi.
„Við komumst að því að þeir laxar
sem fengu lítið af Omega 3 í fóðrinu
gátu framleitt fitusýrurnar sjálfir,“
segir Monica Sanden, einn rannsak-
endanna í viðtali við Verdens Gang.
Í rannsókninni voru löxum gefnar
fjórar mismunandi tegundir fóðurs
í eitt ár. Hið mismunandi fóður var
samsett úr ólíkum blöndum af græn-
metis- og sjávarafurðum og plöntu-
olíu í fóðrinu sem samanstóð af
hörfræolíu, pálmaolíu og rapsolíu. Í
einni tegund fóðurblöndunnar var
80 prósentum af fiskimjölinu skipt
út fyrir plöntuprótein og 70 prósent-
um af fiskiolíu skipt út fyrir plöntu-
olíur. Eftir þrjá mánuði framleiddi sá
lax sem var á þessu fóðri 800 milli-
grömm af Omega 3 en það er meira
en þrefaldur ráðlagður dagskammt-
ur fyrir fullorðna.
„Þrátt fyrir að lax sem er fóðr-
aður á fóðri úr plönturíkinu fram-
leiði í heildina minna af Omega 3 þá
sýnir þessi rannsókn að það er þó
nægilegt magn af fitusýrunum til að
uppfylla þarfir okkar,“ segir Sanden.
Lengi hefur verið vitað að lax getur
framleitt fitusýrurnar en þessi rann-
sókn sýnir að eldislax framleiðir þær
einnig þó hann sé fóðraður á plöntu-
fóðri og plöntuolíu í stað fiskimjöls
og fiskiolíu. gunnhildur@dv.is
Virkilega gott
gúmmelaði
n Lofið fær ostaverslunin Búrið í
Nóatúni en lesandi sendi eftirfar-
andi lof: „Þetta er snilldarbúð með
unaðslega osta í öllum stærðum
og gerðum, ólífur og eðalálegg auk
þess er hægt að fá hrikalega góðar
sultur, íslenskan ís beint frá býli og
súpu í hádeginu. Þær sem að vinna
þarna eru ostasnillingar, spjalla
og segja manni margt skrýtið og
skemmtilegt meðan þær afgreiða
mann. Það er alltaf jafngaman að
koma til þeirra til fá smakk-
prufur af einhverju nýju
sem þær eru með og kaupa
sér eitthvað virkilega
gott gúmmelaði. Lítil
frábær búð sem að
allir ættu að heim-
sækja allavega einu
sinni.“
Ósamræmi á
milli deilda
n Síminn fær lastið að þessu sinni
fyrir hæga þjónustu. „Ég hringdi
í Símann á laugardegi og bað um
flutning á netinu og var sagt að
þetta yrði komið á þriðjudegi en
þegar það gerðist ekki hringdi ég og
því var lofað að þetta kæmi í gegn
daginn eftir. Ekki gerðist það og ég
hringdi og þá kannast enginn við
neitt. Á miðvikudegi fór ég í Síma-
búð og var tjáð að allt væri klappað
og klárt. Á fimmtudegi talaði ég
við starfsmann tæknilegrar ráð-
gjafar sem sagði að ekki væri búið
að tengja netið og að beiðnin hafi
fyrst borist eftir að ég mætti í búð-
ina á miðvikudeginum. Á föstudegi
hringdi ég einu sinni enn og lenti
þá fyrst á starfsmanni sem gekk í
málið. Þetta eru léleg vinnubrögð
og ósamræmi milli deilda. Það á
ekki að vera að lofa að þetta sé til
á ákveðnum degi, ef ekki er hægt
að standa við það,“ segir viðskipta-
vinur.
DV hafði samband við Margréti
Stefánsdóttur, upplýsingafulltrúa
Símans, og bar lastið undir hana.
„Okkur þykir leitt að viðskipta-
vinur hafi ekki fengið skýr svör eða
leiðbeiningar hjá Símanum vegna
flutningsins á internetinu hjá hon-
um. Síminn vill alltaf standa við
loforð sín og undir eðlilegum kring-
umstæðum tekur svona flutningur
þrjá daga. Mögulega er eitthvað að
innanhússtengingum
í nýjum húsakynnum
þessa viðskiptavinar.
Við viljum gjarnan
heyra í honum sem
fyrst til þess að laga
það með honum sem hefur
farið úrskeiðis,“ sagði Mar-
grét.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Lof&Last
Fitusýrur Sýnt hefur verið fram á að eldislax framleiðir nægilegt magn af Omega 3.
n Mikilvægt er að skipuleggja fjármálin til að vera ekki orðinn blankur í lok mánaðar
F
jölmargir hafa ekki stjórn á
fjármálum sínum en fjárhags-
áætlanir, lífeyrissparnaður og
afborganir af fasteignalánum
og önnur greiðslubyrði get-
ur bugað margan manninn. Hér eru
nokkur góð ráð til að koma í veg fyr-
ir tóma vasa og yfirdrátt í lok mánað-
ar sem birtust á tv2.dk. Þar var leit-
að ráða hjá Ann Lehmann Erichsen
neytendahagfræðingi og Susanne
Arvard, ráðgjafa í fjármálum heimil-
anna, um hvernig við getum skipu-
lagt fjármálin.
Hafðu sérstakan
fjármáladag og
merktu hann í
dagatalið
Þetta er spurning
um að neyða sig
til að eyða tíma í að
skoða fjármálin og þú
þarft sjálf/ur að hafa frumkvæði að
því að taka þetta föstum tökum.
„Þú verður að verja þína eig-
in hagsmuni og það krefst þess að
þú eyðir tíma í fjármál þín. Þú tek-
ur frá tíma til að fara í klippingu og
af hverju ekki að taka frá tíma til að
skoða og skipuleggja fjármálin,“ segir
Ann Lehmann Erichsen.
Talið saman
Þetta er kannski
ekki mest
spennandi um-
ræðuefnið og þó
það hljómi bet-
ur að eiga róman-
tíska kvöldstund með
makanum þá er nauðsynlegt að ræða
fjármálin.
Verðsetjið draumana ykkar og
reiknið út hvernig og hvenær þið ætl-
ið að láta þá rætast. Þá getið þið sam-
mælst um hvaða aðferð skal nota og
hve miklu fé þarf að safna.
„Það er líka mikilvægt að fá að-
stoð við að skipuleggja flóknari fjár-
málaákvarðanir. Ef þú átt maka þá
skulu báðir aðilar taka þátt í að hugsa
um fjármálin og skipuleggja þau og
ekki láta annan aðilann sjá um það,“
segir Erichsen.
Svona byrjar þú
Skipulag er mikil-
vægt og ráðlagt er
að hafa öll skjöl
sem viðkoma fjár-
málum heimilisins
í möppu. Hægt er að
setja upp fjárhagsáætlun
í Excel en eins bjóða ýmsar síður upp
á slíka áætlun en þar má nefna me-
niga.is.
„Skoðaðu sparnaðinn þinn. Ef
hann stendur í núlli þá skal setja
sparnað í fjárhagsáætlunina. Lágar
upphæðir í sparnað eru betri en núll
og með því verða óvænt útgjöld ekki
óyfirstíganleg,“ segir Erichsen.
Árleg hreingerning
Gott ráð er að skoða vel ýmsar
áskriftir svo sem síma-, tímarita- og
líkamsræktaráskriftir einu sinni á
ári. Eins er mikilvægt að skoða þær
tryggingar sem þú
ert með.
„Reyndu að
semja við bank-
ann þinn einu
sinni á ári. Reyndu
að lækka ýmis gjöld
og að semja um betri
vexti á bæði inn- og útlánum. Sértu
ekki sátt/ur skaltu athuga aðra val-
kosti,“ segir Arvard.
8 góð ráð
1 Gerðu fjárhagsáætlun yfir allar tekjur og gjöld sem þú stillir
stöðugt af. Gjöld mega aldrei fara
yfir tekjur.
2 Gerðu áætlun um daglegan kostnað og haltu þig við hana. Til
dæmis er hægt að áætla að matur
fyrir vikuna kosti 20.000 krónur
og 5.000 krónur fari í gjafir og
skemmtun og svo framvegis.
3 Fáðu þér bankareikning þaðan sem öll föst útgjöld eru tekin.
Settu reikninga í greiðsluþjónustu.
4 Vertu með bankareikning fyrir dagleg útgjöld.
5 Bættu sparnaði við fjárhags-áætlun þín svo óvænt útgjöld
verði bærilegri.
6 Ef þú ert með lán skaltu fá yfirlit yfir þau. Borgaði afborganir alltaf
á réttum tíma.
7 Notaðu farsímann og heimabank-ann til að fylgjast með því hvert
peningarnir fara. Það er einfalt að
fylgjast með peningaútlátum í
heimabankanum.
8 Þurfir þú á láni að halda og bankinn segir nei er skynsamlegt að spyrja
hverjar ástæðurnar séu og hvað
þurfi til að bankinn láni þér.
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Bókhald Það vex mörgum í augum að halda bókhald yfir rekstur heimilisins. PHOTOS.cOM
Svona lætur þú
launin þín duga