Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2012, Blaðsíða 4
4 Fréttir 16. apríl 2012 Mánudagur
Greiða 1,5 milljarða
n Afgreiðsla sanngirnisbóta gengur framar vonum
Þ
að er verið að leggja loka-
hönd á Silungapoll en næst
á dagskrá er Jaðar. Fólk sem
var á Jaðri hefur frest til að
skila inn kröfum til 20. apríl,“ seg-
ir Guðrún Ögmundsdóttir, tengi-
liður vistheimila. Hún segir að af-
greiðsla sanngirnisbóta til handa
fólki sem sætti misgjörðum á
stofnunum eða heimilum gangi
vonum framar. Útlit sé fyrir að rík-
ið muni alls greiða út um einn og
hálfan milljarð króna. Um er að
ræða skattfrjálsar greiðslur sem
valda ekki skerðingu á lífeyri eða
bótum.
Maður, sem vistaður var á Sil-
ungapolli, hafði samband við DV í
síðustu viku og sagði að afgreiðsla
síns máls hefði dregist og dreg-
ist. Hann var orðinn langþreytt-
ur á biðinni enda hefði umfjöllun
um málið ýft upp gömul sár. Hann
gæti tæpast um frjálst höfuð strok-
ið fyrr en málið yrði til lykta leitt.
Guðrún segir að henni hafi fáar
sem engar kvartanir borist vegna
seinagangs við afgreiðslu mála en
sýslumaðurinn á Siglufirði fer yfir
og afgreiðir þær kröfur sem berast.
Hún tekur fram að málin séu oft
mjög flókin og erfið afgreiðslu, en
þrátt fyrir allt gangi eins og í sögu
að afgreiða kröfurnar.
Lög um sanngirnisbætur tóku
gildi hinn 28. maí 2010 en við
ákvörðun fjárhæðar er litið til al-
varleika ofbeldis eða illrar með-
ferðar þeirra sem vistaðir voru á
heimilum sem börn eða unglingar.
Hámarksfjárhæð bóta er sex millj-
ónir króna.
Laugardalslaug
lokuð í þrjá daga
Unnið er að miklum endurbót-
um á Laugardalslaug og vegna
framkvæmda verður lokað í þrjá
daga í þessari viku – frá deginum
í dag, mánudag, til miðvikudags.
Laugin verður opnuð á ný klukkan
8.00 sumardaginn fyrsta, fimmtu-
daginn 19. apríl. Í tilkynningu frá
Reykjavíkurborg eru gestir beðnir
velvirðingar á óþægindum sem
lokun hefur í för með sér.
Þrátt fyrir framkvæmdir und-
anfarna mánuði hefur Laugardals-
laug verið haldið opinni og segir
Logi Sigurfinnsson forstöðumaður
gesti hafa sýnt ótrúlega þolin-
mæði og skilning. Framkvæmdir
hafa gengið vel þrátt fyrir tíðar-
far, en tjaldað var yfir stóran hluta
framkvæmdasvæðis svo mögu-
legt væri að vinna verkið á þessum
árstíma. Meðal þess sem verður
gert meðan laugin verður lokuð er
að slá undan nýrri göngubrú, taka
að mestu niður vinnuaðstöðu og
yfirbreiðslur, mála potta, tengja
nuddpott og koma fyrir nýju ör-
yggishandriði. Laugin verður
einnig tæmd og þrifin.
Ánægð Guðrún segist nánast engar
kvartanir hafa fengið.
Breytingar á
Fréttatímanum
Jón Kaldal hefur selt hlut sinn
í Fréttatímanum og jafnframt
látið af starfi ritstjóra. Í tilkynn-
ingu kemur fram að aðrir hlut-
hafar hafi keypt hlut Jóns en eftir
breytinguna eru hluthafar Frétta-
tímans Teitur Jónasson, Valdimar
Birgisson, Óskar Hrafn Þorvalds-
son, Jónas Haraldsson og Har-
aldur Jónasson. Jónas Haraldsson
tekur við ritstjórastarfinu af Jóni
en hann er einn af stofnendum
Fréttatímans og hefur verið rit-
stjórnarfulltrúi. Þá hefur Sigríður
Dögg Auðunsdóttir verið ráðin
blaðamaður á ritstjórn blaðsins
en hún hefur víða komið við á ferli
sínum sem fjölmiðlakona, meðal
annars starfað á DV og á Frétta-
blaðinu.
F
járfestirinn Friðrik Hall-
björn Karlsson, sem er einn
af stærstu hluthöfum smá-
sölurisans Haga, greiddi
sér 300 milljónir króna í arð
út úr eignarhaldsfélagi sínu árið
2010. Félagið heitir Vattarnes ehf.
Þetta kemur fram í ársreikningi
eignarhaldsfélags Friðriks sem
skilað var til ársreikningaskrár rík-
isskattstjóra í ágúst í fyrra.
Friðrik og viðskiptafélagi hans,
Árni Hauksson, eiga saman fjár-
festingarfélagið Vogabakka sem á
um 8 prósenta hlut í Högum í gegn-
um samlagsfélagið Búvelli. Búvell-
ir eiga samtals 44 prósenta hlut í
Högum en aðrir hluthafar félags-
ins eru nokkrir lífeyrissjóðir, fag-
fjárfestasjóður Arion banka, Stefn-
ir, Tryggingamiðstöðin, Berglind
Jónsdóttir og Jón Diðrik Jónsson.
Árni er stjórnarformaður Haga og
Friðrik situr í stjórn félagsins.
Eignir upp á milljarð
Vattarnes, félag Friðriks Hallbjörns,
skilaði 30 milljóna króna hagnaði
árið 2010 og nam eigið fé félagsins
rúmum 855 milljónum króna í lok
sama árs. Eignir félagsins námu þá
rúmum milljarði króna en skuldirnar
aðeins um 180 milljónum króna.
Friðrik og Árni eru einna þekkt-
astir í dag fyrir fjárfestingu sína í
Högum en þar áður gátu þeir sér gott
orð fyrir viðskipti með Húsasmiðj-
una árið 2005. Þá seldu þeir hlut sinn
í byggingavöruversluninni til Baugs
fyrir metfé, um 3 milljarða króna
samkvæmt heimildum DV. Fram að
hruninu héldu þeir hins vegar að
sér höndum í fjárfestingum á Íslandi
en vörðu fjármunum sínum fyrst og
fremst í erlend, skráð hlutabréf. Eft-
ir hrun hafa þeir hins vegar vakið at-
hygli vegna fjárfestingarinnar í Hög-
um.
100 milljónir í arð
300 milljóna arðgreiðsla Friðriks
bætist við 100 milljóna króna arð-
greiðslu sem hann greiddi sér út úr
félaginu sínu árið 2010 vegna rekstr-
arársins 2009. Árni Hauksson greiddi
sér þá 350 milljónir króna út úr sínu
eignarhaldsfélagi, Klapparási. Árni
greiddi sér ekki arð út úr sínu eign-
arhaldsfélagi árið 2010 líkt og Frið-
rik gerði. Samanlagðar arðgreiðslur
þeirra tveggja nema því 750 milljón-
um vegna áranna 2009 og 2010.
Eignarhaldsfélag þeirra Friðriks
og Árna, Vogabakki, skilaði hagn-
aði upp á rúmlega 90 milljónir króna
árið 2010. Vogabakki á eignir upp
á rúmlega 1.800 milljónir króna og
skuldar lítið á móti þessum eignum,
rúmlega 120 milljónir króna. Félagið
er því afar vel statt. Miðað við hagnað
Haga á síðasta ári, hann nam tæpum
2 milljörðum króna fyrstu níu mán-
uði ársins 2011, mun staða Voga-
bakka og eignarhaldsfélaga þeirra
Friðriks og Árna, bara styrkjast á
næstunni. Hlutdeild þeirra í þessum
hagnaði Haga nemur um 150 millj-
ónum króna.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
n Sitja á milljörðum króna n 30 milljóna króna hagnaður árið 2010
hallbjörn tók sér
300 milljónir í arð
„Hlutdeild þeirra
í þessum hagn-
aði Haga nemur um
150 milljónum króna
750 milljóna arður Samanlagðar arð-
greiðslur út úr eignarhaldsfélögum Friðriks
Hallbjarnar Karlssonar og Árna Haukssonar
nema 750 milljónum króna á árunum 2009 og
2010. Friðrik tók sér 300 milljóna arð árið 2010.
Hluthafi í Högum Friðrik Hallbjörn
og Árni Hauksson eiga saman félagið
Vogabakka sem á 8 prósenta hlut í Högum.