Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2012, Page 10
10 Fréttir 16.apríl 2012 Mánudagur
A
rion banki og Landsbankinn
hafa afskrifað tæplega fimm
milljarða króna af skuldum
eignarhaldsfélagsins Kvos-
ar, móðurfélags Prentsmiðj-
unnar Odda og tengdra félaga. Fé-
lagið skuldaði 8,8 milljarða króna í lok
árs 2009. Afskriftirnar eru hluti af fjár-
hagslegri endurskipulagningu Kvos-
ar. Fyrri eigendur fyrirtækisins hafa
eignast það aftur eftir þessar afskriftir.
Þetta kemur fram í gögnum um fjár-
hagslega endurskipulagningu félags-
ins sem DV hefur undir höndum.
Gögnin eru aðgengileg á vefsvæði
Lánstrausts.
Stærsti eigandi Kvosar hefur verið
Þorgeir Baldursson, sem kenndur er
við prentsmiðjuna Odda, en hann er
forstjóri félagsins. Baldur, sonur hans,
er framkvæmdastjóri. Í fyrra, fyrir fjár-
hagslega endurskipulagningu Kvos-
ar, nam hlutur Þorgeirs í félaginu 26
prósentum. Þorgeir sat í stjórn Lands-
bankans á árunum fyrir hrunið 2008.
Um 250 starfsmenn starfa hjá Kvos
og Odda en samstæðan er með um 37
prósenta markaðshlutdeild á prent-
markaðnum á Íslandi. Tekjur Kvos-
ar námu um 4,6 milljörðum króna í
fyrra og er hagnaður félagsins fyrir
fjármagnsliði áætlaður á bilinu 300
til 350 milljónir. Eigið fé dótturfélaga
Kvosar nam um 3,3 milljörðum króna
í lok árs 2010.
Fóru í útrás
Kvos skuldsetti sig umtalsvert á ár-
unum fyrir hrunið, meðal annars
með uppkaupum á prentsmiðjum
í Austur-Evrópu. Árið 2006 keypti
Kvos meðal annars prentsmiðjuna
Infopress í Rúmeníu, stærstu prent-
smiðjuna þar í landi, og í janúar 2007
keypti Oddi prentsmiðuna Delta+ í
Búlgaríu, einu stærstu prentsmiðj-
una þar í landi.
Kaup Kvosar á Infopress voru
fyrsta skrefið í aukinni útrás fyrirtæk-
isins til annarra landa á árunum fyrir
hrun en fyrir rak félagið skrifstofu og
umbúðafyrirtæki í Bandaríkjunum
auk prentsmiðju í Póllandi. Í viðtali
við Morgunblaðið um það leyti sem
prentsmiðjan í Rúmeníu var keypt
sagði Þorgeir Baldursson að tæki-
færin væri að finna í Austur-Evrópu.
„Í austri eru markaðir á borð við Úk-
raínu og Búlgaríu mjög áhugaverð-
ir og fjölmörg tækifæri þar að finna.
Nú er að fylgja þessu eftir og hafa
augun opin fyrir nýjum tækifærum,“
sagði Þorgeir í viðtalinu. Í lok árs
2006 störfuðu tæplega 900 manns
hjá Kvos.
Landsbankinn afskrifaði 2,8
milljarða
Í skýrslu frá endurskoðendafyrir-
tækinu Deloitte sem þar sem rætt er
um fjárhagslega endurskipulagningu
Kvosar kemur fram að í árslok 2011
hafi skuldir félagsins við Landsbank-
ann numið tæplega 3 milljörðum
króna. Þessi skuldsetning var tilkomin
vegna láns upp á tæplega 16 milljónir
evra sem tekið var í maí árið 2006, um
það leyti sem útrás Kvosar stóð sem
hæst. Rúmlega 2,8 milljarðar króna af
þessum skuldum hafa nú verið afskrif-
aðar.
Orðrétt segir í skýrslu Deloitte um
afskriftir Landsbankans: „Kvos og
Landsbankinn hafa komið sér sam-
an um, að Landsbankinn breyti hluta
af skuldum Kvosar við Landsbank-
ann samkvæmt Lánssamningnum
í hlutafé og afskrifi hluta með þeim
skilmálum sem nefndir eru í samn-
ingi þessum.“ Landsbankinn breytti
rúmlega 181 milljón króna af þessum
skuldum í hlutafé og eftirstöðvarnar af
tæplega þriggja milljarða króna skuld-
um Kvosar við Landsbankann voru af-
skrifaðar.
4,2 milljarða skuldir verða 2,1
Í skýrslunni segir einnig að Arion
banki hafi afskrifað rúmlega 2,1 millj-
arð króna af 4,2 milljarða króna lánum
Kvosar við bankann. Um helmingur
skuldanna, 2,1 milljarður króna, var
endurfjármagnaður af Arion banka
auk þess sem Arion veitti Kvos lán til
að endurgreiða Íslandsbanka skuld
upp á rúmlega 330 milljónir króna.
Heildarskuldir Kvosar við Arion banka
eftir þessa endurfjármögnun nema því
rúmlega 2,1 milljarði króna.
Tæplega 319 milljónum króna,
nokkurn veginn sömu upphæð og fé-
lagið fékk til að endurfjármagna Ís-
landsbankalánið, var breytt í hlutafé
í Kvos sem Arion banki skráði sig fyr-
ir. Þá kemur fram í skýrslu Deloitte
að Arion banki hafi keypt hlut Lands-
bankans í Kvos á sama verði og hann
greiddi fyrir hlutafé með umbreytingu
á skuldum, eða rúmlega 181 milljón
króna. Eftir fjárhagslega endurskipu-
lagningu Kvosar var það því Arion
banki sem sat eftir sem eini hluthafi
Kvosar og var hlutafé félagsins 500
milljónir króna.
Kauptilboð „ótengdra“ aðila
Athygli vekur að í skýrslu Deloitte
kemur enn frekar fram að fyrir liggi
kauptilboð frá „ótengdum aðilum“
í allt hlutafé Kvosar. Orðrétt segir í
skýrslunni: „Jafnframt liggur fyrir
kauptilboð ótengdra aðila á öllum
hlutunum gagnvart Arion banka hf.
á nafnvirði hækkunarinnar eða kr.
500.000.000.“
Miðað við fyrirliggjandi gögn um
starfsemi virðist Kvos hins vegar
ekki hafa verið selt til ótengdra að-
ila. Samkvæmt hlutafélagaskrá Kvos-
ar, sem samþykkt var á stjórnarfundi
félagsins í janúar á þessu ári, er bróð-
ir Þorgeirs Baldursson stjórnarfor-
maður félagsins. Hann heitir Hilmar
Baldur Baldursson. Þorgeir er ennþá
framkvæmdastjóri félagsins og er
einnig með prókúruumboð þess.
Hilmar var áður óbreyttur stjórnar-
maður í Kvos. Stjórn Kvosar er sömu-
leiðis að mestu óbreytt.
Eiga félagið ennþá
Í grein í tímaritinu Frjálsri verslun
fyrr á árinu var fjallað um stærstu
fyrirtæki landsins. Þar var Kvos í 90.
sæti. Í umfjöllun tímaritsins kom
fram að Kvos væri nú í eigu eignar-
haldsfélagsins Oddamanna ehf. Í
umfjölluninni kom fram að félagið
væri í meirihlutaeigu fjölskyldu Þor-
geirs Baldurssonar. „Börn Baldurs
í þessu félagi eru Þorgeir, Hilmar,
Hildur og Eyþór ásamt konum og
börnum. Þau eru með meirihlutann í
Oddamönnum.“ Minnihlutaeigend-
ur eru ættingjar Björgvins Eyþórs-
sonar.
Félagið Oddamenn ehf. var stofn-
að í fyrra og var nafni félagsins breytt
í Oddamenn ehf. í desember, í sama
mánuði og gengið var endanlega frá
fjárhagslegri endurskipulagningu
Kvosar. Stjórnarmenn í félaginu eru
Hilmar Baldur Baldursson, bróðir
Þorgeirs, og Guðmundur R. Bene-
diktsson, fyrir minnihlutaeigend-
ur félagsins. Eignarhaldið á Kvos og
tengdum félögum virðist því ennþá
vera óbreytt.
Fyrri eigendur félagsins hafa
keypt Kvos, sem var með 4,6 millj-
arða tekjur í fyrra og EBIDTA upp á
300 til 350 milljónir, aftur á 500 millj-
ónir króna eftir 5 milljarða afskriftir.
„Langt og strangt ferli“
Hilmar Baldur Baldursson, stjórn-
arformaður Kvosar, segir að það
sé rétt að gömlu hluthafar Kvos-
ar hafi keypt félagið aftur af Arion
banka á 500 milljónir króna. „Jú,
það er rétt: Það eru gömlu hluthaf-
arnir sem gera það,“ segir Hilmar.
Hann segir að ein af fjölskyldun-
um sem áttu Kvos og Odda, ætt-
ingjar Gísla Gíslasonar, hafi ekki
tekið þátt í því að kaupa fyrirtæk-
ið aftur. Aðspurður hvort Kvos hafi
verið sett í sölumeðferð hjá Arion
banka segir Hilmar að niðurstað-
an hafi allavega orðið sú að Odda-
menn keyptu félagið. „Þetta er búið
að vera langt og strangt ferli,“ seg-
ir Hilmar sem vill annars lítið ræða
um fjárhagslega endurskipulagn-
ingu félagsins. Því liggur ekki fyr-
ir hvort söluferli hafi átt sér stað á
Kvos áður en það var selt aftur til
fyrri eigenda fyrirtækisins.
Ekki náðist í Þorgeir Baldursson á
sunnudaginn.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
n „Ótengdir aðilar“ eignast Kvos aftur eftir afskriftir n Fór í útrás til Austur-Evrópu
Eignast Odda
aftur Eftir
fimm milljarða
afskriftir „Það eru gömlu hlut-hafarnir sem gera það
Fimm milljarða afskriftir Gömlu
hluthafar Kvosar og Odda hafa eignast
fyrirtækið aftur eftir fimm milljarða króna
skuldaafskriftir hjá Arion banka og Lands-
bankanum.
Þorgeir Baldursson
Hluthafi og forstjóri Odda
sem meðal annars á
Kassagerðina.