Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2012, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2012, Side 12
12 Fréttir 16.apríl 2012 Mánudagur n Fjöldi Hollywood-verkefna til landsins á næstu mánuðum Stjörnurnar koma vegna ríkisstyrkja S tórstjörnur frá Hollywood munu streyma til landsins síðar á árinu. Ástæðan er sú að fjöldi kvikmynda úr kvik­ myndaborginni verður tek­ inn upp að hluta til hér á landi. Með­ al gesta sem von er á til landsins eru Tom Cruise, Morgan Freeman, Ben Stiller og helstu leikarar úr sjón­ varpsþáttaröðinni Game of Thrones. Má því gera ráð fyrir miklum stjörnu­ fans hér á landi á næstu mánuð­ um. Ástæðan er þó ekki bara fegurð landsins eða fjölbreytt landslag. Hagstætt að mynda á Íslandi Við gerð flestra kvikmynda er sá möguleiki fyrir hendi að fara á nokkra mismunandi staði til að klára sérhæfð verkefni sem þarfn­ ast ákveðins landslags eða birtu­ skilyrða. Ástæðan fyrir því að mörg þessara verkefna enda hér á landi er hagkvæmnin sem felst í tökum hér. Ríkið greiðir nefnilega til baka hluta þess kostnaðar sem leggja þarf út í við tökur og framleiðslu kvikmynda hér á landi. Mörg hundruð milljónir hafa verið endurgreidd kvikmynda­ framleiðendum sem tekið hafa stór­ myndir sínar hér á landi. Ástæðan fyrir því að þetta er gert er einmitt til að laða kvikmynda­ gerðarfólk til landsins og fá það til að setja peninga inn í íslenska hag­ kerfið. Fyrirtækin sem standa að baki kvikmyndagerðinni kaupa um­ talsverða þjónustu og vörur af Ís­ lendingum og íslenskum fyrirtækj­ um. Þannig er reiknað með því að það borgi sig fyrir ríkið að endur­ greiða kvikmyndafyrirtækjunum hluta kostnaðarins. Kerfið algjörlega sjálfbært Einar Hansen Tómasson, verkefn­ isstjóri hjá Íslandsstofu, segir end­ urgreiðslukerfið virka vel og vera ástæðuna fyrir því að jafn mörg verkefni skili sér til Íslands og raun ber vitni. „Þessi verkefni væru ekki að koma ef það væri ekki fyrir þessa endurgreiðslu,“ segir hann og segir Ísland vera í samkeppni við lönd sem veiti upp undir 40 prósenta endurgreiðslu á kostnaði. Íslensk stjórnvöld hafa hins vegar borgað til baka 20 prósent af kostnaði sem til fellur hér á landi. Í samskiptum hans við kvikmyndafyrirtæki hafi hann lært að endurgreiðsla eins og íslenska ríkið býður upp á sé orðin hluti af fjárhagsáætlun vegna gerð­ ar kvikmynda. „Það góða við þetta kerfi er að þú færð ekki 20 prósent fyrr en þú ert búinn að eyða 100 prósentun­ um. Þannig ef að þú eyðir milljarði færðu 200 milljónir til baka en þá eru þegar þúsund milljónir sem veltast inni í kerfinu,“ útskýrir Ein­ ar sem segir að útreikningar sýni að ríkið fái meira til baka í skatta og aðrar tekjur en það endurgreið­ ir. „Kerfið er sjálfbært – og rúmlega það,“ segir hann. Ekki liggur ljóst fyrir hversu mik­ ið ríkið þarf að endurgreiða vegna kvikmyndagerðar á árinu en það fer eftir því hversu margar mynd­ ir verði á endanum teknar upp að hluta hér á landi. Háar fjárhæðir n Samkvæmt fjárlagafrumvarpi ársins 2012 er gert ráð fyrir að iðnaðarráðu- neytið endurgreiði 153,5 milljónir króna vegna kvikmyndaframleiðslu hér á landi. Miðað við þá forsendu að aðeins 20 prósent séu endurgreidd kemur í ljós að gert er ráð fyrir að kvikmyndafram- leiðsla skili 767,5 milljóna fjárfestingu inn í íslenska hagkerfið. Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is „Þessi verkefni væru ekki að koma ef það væri ekki fyrir þessa endurgreiðslu Kemur í sumar Gert er ráð fyrir að Tom Cruise sé einn þeirra Hollywood-leikara sem koma hingað til lands í sumar. Mynd ReuteRs Prometheus Áætlaður framleiðslukostnaður: 19.097 milljónir króna n Kvikmynd leikstjórans Ridley Scotts, Prometheus, var tekin upp hér á landi í fyrra. Ríkið endurgreiddi um það bil 100 milljónir króna vegna myndarinnar. Myndin verður frumsýnd 8. júní næstkomandi. Oblivion Áætlaður framleiðslukostnaður: 12.731 milljón króna n Oblivion verður tekin upp að hluta til hér á landi síðar á árinu. Meðal leikara í myndinni eru Tom Cruise og Morgan Freeman. Gert er ráð fyrir að myndin muni kosta 100 milljónir dala, jafnvirði 12.731 milljónar króna, í fram- leiðslu en ekki nema hluti þess kostnaðar fellur til hér á landi. Myndin verður frum- sýnd á næsta ári. The Secret Life of Walter Mitty Áætlaður framleiðslukostnaður: Óvíst n Samkvæmt RÚV mun Ben Stiller vera á leið til landsins til að taka upp hluta kvikmyndarinnar The Secret Life of Walter Mitty. Ekki liggur fyrir hversu miklu á að eyða í framleiðslu myndarinnar og ekki hægt að draga neinar ályktanir um hversu miklu myndin mun skila inn í íslenska hag- kerfið. smásöluvísitala RV: Áfengi og föt seljast betur Velta í dagvöruverslun jókst um 4,8 prósent á föstu verðlagi í mars miðað við sama mánuð í fyrra og jókst um 10,3 prósent á breyti­ legu verðlagi. Leiðrétt fyrir árs­ tíðabundnum þáttum dróst velta dagvöruverslana saman í mars um 4,2 prósent frá sama mánuði í fyrra. Verð á dagvöru hefur hækk­ að um 5,3 prósent á síðastliðnum 12 mánuðum. Þetta kemur fram í nýrri smásöluvísitölu Rannsókn­ arseturs verslunarinnar. Sala áfengis jókst um 12,2 pró­ sent í mars miðað við sama mán­ uð í fyrra á föstu verðlagi og um 17,2 prósent á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum nam samdráttur í veltu áfengis í mars um 2,7 prósent frá sama mánuði í fyrra. Verð á áfengi var 4,5 prósentum hærra í mars síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra. Fataverslun jókst um 9,5 pró­ sent í mars miðað við sama mán­ uð í fyrra á föstu verðlagi og um 10,7 prósent á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Leiðrétt fyrir árs­ tíðabundnum þáttum jókst velta fataverslunar í mars um 2,9 pró­ sent frá sama mánuði í fyrra. Verð á fötum hækkaði um 1,0 prósent frá sama mánuði fyrir ári. Velta skóverslunar jókst um 6,1 prósent í mars á föstu verðlagi og um 21,4 prósent á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð fyrir ári. Verð á skóm hækkaði um 14,4 prósent frá mars í fyrra. Út­ söluáhrif virðast hafa varað eilítið lengur í fyrra en nú í flokki skó­ verslunar. Velta húsgagnaverslana jókst um 14,7 prósent í mars frá sama mánuði fyrir ári á föstu verðlagi og jókst um 20,3 prósent á breytilegu verðlagi. Verð á húsgögnum var 4,9 prósentum hærra í mars síð­ astliðnum miðað við sama mánuð í fyrra. Velta sérverslana með rúm jókst um 46,2 prósent frá sama mánuði í fyrra á föstu verðlagi en sé horft til fyrsta fjórðungs ársins er aukningin 1,5 prósent frá fyrra ári. Velta í sölu skrifstofuhúsgagna dróst saman um 24,7 prósent í mars síðastliðnum samanborið við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi. Sala á raftækjum í mars jókst um 20,0 prósent á föstu verðlagi og um 18,3 prósent á breytilegu verðlagi. Verð á raftækjum var 1,4 prósentum lægra en í mars 2011. Rangir áfangastaðir DV fór rangt með áfangastaði Iceland Express í úttekt um flug í síðasta helgarblaði. Réttir áfanga­ staðir félagsins eru: Alicante, Barcelona, Berlín, Basel, Billund, Bologna, Gautaborg, Edinborg, Kraká, Kaupmannahöfn, París, London og Varsjá. Blaðið biðst velvirðingar á rangfærslunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.