Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2012, Page 14
14 Erlent 16.apríl 2012 Mánudagur
Barnaníðingur á flótta
n Grunnskólakennari á lista yfir hættulegustu glæpamenn Bandaríkjanna
E
ric Justin Toth, þrítugur fyrr-
verandi kennari, er kominn
á tíu manna lista FBI, banda-
rísku alríkislögreglunnar,
yfir hættulega glæpamenn sem
enn ganga lausir. Eric lagði á flótta
árið 2008 þegar hann starfaði sem
grunnskólakennari í höfuðborg
Bandaríkjanna, Washington. Sam-
kennari hans fann grófar mynd-
ir af börnum í kynferðislegum eða
klámfengnum stellingum í mynda-
vél í eigu skólans. Í ljós kom að Eric
hafði notað myndavélina skömmu
áður og hóf lögregla þá rannsókn.
Eric lagði hins vegar á flótta áður en
ákæra var gefin út.
Hann er talinn hafa ekið til In-
dianapolis þar sem hann heimsótti
grunlausa foreldra sína. Í ágúst 2008
fannst bifreið hans við flugvöllinn
í Minneapolis og í honum fund-
ust grófar kynferðislegar myndir af
börnum. Lögregla fékk vísbendingu
um að Eric hefði sést í gistiskýli fyr-
ir heimilislausa í borginni Phoenix
árið 2009 en þegar lögregla fór á
staðinn var hann farinn. Síðan þá
hefur ekkert spurst til hans. Yfir-
völd í Maryland hafa einnig lýst eft-
ir honum vegna gruns um að hann
hafi framleitt barnaníðsefni.
FBI hefur heitið hverjum þeim
sem gefur upplýsingar sem leiða
til handtöku Erics hundrað þúsund
dölum, eða 12,7 milljónum króna.
Samkvæmt upplýsingum FBI er
Eric lýst sem „viðkunnalegum og
vel menntuðum manni sem kem-
ur vel fyrir“. Lögregla telur að hann
noti annað nafn en sitt eigið sem
hann notar til að komast í kynni við
börn. FBI leggur mikla áherslu á
að hafa hendur í hári hans en nafn
Erics fór á listann í staðinn fyrir
Osama bin Laden sem drepinn var
í maí í fyrra.
Hættulegur Eric Justin Toth hefur verið á flótta í fjögur ár. Hann er nú kominn á lista yfir 10
hættulegustu glæpamenn Bandaríkjanna.
Þ
að telst ekki til mannréttinda
að stunda sifjaspell. Þetta er
niðurstaða Mannréttinda-
dómstólsins í Strassborg í
óvenjulegu máli sem Patrick
Stübing, 35 ára Þjóðverji, höfðaði.
Patrick þessi, sem býr í borginni
Leipzig, hafði fjórum sinnum verið
fundinn sekur um sifjaspell af þýsk-
um dómstólum. Patrick og systir
hans, Susan Karolewski, eiga fjögur
börn saman og hafa verið elskendur
í áraraðir. Þau hafa lengi barist fyrir
því að lög gegn sifjaspelli í landinu
verði felld úr gildi. Barátta þeirra hef-
ur engan árangur borið og nú hefur
Mannréttindadómstóllinn tekið af öll
tvímæli, hafi þau á annað borð ein-
hver verið: Sifjaspell er bannað og
telst ekki til mannréttinda.
Þrjú ár í fangelsi
Í málflutningi sínum fyrir Mannrétt-
indadómstólnum sagði Patrick að lög
sem banna sifjaspell brytu í bága við
Mannréttindasáttmála Evrópu sem
kveður meðal annars á um friðhelgi
einkalífs og fjölskyldu. Fjölskipaður
dómurinn komst hins vegar að ein-
róma niðurstöðu. Patrick getur þó
áfrýjað úrskurðinum til æðra dóm-
stigs Mannréttindadómstólsins sem
yrði þá endanleg niðurstaða. Ekki
liggur fyrir hvort hann muni áfrýja
úrskurðinum, samkvæmt frétt þýska
blaðsins Der Spiegel.
Mál systkinanna hefur vakið tals-
verða athygli í Þýskalandi á undan-
förnum árum. Patrick hefur sem fyrr
segir fjórum sinnum verið dæmdur í
fangelsi fyrir sifjaspell og setið á bak
við lás og slá í samtals þrjú ár.
Nánari eftir móðurmissi
Patrick og systir hans ólust ekki upp
saman. Þegar hann var þriggja ára
var hann tekinn frá foreldrum sín-
um og komið fyrir á barnaheimili
eftir að faðir hans misnotaði hann
kynferðislega. Fjórum árum síðar,
þegar hann var sjö ára, var hann
ættleiddur af annarri fjölskyldu. Það
var svo ekki fyrr en á fullorðinsár-
unum, þegar hann var 24 ára, að
hann komst aftur í kynni við systur
sína sem þá var aðeins 17 ára. Eftir
að móðir þeirra lést urðu þau enn
nánari og urðu elskendur. Á árun-
um 2001 til 2005 eignuðust þau fjög-
ur börn en tvö þeirra eru fötluð.
Patrick hlaut fyrst dóm árið 2002
en þá var hann dæmdur í skilorðs-
bundið fangelsi. Systir hans var hins
vegar aldrei sakfelld þótt málin væru
einnig höfðuð gegn henni. Patrick
hefur látið hafa eftir sér að þýsk-
ir dómstólar hafi lagt líf fjölskyldu
hans í rúst. Systkinin búa ekki leng-
ur saman en þremur af fjórum börn-
um þeirra hefur verið komið í fóstur.
Fjórða barnið, það yngsta, býr hjá
móður sinni.
Þýsk systkini mega
ekki vera elskendur
n Úrskurðað í máli manns sem á fjögur börn með systur sinni„Á árunum 2001 til
2005 eignuðust
þau fjögur börn en tvö
þeirra eru fötluð.
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Elskendur Patrcik Stübing og
systir hans, Susan Karolewski,
eiga fjögur börn saman.
Skýr niðurstaða Mannréttindadómstóllinn í Strassborg komst að þeirri niðurstöðu að
sifjaspell teldist ekki til mannréttinda. MyNd REutERS
Frelsuðu
400 fanga
Um hundrað manna hópur her-
skárra íslamista réðst inn í fang-
elsi í norðvesturhluta Pakistans á
laugardag og frelsaði allt að 400
fanga sem þar afplánuðu dóma.
Samkvæmt frétt breska ríkisút-
varpsins, BBC, eru margir þeirra
taldir mjög hættulegir en í hópn-
um er meðal annars fangi sem
reyndi að ráða Pervez Musharraf,
fyrrverandi forseta Pakistans, af
dögum. Eftir innrásina sendu ta-
líbanar frá sér yfirlýsingu þar sem
þeir lýstu yfir ábyrgð. Mennirnir
sem réðust inn í fangelsið notuðu
meðal annars handsprengjur til
að sprengja upp lokuð hlið.
Blind kona
í bobba
Trish Vickers, 59 ára bresk kona,
lætur fátt stöðva sig þótt hún sé
blind. Vickers missti sjónina fyrir
sjö árum vegna sykursýki og ákvað
að skrifa bók um reynslu sína.
Vickers er ekki mjög tæknivædd
og því ákvað hún að skrifa bókina
með penna á blöð og láta son sinn
skrifa hana upp í tölvu. Syninum
brá í brún þegar hann ætlaði að
færa fyrstu 26 blaðsíðurnar inn í
tölvu því allar síðurnar voru tóm-
ar. Í ljós kom að blekið í pennan-
um sem Vickers notaði var búið.
Tæknideild lögreglu tókst hins
vegar að endurheimta efnið með
nýjustu tækni.
Viðvörunarkerfið
virkaði ekki
Fimm manns létust þegar ský-
strókur fór yfir bæinn Woodward
í Oklahoma um helgina. Nokkrir
skýstrókar gengu yfir svæðið um
helgina en ollu þó afar litlu tjóni
í samanburði við þann sem Wo-
odward mátti þola. Bæjarstjórinn
Roscoe Hill segir að viðvörunar-
kerfi sem á að vara fólk við yfirvof-
andi skýstrókum hafi ekki virkað
sem skyldi. „Það fór lítill skýstrók-
ur yfir fyrr um daginn og þá fór allt
af stað. En þegar þessi kom virk-
uðu sírenurnar ekki,“ segir Hill í
samtali við AP-fréttastofuna.