Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2012, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2012, Blaðsíða 17
Spurningin Þá er ég ham- ingjusöm Öll þessi smáatriði skipta máli Hrefna Rósa Sætran þrífst best undir álagi. – DVTobba Marinós undirbýr sig fyrir Hvannadalshnjúk. – DV Ekki við Össur að sakast „Nei, ég fór ekki.“ Birgitta Saga Jónsdóttir 17 ára nemi „Já, það var æðislegt.“ Fríða Ísberg 20 ára heimspekinemi „Nei, ég var heima að læra.“ Morgan Mary Þorkelsdóttir 17 ára nemi „Nei, ég þurfti að vinna.“ Leó Kristberg Einarsson 28 dyravörður og vélstjóri „Nei, of langt að fara.“ Sindri Þorsteinsson 18 ára nemi Fórstu á Aldrei fór ég suður? Ólafur konungur M ikil ógn steðjar nú að íslenskri þjóð þegar sótt er að herra Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Ís- lands, sem boðist hefur til að taka að sér embætti forseta áfram en launalaust og í hlutastarfi. Ólafur veit að þjóðin má alls ekki við því að missa hann. Hver á þá að stöðva áform ríkis- stjórnarinnar um að steypa Íslandi í fjár- hagslega ógæfu? Og hver á að sjá um að heiðra Íslands bestu syni og dætur af þeirri smekkvísi sem forsetinn er þekktur fyrir? Það lýsir frábærri framsýni hans að kraftaverkamaðurinn Sigurður Einarsson, stofnandi hins sáluga Kaup- þings, skyldi fá fálkaorðuna á sínum tíma fyrir frábærar viðskiptafléttur. Og allir íslensku útrásarmennirnir áttu innangengt á Bessastöðum vegna mikil- vægis þeirra. Ólafur Ragnar gerði fleira. Hann stöðvaði fjölmiðlalög Davíðs Oddssonar á sínum tíma. Og hann stöðvaði samn- inga um Icesave í tvígang. Og hann mun örugglega stöðva Icesave oftar ef færi gefst og segja Bretum og Hollendingum stríð á hendur. Þá mega þessar aumingj- ans þjóðir biðja fyrir sér þegar við send- um varðskipið Þór með nýju aðalvélina gegn þessum níðingaþjóðum. Það er sama hvar borið er niður í forsetatíð Ólafs Ragnars. Spor hans í ís- lenskri stjórnmálasögu eru djúp og skýr. Litli rakarasonurinn frá Ísafirði hefur svo sannarlega staðið sína pligt og verið þjóð sinni annað og meira en þeir vindhanar sem gagnrýna hann hæst. Ólafur Ragnar er enn á besta aldri og engin ástæða til annars en að hann verði jafngamall og páfinn í embætti. Og ekki má gleyma því að eiginkona hans, Dorrit, er enn á besta aldri og gæti þess vegna tekið við af bónda sínum. Svarthöfði mælir með því að Ísland verði konungsríki með upphaf sitt í Ólafi konungi Ragnari. Þá þurfum við ekkert að vesenast með kosningar þar sem stórslys gætu átt sér stað með því að forseti vor yrði felldur af lýð- skrumara. Við vitum hvað við höfum á Bessastöðum. Og okkur ber að viðhalda þeim styrk. Og það er líka svo gaman að eiga kóngafólk. Svarthöfði F ramkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins hefur þröngvað sér inn í málssóknina gegn Íslandi vegna Icesave. Frumkvæði að þessari málssókn áttu fulltrúar Noregs og Liechtenstein hjá ESA-stofnuninni sem á að fylgjast með því að markaðs- samningi Hins evrópska efnahags- svæðis sé fylgt. Það er kapítuli út af fyrir sig að fulltrúar Noregs og Liecht- enstein hafi meiri áhyggjur af varnar- viðbrögðum íslenskra skattgreiðenda vegna Icesave, en framferði Breta sem beittu okkur hryðjuverkalögum til að fá sínu framgengt! Nú hefur framkvæmdastjórn ESB lagst á sveifina með Bretum og Hol- lendingum. Það kemur til með að reyna á EFTA-dómstólinn eftir að Evr- ópusambandið hefur lýst því yfir hver niðurstaða þóknist því best í dóms- málinu gegn Íslandi!  Margir efuðust um að Evrópuríkin vildu yfirleitt dóm, því ætla mætti að ekki vildu þau fá fordæmi sem gæti valdið því að þeirra eigin skattborgarar yrðu gerðir ábyrgir fyrir afglöpum fjár- málafyrirtækja umfram það að koma upp tryggingakerfi eins og við gerðum. En nú er búið að breyta reglunum og ef til vill þykir Bretum og Hollend- ingum óhætt að fá dóma á grundvelli eldri reglugerða því þær hafi þá ekki sama fordæmisgildi og ella. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, sem sæti á í utanríkismálanefnd Alþingis, lýsti því yfir eftir fund í nefndinni um þetta mál að halda bæri aðgreindu dómsmálinu annars vegar og við- brögðum okkar hins vegar: „... en ég get sagt almennt um málið að ég dreg engan veginn í efa lagalega heimild ESB til að krefjast meðalgöngu og það er að mínu mati mikilvægt að við að- greinum hið lagalega og hið pólitíska í þessari aðgerð...“ Og hún bætti við: „Hvorki þing né þjóð geta látið eins og ekkert sé [...] Það er fullt tilefni til að bæði þingið endurskoði afstöðu sína og að þjóðin fái að skera úr um það hið allra fyrsta hvort henni yfirhöfuð geðjast að því að vera á leið inn í Evrópusambandið á þeim forsendum sem þegar blasa við.“ Þegar ég tek undir með þeim sjón- armiðum sem þarna koma fram er ég í reynd að lýsa því yfir að viðbrögð utanríkisráðherra, Össurar Skarp- héðinssonar, sem eru í samræmi við þetta séu rétt. Sumir vilja gera mikið úr því að tafist hafi að taka umræðu um málið í utanríkisnefnd Alþingis og sé um að kenna meintum vafasömum ásetningi utanríkisráðherra. Þetta er fráleit afvegaleiðing frá meginmál- inu. Hafi orðið óeðlileg töf – sem ég hef sannfærst um að er ekki af völdum utanríkisráðherrans – þá kom hún ekki að sök að mínum dómi. Niður- staðan hefði orðið sú sama. Hvað hinn lagatæknilega þátt varðar er brugðist við samkvæmt ráðleggingum verjenda Íslands og samdóma mati þess breiða teymis sem þeir styðjast við. Eftir stendur hitt, hvernig Íslend- ingar ætli að bregðast við þeirri póli- tísku ákvörðun Evrópusabandsins að blanda sér í málaferlin. Í mínum huga er verkefnið augljóst: Við eigum að setja niður tímamörk og ákveða hve- nær þjóðin fái milliliðalausa aðkomu að málinu.  Ég hef lengi talað fyrir því að þjóðin eigi að dæma sjálf um þær efnislegu niðurstöður sem liggja fyrir þegar kemur að þeim tímamörkum um viðræðulok sem íslensk stjórnvöld ákvarða. Þetta er vissulega tilefni til að við endurskoðum okkar hug til við- ræðuferlisins. Fyrst birt á ogmundur.is „ Þetta er vissulega tilefni til að við endurskoðum okkar hug til við- ræðuferlisins Heimsmeistaramót Það var hart tekist á um pökkinn í leik Króata og Nýsjálendinga á sunnudag á heimsmeistaramótinu í íshokkí sem fram fer í Reykjavík þessa dagana. Mynd Sigtryggur AriMyndin Umræða 17Mánudagur 16. apríl 2012 1 Milljónayfirdráttur fór í einkaneyslu Lögmaður Stefáns Hilmarssonar, fyrrverandi fjármálastjóra Baugs, segir að tugmilljóna yfirdráttarlán hans hafi meðal annars farið í einkaneyslu. 2 Óskaði eftir aðstoð lögreglu vegna konu sem vildi of mikið kynlíf Þjóðverji óskaði eftir aðstoð lögreglu eftir að kona, sem hann sængaði hjá, bað hann um of mikið kynlíf. 3 Seldi í Kaupþingi fyrir 4,6 milljarða Kaldbakur ehf., fjárfestingarfélag útgerðarfélagsins Samherja, seldi 0,8 prósenta hlut í Kaupþingi árið 2008. 4 Svona býr Breivik í fangelsinuMyndir sýna aðbúnað norska fjöldamorðingjans í fangelsinu í Ósló. 5 „Var embætti forseta Íslands misnotað í þágu útrásar- innar?“ Í nærmynd af Ólafi Ragnari Grímssyni í helgarblaði DV voru ummæli úr rann- sóknarskýrslu Alþingis rifjuð upp. 6 Heimskulegt að kjósa forseta núna Egill Helgason um komandi forsetakosningar. 7 Vatnsleki kom upp um dóp-framleiðslu Tilkynnt var um vatnsleka frá íbúð í Reykjavík á laugardag. Mest lesið á DV.is Allt svona skaðar Jón Hákon Magnússon almannatengill um fjöldapóstinn um Svavar Halldórsson. – DV Kjallari Ögmundur Jónasson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.