Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2012, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2012, Side 19
Neytendur 19Mánudagur 16.apríl 2012 Svona haldast bananar betri n Bananar geymast best við 12 til 14 gráður Þ að getur verið erfitt að finna bestu mögulegu geymsluað- stæður fyrir banana þar sem þeir geymast best við 12 til 14 gráður. Ísskápurinn er of kaldur og stofuhiti of hár. Það er verri kost- ur að hafa þá í ísskáp þar sem þeir grána og missa bragð og þótt þeir eyðileggist ekki beint þá missa þeir viss gæði við kuldann. Þegar þeir eru geymdir við stofu- hita þroskast þeir of hratt og því fáir staðir í húsinu þar sem hitastigið er tilvalið fyrir banana. Það eru helst þeir sem eru með kaldan kjallara eða kalda geymslu sem gætu fund- ið geymslustað fyrir banana. Sé epli geymt nálægt banana þroskast hann enn hraðar en ella. Ástæðan fyrir þessu er að epli gefa frá sér vaxtarhormón sem ber nafn- ið etýlen sem flýtir fyrir þroska ávaxta og grænmetis sem eru í nánd við eplin. Bananar eru sér- staklega viðkvæmir fyrir þessu og verða fljótt ofþroskaðir. Það er þó óþarfi að henda banönum sem eru komnir yfir það þroskastig sem hentar til átu því þá er alveg upplagt að nota þá þannig í ýmsa rétti og í brauð og kökur. Á síðunni hus-raad.dk er gefið ráð til að lengja endingartíma ban- ana við stofuhita. Þar segir að ef maður pakkar hverjum banana fyr- ir sig inn í pappír þá ættu þeir að endast örlítið lengur. gunnhildur@dv.is n Fyrirtækið er með ódýrustu umfelgun í öllum flokkum könnunarinnar T æplega 37 prósenta mun- ur er á verði á umfelgun á jeppadekkjum og 25 pró- senta munur á umfelgun á fólksbíladekkjum, sam- kvæmt óformlegri könnun DV. Höld- ur á Akureyri tekur mest fyrir um- felgun á fólksbílum, hvort sem um stálfelgur eða álfelgur er að ræða. Ódýrust er umfelgunin hins veg- ar hjá Kvikkfix í Kópavogi og þar er verðið einnig lægst á umfelgun fyrir jeppa. Max1 tekur mest fyrir umfelg- un á stálfelgum á jeppa en Pitstop fyrir álfelgurnar. Kynntu þér afslætti DV fékk uppgefin verð hjá níu fyrir- tækjum á umfelgun fólksbíladekkja annars vegar og 30“ jeppadekkja hins vegar. Auk þess eru tekin fram mismundi verð á ál- og stálfelgum. Sum fyrirtækjanna bjóða upp á af- slætti svo sem fyrir eldri borgara og félagsmenn FÍB og eru bíleigendur hvattir til að kynna sér hvar slíka af- slætti er að fá. Samkvæmt könnun sem verðlags- eftirlit ASÍ lét gera í síðustu viku var verðmunurinn allt að 83 prósent en taka skal fram að sú könnun náði yfir önnur fyrirtæki og fleiri stærðir jeppa- dekkja og er því ekki sambærileg. Sendum naglana í sumarfrí Nú ættu naglar að vera farnir und- an öllum ökutækjum en samkvæmt reglugerð um gerð og búnað öku- tækja má ekki nota keðjur og neglda hjólbarða á tímabilinu frá og með 15. apríl til og með 31. október. Undan- tekning er á þessari reglu ef veðurfar og akstursaðstæður bjóða ekki upp á að vera án nagla. Það getur þó verið dýrkeypt að draga það of lengi að skipta um dekk því undanfarin ár hefur lögreglan haft heimild til að sekta ökumenn um 5.000 krónur fyrir hvert nagla- dekk sem er undir bifreiðinni. Þeir sem enn keyra á negldum dekkjum eru því hvattir til að skipta um dekk sem fyrst. Pitstop Sólning Borgardekk Max1 KvikkFix Höldur Bílab. Benna Barðinn Klettur Fólksbíll Stálfelgur 5.679 kr. 5.890 kr. 5.490 kr. 6.552 kr. 5.200 kr. 7.005 kr. 5.995 kr. 5.890 kr. 6.400 kr. Álfelgur 6.409 kr. 5.890 kr. 5.490 kr. 7.292 kr. 5.200 kr. 7.005 kr. 6.447 kr. 5.890 kr. 6.400 kr. Jeppi 30“ Stálfelgur 10.183 kr. 7.645 kr. 8.990 kr. 10.281 kr. 6.700 kr. 8.518 kr. 7.997 kr. 10.435 kr. 7.850 kr Álfelgur 10.616 kr. 7.970 kr. 8.990 kr. 10.281 kr. 6.700 kr. 8.518 kr. 8.968 kr. 10.435 kr. 7.850 kr. Verð á umfelgun fólksbíla og jeppa Ekki draga naglana úr n Ekki er ráðlagt að láta draga naglana úr vetrardekkjum þar sem gúmmíblandan í vetrardekkjum er önnur en í sumardekkjum. Þetta segir Stefán Ásgrímsson, ritstjóri blaðs Félags íslenskra bifreiðaeigenda, en í samtali við DV síðasta vor sagði að hann að vetrardekk ættu að vera mjúk. „Þau eru þannig gerð að þau halda mýktinni þó ískalt sé í veðri. Þar með verða þau enn mýkri þegar hitnar í veðri og malbikið er heitt í sólinni. Dekkið verður of mjúkt og hemlunareiginleikar þess eru alls ekki nógu góðir,“ segir Stefán. Þar að auki sé ekki mikill sparnaður í því þar sem slitflötur vetrardekkja sé mýkri og þau endist því ekki eins vel. Stefán telur þetta því frekar vafasaman sparnað en segir að best sé að eiga tvo umganga og helst þá á felgum. Séu dekkin á felgum sé ekki svo dýrt að skipta og maður geti í rauninni gert það sjálfur. „Eitt sett af vetrardekkjum og eitt sett af sumardekkjum, það er skynsamlegast.“ „Þeir sem enn keyra á negldum dekkj- um eru því hvattir til að skipta um dekk sem fyrst. Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is KviKKFix ódýrast Nagladekkin burt Nú er tími sumardekkjanna kominn. Frá og með 15. apríl var bannað að aka um á negldum dekkjum. Bananar Þroskast of hratt við stofuhita. MyNd PHotoS.coM Gífurlegur verð- munur á dekkjum Verðmunur á sumar- og heils- ársdekkjum er mikill miðað við könnun sem verðlagseftirlit ASÍ hefur gert. Þetta kemur fram á heimasíðu ASÍ en þar segir að verð á 14, 15 og 16" sumar- og heils- ársdekkjum hjá söluaðilum víðs vegar um landið hafi verið kannað þann 9. apríl. Þá kom í ljós að mik- ill verðmunur er á milli þeirra, en mestur verðmunur í könnuninni var á 16" sumarhjólbarða fyrir meðalbíl, eða 76 prósent. Dekk- verk var oftast með lægsta verðið en Max 1 oftast með það hæsta. Verðlagseftirlitið bendir neyt- endum á að skoða heimasíðu FÍB til að finna nánari upplýsingar um gæði og öryggi hjólbarða. Komdu draslinu í verð Það er góð tilfinning að taka geymslur og skápa, sem eru fullir af dóti sem þú notar ekki, í gegn. Það léttir á þér eins og það léttir á heimilinu. Þetta skilar sér í heilmiklum tímasparnaði þar sem þú þarft ekki lengur að eyða miklum tíma í að róta í draslinu til að finna hlut sem þú leitar að. Um þetta er fjallað á 1001-spare- tips.dk. Þar segir að helsti kost- ur þess að taka til í geymslum og skápum sé þó að þú getur grætt á því. Nú til dags megi selja næstum hvað sem er á netinu og því tilvalið að koma hlutum, sem hafa legið í geymslu lengi, í verð. Þú græðir og kaupandinn fær hlutinn á góðu verði og því jákvætt fyrir alla. Nýtt líf jógúrtdósa Mikið magn umbúða fellur til á ís- lenskum heimilum en margt af því er hægt að endurnýta. Til dæmis má nota jógúrtdósir í margt eftir að innihaldið hefur verið klárað og þeir sem eru með græna fingur vita að jógúrtdósirnar eru fyrir- taks pottar fyrir nýgræðlinga. Þetta kemur fram á matarkarfan.is en þar segir að einnig megi nota mjólkurfernur í garðyrkjuna. Þá skuli klippa ofan af fernunum og nota sem framhaldsræktunarbeð þegar plönturnar hafa náð ákveð- inni stærð. Á vorin sé sérstak- lega sniðugt að setja niður fræ, til dæmis fræ af salati og öðrum jurtum sem gefa af sér æta ávexti. Sumarið er á næsta leiti og því tímabært að byrja að safna dósum og fernum. Eins og jógúrtdósirnar eru eggjabakkar einnig góðir til að sá í.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.