Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2012, Qupperneq 20
20 Lífsstíll 16. apríl 2012 Mánudagur
Fallegri með hverju árinu
Sumir verða einfaldlega fallegri með árun
um. Svo eru það þeir sem virðast einhverra
hluta vegna ekki eldast. DV heyrði í þrettán
Íslendingum sem tekist hefur að viðhalda
æskuljómanum og forvitnaðist um lykil
inn að eilífri æsku. Fegurð og æskuljómi
er vissulega huglægt. Sumir dást að útliti
þeirra sem eldast virðulega og hægt er að
lesa lífsreynslu úr hverri hrukku á meðan
aðrir hrífast af þeim sem virðast þeirrar
gæfu aðnjótandi að tíminn einfaldlega bítur
ekki á þá.
Nafn: Ágústa Johnson
Starf: Framkvæmdastjóri
Aldur: 49 ára
Ertu í betra formi núna en fyrir 5
árum?
„Áherslurnar í þjálfun minni hafa
breyst undanfarin ár. Ég hef lagt
meiri áherslu á styrktarþjálfun
með áherslu á djúpvöðvana í miðju
líkamans og teygjuæfingar, sem
hentar mér vel. Er því ekki frá því að
ég sé hreinlega talsvert sterkari í dag
en ég var fyrir 5 árum.“
Hvernig heldurðu þér í formi?
„Ég hreyfi mig auðvitað reglulega
allan ársins hring, kenni hjólatíma,
styrktartíma og HD fitness og spila
badminton með skemmtilegum
vinkonum og gæti hófs í mataræði.“
Býrðu yfir einhverju leyndarmáli
þegar kemur að útliti?
„Það er ekkert leyndarmál að
regluleg þjálfun, hófsemi í mataræði,
góður svefn og jákvætt hugarfar
gerir kraftaverk fyrir útlitið.“
Hvað finnst þér um skurðaðgerðir
í fegrunarskyni?
„Mér finnst viðmiðin í samfélaginu
vera orðin dálítið brengluð varðandi
fegurðarstaðla. Er ekki eðlilegasti
hlutur í heimi að eldast? Og væri
ekki veröldin heldur óspennandi
ef allir yrðu steyptir í sama mót?
En ef fullorðið fólk vill fara í slíkar
aðgerðir þá kemur það auðvitað
engum öðrum við. En mér finnst
a.m.k. vert að staldra við og hugsa
hvert við stefnum þegar ungar
stúlkur eru farnar að leggjast undir
hnífinn til að standast ímyndar
kröfur samfélagsins.“
Hvað má og hvað má ekki eftir
fertugsaldurinn?
„Því skyldum við hafa boð og bönn
fyrir og eftir fertugt? Aldur er svo
afstæður. Fólk, sem líður vel í eigin
skinni, hefur gott sjálfstraust og
hefur sinn persónulega stíl í útliti og
klæðaburði og klæðir sig huggulega í
samræmi við sitt vaxtarlag, er flott á
hvaða aldri sem er. Ég gef ekki mikið
fyrir gamaldags hugmyndir um að
allar konur yfir fertugt eigi að vera
með stutt hár og ganga í drögtum
sem ná niður fyrir hné. Ekki nema
þær kjósi það!“
Ertu ánægðari með útlit þitt í dag
en þegar þú varst um tvítugt?
„Heldurðu að ég muni hvað ég var
að hugsa um tvítugt? Ég hef alltaf
reglulega dottið í einhvern útlits
komplexabömmer eins og líklega
margir. En maður þroskast sem betur
fer og lærir smám saman að vera
bara sáttur við sjálfa sig og hugsa
frekar um að vera þakklát fyrir að
vera heilbrigð en að eyða orku í að
ergja sig yfir að vera ekki svona eða
hinsegin.“
Hvaða snyrtivörur eru í uppá
haldi?
„Uppáhaldsmerkin í húðvörum eru
Blue lagoonvörurnar. Mér finnst
alltaf góð tilfinning að bera á mig
þessi undursamlegu og einstöku
náttúrulegu efni og ég finn mikinn
mun til batnaðar á húðinni eftir að
ég fór að nota vörurnar. Og svo get
ég ekki verið án Mineralfarðans frá
Bare Essentials. Algjör snilld.“
Nafn: Svava Johansen
Aldur: 48 ára
Starf: Verslunarkona
Ertu í betra formi núna en fyrir 5
árum?
„Ætli ég sé ekki bara í svipuðu formi.
Vona það allavega.“
Hvernig heldurðu þér í formi?
„Ég drekk mikið vatn, sef mína átta
tíma, borða hollan og næringarríkan
mat og ekkert eftir klukkan 20 á
kvöldin, það tekst oftast. Og síðast en
ekki síst er það líkamsræktin, golfið og
göngutúrarnir með hundinn okkar.“
Býrðu yfir einhverju leyndarmáli
þegar kemur að útliti?
„Ég held að ef þú hittir jákvætt fólk
þá líti það yfirleitt vel út. Mér finnst
allt fólk sem er glaðlegt og jákvætt
líta vel út. Ég reyni að vera jákvæð
og glöð.“
Hvað finnst þér um skurðaðgerðir
í fegrunarskyni?
„Sjálf er ég svo mikill kjúklingur að ég
myndi sjálf ekki þora í neitt svoleiðis.
En það velur hver fyrir sig.“
Hvað má og hvað má ekki eftir
fertugsaldurinn?
„Þegar við eldumst þá verðum við
að huga meira að ýmsu. Klæðn
aður, klæða sig áfram töff en eftir
aldri, passa að fara ekki yfir strikið.
Mataræði – með aldrinum lærum
við hvað fer vel í okkur og hvað ekki
en við verðum að hlusta á líkamann
okkar og ekki síst svefninn – við
verðum að hvílast vel. Við megum
ekki misbjóða okkur með of litlum
svefni.“
Ertu ánægðari með útlit þitt í dag
en þegar þú varst um tvítugt?
„Ég er miklu ánægðari núna enda
þroskaðri og er ekki að rýna í þá
hluti sem ég var aldrei ánægð með.
Hef með aldrinum lært að meta
betur það sem var í lagi og lært að
sætta mig við hitt. Það byggir upp
sjálfstraust hjá manni. Ójá, maður
þroskast með aldrinum.“
Eyðir þú miklu í snyrtivörur?
Uppáhaldsmerki?
„Ætli ég eyði ekki svona í meðallagi
í snyrtivörur. Ég elska Chanel
make up, Kanebohreinsivörurnar,
Crabtree og Evelyn bodylínuna og
Guerlain Terracottabrúnkulínuna. Í
hárið nota ég mikið frá John Frieda,
það fer vel við mitt hár.“
Nafn: Jakob Frímann Magnússon
Starf: Tónlistarmaður
Aldur: 59 ára
Ertu í betra formi núna en fyrir 5
árum?
„Mjög svipuðu.“
Hvernig heldurðu þér í formi?
„Með göngum, sundi og stöku tíma í
ræktinni.“
Býrðu yfir einhverju leyndarmáli
þegar kemur að útliti?
„Að viðhalda gleðinni.“
Hvað finnst þér um skurðaðgerðir
í fegrunarskyni?
„Í góðu lagi fyrir þá sem það vilja. Hef
aldrei hugleitt slíkt sjálfur.“
Hvað má og hvað má ekki eftir
fertugt?
„Einkum að ganga eilítið hægar inn
um gleðinnar dyr.“
Ertu ánægðari með útlit þitt í dag
en þegar þú varst um tvítugt?
„Bæði og.“
Hvað eyðir þú miklu í snyrtivörur?
„Mjög litlu. Lyktarlaust rakakrem
fyrir svefninn er allt og sumt.“
Nafn: Þórólfur Árnason
Starf: Verkfræðingur og fyrrverandi
borgarstjóri
Aldur: 55 ára
Ertu í betra formi núna en fyrir 5
árum?
„Andlegt og líkamlegt form er í réttu
hlutfalli við innri ró, reglusemi og
lífsgleði.“
Hvernig heldurðu þér í formi?
„Geng, syndi, sef og vaki. Reyni að
gæta hófs í mat og drykk. Borða
allan mat og tek lýsi.“
Býrðu yfir einhverju leyndarmáli
þegar kemur að útliti?
„Stunda útiveru og hef aldrei lagst á
ljósabekk. Er fæddur með dökk gen,
verð nánast brúnn við að heyra góða
veðurspá.“
Hvað finnst þér um skurðaðgerðir
í fegrunarskyni?
„Skurðaðgerðir eiga rétt á sér sem
lækning og sem meðhöndlun við
slysum og sjúkdómum, ekki sem
útlitsbreyting.“
Hvað má og hvað má ekki eftir
fertugt?
„Það má allt sem gerir engum illt.
Betra að fækka aðeins heljarstökk
um, handahlaupum og tæklingum.
Mullersæfingarnar koma sterkar
inn.“
Ertu ánægðari með útlit þitt í dag
en þegar þú varst um tvítugt?
„Hef aldrei hugsað sérstaklega um
útlitið, lifi frekar eftir mottóinu; Útlit
er innri maður.“
Áttu þér uppáhaldssnyrtivöru?
„Sturtusápan í sundlaugunum og
rakspíraafgangar frá syninum eru
helstu snyrtivörurnar.“
Nafn: Svavar Örn
Starf: Hárgreiðslumaður á Senter
og útvarpsmaður í morgunþættinum
á K100,5.
Aldur: 37 ára
Ertu í betra formi núna en fyrir 5
árum?
„Nei, ég get ekki sagt það. Mér finnst
aðeins of gott að borða. Samt borða
ég hollari mat núna en áður og er
orðinn aðeins meðvitaðri. Ég rokka
mikið í vigt sem er alls ekki hollt.
Samt finnst mér alltaf flottara að
fólk sé með smá utan á sér. Þá er
minna um hrukkur.“
Hvernig heldurðu þér í formi?
„Ég er sko búinn að prufa ýmislegt.
Mér líður alltaf best þegar ég hreyfi
mig en ég er svo upptekinn að ég
á erfitt með að finna tíma. Best
þykir mér að fara út að ganga með
hundinn minn.“
Býrðu yfir einhverju leyndarmáli
þegar kemur að útliti?
„Það er ótrúlegt hvað góður svefn
getur gert mikið. Svo reyni ég að
hugsa vel um húðina mína en ég
nota eingöngu Kanebosnyrtivörur.“
Hvað finnst þér um skurðaðgerðir
í fegrunarskyni?
„Mér finnst þær dásamlegar, ekkert
að þeim. Ég er hlynntur bótoxi og
þessu öllu saman og það kemur mér
ekki á óvart ef snyrtistofur verða
farnar að bjóða upp á þetta innan
nokkura ára. En eins fallegt og mér
þykir að sjá konu sem hefur látið
hjálpa sér aðeins þá er jafn hræðilegt
að sjá konu sem hefur látið gera of
mikið af því.“
Hvað má og hvað má ekki þegar
fimmtugsaldurinn nálgast?
„Ég fer ekki lengur í ljós og reyni
frekar að setja á mig brúnkukrem.
Svo má alveg setja tappann í
flöskuna í einn mánuð – taka
meistaramánuð. Það gerir ótrúlega
mikið fyrir útlitið. Ég viðurkenni þó
að ég man ekki hvenær ég tók síðast
meistaramánuð. En hann kemur
vonandi fljótlega.“
Ertu ánægðari með útlit þitt í dag
en þegar þú varst um tvítugt?
„Ég var með allt sem tengdist útliti
og tísku á heilanum hér áður fyrr
en nú hef ég bara gaman af þessu.
Þetta skiptir mig ekki lengur svona
miklu máli. Það er alveg hægt að
koma mér í búðina í jogginggalla
og með úfið hár en það hefði aldrei
verið hægt hér áður fyrr. Ég er orðinn
afslappaðri í eigin skinni en hef lofað
sjálfum mér að losna við nokkur kíló.
Að borða hollt skiptir mig meira máli
en að hreyfa mig en að sjálfsögðu
líður mér mun betur þegar ég hreyfi
mig. En kannski er þetta bara allt
saman óskhyggja því ég er algjör
skyndbitafíkill.“
Hvaða snyrtivörur eru í uppá
haldi?
„Bronzinggelið frá Kanebo er í uppá
haldi. Það er alveg ótrúlegt hvað það
getur reddað manni. Snyrtivörur eru
ekkert síður fyrir karlmenn! Að mínu
mati mættu fleiri karlmenn jafna
húðlitinn og bera á sig brúnkukrem.
Það myndi nú ekki drepa þá. Svo er ég
Redkenkarl þegar kemur að hárinu.“
Nafn: Petrína Sæunn Úlfarsdóttir
Starf: Hagfræðingur
Aldur: 54 ára
Ertu í betra formi núna en fyrir 5
árum?
„Finn engan mun á forminu – það er
fantagott.“
Hvernig heldurðu þér í formi?
„Daglegar sundferðir, hóflegt
mataræði og mikið knús frá ástinni
minni.“
Hvað finnst þér um skurðaðgerðir
í fegrunarskyni?
„Það er allt í lagi með fegrunarað
gerðir ef það er eitthvert smotterí en
svona allsherjarstrekkingar bæta nú
yfirleitt ekki útlitið.“
Hvað má og hvað má ekki eftir
fertugsaldurinn?
„Í stríði og ástum er allt leyfilegt og
þá skiptir aldurinn ekki máli.“
Ertu ánægðari með útlit þitt í dag
en þegar þú varst um tvítugt?
„Miklu ánægðari.“
Eyðirðu miklu í snyrtivörur?
„Nei, það er helst að það renni á mig
æði í útlöndum. Uppáhaldsmerkin
eru EGF og Nivea.“
Nafn: Unnur Steinsson
Starf: Vörustjóri
Aldur: 49 ára
Ertu í betra formi núna en fyrir 5
árum?
„Fyrir 5 árum var ég 44 ára og ólétt
þannig að svarið er í báðum tilfellum
já, ég var allavega í nógu góðu formi
þá til að ganga með barn og í dag
nota ég sömu stærðir og ég notaði
áður en ég varð ófrísk þannig að ég
tel mig því vera í ágætis formi og
hver veit nema það fari batnandi.“
Hvernig heldurðu þér í formi?
„Ég stunda reglulega líkamsrækt,
reyni að fara allavega þrisvar í
viku í World Class. Svo stunda ég
hestasportið á fullu og það er í
senn líkams og heilsurækt. Ég fer
stundum í sund en þó ekki til að
synda heldur til að leika við yngsta
barnið mitt.“
Býrðu yfir einhverju leyndarmáli
þegar kemur að útliti?
„Nei, ég á engin leyndarmál þegar
kemur að útliti. Ég held að útlit sé
fyrst og fremst erfðatengt og maður
eigi að huga vel að heilsunni og því
sé rétt mataræði og hreyfing stór
partur af því að líta vel út.“
Hvað finnst þér um skurðaðgerðir
í fegrunarskyni?
„Ég hef séð konur sem hafa látið
sprauta einhvers konar fyllingum í
andlitið á sér eða látið strekkja á sér
húðina til að öldrun sjáist minna en
þegar frá líður verður þetta alltaf
meira áberandi og jafnvel meira
lýti en það var fyrir skurðaðgerð.
Ég væri allavega ekki til í að láta
krukka svona í andlitinu á mér. Hins
vegar ef um er að ræða augnloka
poka, óæskilega fæðingabletti eða
jafnvel æðahnúta þá eiga slíkar
skurðaðgerðir vissulega rétt á sér. Ég
er afskaplega stolt af mínum bros
hrukkum enda verið hátt í 49 ár að
safna þeim.“
Hvað má og hvað má ekki eftir
fertugt?
„Ég held að það sé fátt sem ekki
má eftir fimmtugt, hver og einn
verður nú finna sinn takt í því. Ég hef
allavega ekki litið svo á að maður
breytist eitthvað mikið eftir fertugt,
aldur er bara kennitala og því ætti
maður að gera það sem maður getur
svo lengi sem maður hefur heilsu og
getu til.“
Ertu ánægðari með útlit þitt í dag
en þegar þú varst um tvítugt?
„Ég var nú nokkuð ánægð með útlit
mitt þegar ég var tvítug enda notaði
ég það óspart sem vinnutæki. Ég
held ég hafi nú bara elst ágætlega,
allavega græt ég ekkert æskuljóm
ann í dag og er bara nokkuð sátt við
mig.“
Eyðirðu miklu í snyrtivörur?