Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2012, Síða 21
Lífsstíll 21Mánudagur 16. apríl 2012
Fallegri með hverju árinu
„Nei, en ég er svo heppin að í starfinu
hef ég fengið tækifæri á að prófa
það besta úr öllum þeim snyrtivörum
sem eru á markaðnum. Ég nota
alltaf góð krem því það er eitthvað
sem maður má ekki svíkja húðina
um – húðin er okkar stærsta líffæri
og þarf meiri raka eftir því sem
maður eldist. þetta á bæði við um
andlitið og líkamann. Á veturna nota
ég léttan farða sem fellur vel inn í
húðina en þekur ekki en á sumrin
nota ég aðeins dagkrem með vörn.
Svo er lykilatriði að eiga góðan
maskara, flottan varalit og kannski
góðan kinnalit líka.
Nafn: Sigríður Arnardóttir
Starf: Fjölmiðlakona
Aldur: 47 ára
Ertu í betra formi núna en fyrir 5
árum?
„Ég er í mun betra andlegu formi en
verra líkamlegu formi. Ástæðan er sú
að ég er orðin svo mikill lestrarhestur
að ég tek það fram yfir að lesa bók
en að hlaupa. Þó má geta þess
að ég er jafn liðug og þegar ég var
unglingur, stend á höndum, fer í brú
og splitt og ýmislegt fleira og hef
gaman af.“
Hvernig heldurðu þér í formi?
„Ég held mér í formi með því að
ganga mikið. Ég stunda markvissar
þakklætisgöngur sem ég segi frá í
nýju bókinni Laðaðu til þín það góða.
Og svo er ég í leikfimi hjá vinkonu
minni Önnu Borg í Heilsuborg. Það
er gott bæði fyrir líkama og sál. Við
förum saman með hópa í Heilsu
borgarferðir til Spánar og þar getur
maður borðað hollan mat, hreyft
sig og hvílt sig í viku. Það er algjör
draumur og næsta ferð verður 23.
maí.“
Áttu eitthvert leyndarmál þegar
kemur að unglegu útliti?
„Gott útlit held ég að fari eftir
erfðum og lífsstíl. Besta fegrunar
ráðið mitt er að ganga út í fiskbúð
nokkrum sinnum í viku. Þar slær
maður tvær flugur í einu höggi:
hreyfir sig og borðar hollt. Svo hef
ég mikla trú á vatni og „loftböðum“.
Það er að fara í sund, í útiklefa og
útisturtu og drekka mikið vatn.“
Hvað finnst þér um skurðaðgerðir
í fegrunarskyni?
„Ég hef enga sérstaka skoðun á
skurðaðgerðum í fegrunarskyni. Hver
og einn vegur og metur fyrir sig. En
þó held ég að ef maður er öruggur
með sig og sinnir sér andlega og
fæst við gefandi og göfug verkefni
þá sé maður ekki eins upptekin af
ytra útliti.“
Hvað má og hvað má ekki eftir
fertugt?
„Maður á bara að vera maður sjálfur
og hafa sinn stíl hvort sem maður er
tvítugur, fertugur eða áttræður. En
ég tel þó að svarti „ekkjubúningur
inn“ sem íslenskar konur velja sér
gjarnan geri ekki mikið fyrir okkur
norrænu konurnar. Svartur alklæðn
aður gerir drættina skarpari og gerir
konur stundum þreytulegri en ef þær
skarta fallegum litum, skella á sig
björtum varalit og þora að sjást.“
Ertu ánægðari með útlit þitt í dag
en þegar þú varst um tvítugt?
„Það er bara dagamunur á mér nú
og þegar ég var tvítug hvort ég er
ánægð með útlitið. Ef ég er ósátt
með mig hef ég ýmis ráð til að hressa
mig við. Enda hef ég skrifað töluvert
um það í nýju bókinni minni.“
Eyðirðu miklu í snyrtivörur?
„Nei en ég leyfi mér af og til dekur
á snyrtistofu. Ég hef bara engan
sérstakan áhuga á snyrtivörum. En
Dr. Hauscka vörurnar eru fínar því
þær eru umhverfisvænar og á góðu
verði.“
Nafn: Guðrún Gunnarsdóttir
Starf: Söngkona
Aldur: 49 ára
Ertu í betra formi núna en fyrir 5
árum?
„Ég er ekki í betra formi nú en fyrir 5
árum, er einmitt á leiðinni að fara að
gera skurk í því. Fyrsta mál á dagskrá
er að labba í vinnuna, og fá mér
minni matardisk, sneiða hjá súkku
laðinu o.s.frv. Engar öfgar samt.“
Hvernig heldurðu þér í formi?
„Ég geng hratt um ganga Ríkisút
varpsins, geng hratt út í bíl og geng
rösklega um matvörubúðirnar. Svo
gengur maður rösklega í húsverkin
þegar maður er í stuði, setur góða
músík í tækið og svona. Þetta
hjálpar allt.“
Hvað finnst þér um skurðaðgerðir
í fegrunarskyni?
„Mér finnst sorglegt þegar fólk fer í
fegrunaraðgerðir. Sjálfstraust fæst
ekki í fegrunaraðgerðum. Það kemur
með breyttu hugarfari og þroska. Ég
verð sorgmædd þegar ungar fallegar
stúlkur eru óánægðar með sig, það
er sóun á lífsgæðum. Ég þekki konur
á mínum aldri sem líta mjög vel út
en hafa verið óánægðar með sig frá
því ég kynntist þeim á unglingsaldri.
Þær eru alltaf ósáttar við eitthvað,
alltaf einhver fimm kíló sem þær
eru að berjast við. Þvílík orka sem
fer í að rífa sig niður á þennan hátt
áratugum saman.“
Hvað má og hvað má ekki eftir
fertugsaldurinn?
„Allt má eftir fertugt. Mér finnst lífið
alltaf skemmtilegra og skemmti
legra með hverju árinu. Maður er
alltaf að læra eitthvað nýtt og nýtur
lífsins meir og meir.“
Ertu ánægðari með útlit þitt í dag
en þegar þú varst um tvítugt?
„Já, ég er mun ánægðari með mig
nú en þegar ég var tvítug. Ég met
sjálfa mig á annan hátt. Kynþokki
felst ekki í kílóum og fegurð fer ekki
eftir aldri. Ég reyni að vera glöð og
njóta þess að vera á lífi, vera með
fólkinu mínu, sinna vinum mínum,
vera jákvæð, taka sjálfa mig ekki of
hátíðlega. Þetta tekst auðvitað ekki
nógu oft, en á meðan ég reyni og
legg mig fram er maður að batna.“
Notarðu mikið af snyrtivörum?
„Kanebo er mitt uppáhaldsmerki,
en ég nota alls ekki mikið af
snyrtivörum, mætti örugglega nota
meira!“
Áttu eitthvert leyndarmál þegar
kemur að útlitinu?
„Ég er ennþá bara svo hissa yfir
að hafa verið beðin um að vera í
umfjöllun um æskuljóma að mér
dettur ekkert í hug sem gæti flokkast
undir leyndarmál. Kannski hefur sá
eiginleiki minn, að ég er oft soldið
hissa, viðhaldið einhvers konar
æskuljóma.“
Nafn: Gunnlaugur Briem
Starf: Trommari
Aldur: 50 ára
Ertu í betra formi núna en fyrir 5
árum?
„Svipuðu formi. Sennilega betra á
margan hátt, þar sem mataræði
hefur breyst mikið síðastliðin ár.“
Hvernig heldurðu þér í formi?
„Geri talsvert kraftjóga 20–25
mínútur á dag, svo slökunarteygjur
á kvöldin þegar ég get. Hleyp, syndi,
geng og er meðvitaður um djúpa
öndun sem hefur afeitrandi áhrif. Tek
ræktina líka inni á milli.“
Áttu eitthvert leyndarmál þegar
kemur að unglegu útliti?
„Já, ég bý yfir leyndarmálum sem
verða leyndarmál enn um sinn.
Kemur kannski í bókinni. Núna fimm
orð: Öndun, vatn, jóga, gæðasvefn,
hollt mataræði. Ef menn vilja stunda
hugleiðslu inni á milli er það líka
snilld. Minni Facebook, meiri svefn,
eða vera með fólkinu sínu. Svo eins
og maðurinn sagði: „Move more, eat
less“ (Dean P.)“
Hvað finnst þér um skurðaðgerðir
í fegrunarskyni?
„Hef ekki sérstakan áhuga á því
nema ef fólk er afmyndað á einhvern
hátt er sjálfsagt að skoða það. Mér
finnst þekktir einstaklingar hafa
farið frekar flatt á þessu aðgerða
veseni. Sjáðu mömmu hans
Stallone!“
Hvað má og hvað má ekki eftir
fertugt?
„Áfengi í hófi. Tóbak ÚT. Stress ÚT.“
Ertu ánægðari með útlit þitt í dag
en þegar þú varst um tvítugt?
„Það koma dagar þar sem maður
lítur út eins og Quasimodo og svo
aðrir dagar þar sem maður er eins
og Bowie á yngri árum. Má ekki
panikkera samt. Venjulega ef maður
sefur nóg og vel þá hverfa þessi
þreytumerki á manni.
Ef menn og konur fara eftir því sem
ég sagði hér áðan, þá sést það á
útlitinu fyrst.“
Eyðirðu miklu í snyrtivörur? Og
áttu þér uppáhaldsmerki?
„Nota bara rakakrem framan í mig,
helst á hverjum degi og þá eitthvað
organik. Hef ekkert vit á merkjum
nema í trommum.“
Nafn: Sólveig Eiríksdóttir
Starf: Hráfæðikokkur
Aldur: 51 árs
Ertu í betra formi núna en fyrir 5
árum?
„Ætli ég sé bara ekki í svipuðu formi.“
Hvernig heldurðu þér í formi?
„Ég fer í ræktina tvisvar í viku, fer í
göngutúra í Laugardalnum eins oft
og ég get, drekk mikið af grænum
djúsum og sjeikum og er á léttu en
næringarríku mataræði. Ég stend
líka á haus á hverjum degi og síðast
en ekki síst þá hugleiði ég daglega.“
Býrðu yfir einhverju leyndarmáli
þegar kemur að útliti?
„Að bursta húðina daglega (allan
líkamann) og nota kókosolíu bæði á
andlit og líkama. Ég nota aldrei meik
og bara lífrænar snyrtivörur.“
Hvað finnst þér um skurðaðgerðir
í fegrunarskyni?
„Ég kýs að leyfa lífinu að elda mig –
aðrir þurfa að velja fyrir sig.“
Hvað má og hvað má ekki eftir
fertugt?
„Allt sem klingir tærum tóni í inn
sæinu má.“
Ertu ánægðari með útlit þitt í dag
en þegar þú varst um tvítugt?
„Já, því tíminn hefur kennt manni
að hin raunverulega fegurð kemur
innan frá og það eru engin krem
sem bjarga manni. Sáttin við sjálfan
sig er stærsti sigurinn og stærsta
fegurðarleyndarmálið.“
Notarðu mikið af snyrtivörum?
„Ég kaupi RAWsome varalit, sem er úr
kakósmjöri og með lífrænum litar/
ilmefnum, maskara frá Dr. Hauska
og restina frá Sóley organics sem er
algjörlega uppáhalds hjá mér.“
Nafn: Sigríður Klingenberg
Starf: Spákona
Aldur: 52 ára
Ertu í betra formi núna en fyrir 5
árum?
„Miklu betra formi. Bæði andlega og
líkamlega.“
Hvernig heldurðu þér í formi?
„Ég borða ótæpilega af andoxunar
efninu Metasys sem er kjarninn af
grænu tei. Ég er þessi lata týpa sem
reynir að finna auðveldustu leiðina
og þetta var hún. Svo tek ég lífinu
ekki svo alvarlega því maður kemst
ekki lifandi frá því.“
Býrðu yfir einhverju leyndarmáli
þegar kemur að útliti?
„Ég hef alltaf notað Niveakrem og
ég hef má segja aldrei farið í ljós. Ég
myndi ekki nenna því. Þegar ég var
17 ára í útlöndum setti ég handklæði
fyrir andlit mitt er ég var í sólbaði. Ég
er frekar óholl týpa hvað mataræði
snertir en borða allt með glöðu geði.
Þegar ég fæ mér súkkulaði segi ég;
súkkulaði er svo grennandi, og það
hefur áhrif! Ekki vera að burðast með
móral yfir öllu.“
Hvað finnst þér um skurðaðgerðir
í fegrunarskyni?
„Sumir þurfa að láta fjarlægja poka
yfir augum en sjálf myndi ég reyna
allar aðrar aðferðir fyrst. Ég er ekki á
móti þessu fyrir þá sem þora.“
Ertu ánægðari með útlit þitt í dag
en þegar þú varst um tvítugt?
„Ég er ánægðari með degi hverjum
og elska að vera á þessum aldri. Ég
vel vini sem gefa frá sér jákvæðan
og góðan kraft, það hefur góð áhrif
á útlitið. Ef þú hefur áhyggjur af
aldrinum hefur aldurinn áhyggjur
af þér.“
Nafn: Anna Gulla Rúnarsdóttir
Starf: Fatahönnuður
Aldur: 55 ára
Ertu í betra formi núna en fyrir
5 árum?
„Nei, ég var í betra formi fyrir 5
árum. Það er eitthvað sem ég hef
áhuga á að bæta úr.“
Hvernig heldurðu þér í formi?
„Ég reyni að hreyfa mig eftir
föngum. Hjólhesturinn er vinsæll
þessa dagana. Garðverkin eru
heilsubót fyrir líkama og sál.“
Býrðu yfir einhverju leyndar-
máli þegar kemur að útliti?
„Þetta er ekkert leyndarmál,
einhver blanda af upplagi og
lífsstíl. Ég reyni að gæta hófsemi
í lifnaðarháttum. Jákvæðni og
húmor gera líka kraftaverk.“
Hvað finnst þér um skurðað-
gerðir í fegrunarskyni?
„Ég aðhyllist ekki óþörf inngrip í
líkama fólks. Lýtalækningar eru
fínar til að bæta lífsgæði fólks
með lýti vegna vansköpunar,
sjúkdóma eða slysa.“
Hvað má og hvað má ekki eftir
fertugsaldurinn?
„Það sama og fyrir hann. Það
verða engin skörp skil um
fertugsaldurinn nema maður vilji
að svo sé. Sumir nota tímamót
til að breyta til. Það er líka í fínu
lagi.“
Ertu ánægðari með útlit þitt
í dag en þegar þú varst um
tvítugt?
„Nei, ekki beinlínis. En ekkert
mikið óánægðari heldur. Ég
gengst ekkert yfirgengilega
upp í eigin útliti. Ég lít svo á að
ef maður nýtur heilsu sé það
þakkarvert, alls ekki sjálfsagt.“
Eyðirðu miklu í snyrtivörur?
Uppáhaldsmerki?
„Nei, ekki mjög. Uppáhaldsmerk
ið mitt er Maybelline og sérstak
lega maskararnir og hyljararnir.
Líka L‘Oreal, Youthcodelínan.“