Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2011, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2011, Page 20
20 | Fókus 29. júní 2011 Miðvikudagur Stuðið og gleðin enn til staðar FM Belfast gefur nú út aðra breið- skífu sína; Don’t want to sleep sem fylgir eftir hinni mjög svo vel heppn- uðu How to make friends. Sú plata kom mikið á óvart þar sem fáir höfðu heyrt um hljómsveitina þá. Þegar platan kom út seldist hún upp aft- ur og aftur og sveitin naut mikillar velgengni í kjölfarið. Það sem helst hreif hlustendur var einfaldleiki og taumlaus gleði undir afar dansvæn- um takti. Á þessari plötu er engin breyting þar á. Einfaldleikinn, stuðið og gleðin eru enn til staðar, en lögin sjálf eru þó ekki alveg eins góð. Það eru lög þarna sem hefðu sómt sér vel á fyrri plötunni og geta því klárlega flokkast undir „hittara“, eins og t.d. lög 1, 7 (besta lag plötunnar og í raun þess virði að kaupa plötuna bara út af því) og 8 sérstaklega. Einnig eru lög 2 og 6 góð. Plötunni fylgir góð stemning í heild sinni. Það er hægt að setja hana á og láta hana rúlla í partíi og það er góð stemning allan tím- an. Stundum eru lög- in sett saman af kafla sem er æðislegur og svo kafla sem er í raun leiðinlegur, lög 9 og 10 eru dæmi um það. Ef maður væri í partíi myndi maður bara heyra góða kaflann en því mið- ur þegar setið er og hlustað þá hefur leiðinlegi kaflinn yfirhöndina. Ég er þó nokkuð viss um að á tónleikum verða öll lög plötunnar að „hitturum“ þar sem FM Belfast er eitt besta „live“ band á Íslandi í dag. Textarnir eru oft mjög góðir og skemmtilegir og alveg merkilegt að þegar manni finnst text- inn ekki vera góður þá leiðir maður það algjörlega hjá sér og það bitnar ekkert á laginu. Ætli það sé ekki einhver ákveðin snilld í því!? Það hefði verið erfitt og í raun ómögulegt að toppa fyrri plötuna en þau komast ansi nálægt því að jafna hana að gæðum en þó vantar örlítið upp á. Ég mæli þó með því að festa kaup á plötunni, þó ekki nema bara til að þekkja lögin þegar þið farið að sjá þau flutt „live“. L istagallerí háloftanna er lista- sýning í formi póstkortabókar sem seld er um borð í vélum Iceland Express og í verslun- um Eymundsson. Bækurnar koma út þrisvar á ári, í janúar, maí og sept- ember. Þrír íslenskir listamenn birta verk sín í bókunum en það eru þau Æsa Sigurjónsdóttir og Þorvaldur Þorsteinsson sem velja listamennina hverju sinni. Allur ágóði af sölu bók- anna rennur í Lista- og menningar- sjóð Iceland Express en sjóðurinn mun styrkja íslenska listamenn er- lendis. Vonast er til að fyrsta úthlut- un úr sjóðnum verði í janúar á næsta ári. Vera Pálsdóttir á verkin í fyrstu bókinni sem kom út á dögunum. Vera er hvað þekktust fyrir tískuljós- myndir en ákvað að ögra sjálfri sér með því að einbeita sér að náttúru Íslands að þessu sinni og þetta er út- koman. M y n d ir v er a p á lS d ó t ti r Ísland séð með augum tísku- ljósmyndarans Halldór Laxness og tónlistin Í þessari tónleikadagskrá fá áhorf- endur að kynnast ævi og verkum nóbelskáldsins í gegnum lög. Mörg af þekktustu íslensku sönglög- unum eru samin við ljóð og texta nóbelskáldins og tónlist var mikill áhrifavaldur í lífi hans. Lögin eru sungin á íslensku en kynning fer fram á ensku. Tónleikarnir hefj- ast klukkan 17 og aðgangseyrir er 3.000 krónur. Lilja skrifar bók „Ég er að skrásetja sögu konu sem stóð í forræðisdeilu,“ segir leikkon- an og blaðamaðurinn Lilja Katrín Gunnarsdóttir. Lilja starfar sem blaðamaður á Séð og heyrt auk þess að eiga mann og dóttur á öðru ári. Hún segir að þess vegna sé tími til bókaskrifa ekkert allt of mikill. „Þetta krefst skipulagningar en ég skrifa nokkrar blaðsíður á kvöldin stundum,“ segir hún. Lilja segir óvíst hvenær bókin, sem er hennar fyrsta, komi út en að mögulega verði það um jólin. Ný umboðs- skrifstofa Sett hefur verið á laggirnar ný umboðsskrifstofa sem ber nafnið Projekta. Umboðsskrifstofan kem- ur til að með sérhæfa sig í ráðgjöf og útflutningi tónlistar. Að henni standa John Rogers sem er stofn- andi Brainlove-útgáfunnar, Vasilis Panagiotopoulos og Hildur Maral Hamíðsdóttir. Þau hafa öll starfað lengi innan ólíkra sviða tónlistar- geirans. Þau verða með alls kyns bönd á sínum snærum. Nýlega gekk Apparat Organ Quartet til liðs við þau en plata þeirra mun koma út í Evrópu í september. Hljóm- sveitin stefnir að því að fylgja plöt- unni eftir með tónleikahaldi víða í Evrópu í kjölfarið. Don’t want to sleep FM Belfast Útgefandi: Kimi Records Hljómplata Bjarni lárus Hall „Hittara“-væn plata Það eru nokkrir góðir smellir á plötunni þó það vanti örlítið upp á til að toppa fyrri plötu hljómsveitarinnar. M y n d K r iS ti n n M a g n Ú SS o n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.