Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2011, Blaðsíða 24
24 | Sport Umsjón: Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is 29. júní 2011 Miðvikudagur
Nýliðarnir styrkja sig í félagaskiptaglugganum:
Magnús Páll samdi við Víking
Magnús Páll Gunnarsson, framherj-
inn kröftugi úr Breiðabliki, samdi á
þriðjudaginn við Nnýliða Víkings í
Pepsi-deildinni. Magnús Páll hefur
spilað í neðri deildum Þýskalands
undanfarin ár en hann lék síðast
með uppeldisliði sínu, Breiðabliki,
árið 2008.
Félagaskipti Magnúsar eru kær-
komin búbót fyrir Víkinga. Hann get-
ur þó ekki hafið leik með liðinu fyrr
en 15. júlí þegar félagaskiptaglugg-
inn opnast. Þá er framherjinn Stefán
Örn Arnarsson sem spilað hefur með
Keflavík og ÍA undanfarin ár einnig
verið að æfa með liðinu en hann er
uppalinn Víkingur og spilaði síðast
með liðinu í 1. deildinni árið 2005.
Víkingar voru einnig með banda-
rískan leikmann í sigtinu en óvíst er
hann gangi í raðir liðsins.
Magnús Páll Gunnarsson er
stór og sterkur framherji sem hlaut
bronsskóinn tímabilið 2007 þegar
hann skoraði átta mörk fyrir Kópa-
vogsliðið í sautján leikjum. Eitt þeirra
marka skoraði hann gegn Víkingi á
Víkingsvelli. Hann á að baki 113 leiki
fyrir Breiðablik í deild og bikar en
í þeim hefur hann skorað 14 mörk.
Samkvæmt heimildum DV hafði ÍBV
áhuga á Magnúsi Páli en hann er nú
genginn í raðir nýliðanna úr Foss-
voginum.
Víkinga sárvantar framherja en
liðið hefur aðeins skorað fimm mörk
í fyrstu átta leikjum Pepsi-deildar-
innar. Helgi Sigurðsson er meiddur
og hefur verið frá eftir að deildin og
bikarinn fóru aftur að stað eftir hléið
sem gert var vegna þátttöku U21 árs
liðsins á Evrópumótinu í Danmörku.
Björgólfur Takefusa meiddist einnig
illa á liðþófa fyrir hléið og er ennþá
frá. Hefur hinn sautján ára gamli
Viktor Jónsson byrjað í framlínunni
síðustu tvo leiki Víkinga.
Fossvogspiltar hafa ekki unnið
leik í deildinni frá því í fyrstu um-
ferð þegar þeir höfðu betur í nýliðas-
lagnum gegn Þór á heimavelli, 2–0.
Í þeim leik skoruðu bæði Helgi Sig-
urðsson og Björgólfur Takefusa einu
mörk sín í sumar. Eftir það hefur Vík-
ingur spilað sjö leiki í deild og tvo í
bikar og aðeins unnið einn þeirra,
gegn þriðju deildar liði KV í Valitor-
bikarnum.
tomas@dv.is
Kemur fyrsti sigur HK?
n Tveir leikir fara fram í 1. deild
karla í fótbolta á miðvikudags-
kvöldið klukkan 20.00. HK heim-
sækir Hauka að
Ásvöllum en
HK er rótfast á
botni deildar-
innar með að-
eins tvö stig eftir
átta leiki. Þurfa
HK-ingar heldur
betur að fara að
vinna sinn fyrsta
leik en Haukar eru í 3. sæti deildar-
innar. Á sama tíma taka Ólafsvík-
ingar á móti KA en þar berjast liðin í
níunda og tíunda sæti deildarinnar.
Er því von á hörkubaráttu í Ólafsvík.
Selfyssingar
halda vestur
n Áttunda umferð 1. deildar klár-
ast á fimmtudagskvöldið en hún
hefst klukkan 19.00 með leik BÍ/
Bolungarvíkur
og Selfoss á Ísa-
firði. Grótta fær
það hlutskipti
að mæta topp-
liði ÍA sem hefur
valtað yfir hvern
andstæðinginn
á fætur öðrum
og er á góðri leið
með að vinna sér aftur inn sæti í
Pepsi-deildinni. Þá tekur ÍR á móti
Þrótti í Breiðholtinu og Leiknis-
menn sem hafa enn ekki unnið leik
fara í heimsókn í Grafarvoginn og
mæta Fjölni. Allir þessir leikir hefj-
ast klukkan 20.00.
KR heldur til Færeyja
n KR-ingar spila á fimmtudags-
kvöldið fyrri leik sinn í 1. umferð
forkeppni Evrópudeildarinnar gegn
færeyska liðinu
ÍF frá Fuglafirði.
Fyrri leikurinn
verður spilað-
ur ytra. Hlut-
skipti liðanna í
sínum deildum
er ólíkt. Á meðan
KR-ingar tróna
taplausir á toppi
Pepsi-deildarinnar hér heima er ÍF
Fuglafjörður í botnsæti færeysku
efstu deildarinnar. KR virðist því
hafa fengið algjöran draumadrátt í
þessari umferð.
Mata ekkert
að flýta sér
n Juan Mata, spænski U21 árs lands-
liðsmaðurinn sem fór á kostum á
Evrópumótinu í Danmörku, er ekk-
ert að flýta sér
frá Valencia þar
sem hann spilar.
Hann hefur þrá-
látlega verið orð-
aður við brott-
för frá félaginu
en Valencia á
í miklum fjár-
hagserfiðleikum
og ætti erfitt með að hafna tilboði
sem færi yfir 20 milljóna punda
múrinn. Sjálfur segist hann alveg
tilbúinn að taka eitt ár í viðbót á
Mestalla-vellinum og þráir að vinna
eins og einn bikar með félaginu.
Svanirnir hafna
Newcastle
n Nýliðar Swansea í ensku úrvals-
deildinni hafa hafnað tilboði New-
castle í bakvörðinn Neil Taylor en
hann þótti fara á
kostum í Cham-
pionship-deild-
inni í fyrra. Klá-
súla í samningi
Taylors segir að
hann geti farið
bjóði lið eina
milljón punda
í hann og það gerði Newcastle.
Swansea sagði samt sem áður nei,
takk og bað Newcastle um að leita
annað. Swansea er fyrsta velska
liðið til að spila í ensku úrvalsdeild-
inni frá stofnun hennar árið 1992.
Molar
H
alldór Helgason, snjó-
brettakappi frá Hörgár-
byggð á Norðurlandi, er
orðinn einn mesti afreks-
íþróttamaður Íslendinga.
Þessi tvítugi piltur hefur ásamt
bróður sínum Eika tekið snjóbretta-
heiminn með trompi og eru þeir
bræðurnir orðnir einir allra bestu
snjóbrettamenn heims. Þeir eru um
þessar mundir að setja á laggirnar
tvö ný fyrirtæki, annað þeirra selur
snjóbretti og hitt belti. Húfuvöru-
merki þeirra, sem ber hið skemmti-
lega heiti hoppipolla, hefur verið í
gangi í nokkur ár og gengur vel að
sögn Halldórs. Halldór vann Big Air-
keppnina á X-Games í fyrra með
stökki sem hlaut fullkomna einkunn.
Sá sigur gerði lítið annað en að auka
frægð hans og frama gríðarlega.
Myndar meira en hann keppir
Halldór gerir ekki mikið af því að
keppa á snjóbretti, hann reynir þó
að keppa á fjórum stórum mótum
á ári. Best gekk honum í vetur á Air
and Style-mótinu í Þýskalandi sem
er eitt það allra stærsta í heimi. Þar
náði hann þriðja sæti. Sjálfur horf-
ir hann mun meira til þess að vera
með í að taka upp snjóbrettamyndir
en þær eru stór hluti af brettaheim-
inum og Halldór segir ekki alla skilja
það.
„Það er svolítið fyndið að fólk skilur
ekki alveg hvernig þetta virkar. Íslend-
ingar virðast bara skilja þegar maður
keppir því þá lendir maður í einhverj-
um sætum. En það eru myndirnar
sem skipta mestu máli. Það eru bara
tuttugu af bestu brettagaurum heims
sem fá að vera með í þeim. Það er því
ótrúlegt að það voru þrír Íslendingar í
síðustu mynd Standard Films sem er
stærsta fyrirtækið í þessu. Það er bara
tekin upp ein mynd á ári,“ segir Hall-
dór.
Einn sá yngsti til að vera með
Halldór er aðeins tvítugur en bróðir
hans Eiki er þremur árum eldri. Hall-
dór var í vetur að taka upp sína þriðju
mynd en hann fékk fyrst að vera með
þegar hann var sautján ára. „Ég held
að ég hafi verið einn sá yngsti sem hef
verið með í þessu,“ segir hann. Nýjasta
myndin var tekin upp hér á Íslandi en
einnig í Finnlandi, Svíþjóð, Noregi,
Bandaríkjunum, Þýskalandi og Aust-
urríki. Það þykir gríðarlegur heiður að
fá að vera með í svona mynd en eins
og Halldór segir eru aðeins fáir út-
valdir sem eru með á hverju ári.
„Það er svo gaman að gera þetta
því maður gerir bara það sem manni
dettur í hug. En maður er alltaf að
reyna að vera með besta efnið því sá
sem er með það besta fær að vera síð-
astur í myndinni. Það er mesti heið-
urinn. Myndin kemur út í september
þannig að maður bíður spenntur eft-
ir að sjá hvort maður hafi verið með
besta efnið,“ segir Halldór sem eyddi
því vetrinum með bróður sínum og
öðrum íslenskum atvinnumanni,
Gulla Guðmundssyni, við að ferðast
um heiminn og taka upp brettamynd.
„Þetta var náttúrlega æðislegt. Sér-
staklega þar sem við vorum allir þrír
saman. Ég, bróðir minn og svo Gulli
sem ég hef hangið með frá því ég var
lítill.“
Fór í snjóbrettaskóla í Svíþjóð
Snjóbrettaáhugi Halldórs hófst þegar
hann var níu ára gamall. Hann fylgd-
ist þá með stóra bróður sínum Eika
í fjallinu og ákvað að prófa sjálfur.
Einfalt er að reikna að átta ár liðu frá
því að áhuginn kviknaði þar til Hall-
dór var valinn til að vera með í tök-
um á stærstu snjóbrettamynd heims.
„Maður var ekkert að spá í neinu svo-
leiðis þegar maður var að byrja,“ seg-
ir Halldór. „Ég var bara alltaf að reyna
að halda í við Eika og Gulla og reyna
að ná þeim að getu. Þeir fóru svo allir
í snjóbrettaskólann í Svíþjóð og þegar
ég var orðinn nægilega gamall fór ég
þangað líka.“
Snjóbrettaskóla? „Þetta er fram-
haldsskóli sem ég fór í eftir grunn-
skólann. Hann er svona fyrir krakka
sem vita ekki alveg hvað þeir vilja
verða. Þarna er maður þrjá daga í viku
í skólanum og hina fjóra á snjóbretti
sem er auðvitað algjör snilld. Þann-
ig er líka mun auðveldara að koma
sér á framfæri. Eiki og Gulli komu sér
þannig inn í minni Evrópumyndir
sem ég fékk síðan einnig að vera með í
og gat þannig komið mér á framfæri,“
segir Halldór.
Draumurinn rættist
„Þetta er bara draumurinn,“ segir
Halldór aðspurður um líf sitt. „Mig
langaði alltaf til að verða atvinnu-
maður á snjóbretti. Það var takmark-
ið. Ég á stundum svolítið erfitt með
að skilja að ég sé búinn að ná því. En
fyrst ég er kominn þetta langt ætla ég
bara að halda áfram og reyna að hafa
eins gaman af þessu og ég mögulega
get.“ En hvað sögðu foreldrarnir við
þessum draumum og snjóbretta-
skóla þar sem aðeins er lært þrjá
daga í viku?
„Þau voru bara ánægð með
þetta,“ segir Halldór og hlær við.
„Þau hafa alltaf stutt okkur í einu og
öllu. Mamma og pabbi sögðu alltaf
við okkur bræðurna að þau myndu
styðja okkur í hverju sem væri á með-
n Akureyringurinn Halldór Helgason er orðinn einn frægasti snjóbrettakappi heims
n Er einn launahæsti íþróttamaður Íslands n Fór 16 ára í snjóbrettaskóla í Svíþjóð
Orðinn einn sá
stærsti í hei inum
Tómas Þór Þórðarson
blaðamaður skrifar tomas@dv.is
Magnaður á „railinu“ Halldór og Eiki bróðir hans þykja með betri „railurum“ sem fyrir-
finnast í íþróttinni.
Fá liðsstyrk Víkingar ætla að
styrkja sig í glugganum enda
þurfa þeir sárlega að fara að
skora og hala inn stigum.
MYND TOMASZ KOLODZIEJSKI