Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2011, Page 12
12 | Fréttir 4. júlí 2011 Mánudagur
Vinnudagur Agné Krataviciuté hófst
klukkan hálf átta á laugardagsmorg-
uninn. Hún sinnti störfum sínum
ásamt hinum herbergisþernum hót-
elsins þar til kom að kaffihléi klukk-
an 10. Samstarfsfélagar hennar segja
hana þá hafa kvartað undan tíða-
verkjum og að hún hafi ekki tekið sér
kaffihlé að venju. Hún hafi hins vegar
farið afsíðis. Þeir vissu ekki hvert en
nú er talið víst að Agné hafi lokað sig
af inni á hótelherbergi og átt barnið
þar. Lögreglan rannsakar eitt hótel-
herbergjanna og hefur lokað það af.
Eftir kaffihléð ræddi Agné við
næsta yfirmann sinn og sagðist vera
með tíðaverki og hita. Hún vildi drífa
sig heim og hringdi því næst í fyrr-
verandi kærasta sinn sem kom og
sótti hana.
Bar sig vel
Samstarfsfélagar hennar segja hana
hafa borið sig vel. Þá grunaði ekki
að neitt óvenjulegt hefði gerst. „Hún
bar sig afar vel og var eins og hún var
vön. Það var ekkert óvenjulegt í fari
hennar eða geðslagi sem vakti grun-
semdir,“ segir Gísli Úlfarsson, hótel-
stjóri Hótels Fróns.
Þrifin og störfin á hótelinu eru
líkamlega erfið og samstarfsmenn
hennar segja hana hafa verið jafn-
duglega og ávallt. Það eina sem hafi
verið frábrugðið þennan dag hafi
verið að hana vantaði í kaffihléið.
„Hún var alltaf mjög dugleg og sam-
starfsmenn hennar bera henni vel
söguna. Það var víst ekkert frábrugð-
ið hvað það varðaði þennan morg-
un,“ segir Gísli.
Það trúir þessu enginn
„Það trúir þessu enginn ennþá,“ bæt-
ir Gísli við. Hann segir konuna hafa
verið hláturmilda og hörkuduglega
og starfsfólk trúi ódæðinu ekki upp
á hana. „Þessar fregnir eru starfs-
mönnum hér mikið áfall, það vissi
heldur enginn að hún væri ólétt. Það
sást ekki því hún var feitlagin.“
Samstarfskonur hennar sem DV
ræddi staðfesta þetta. „Ekkert okkar
vissi að hún væri barnshafandi, hún
var bara mjög ljúf og sumir hér vissu
ekki einu sinni hver hún væri þegar
þetta kom í ljós,“ sagði ein þeirra sem
vildi ekki láta nafns síns getið.
Næturvörður segir hana hafa
verið dula
Konan sem um ræðir heitir Agné
Krataviciuté til heimilis að Þórufelli
4 í Breiðholti. Hún er 22 ára og frá
Litháen og hafði aðeins unnið á hót-
elinu í fjóra mánuði.
Þótt Agné hafi verið léttlynd er
hún sögð hafa verið dul. „Hún deildi
ekki með samstarfsfélögunum neinu
úr sínu lífi,“ segir næturvörður hót-
elsins. „Hún hélt sig út af fyrir sig og
samlagaðist hópnum illa. Það vissi
enginn neitt um hana, hvaðan hún
var, hvað hún var að gera áður og
hvernig lífi hún lifði yfirleitt,“ segir
hann.
Nýlega hætt með kærastanum
Barnið var látið þegar það fannst
en talið er að það hafi fæðst lifandi.
Fyrrverandi kærasti Agné var í haldi
lögreglu á sunnudag en sleppt um
eftirmiðdaginn.
Í fréttum hefur komið fram að þau
slitu nýlega samvistum og bjuggu
ekki lengur saman. Fréttastofa Vísis
fullyrti að það hefði verið hann sem
„Ekkert okkar vissi
að hún væri barns-
hafandi, hún var bara
mjög ljúf.
Kristjana Guðbrandsdóttir
blaðamaður skrifar kristjana@dv.is
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
n Agné Krataviciuté talin hafa skilið nýfætt barn eftir til að deyja í ruslagámi n Lýst sem hlát-
urmildri og hörkuduglegri n Lögreglan fór með tölvur og búnað af heimili hennar í Þórufelli
„Hún bar sig vel“
Blóm og gjafir Mörgum var brugðið við harmleikinn. Vegfarandi skildi eftir blóm, bangsa og kort sem í stóð: Allt betra skilið en þetta.