Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2011, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2011, Síða 2
2 | Fréttir 10. ágúst 2011 Miðvikudagur N okkur umræða hefur ver- ið um tryggingafélagið Sjóvá-Almennar að und- anförnu. Hefur Guðlaug- ur Þór Þórðarson, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnt söluna á 52,4 prósenta hlut Eigna- safns Seðlabankans í tryggingafélag- inu. SF1, sjóður í umsjón Stefnis, sjóðastýringafyrirtækis Arion banka, borgaði 4,9 milljarða króna fyrir 52,4 prósenta hlut í Sjóvá, sem þýðir að heildarverð félagsins er 9,4 milljarðar króna. Í nóvember lagði hópur, undir forystu hagfræðingsins Heiðars Más Guðjónssonar, fram tilboð upp á 10,9 milljarða króna. Telur Guðlaugur Þór að mismuninn, upp á 1.500 milljónir króna, þurfi íslenskir skattgreiðendur að borga. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sem hefur óskað eftir því að þing verði kall- að saman til að ræða stöðu Sjóvár, tel- ur tap ríkisins vegna sölunnar á Sjóvá þó vera enn meira en Guðlaugur Þór segir. Telur Sigmundur Davíð að nú- virða verði tapið. „Tap ríkisins nemur því allavega um 7 milljörðum króna en ekki 4,3 milljörðum eins og Seðla- bankinn heldur fram,“ sagði Sigmund- ur Davíð í pistli á heimasíðu sinni. Bjarni taldi ríkið ekki bera skaða Jónas Kristjánsson, bloggari og fyrr- verandi ritstjóri, sagði í pistli á heima- síðu sinni nýlega að líklega ætti Guðlaugur Þór frekar að sparka í Bjarna Benediktsson, formann Sjálf- stæðisflokksins, frekar en Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra. Athyglis- vert er að rifja upp fullyrðingar Bjarna sem hann lét falla í viðtali við DV í des- ember árið 2009. „Væntanlega mun ríkið ekki bera neinn skaða af þessu,“ var á meðal þess sem Bjarni fullyrti í umræddu viðtali vegna umfjöllunar DV sem snérist meðal annars um fjög- urra milljarða króna tap Sjóvár á fast- eignaviðskiptum í Makaó og félagið Vafning. Eins og kunnugt er lánaði íslenska ríkið Sjóvá 12 milljarða króna sumarið 2009. Auk þess fékk félagið fjóra millj- arða króna frá Glitni og Íslandsbanka. Ef virði félagsins er einungis 9,4 millj- arðar króna er ljóst að íslenska ríkið gæti tapað um 5,2 milljörðum króna á Sjóvá. Er þá gengið út frá því að Eigna- safn Seðlabankans fái 1,9 milljarða króna fyrir 20 prósenta hlutinn sem enn er í eigu bankans auk þeirra 4,9 milljarða sem þegar hafa verið greidd- ar. Íslenska ríkið fengi því einungis 6,8 milljarða króna upp í 12 milljarða króna lánið sem ríkið veitti Sjóvá. Engeyingar í vellystingum Á meðan íslenska ríkið virðist tapa milljörðum króna á Sjóvá berast fréttir af því að Einar Sveinsson, föðurbróðir Bjarna Benediktssonar, eigi 3,8 millj- arða króna ásamt eiginkonu sinni. Benedikt Sveinsson, faðir Bjarna, og móðir hans eiga síðan eignir upp á tvo milljarða króna. Þeir virðast því enn lifa í vellystingum í Garðabæ þar sem þeir eru búsettir. Einar á hins vegar fé- lagið Hrómund sem tapaði sex millj- örðum króna árið 2008 og var þá með neikvætt eigið fé upp á tvo milljarða króna. Benedikt á síðan félagið Haf- silfur en það félag á engar eignir í dag. Það skilaði um tveggja milljarða króna tapi árið 2008 og var með skuldir upp á um fjóra milljarða króna sem nú hafa líklega verið afskrifaðar að mestu. Talið er að stór hluti auðs þeirra Einars og Benedikts sé tilkominn vegna sölu þeirra á hlut sínum í Sjóvá til Íslandsbanka í september 2003. Þá seldu þeir Einar, Benedikt og nán- asta fjölskylda þeirra 27 prósenta hlut í Sjóvá til Íslandsbanka fyrir 5,2 millj- arða króna. Gerðist það í kjölfar at- burðar sem kallaður hefur verið „nótt hinna löngu bréfahnífa“ þegar helstu fjármálamenn Íslands skiptu á milli sín stærstu fyrirtækjunum. Þess skal þó getið að hluta af þeim fjármunum sem Einar og Benedikt fengu fyrir söl- una á hlutnum í Sjóvá voru greiddir með hlutabréfum í Íslandsbanka til félaganna Hafsilfurs og Hrómundar. Í kjölfarið gerði Íslandsbanki yfirtöku- tilboð í Sjóvá. Fram að sölunni hafði Einar ver- ið forstjóri Sjóvár og Benedikt stjórn- arformaður. Stuttu síðar varð Einar stjórnarformaður Íslandsbanka en hann hafði setið í stjórn bankans allt frá árinu 1991. Þannig sat Einar í stjórn Íslandsbanka þegar bankinn ákvað að kaupa 27 prósenta hlut fjölskyldu hans í Sjóvá. Bjarni Ármannsson, banka- stjóri Íslandsbanka, var síðan gerður að stjórnarformanni Sjóvár og Þor- gils Óttar Mathiesen, sem hafði starfað sem fjármálastjóri Íslandsbanka, tók við forstjórastarfinu af Einari. ENGEYINGAR Í VEL- LYSTINGUM EN RÍKIÐ TEKUR TJÓN SJÓVÁR n Bjarni Benediktsson sagði við DV 2009 að tjón ríkisins af Sjóvá yrði ekkert n Félög Einars og Benedikts Sveinssona skildu eftir milljarða tjón fyrir Sjóvá n Einar og Benedikt sitja á sex milljörðum Annas Sigmundsson blaðamaður skrifar as@dv.is Enn í vellystingum Benedikt Sveinsson, faðir Bjarna Benediktssonar, lifir enn í vellystingum þrátt fyrir að mörg eignar- haldsfélög sem hann tengdist hafi skilið eftir sig milljarða króna gjaldþrot. Þannig eru hann og eiginkona hans skráð með eignir upp á um tvo milljarða króna í dag. Of lítið fyrir Sjóvá Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að ríkið hafi tapað 1,5 milljörðum króna á því að hafa ekki tekið tilboði frá hópi sem hag- fræðingurinn Heiðar Már Guðjónsson fór fyrir. Sjö milljarða tap Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokks- ins, telur að núvirði taps ríkisins á Sjóvá nemi um sjö milljörðum króna. Rannsókn á Sjóvá langt komin Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, segir að rannsóknin á Sjóvá sé langt á veg komin. Fyrrverandi Glitnistoppar eignast í Sjóvá Þeir Finnur Reyr Stefánsson, Jón Diðrik Jónsson og Tómas Kristjánsson eru allir hluthafar í Sjóvá í dag. Þeir störfuðu sem framkvæmda- stjórar hjá Glitni en hættu árið 2007 á sama tíma og Bjarni Ármannsson hætti sem forstjóri. Jónas Kristjánsson gagnrýninn á Bjarna Benediktsson: Guðlaugur Þór ætti að sparka í Bjarna „Ekkert minntist Guðlaugur Þór á afskipti flokksfor- manns síns af málinu. Bjarni Benediktsson var sem Engeyingur eignaraðili að Sjóvá og einn þeirra, sem skóf fyrirtækið að innan. Náði sér meðal annars í vafninga til að stunda fasteignabrask í Macau að hætti útrásar- víkinga. Sjóvá fékk lánið aldrei endurgreitt og tapaði þremur milljörðum króna á vafningum Bjarna. Vanti Guðlaugur Þór einhvern til að sparka í, er miklu nær, að hann snúi sér að valinkunnum formanni sínum,“ skrifaði Jónas Kristjánsson, fyrrverandi ritstjóri, á bloggi sínu þann 1. ágúst og furðaði sig á gagnrýni Guðlaugs Þórs Þórðarsonar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.