Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2011, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2011, Blaðsíða 12
12 | Fréttir 10. ágúst 2011 Miðvikudagur O kkur var enginn greiði gerð- ur með þessu. Ef eitthvað var, þá var þetta bölvun. Það er bara hörmulegt að lenda í þessu,“ segir fyrrver- andi sambýlismaður konu sem sagði sögu sína í DV á mánudag, harm- sögu um líf í viðjum vændis. Nú eru sextán ár síðan hún setti fyrstu auglýsinguna inn á Rauða torgið en konan segist ekki geta lif- að svona áfram, er vonlaus og upp- gefin og sér enga leið út. Hún treysti sér ekki til að koma fram undir nafni því hún óttast fordæmingu annarra og við höldum nafni hans leyndu af sömu ástæðu. Þau bjuggu saman í tuttugu ár, eiga saman þrjú börn en hún átti tvö fyrir þegar þau kynntust. Þau eru enn nánir vinir, samherjar í þessari baráttu. Voru hamingjusöm Þau kynntust í meðferð árið 1988 og í kjölfarið flutti hann inn á hana. Innan árs voru þau búin að trúlofa sig. „Hún var alveg sérstök mann- eskja, blíð og góð,“ segir hann og bætir því við að það hafi verið margt í hennar fari sem heillaði hann, til dæmis húmorinn. „Hún var mjög eðlileg stelpa.“ Þau voru í blóma lífsins og þeim leið vel saman. „Það gekk mjög vel hjá okkur.“ Erfiðara reyndist að ná tökum á fíkninni og fljótlega var hún far- in að spila frá sér fé. Í DV á mánu- dag kom fram að hún væri öryrki og hann hefði verið atvinnulaus en það er eina atriðið sem þau greinir á um auk þess sem hann þvertekur fyrir að hafa hvatt hana til að afla tekna með vændi líkt og hún vildi meina. Að öðru leyti ber frásögn þeirra saman í öllum atriðum. „Þetta stakk mig,“ segir hann, „því ég var alltaf að vinna. Ég var í láglaunavinnu til að byrja með en seinna urðu tekjurnar betri. En hún átti við sína erfiðleika að stríða.“ Veikindin vofðu yfir Á svipuðum tíma og þau eignuð- ust sitt fyrsta barn árið 1990 lagðist hún fyrst inn á geðdeild. Hún fékk sömu greiningu og mamma hennar sem var geðklofi en síðar var grein- ingunni breytt í geðhvörf. „Hún er enn þannig að hún er eins og tvær persónur og skiptir fljótt um skoðun. Hún segir eitt en eftir korter er hún á annarri meiningu. Persónuleiki hennar breytist. En hún er góð kona.“ Annað barnið fæddist árið 1993 og enn lék allt í lyndi, segir hann. „Það voru engin vandamál hjá okk- ur. Vandræðin hófust ekki fyrr en þriðja barnið fæddist árið 1999. Eins og ég sé það var það þá sem hún byrjaði í vændi.“ Áður hafði hún þó verið með manni sem hún kynntist í gegnum Rauða torgið og sá henni fyrir fé. Hún sagði hann ekki aðeins hafa verið á höttunum eftir kynlífi, hann hefði einnig viljað spjalla og orð- ið hrifinn af henni en hún hefði nú samt sofið hjá honum fyrst hann lét hana fá pening. Bætti því við að hún hefði lifað góðu lífi í þrjú ár á hans kostnað. Leit á þetta sem framhjáhald Sambýlismaðurinn fyrrverandi lítur þó ekki á þetta sem vændi heldur framhjáhald. „Ég hef alltaf vitað af þessum manni en eftir því sem ég best vissi hitti hún hann bara í nokk- ur skipti. Hún hélt fram hjá mér með honum.“ Það var svo árið 1999 sem vænd- ið byrjaði fyrir alvöru. „Satt best að segja veit ég ekki hvernig þetta byrj- aði en ég tel að það hafi verið út af kössunum.“ Bæði nutu þess að spila. Þegar þau kynntust var hann verri en hún en síðan snerist það við og hún missti alveg tökin á spilafíkninni. „Hún var mjög djúpt sokkin en gat samt alltaf fjármagnað fíknina svo mig grunaði ýmislegt. Í fyrstu sagð- ist hún alltaf hafa fengið lán en sann- leikurinn kom fram þegar hún viður- kenndi fyrir mér að hafa fjármagnað þetta með vændi. Seinna sagði hún mér hvað þetta var orðið alvarlegt.“ Dofnaði, varð sár og reiður Það var ekki auðvelt að taka á móti því að konan væri farin að stunda vændi. „Ef ég á að segja eins og er þá dofnaði ég þegar hún sagði mér þetta. Ég varð sár og reiður. Ég þénaði vel og ef hún hefði ekki verið svona svakalegur spilafíkill þá hefði hún ekki þurft að gera þetta peninganna vegna. Þannig að þetta særði mig mjög mikið og tilfinning- arnar á milli okkar dofnuðu hratt.“ Hann tekur það fram að hann eigi ekki auðvelt með að ræða tilfinning- ar sínar, það sé nú ein ástæða þess að þau skildu síðar, en á þessum tíma hafi hann þó reynt. „Ég spurði hvernig hún gæti gert mér og börn- unum þetta.“ „Hún gerði þetta ekki fyrir okkur“ Sem er athyglisvert því hún sagðist hafa gert þetta fyrir hann og börn- in. „Hún sér það kannski þannig. Ég sé það aftur á móti þannig að ef allt hefði verið með felldu og þessi spila- fíkn ekki inni í myndinni þá hefði hún ekki þurft að gera þetta. Hún gerði þetta ekki fyrir okkur. Satt best að segja vorum við með fínar tekjur á þessum tíma en það voru náttúrulega tekjur sem við átt- um ekki að hafa. Þar sem við vorum aldrei skráð saman í sambúð fékk hún barnabætur, meðlag og allt það auk þess sem ég hafði mínar tekjur.“ Hann segir það allavega degin- um ljósara að þeim hafi ekki verið neinn greiði gerður með þessu. „Ef eitthvað, þá var þetta bölvun. Það er bara hörmulegt að lenda í þessu. Ef einhver er í svipaðri stöðu og er að velta því fyrir sér hvort hann eigi að fara þessa leið þá langar mig að biðja hann um að íhuga þetta vandlega. Ef þú átt góða konu eða góðan mann og þið eruð ánægð, til hvers ættir þú þá að fara í vændi og splundra heilli fjölskyldu? Hvort er mikilvægara, hamingjan eða pen- ingarnir? Ég get ekki séð hvaða ham- ingju þetta færði okkur.“ Skammaðist sín En þótt hún væri í vændi og hann vissi það héldu þau áfram að búa saman um áraraðir. „Ég tók þessu eins og þetta var. Börnin spiluðu þar inn í. Ég vildi ekki fara frá þeim, það kom ekki til mála. Við höfðum barist saman við barnaverndarnefnd og í mínum huga er fjölskyldan númer eitt, tvö og þrjú.“ Lífernið reyndi þó á. „Það var orð- ið þannig að ég skammaðist mín fyrir það að ganga með henni um bæinn. Þegar við hittum mann sem heilsaði henni vissi ég aldrei hvort hún hefði sofið hjá honum. Ég tók þessu bara þannig og kannski hefur það eyðilagt sam- bandið hvernig ég brást við. Ég veit ekki hvernig ég get útskýrt þessa til- finningu en hún er ekki þægileg. Að vissu leyti er hægt að líkja þessu við framhjáhald, en samt ekki, því það er verið að gera þetta trekk í trekk og gegn greiðslu sem verður til þess að þú sérð manneskjuna í öðru ljósi og berð kannski minni virðingu fyrir henni. En ég ber alltaf tilfinn- ingar til hennar. Reiðin blossaði líka upp og ég reiddist yfir því af hverju hún gerði þetta, því hvað hún var að gera mér og börnunum sínum. Hún talaði alltaf um að kúnnarnir væru eldri menn sem ættu fyrirtæki og þegar dóttir okkar vann fyrir slíka menn þá kviknaði þessi hugsun, hvort hann gæti verið einn af þeim.“ Börnunum líður illa Honum stóð heldur ekki á sama varðandi börnin. „Ég var hræddur um að hún myndi verða börnunum sínum til skammar. Ég óttaðist það alltaf rosalega mikið. Og að þetta myndi bitna á þeim með einum eða öðrum hætti.“ Og sú varð raunin, segir hann. „Þetta hefur bitnað bæði andlega og líkamlega á þeim,“ segir hann en börnin vita af vændinu og hafa gert það í nokkur ár. „Hún sagði þeim frá þessu. Hún talar opinskátt um þetta við þau. Núna er hún mjög illa stödd og þá á hún það til að hringja í börn- in og biðja þau um lán. Ef þau neita því þá segist hún ætla að selja sig. Það er ekki normalt af móður að gera þetta. Börnin reyna flest að leiða þetta hjá sér en þegar ég horfi í augun á þeim þá sé ég að þeim líður illa. Þar sem ég á mjög erfitt með að tala um tilfinningar þá veit ég ekkert hvernig ég á að bregðast við því. Mín leið er að bíta á jaxlinn og vinna úr mínum vandamálum.“ Hún kveikti í rúminu Um tíma skildu leiðir og hún bjó þá með öðrum manni. „Einhverra hluta vegna byrjuðum við aftur saman en ég veit ekki alveg af hverju. Ég átta mig ekki heldur almennilega á því af hverju við skildum þótt sambandið væri orðið stirt. Henni fannst ég vera uppi á móti sér því ég var alltaf að koma henni inn á geðdeild.“ Ástæðurnar voru fyrir hendi, segir hann. „Einu sinni kveikti hún í rúminu á meðan ég svaf, í kodd- anum mínum. Þetta var bara henn- ar sjúkdómur. En þegar ég reyndi að koma henni undir læknishendur upplifði hún það eins og ég væri að reyna að losna við hana.“ Erfiðleikarnir voru þó mismiklir en ástandið náði nýjum lægðum í kringum árið 2004. „Þá versnaði þetta enn og hún fékk fjölda sím- hringinga og SMS-skilaboða.“ Leið eins og kúnna í kynlífinu Kynlífið breyttist líka. „Áður hafði það verið mjög gott. Eins og ég segi, þá voru okkar fyrstu ár mjög góð. Alveg eðlileg myndi ég segja. En eftir að vændið kom inn í myndina var nándin á milli okkar ekki sú sama. Það hjálpaði ekki að hún fór að búa með öðrum manni á meðan við vorum skilin. Eftir það varð sambandið aldrei samt aftur. Á sama tíma og ég elskaði hana van- treysti ég henni. Undir lok sambandsins stund- uðum við varla kynlíf lengur. Þetta var ekki eins og þetta var. Yfirleitt gat ég ekki sýnt henni þessa nánd,“ seg- ir hann og tekur þar með undir með henni en hún segir að eftir að hún byrjaði í vændi hafi hún ekki get- að notið þess að sofa hjá karlmanni. „Það lá við að mér liði eins og kúnna. Hún sagði oft að ef ég léti hana fá pen- ing þá gætum við sofið saman en þeg- ar ég lét hana fá peninginn var samt ekkert sjálfgefið að ég fengi kynlífið.“ Leið eins og ónýtum pappír Hún lýsti því einnig hvernig hún hefur smám saman bugast undan þessu líferni en vændið hafði ekki bara slæm áhrif á sjálfstraust hennar heldur einnig hans. „Mér líður eins og skordýri á jörðinni, eins og ónýt- um pappír ef ég nota götumál. Og ég á enn erfitt með að treysta öðru kvenfólki. Ég óttast að þetta komi aftur upp. Það hjálpar heldur ekki að ég eigi kassettur þar sem vin- ur hennar lýsir því hvernig hún var við hann kynferðislega, heima hjá mér og annars staðar, á meðan ég var að vinna. Margt sem ég hef gengið í gegnum hefur verið ógeðslegt. En fyrstu árin okkar voru góð og mér finnst alltaf eins og ég beri ein- hverja ábyrgð á því hvernig þetta fór.“ Telur sig ábyrgan Þau skildu að skiptum árið 2009. Það breytir því ekki að enn þann dag í dag er hann alltaf til staðar fyrir hana ef á reynir. Hann getur ekki sleppt tökun- um og henni er frjálst að hringja að degi sem nóttu og kalla eftir aðstoð. „Mér finnst ég alltaf bera ábyrgð á henni. Það er alltaf eins og ég sé að reyna að bæta upp fyrir eitthvað sem ég gerði rangt en mun aldrei geta bætt. Hún er góð kona sem hefur átt al- veg hrikalega erfitt líf og það hjálpar mér að skilja af hverju hún fer þessa leið. Að mörgu leyti finnst mér ég bera ábyrgð á því líka. Ég var eins og ég var, gat ekki sýnt tilfinningar og sagði henni sjaldan að ég elskaði hana eða annað sem skipti máli. Ég gaf henni allt sem ég gat en ég hefði mátt gera það öðruvísi, með því að taka utan um hana og þess háttar. Þess í stað vann ég eins og skepna til að reyna að sjá okkur farborða. Það var mín leið. Kannski hefði þetta ekki komið fyrir hana ef hún hefði ekki búið með manni sem var til- finningalega frosinn. Kannski hefði þetta farið öðruvísi ef ég hefði verið öðruvísi. Hugsar maður ekki alltaf þannig?“ Stutt í óttann Konan greindi sjálf frá því í DV á mánudaginn að í æsku var hún send með systur sinni í fóstur í sveit þar sem hún var misnotuð og beitt harð- ræði. Foreldrar þeirra voru ekki til staðar, faðir þeirra var drykkjumaður og móðir þeirra með geðklofa. Systir hennar fyrirfór sér áður en hún varð fimmtug og síðan þau skildu hef- ur konan verið einstæðingur, hún á engan að nema einhverja karla, segir hún. Nema börnin sín auðvitað. Í bréfi sem hún skrifaði börnun- um sínum kemur einnig fram að hún hefði viljað vera þeim betri móðir. Reynast þeim betur. Eins og fyrrver- andi sambýlismaður hennar segir, þá hefur þetta ekki verið auðvelt líf. Ekki fyrir neitt þeirra. Sjálf óskaði hún eftir því að bréf- ið yrði birt í DV og bað barnsföður sinn að lesa það upp fyrir börnin, hvert og eitt þeirra. „Fyrst þegar ég las það kom það mér fyrir sjónir eins og kveðjubréf. En þetta er fallegt bréf hjá henni og hugsunin er falleg.“ Eftir að hafa rætt við hana róaðist hann líka fljótt. Í fyrsta sinn er hún að íhuga að fá hjálp fagaðila varð- andi vændið og kynferðisofbeldið. Kannski er það leið út fyrir hana. En þetta er ekki í fyrsta sinn sem Vændið splundraði fjölskyldunni n Fjölskyldufaðir opnar sig n Konan stundaði vændi n „Ég varð sár og reiður“ n Skammaðist sín n „Mér líður eins og skordýri á jörðinni“ n „Hún gerði þetta ekki fyrir okkur“ Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is „Það var orðið þannig að ég skammaðist mín fyrir það að ganga með henni um bæinn. Þegar við hittum mann sem heilsaði henni vissi ég aldrei hvort hún hefði sofið hjá honum. „Börnin reyna flest að leiða þetta hjá sér en þegar ég horfi í augun á þeim þá sé ég að þeim líður illa. „Það lá við að mér liði eins og kúnna. Hún sagði oft að ef ég léti hana fá pening þá gætum við sofið saman en þegar ég lét hana fá peninginn var samt ekk- ert sjálfgefið að ég fengi kynlífið. Sv ið se tt m yn d. E yþ ór Á rn as on .

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.