Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2011, Page 15
Neytendur | 15Miðvikudagur 10. ágúst 2011
Veldu rétta námskeiðið
Hot yoga
Sporthúsinu og World Class
Verð fyrir stakan tíma: 1.700 kr. / 1.000 kr. fyrir meðlimi Sporthússins
Stutt lýsing: Heitt jóga er ákveðin samsetning af jógastöðum sem gerðar eru í upphituðum sal
helst í 37-40°C. Hitinn gerir það að verkum að líkaminn hitnar fyrr upp og verður þar af leiðandi
sveigjanlegri og meðtækilegri til hreyfingar og teygja og iðkendur komast dýpra inn í stöðurnar.
Hitinn gerir það einnig að verkum að iðkendur svitna meira en ella, húðin hreinsast og iðkendur
upplifa meiri vellíðan og endurnýjun áhrif eða detox eins og það kallast oft. Megin áhersla lögð á
að styrkja vöðvana í kringum hrygginn.
Hvenær: Margir tímar. Í Sporthúsinu kostar stakur tími 1.700 en 1.000 fyrir korthafa. Í World
Class eru tímarnir opnir.
Ketilbjöllur
World Class
Verð fyrir mánuð: 15.300 kr.
Stutt lýsing: Ketilbjöllur eru vogarlóð sem
svipar til teketils. Æfingarnar byggjast allar á
náttúrulegum hreyfingum, þær byggja upp;
kraft, liðleika, þol, jafnvægi og eru í raun alhliða
líkamsrækt. Með ketilbjöllum dregur maður
fleiri vöðva líkamans inn í æfingarnar og gefa
þess vegna gífurlega góða og krefjandi þjálfun.
Bjöllurnar eru misþungar og er alltaf hægt að
gera margar útgáfur af öllum æfingum, bæði
léttari og erfiðari. Þetta æfingakerfi er fyrir
bæði stráka og stelpur á öllum aldri.
Hvenær? Kennt þriðjudaga og fimmtudaga
klukkan 18.30 Námskeiðið er lokað og þátttaka
er háð skráningu.
Polefreestyle
World Class
Stutt lýsing: Polefreestyle eða súlufimi er
nútímalíkamsrækt þar sem dansi, styrk, úthaldi
og skemmtun er blandað saman. Áhersla er á
að byggja upp vöðvastyrk, vöðvaþol, liðleika
og samhæfingu til þess að ná ákveðni færni í
súlufimi og dansi.
Hvenær? Námskeið hefst í september á Sel-
tjarnarnesi en þátttaka er háð skráningu. 6 vikna
verð er 16.900 en korthafar fá lægra verð.
Tabata
Sporthúsinu og World Class
Stutt lýsing: Æfingatími sem byggir á kraftmikilli skorpuþjálfun. Alhliða
þjálfun sem byggir á úthaldi og krafti. Tímarnir henta bæði byrjendum og
lengra komnum. Sérstaklega góð þjálfun fyrir íþróttamenn sem vilja auka
þol og súrefnisupptöku. Þjálfari sér til þess að hver og einn þjálfi að ystu
mörkum. Tabata byggist upp á átökum í 20 sekúndur og hvíld í 10 sekúndur.
Þetta er endurtekið 8 sinnum en allt að 10 æfingar eru gerðar í hverjum tíma.
Hvenær? Kennt þriðjudaga og fimmtudaga í Sporthúsinu en mánudaga,
þriðjudaga, miðvikudaga, fimmtudaga og laugardaga í World Class.
TRX
World Class og Sporthúsinu
Stutt lýsing: TRX Suspension training er þjálfunarkerfi frá Navy
Seals USA sem hefur slegið hressilega í gegn. TRX þjálfun fer fram í
ströppum þar sem þú notar líkamsþyngd þína í stað lóða. Æfingarnar
byggja upp jafnvægis- og djúpvöðvakerfi líkamans ásamt því að auka
liðleika, styrk, sprengikraft og minnka líkur á meiðslum. TRX er fyrir
alla, hvort sem þeir eru í góðu eða slæmu líkamlegu formi. Eykur stryk,
þrek, liðleika og snerpu.
Hvenær? TRX námskeið hefst 5. september en er ný byrjað í Sport-
húsinu. Þátttaka háð skráningu.
Zumba
Sporthúsinu og World Class
Stutt lýsing: Zumba er dans og fitness með
skemmtilegri suðuramerískri tónlist. Sporin er
sáraeinföld og taktarnir eru til dæmis salsa, merenge,
cumbia og reggaeton. Tímarnir eru byggðir þannig upp
að hjartslátturinn fer bæði upp og aftur niður með
óreglulegum hætti. Fætur, hendur og líkami eru á iði
allan tímann. Tilvalið fyrir þá sem hafa gaman af því
að dansa; einstaklinga eða pör.
Hvenær? Tímarnir eru lokaðir – áhugsamir þurfa að
skrá sig á námskeið. Þrír tímar í viku í einn mánuð kosta
12.900 kr. í Sporthúsinu en tveir tímar í viku í þrjár vikur
kosta 11.900 í World Class.
Kennt á ketilbjöllur Jens
Andri segir mikilvægt að byrja
ekki of geyst. Mynd Eyþór ÁrnaSon