Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2011, Blaðsíða 6
Þ
orsteinn Erlingsson, eig
andi útgerðarfyrirtækisins
Saltvers, var stjórnarfor
maður Reykjaneshafnar á
sama tíma og meint lönd
unarsvindl fyrirtækisins á að hafa
viðgengist á höfninni. Heimildir DV
herma að honum verði gert að greiða
yfir 200 milljónir króna til Fiskistofu
vegna meints löndunarsvindls. Fyrr
verandi starfsmaður Saltvers hefur
sakað fyrirtækið um gróft löndunar
svindl. Málið hefur verið til rann
sóknar hjá Fiskistofu undanfarna
mánuði. Þorsteinn, sem er fyrrver
andi bæjarfulltrúi og stjórnarmaður
í Sparisjóði Keflavíkur, hefur ekkert
viljað tjá sig um málið við DV.
Fiskistofa segir ákvörðun í mál
inu ekki liggja fyrir. Þorsteinn Hilm
arsson, starfsmaður Fiskistofu, sagði
að um væri að ræða stjórnsýslu
ákvarðanir sem færu sínar leiðir og
menn gætu í framhaldinu véfengt
þær og ennþá væri ekki komin loka
niðurstaða. Hann staðfesti hvorki
né neitaði því að eiganda Saltvers
hefði verið gert að greiða fjársekt
ir til stofnunarinnar, þegar DV tal
aði við hann í júlí. Á síðustu þrem
ur árum hefur Fiskistofa einu sinni
lagt sérstakt gjald á fyrirtæki vegna
ólögmæts sjávarafla sem landað var
framhjá vigt, en það hljóðaði upp á
rúmar 23 milljónir.
Umfangsmikið svindl
Fiskistofa hefur heimild samkvæmt
lögum til að vinna rannsóknir sem
snúa að því að bakreikna afurðir til
afla. Samkvæmt upplýsingum frá
Fiskistofu hefur stofnunin lagt sér
stakt gjald vegna ólögmæts sjávar
afla, á eitt fyrirtæki í kjölfar bakreikn
ingsrannsóknar, á síðustu þremur
árum. Það var í tilfelli fyrirtækisins
Perlufisks ehf. Var niðurstaðan sú
að líta yrði svo á að óútskýrður mis
munur hráefniskaupa og seldra af
urða á tímabilinu 1. janúar 2008 til
14. júlí 2009, næmi rúmum 55 tonn
um af þorski og rúmum 70 tonnum
af steinbít. Að lokum var Perlufiski
gert að greiða rúmar 23 milljónir
króna vegna ólögmæts sjávarafla.
Heimildir DV herma að niður
staða úr bakreikningi Fiskistofu hafi
verið sú að Saltver skuldi um 200
milljónir króna vegna ólögmæts
sjávarafla. Sé miðað við úrskurð
stofnunarinnar í máli Perlufisks má
ljóst vera að grunur leikur á að tölu
vert miklum afla hafi verið landað
framhjá vigt. Reynist útreikning
ar Fiskistofu réttir er ljóst að meint
kvóta svindl Saltvers er eitt það um
fangsmesta sem komið hefur ver
ið upp um á Íslandi. Samkvæmt því
verður ekki betur séð en að hundr
uðum tonna hafi verið landað
framhjá vigt.
Ásakanir um gróf brot
Samkvæmt upplýsingum DV hafa
fjölmargir starfsmenn Saltvers og
Reykjaneshafnar vitað til þess að
verið væri að landa framhjá vigt en
þrátt fyrir það hefur einungis einn
komið opinberlega fram með slík
ar ásakanir. Eins og fram kom í DV
í janúar sakaði Þorleifur Frímann
Guðmundsson, fyrrverandi mat
sveinn á Ósk KE5, Saltver um skipu
lagða og afar grófa löndun fram hjá
vigt, í bréfi sem hann sendi Fiski
stofu. Samkvæmt minnisblöðum
sem hann hafði skráð í nóvember
mánuði virtist skeika um að minnsta
kosti tíu tonnum þann mánuðinn,
sem hann kvaðst hafa staðfestan
grun um að hefði verið landað fram
hjá vigt. Þorsteinn Erlingsson, eig
andi Saltvers, brást ókvæða við og
sagði ásakanir Þorleifs vera kjaftæði.
Þorsteinn Erlingsson fór í fram
boð fyrir Sjálfstæðisflokkinn árið
2010 og í kjölfarið tók Einar Magn
ússon við stjórnarformennsku
Reykjaneshafnar. Dóttir Þorsteins,
Björk Þorsteinsdóttir, sat í stjórn
Reykjaneshafnar og starfaði á sama
tíma fyrir Saltver. Í kjölfar athuga
semda um mögulega hagsmuna
árekstra var Björk skyndilega vikið
úr stjórn. Einar og Björk eru bæði
starfandi bæjarfulltrúar fyrir Sjálf
stæðisflokkinn í Reykjanesbæ.
Heimildir DV herma einnig að hafn
arstjóri Reykjaneshafnar hafi um
tíma starfað fyrir loðnuvinnslu í eigu
Þorsteins Erlingssonar.
Aflagjald ekki greitt
„Talaðu bara sjálfur við Fiskistofu
og vertu blessaður,“ sagði Þorsteinn
Erlingsson þegar blaðamaður DV
spurði hann hvort hann þyrfti að
greiða fjársektir og hversu háar
þær væru. Í kjölfarið skellti hann á
blaðamann. „Starfsemi þessara að
ila er bara til rannsóknar og í sjálfu
sér ekkert meira að segja á meðan
svo er,“ sagði Þorsteinn Hilmarsson,
starfsmaður Fiskistofu í samtali við
DV í júlí.
Í annari grein í hafnarlögum seg
ir að aflagjald af sjávarafurðum sem
losaðar eru í höfnum skuli minnst
vera 1,25 prósent og mest þrjú pró
sent af aflaverðmæti. Þeir aðilar
sem DV hefur rætt við og þekkja til
málsins eru sammála um það að
hafi fyrirtæki Þorsteins gerst sek um
löndunarsvindl megi ætla að hann
hafi dregið sér fé frá ríkinu með því
að borga vísvitandi of lítið aflagjald,
á sama tíma og hann bar ábyrgð
sem stjórnarformaður Reykjanes
hafnar.
6 | Fréttir 15. ágúst 2011 Mánudagur
Eitt umfangsmesta
kvótasvindl á Íslandi
n Saltver mögulega viðriðið eitt umfangsmesta kvótasvindl á Íslandi
n Eigandi Saltvers var stjórnarformaður Reykjaneshafnar á sama tíma
„Reynist útreikning-
ar Fiskistofu réttir
er ljóst að meint kvóta-
svindl Saltvers er eitt
það umfangsmesta sem
komið hefur verið upp um
á Íslandi.
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Beggja vegna borðs Þorsteinn Erlingsson eigandi Saltvers var einnig stjórnarformaður
Reykjaneshafnar þegar meint kvótasvindl fór fram.
Eldur á
Hótel Plaza
300 gestir Hótels Plaza í miðborg
Reykjavíkur þurftu að yfirgefa hótel
ið á sunnudagsmorgun þegar eldur
kom upp. Allt tiltækt lið slökkviliðs
ins á höfuðborgarsvæðinu var kallað
út og gekk ágætlega að ráða niður
lögum eldsins. Aðgerðum slökkvi
liðs lauk um áttaleytið, en reykræsta
þurfti hótelið. Öll 180 herbergi hót
elsins voru bókuð.
Starfsmenn Rauða krossins voru
kallaðir út til að aðstoða gesti hótels
ins. Tveir strætisvagnar voru sendir
á vettvang og gátu gestir hótelsins
leitað skjóls þar. Talið er að eldurinn
hafi komið upp í mótor sem knýr
loftræstikerfi hótelsins.
Lottópotturinn
gekk ekki út
Enginn var með allar tölur réttar í
lottóinu á laugardag og því verður
potturinn tvöfaldur um næstu helgi.
Tölur kvöldsins voru 1, 3, 6, 24 og 35
en bónustalan var 40. Einn var með
fjórar tölur réttar auk bónustölunn
ar og fær hann rúmar 200 þúsund
krónur í sinn hlut. Um þar síðustu
helgi duttu hjón í lukkupottinn þeg
ar þau unnu 26 milljónir króna. Þau
eiga sex uppkomin börn en vinn
ingsmiðinn var keyptur í Happahús
inu í Kringlunni. Rúmar fimm millj
ónir króna eru komnar í pottinn fyrir
næstu helgi.
Vilja fund vegna
stöðu leigutaka
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í félaga
og tryggingamálanefnd Alþingis
hafa óskað eftir að nefndin taki til
umfjöllunar stöðu þeirra sem eru
leigutakar á húsnæðismarkaði.
Nefndin fundar næst á þriðjudag.
Pétur Blöndal, þingmaður Sjálf
stæðisflokks, segist í tilkynningu
óska eftir upplýsingum sem fyrir
liggja um stöðu þessara heimila og
hvaða stuðnings þau njóta af hálfu
ríkisvaldsins og sveitarfélaga. Þá vill
hann skoða hvort ástæða sé til að
breyta þeim stuðningi til samræmis
við aðrar fjölskyldur.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,
fulltrúi sjálfstæðismanna í nefnd
inni, tekur undir orð Péturs og segir
að rétt sé að fá fulltrúa frá velferðar
ráðuneytinu á fundinn. Það sé enda
hlutverk ráðuneytisins að vinna úr
tillögum samráðshóps um húsnæðis
stefnu. „Ein af tillögum húsnæðis
hópsins er einmitt að húsnæðisbætur
komi í stað vaxta og húsaleigubóta
til að samræma húsnæðisstuðning til
fjölskyldna,“ segir Sigríður.
„Þetta var rosalega gaman, þau voru
mjög dugleg og allt gekk eins og í
sögu,“ segir Bergþóra að Eyrarkoti í
Kjós en vinnuflokkur frá Veraldar
vinum heimsótti hana í síðustu viku
og tók til hendinni. „Þau fúavörðu og
máluðu þakið á íbúðarhúsinu, slógu
grasið og hjálpuðu mér svo bara
að þrífa og svona,“ segir Bergþóra
sem er hæstánægð með heimsókn
ina. Ljósmyndari DV rakst á hluta af
vinnuhópnum að störfum og fékk að
smella af þeim mynd. Sjálfboðaliðar
hjá Veraldarvinum koma alls staðar
að úr heiminum en í hópnum sem
aðstoðaði á Eyrarkoti voru meðal
annars fjórar stúlkur frá Póllandi.
Anna Björk Árnadóttir, verkefna
stjóri hjá Veraldarvinum, segir sam
tökin á Íslandi taka við 1.600 sjálfboða
liðum á ári. Þeir sinna 150 verkefnum
úti um allt land en hvert verkefni tek
ur um tvær vikur. „Við erum til að
mynda með sjálfboðaliða í því að þrífa
strandlengjuna núna. Verkefnið sem
þau voru í á Eyrarkoti tengist sveita
lífi á Íslandi en þau voru á Vestfjörð
um áður en þau komu í Hvalfjörðinn.“
Anna segir verkefnin öll eiga það
sameiginlegt að þau séu samfélags
miðuð. Sem dæmi megi nefna að
sjálfboðaliðar Veraldarvina hafi að
undanförnu unnið við að gjörbreyta
götumynd Hverfisgötunnar með því
að mála og ditta að átta húsum við
götuna. Þá segir hún aðaláherslu
samtakanna vera á umhverfismál
og menningarlega viðburði eins og
Menningarnótt þar sem Veraldarvin
ir láta til sín taka. „Þetta eru rosalega
fjölbreytilegir hlutir sem sjálfboðalið
ar okkar eru að gera.“
Næstkomandi föstudag verða
haldnir styrktartónleikar á Sódómu
Reykjavík fyrir verkefni Veraldar
vina í Kólumbíu. Hafa nokkrir með
limir samtakanna hér á landi hug á
því að aðstoða íbúa eyjunnar Tierra
Bomba, svo sem með því að kenna
þeim ensku. Anna hvetur fólk til þess
að mæta á tónleikana en Haffi Haff og
Bjartmar og Bergrisarnir eru á meðal
þeirra sem spila.
jonbjarki@dv.is
Sjálfboðaliðar alls staðar að úr heiminum vinna samfélagsmiðuð verkefni hér á landi:
Veraldarvinir aðstoða bændur
Tóku til höndum Fjöldi sjálfboðaliða kemur á ári hverju hingað til lands til að vinna sam-
félagsmiðuð verkefni, þessar stúlkur hafa aðstoðað á sveitabæjum. Mynd EyþóR ÁRnASon