Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2011, Blaðsíða 10
10 | Fréttir 15. ágúst 2011 Mánudagur
B
ifreið Hannesar Smárason
ar var lagt fyrir utan Fjölnis
veg 9 um helgina. Greint var
frá því 29. apríl síðastlið
inn að húsið hefði verið selt
til huldufélags í Lúxemborg. Ljóst
þykir að Hannes standi á bak við
félagið eða tengist því að minnsta
kosti. DV hefur ekki upplýsingar um
hvort Hannes hafi verið í húsinu um
helgina en bifreiðin á meðfylgjandi
mynd er þó skráð á hann.
Sparkle S.A., huldufélagið sem
keypti húsið, yfirtók lán frá Lands
bankanum upp á 74,3 milljónir
króna. Húseignin var skráð á sam
býliskonu Hannesar, Unni Sigurðar
dóttur, en Hannes keypti húsið fyrir
hrunið 2008. Hann átti um tíma einn
ig Fjölnisveg 11, sem er húsið við hlið
ina. Hann hefur það til leigu af Lands
bankanum sem tók húsið yfir vegna
skulda Hannesar við bankann.
Þrír félagar frá Lúxemborg
Fréttatíminn greindi frá sölu hússins
í apríl síðastliðnum en samkvæmt
upplýsingum úr lögbirtingablaðinu
í Lúxemborg var Sparkle S.A. stofn
að 7. desember árið 2010 af þeim
Clive Godfrey, Stephane Biver og
Alain Noullet. Þremenningarnir eru
allir frá Belgíu en búsettir í Lúxem
borg. Tengsl þeirra við Hannes eru
óljós. Hlutafé Sparkle S.A. var skráð
31 þúsund evrur eða rúmlega fimm
milljónir króna við stofnun félagsins.
Samkvæmt Fréttatímanum voru það
þeir Clive Godfrey og Stephane Bi
ver sem skrifuðu undir kaupsamning
á húsinu að Fjölnisvegi 9 fyrir hönd
Sparkle S.A.
Hannes sannkallaður heims-
borgari
Fjölnisvegur 9 er 370 fermetra glæsi
hýsi sem Hannes eignaðist upp
haflega árið 2004. Hann hefur þó
ekki búið í húsinu undanfarið en
líkt og DV greindi frá í nóvember
2010 býr Hannes Smárason í Barce
lona á Spáni ásamt Unni, sambýlis
konu sinni. Áður en Hannes flutti
til Barcelona bjó hann í Lúxemborg
með fjölskyldu sinni. Það var staðfest
af dómstól í New York í Bandaríkjun
um en dómstóllinn birti yfirlýsingu
frá Hannesi þess efnis í tengslum við
málssókn Glitnis á hendur honum
og öðrum fyrrverandi eigendum og
stjórnendum bankans. Þar áður bjó
hann í London.
Aftur með gömlu eignirnar
Eins og áður segir hefur Hannes leigt
húsið að Fjölnisvegi 11 af Landsbank
anum undanfarna mánuði. Húsið,
sem er 430 fermetrar að stærð, er
enn í eigu Fjölnisvegar 9 ehf. sem er
í eigu Hamla ehf., eignarhaldsfélags
Landsbankans. Kristján Kristjáns
son, upplýsingafulltrúi Landsbank
ans, greindi frá þessu í svari sínu við
fyrirspurn DV í desember 2010. „Það
er í útleigu til Hannesar Smárasonar.
Þetta er samkomulag frá því í mars
2008,“ sagði Kristján aðspurður
en hann neitaði að gefa upp
hvert leiguverðið væri.
Það voru stjórnendur
gamla Landsbankans
sem gerðu allt að
sex ára leigusamn
ing við Hann
es, samkvæmt
Kristjáni. Nýi
Landsbankinn, sem er að lang
stærstum hluta í eigu ríkis
ins, erfði leigusamninginn
við Hannes eftir hrunið
haustið 2008.
Hannes kominn
aftur á Fjölnisveg
n Bifreið Hannesar Smárasonar var lagt við Fjölnisveg 9 um helgina n Húsið
var selt til huldufélags í Lúxemborg n Var skráð á sambýliskonu Hannesar
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Kominn aftur á Fjölnis-
veg Þann 29. apríl var greint
frá því að húsið hefði verið selt
til huldufélags í Lúxemborg.
Óvíst er hver stendur að baki
félaginu en líklegt þykir að
Hannes sé einn þeirra.
Bifreið Hannesar Þessi Range Rover-
bifreið er skráð á Hannes Smárason. Bifreiðin
var fyrir utan Fjölnisveg 9 um helgina. Hannes
keypti húsið fyrir hrunið 2008.
Allt á einum stað!
Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir
Þú færð fría olíusíu ef þú lætur
smyrja bílinn hjá okkur
Komdu með bílinn til okkar og
þú færð fría ástandsskoðun