Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2011, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2011, Síða 15
A ð sjálfsögðu þarf að nota sólarvörn alltaf, ekki bara á sumrin heldur líka á vet- urna. Við snúum þannig gegn sólinni að geislarnir frá sólinni eru mjög sterkir,“ segir Guðrún Gyða Hauksdóttir hjúkrun- arfræðingur um mikilvægi þess að nota sólarvörnina áfram, jafnvel þó smám saman halli sumri. Í grein sem Guðrún skrifaði á vefsíðuna doktor.is kemur fram að útfjólubláir geislar geta farið í gegnum húðina og skemmt frum- urnar. Þegar skemmdirnar verða eykst hættan á húðkrabbameini og öldrun húðarinnar verður hraðari. Geislarnir geta raunar líka leitt til skemmda á sjón. Bera á oft á dag Haustið nálgast óðfluga og lofthit- inn fellur smám saman þegar líða tekur á ágúst. Guðrún ítrekar mik- ilvægi þess að þó lofthitinn falli sé sólarvörnin jafn mikilvæg. Því mið- ur sé það stundum þannig að fólk muni frekar eftir sólarvörninni yfir hásumarið, en verði síðan fyrir því að brenna á öðrum tíma ársins, til dæmis á skíðum á veturna. Hún segir aðspurð ekki nóg að bera á sig, eða börnin, sólarvörn á morgnana áður en farið er út í sól- ina. „Margir bera bara á börnin einu sinni eða tvisvar yfir daginn. En það er mjög mikilvægt að bera sólarvörnina á húðina á tveggja til þriggja tíma fresti allan daginn.“ Hún segir jafnframt að þó sólarvörn eigi að vera vatnsheld geti vörnin bæði nuddast og skolast af smám saman. „Maður svitnar og þetta get- ur nuddast af, til dæmis í fötin,“ seg- ir hún. Hún segir enn fremur að mikil- vægt sé að gleyma ekki að bera sól- arvörn á staði eins og ristar, eyru og aftan á háls. Eins sé afar mikilvægt að fylgjast með því að nota ekki sól- arvörn sem sé útrunninn. Hún virki ekki á sama hátt og ný. Rautt hár eða ljós húð? Guðrún segir að þeir sem hafi ver- ið mikið úti í sólinni í sumar geti smám saman minnkað vörnina. Húðin myndi þol fyrir geislunum en þó sé góð regla að hafa vörnina nógu sterka og nota hana nógu oft. Í greininni á doktor.is segir Guð- rún að nauðsynlegt sé að fylgjast vel með fæðingarblettum og láta lækni skoða þá ef þeir stækka, breyta um lit eða breytast á annan hátt með til- liti til mögulegra frumubreytinga í húð. Fram kemur að þeir sem séu með rautt eða ljóst hár, ljósa húð sem brenni auðveldlega, mikið af fæðingarblettum eða freknum, hafi áður sólbrunnið mikið eða fólk sem hafi ættarsögu um húðkrabba- mein sé í aukinni hættu á að fá húð- krabbamein. Ef eitthvað af þessu á við þig þarftu að gæta húðarinnar sérstaklega vel. Guðrún segir skilaboðin einföld þegar kemur að því að vera úti í sól- inni. „Ekki brenna. Það er aðalatrið- ið,“ segir hún í samtali við DV. Fáið hjálp við val á sólarvörn Fjölmargar tegundir sólarvarn- ar má finna í apótekum og öðrum verslunum. DV fór í eitt hefðbundið apótek og komst að því að sólarvörn var fáanleg frá að minnsta kosti sjö mismunandi framleiðendum. Verð á einni einingu, sem getur nýst í fjölmörg skipti, reyndist á bilinu 840 til ríflega 3.300 króna. Hver framleiðandi framleið- ir margar tegundir af sólarvörn en ráðlegt er að leita aðstoðar við valið hjá starfsmönnum apóteka. Sólar- varnir hafa mismikla vörn auk þess sem margir framleiðendur bjóða upp á sólarvörn fyrir börn, þá sem hafa ofnæmi eða sérlega viðkvæma húð. Listann hér til hliðar má nota til að auðvelda valið. Neytendur | 15Mánudagur 15. ágúst 2011 n Mikilvægast af öllu er að brenna ekki í sólinni n Bruni getur valdið húðkrabbameini n Ekki nóg að bera vörnina á að morgni n Brúsinn kostar oftast um tvö til þrjú þúsund „Ekki brEnna“ Baldur Guðmundsson blaðamaður skrifar baldur@dv.is n Nota sólrvörn með stuðlinum 15 eða meira (SPF 15). n Veldu sólarvörn sem verndar bæði fyrir UVB- og UVA-geislum. n Veldu sólarvörn sem er merkt sem fjögurra eða fimm stjörnu. n Berðu sólarvörnina á þurra og hreina húð. n Það þarf að minnsta kosti 2 teskeiðar af sólarvörn til að hylja höfuð, háls og handleggi. n Það þarf að minnsta kosti 2 matskeiðar af sólarvörn til að hylja afganginn af líkamanum. n Það þarf að bera sólarvörnina á líkamann á um það bil tveggja tíma fresti. n Það þarf að bera sólarvörn aftur á eftir að búið er að bleyta húðina (sund/ sturta o.þ.h.) jafnvel þó hún sé merkt sem vatnsheld. n Það er æskilegt að bera á sig sólarvörn þrátt fyrir að viðkomandi dvelji að mestu í skugga eða sé klæddur. n Ekki lengja þann tíma sem þú getur annars verið úti þó þú sért með sólar- vörn. Farðu eftir þessu Proderm Upplýsingar framleiðanda: Miðlungs sterk vörn, vatnsheld og án ilmefna. Algengt verð: Frá 2.300 - 2.400 kr.* Chicco Upplýsingar framleiðanda: Sterk vatns- heild sólarvörn fyrir ljósbrúna húð, prófuð af örveru- fræðingum og húðsjúkdómalæknum. Algengt verð: 1.700 - 2.700 kr.* Disney Upplýsingar framleiðanda: Sólarvörn sem er sérstaklega gerð fyrir viðkvæma húð barna. Mjög öflug vörn, prófuð af húðsjúkdóma- læknum. Algengt verð: 1.450 kr. Eucerin Upplýsingar framleiðanda: Öflug vörn fyrir viðkvæma húð. Er ekki klístruð og á að þola vatn. Algengt verð: 2.300 - 3.000 kr.* Hawaiian Tropic Upplýsingar framleiðanda: Miðlungs sterk í vökvaformi sem úða má á líkamann. Inniheldur C- og E-vítamín. Mjög vatnsheld. Algengt verð: 2.100 - 2.600 kr.* Piz Buin Upplýsingar framleiðanda: Sólarvörn fyrir þá sem þjást af húðofnæmi. Vatnsheld vörn prófuð af húðsjúkdómalæknum. Algengt verð: 3.000 - 3.300 kr.* Nivea Upplýsingar framleiðanda: Hraðvirk sólarvörn fyrir börn. Sú bláa er miðlungs sterk en sú hvíta mjög sterk. Prófaðar af húðsjúkdómalæknum og mjög vatnsheldar. Algengt verð: 840 - 2.490 kr.* Decubal Upplýsingar framleiðanda: Nærandi og mýkjandi sólarvörn fyrir þurra húð. Vatns- held og án ilmefna. Algengt verð: 2.450 kr. Úrval í hefðbundnu apóteki *Verðið er mjög breytilegt eftir styrkleika sólarvarnarinnar. „Það er mjög mikilvægt að bera sólarvörnina á húðina á tveggja til þriggja tíma fresti allan daginn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.