Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2011, Qupperneq 26
26 | Fólk 15. ágúst 2011 Mánudagur
Öskubusku-
drengur til
Hollands
Atli Sigurjónsson, leikmað-
ur hjá Þór, hefur vakið mikla
athygli fyrir leikgleði sína og
sókn á vellinum.
Í viðtali við fotbolti.net fyrir
bikarleik Þórs og KR sagði hann
KR vonda karlinn og Þórsara
öskubuskustráka að norðan,
og að ef allt gengi upp eins og í
góðri kvikmynd ættu Þórsarar
sigurinn vísan.
Nú er öskubuskudrengurinn
Atli á leiðinni til Hollands eftir
leikjatímabilið en útsendarar frá
hollenska úrvalsdeildarliðinu
N.E.C. Nijmegen hafa nú form-
lega boðið honum að æfa með
hollenska liðinu.„Þeir hjá N.E.C.
vilja fá mig í viku til að skoða
mig. Ég hef áhuga á að fara og
skoða þetta. Þetta er spennandi
tækifæri. Ég er hins vegar ekkert
viss um að vilja fara frá Þór enda
erum við í mikilli uppsveiflu
þessa dagana,“ segir hann.
Gifti sig á
úrslitadegi
Henry Birgir Gunnarsson,
íþróttafréttamaður Fréttablaðs-
ins, og Hildur Sigurðardóttir
létu pússa
sig saman
með pompi
og prakt á
laugardag-
inn. Það var
skemmti-
leg tilviljun
að athöfn-
in fór fram
sama dag og bikarleikur KR
og Þórs fór fram. Gestir brúð-
hjónanna sem margir hverjir
eru, eins og Henry Birgir, miklir
áhugamenn um boltann, létu
þetta ekki slá sig út af laginu og
fylgdust sumir með leiknum í
snjallsímunum sínum meðan
þeir árnuðu þeim heilla og
fylgdu þeim þennan dag.
Sækir um hjá
Skjá Einum
María Lilja Þrastardóttir fylltist
vonleysi í garð fjölmiðla þegar
hún frétti af nýjum afþreying-
arþætti fyrir konur sem verður
á dagskrá Skjás Eins í vetur.
Þættinum stýra Tobba Mar-
inósdóttir og Ellý Ármanns.
María Lilja ákvað að taka
til sinna ráða og sendi for-
ráðamönnum stöðvarinnar
starfsumsókn og bréf. Hér er
brot úr bréfi Maríu Lilju: „Ég er
ekki að biðja ykkur góða fólk að
taka þátt þennan úr sýningu,
en finnst að jafnræðis verði að
gæta og sæki ég því hér með
um vinnu við þáttargerð nú á
vetrarmánuðum. Hugmynd
mín er hvorutveggja einföld og
fersk, en það er afþreyingar-
þáttur fyrir konur sem fíla ekki
andfemínískt tal um varalituð
viskustykki, fyrirframákveðnar
hugmyndir um útlit og hvers-
konar upphóf klámvæðingar.“
Þ
etta er í rauninni
sumarfrí á sterum
og einu kröfurnar til
að vera með eru þær
að þú þarft að vera í
mjög góðu formi,“ segir einka-
þjálfarinn og crossfit-meistar-
inn Sveinbjörn Sveinbjörns-
son en hann hefur skipulagt
spennandi ævintýra- og æf-
ingaferð um Ísland ásamt af-
reksmanninum Blair Morris-
son. Blair þessi varð fimmti á
crossfit-heimsleikunum, þeim
sömu og Annie Mist kom sá
og sigraði á og má því réttilega
kalla sig fimmta hraustasta
mann heims.
„Við Blair Morrison kynnt-
umst á heimsleikunum í cross-
fit 2009 og höfum verið vinir
síðan. Okkur hefur lengi lang-
að til að halda æfingaferð fyrir
íþróttafólk í crossfit og ákváð-
um að drífa í því og byrja hér
á Íslandi,“ segir Sveinbjörn og
tekur undir að ferðin minni
um margt á ævintýraferðir
Bear Grylls sem kom meðal
annars hingað til lands til að
kenna Hollywood-stjörnunni
Jake Gyllenhaal hvernig á að
lifa af á hálendi Íslands. „Okk-
ar ferð snýst samt ekki um að
lifa af heldur erum við að reyna
að sameina tvennt, sumarfrí og
æfingar,“ segir Sveinbjörn.
Ferðin hófst á föstudag-
inn en það eru 30 manns sem
munu taka þátt, flestallir út-
lendingar. „Við byrjuðum í
Þórsmörk þar sem við óðum
yfir litla jökulá, svona til að
hressa fólkið við eftir flugið.
Strax um morguninn hlup-
um við eina 25 kílómetra yfir
Fimmvörðuháls og fórum það-
an upp á Langasjó til að njóta
útsýnisins. Eftir heitu pottana í
Landmannalaugum tökum við
nokkrar æfingar á leið okkar
yfir Sprengisand að Aldeyjar-
fossi. Næst liggur leiðin á Mý-
vatn, Dettifossi og Ásbyrgi en
við ætlum að grilla inni í botni
Ásbyrgis um kvöldið,“ segir
Sveinbjörn en á þessum níu
dögum sem ferðin mun taka
ætlar hópurinn einnig í flúða-
siglingu í Skagafirði og göngu-
ferð upp á fjallið Kirkjufell, svo
eitthvað sé nefnt. „Eftir að hafa
snorkað í Silfru stefnum við í
borgina og endum með því að
taka þátt í Reykjavíkurmara-
þoni og kíkjum svo á mannlífið
á Menningarnótt. Ferðinni lýk-
ur svo formlega á sunnudeg-
inum.“
Sveinbjörn segir íslenska
náttúru hafa upp á fjölmargt að
bjóða fyrir erlendu þátttakend-
urna. „Ísland er stórbrotið land
og ég fullyrði að þetta verður
ógleymanlegt, bæði fyrir okkur
Íslendingana og útlendingana.
Það er allt önnur upplifun að
gera æfingar úti. Krafturinn og
skemmtunin verður allt önn-
ur,“ segir Sveinbjörn sem von-
ast til að þessi ferð verði aðeins
sú fyrsta af mörgum. „Við erum
komin með myndatökumann
með okkur sem ætlar að gera
þátt um ferðina og vonandi er
þessi ferð komin til að vera,“
segir hann og bætir aðspurður
við að hann hafi ekki áhyggjur
af mikilli setu í bíl. „Við erum
búin að skipuleggja þetta svo
vel og eigum aldrei að þurfa
að sitja lengur í bíl en einn og
hálfan klukkutíma í senn. Þess
á milli stoppum við og tökum
vel á því.“ indiana@dv.is
Níu daga
sumarfrí
á sterum
Ævintýramaður Sveinbjörn hafði lengi
dreymt um ævintýra- og æfingaferð líkt og lagt
verður upp í á föstudaginn. Mynd Gunnar Gunnarsson
B
irta Björnsdóttir, eig-
andi Júniform, og húð-
flúrarinn Jón Páll Hall-
dórsson létu pússa sig
saman að heiðnum sið á dög-
unum. Birta minnti einna helst
á víkingaprinsessu í brúðkaup-
inu en hún saumaði brúðar-
kjólinn sjálf úr antíkdúkum og
krögum, sem hún hafði sank-
að að sér héðan og þaðan. Út-
koman var allt í senn ævintýra-
leg, gamaldags og rómantísk,
en neðan á kjólinn var hand-
heklaður átta metra kantur.
Samkvæmt heimildum DV
var gestum ekið í rútu að þjóð-
veldisbænum Stöng í Þjórsár-
dal þar sem hjónakornin voru
gefin saman af goða innan
um logandi kyndla. Þaðan var
ferðinni heitið á Rauða húsið
á Eyrabakka og þaðan í partí á
Frost og funa í Hveragerði.
Skemmtilegt er að segja frá
því að brúðkaupsdagurinn var
þann 11. júní 2011 en þann
dag voru nákvæmlega 11 ár
síðan Birta og Jón Páll kynnt-
ust. Það hlýtur því að hafa ver-
ið nokkuð auðvelt fyrir parið
að finna rétta daginn. Birta og
Jón Páll eiga saman tvö börn
en dóttirin var einmitt klædd í
eins kjól og mamman.
indiana@dv.is
Saumaði kjólinn sjálf
n Birta Björnsdóttir og Jón Páll Halldórsson voru pússuð saman að heiðnum sið
n níu daga crossfit-æfingaferð um Ísland
Víkingaprinsessa Kjólinn minnti
ekki vitund á rjómatertu eins og oft
vill verða með brúðarkjóla. Kjólinn
var gamaldags, rómantískur og
ævintýralegur.
Fimmti hraustasti maður heims Blair Morrisson skipulagði ferðina
með Sveinbirni. Blair er í gífurlega góðu formi enda ljóst að þeir sem ætla
að taka þátt í ferðinni verða að vera í alvöru formi.