Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2011, Síða 8
8 | Fréttir 22. ágúst 2011 Mánudagur
E
nn hefur ekkert spurst til
Matthíasar Þórarinssonar en
hann hvarf sporlaust í des-
ember í fyrra. Móðir Matth-
íasar, Þórgunnur Jónsdótt-
ir, segir son sinn vera erlendis en
vildi ekki fara nánar út í hvar eða
hvað hann væri að gera þar. „Ég veit
ekki nógu mikið, en það er eitthvað
sem hann er að vinna sem má ekki
trufla og hann verður bara að hafa
sína hentisemi með það. Ég er eig-
inlega bara í biðstöðu ennþá.“ Að-
spurð segist hún sjálf ekki hafa heyrt
í Matthíasi. Samkvæmt öruggum
heimildum byggir Þórgunnur það
að Matthías sé erlendis á samtölum
sína við miðla.
Óskandi að hann væri erlendis
Ágúst Svansson, aðalvarðstjóri lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu,
segist ekki hafa fengið neinar nýj-
ar upplýsingar um örlög Matthíasar
eða hvar hann gæti verið niðurkom-
inn. Aðspurður hvort möguleiki sé á
að Matthías gæti hafa farið úr landi
segir Ágúst að svo væri óskandi. „Það
væri ósk allra, en við höfum ekki
fengið neinar staðfestingar á því. Við
höfum ekki fengið neinar vísbend-
ingar og það er eins og hann hafi bara
horfið af yfirborði jarðar.“ Hann seg-
ir málið þó alltaf vera opið og menn
vinni að því að leiða það til lykta en
samkvæmt lögum er einstaklingur
ekki talinn af fyrr en þremur árum
eftir hvarf hans ef ekkert hefur hefur
spurst til hans. „Þetta er alltaf á borð-
inu hjá mér og við erum alltaf að
velta því fyrir okkur hvað hugsanlega
hefði getað gerst og hvernig. En þetta
verður opið hjá okkur næstu miss-
eri,“ segir Ágúst.
Í eigin heimi
Samkvæmt upplýsingum DV bend-
ir ekkert til þess að hvarf Matthíasar
hafi borði að með saknæmum hætti
og segir Ágúst aðalvarðstjóri að mál-
ið verði ekki rannsakað sem slíkt.
„Miðað við allt sem við höfum í
höndunum þá er ekkert sem bendir
til þess. Hann er einfari og miðað við
allt háttlag og líferni Matthíasar þá
bendir allt til þess að hann hafi verið
bara í sínum heimi.“
Víðtæk leit var gerð að Matthíasi
á sínum tíma sem bar engan árang-
ur. Bíll hans, gamall rússajeppi sem
hann hafði sjálfur gert upp og útbú-
ið sem húsbíl, fannst brunninn til
kaldra kola skammt frá malarnám-
um á Kjalarnesi en þar var engar
um vísbendingar að finna um ferðir
hans. Þórgunnur, móðir Matthíasar,
sagði í samtalið við DV í janúar síð-
astliðnum, að sonur hennar væri
sérstakur í háttum og þjóðfélags-
gagnrýninn. Hún nefndi sem dæmi
að hann notaði hvorki farsíma né
greiðslukort og saumaði sjálfur á sig
fötin. „Hann hugsar öðruvísi og er
ekki alveg í norminu. Hann er mjög
sjálfstæður, gerir allt á eigin forsend-
um og hefur mikið sjálfstraust.“
Ófundinn Ekkert er vitað um örlög Matthíasar Þórarinssonar sem hvarf í desember 2010. Móðir hans telur hann vera erlendis.
n Einfarinn Matthías hvarf sporlaust í fyrra n Lögreglan heldur málinu opnu
n „Eins og hann hafi horfið af yfirborði jarðar“ n Enginn grunur um saknæmt athæfi
Köld slóð
Matthíasar
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
„Ég veit ekki nógu mikið, en það er eitthvað
sem hann er að vinna sem má ekki trufla og
hann verður bara að hafa sína hentisemi með það.
Ég er eiginlega bara í biðstöðu ennþá.“
Fannst áfengisdauður í miðbænum:
„Þarna þekki
ég karlinn“
Mikill mannfjöldi safnaðist saman í
Reykjavíkurborg á Menningarnótt.
Skipulagðri dagskrá lauk rétt fyrir
miðnætti þegar tendrað var á ljósum
í Hörpu. Að sögn lögreglu gekk nótt-
in ágætlega en hún þurfti þó að hafa
afskipti af nokkrum einstaklingum,
einkum vegna drykkju.
Lögreglan hafði mikinn viðbúnað
og hafði í nógu að snúast. Útköll-
um fjölgaði eftir því sem á leið og
voru þau ekki bara bundin við mið-
borgina. Talsvert var kvartað undan
hávaða frá gleðskap í heimahúsum
víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu.
Nokkrar líkamsárásir voru tilkynntar
til lögreglu í nótt en þær eru flestar
minniháttar. Einhverjir fengu að
gista í fangageymslunni en þar hefur
oft verið fjölmennara
Í tilkynningu frá lögreglunni segir
að gestir á Menningarnótt hafi verið
í misjöfnu ástandi og að einn þeirra,
karl á fertugsaldri, hafi sofnað ölv-
unarsvefni á Fríkirkjuvegi. Hann var
fluttur á lögreglustöð en fljótlega
eftir að þangað var komið vaknaði
hann sæmilega hress miðað við að-
stæður. Eftir að lögreglan hafði út-
skýrt atburðarásina fyrir honum, að
hann hefði fundist áfengisdauður
í bænum, glotti maðurinn. „Þarna
þekki ég karlinn,“ sagði hann rogg-
inn.
Lögreglan segir að hann hafi svo
haldið sína leið. Ekki er vitað hvort
hann hélt áfram að skemmta sér
endurrisinn eins og fuglinn Fönix.
Hilmar Oddsson:
Vonarglæta Kvik-
myndaskólans
Kvikmyndaskóli Íslands verður ekki
settur á morgun og fullkomin óvissa
ríkir um málefni hans. Hilmar Odds-
son segir að staðan sé viðkvæm en
allt velti á því hvort og hvernig Ríkis-
endurskoðun hagar úttekt á fjármál-
um skólans. Hann segir að ef málið
fari ekki í farveg hjá Ríkisendurskoð-
un gæti skólinn jafnvel tekið til starfa
í næstu viku, en annars ekki fyrr en
eftir úttekt. Skólinn er því í raun sem
stendur í algjörri pattstöðu, þar sem
stefna menntamálaráðuneytisins
er sú að það semji ekki við skólann
um aukin fjárlög fyrr en Ríkisendur-
skoðun hefur lokið úttekt sinni. For-
sætisráðherra sagði þó í síðustu viku
að hægt verði að auka fjárframlög
til skólans og málin muni skýrast í
næstu viku.
Hilmar segir að fundað verði stíft
í vikunni til þess að reyna að koma
skólanum í gang aftur. Hann vildi
lítið segja en er nokkuð bjartsýnn.
Menntamálaráðuneytið hefur
lagt til að skólinn nýti þær 17 millj-
ónir sem fyrir hendi eru til þess að
halda starfi skólans áfram í nokkra
mánuði. Hilmar segir að það sé
ótækt þar sem skólinn skuldi starfs-
mönnum laun sem nema hærri
upphæð en þessum 17 milljónum.
Í tilkynningu frá stjórn skólans kom
fram að hann skuldar 38 milljónir
króna í laun til starfsmanna sinna.
Hilmar segist hafa fullan skilning
á því að kennarar geti ekki hafið
störf, enda sé erfitt að hefja störf hjá
aðila sem skuldi laun. „Það er erfitt
að koma til starfa í mínus og ég lái
kennurum skólans það ekki,“ segir
Hilmar.
Forseti Íslands sótti minningarathöfn um fórnarlömb voðaverkanna í Útey:
„Þrungið mikilli sorg og söknuði“
„Hún endurspeglaði á margvísleg-
an hátt hve djúpstæð áhrif þess-
ir hræðilegu atburðir hafa haft á
norsku þjóðina en líka hve einbeitt
hún er að standa saman og sýna
samstöðu og samkennd á þess-
um erfiðu tímum,“ segir forseti Ís-
lands, Ólafur Ragnar Grímsson, um
minningarathöfn um þá sem létust
í voðaverkinu í Útey. Ólafur Ragnar
fór í athöfnina fyrir hönd íslensku
þjóðarinnar ásamt Jóhönnu Sigurð-
ardóttur forsætisráðherra.
Hann segir athöfnina hafa verið
í senn sorglega og gleðilega. „And-
rúmsloftið var á vissan hátt þrungið
sorg en líka gleði yfir því að norska
þjóðin væri að sýna að hún gæti
saman glímt við þessa erfiðleika. Þó
voru það erfiðar stundir í athöfninni
þegar grátur margra sem þar voru
viðstaddir blönduðust tónlistinni
sem flutt var. Þegar myndir af öllum
þeim sem látist höfðu birtust tjaldi
og nöfn þeirra voru lesin upp þá var
það auðvitað þrungið mikilli sorg og
söknuði.“
Ólafur segir skilaboð ráðamanna
í Noregi vera skýr. „Ræðurnar sem
Haraldur konungur og Jens Stolten-
berg fluttu voru báðar mjög sterkar
og skýrar og fluttu ótvíræðan boð-
skap um það að Noregur og allar
þjóðir mættu ekki láta boðskap af
þessu tagi ógna lýðræðinu og hinu
opna og frjálsa samfélagi þar sem
fólk með ólík trúarbrögð og ólíka
menningu getur búið saman í friði.“
Ólafur segir voðaverkin koma
öðrum Norðurlöndum við. „Greini-
legt var að bæði konungsfjölskyld-
an og ráðamenn aðrir mátu það
mjög mikils að við fulltrúar ann-
arra Norðurlanda skyldum koma á
þessa athöfn því á vissan hátt, þótt
að atburðirnir hafi verið hræðilegir
í Noregi, þá skynja menn að tilræð-
ið var líka atlaga að því sem norrænt
samfélag hefur haft sem sína helstu
eðalkosti. Þess vegna var þetta líka
norræn yfirlýsing um að halda
áfram á sama veg og láta ekki ódæð-
ismann breyta þeim hugsjónum og
þeim gildum sem við teljum mikil-
vægust.“
Erfið stund Forsetinn segir það
hafa verið erfiða stund þegar myndir
og nöfn fórnarlamba voru birt á skjá í
athöfninni og heyra mátti sáran grát
aðstandenda í salnum.
Mynd REutERs