Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2011, Síða 10
Í
orðsins fyllstu merkingu munu
gestir Menningarnætur sjá Hörpu
í nýju ljósi,“ sagði Steinunn Birna
Ragnarsdóttir, tónlistarstjóri
Hörpu, í viðtali við Fréttablað-
ið á fimmtudaginn um ljósadýrðina
sem hún sagði myndu blasa við fólki
þegar ljósin í glerhjúpi hússins yrðu
tendruð.
Steinunn sparaði ekki stóru orð-
in í viðtalinu þegar hún undirbjó
landsmenn undir dýrðina. Hún
taldi að fólk ætti ekki að hafa aug-
un af Hörpu svo það missti „ekki af
andartakinu þegar við blasir ólýs-
anlegt og lýrískt sjónarspil. Slökkt
verður á götuljósum á meðan og svo
líða nokkrar mínútur þar til flugeld-
ar lýsa upp himininn, því viðstadd-
ir þurfa smástund til að jafna sig á
þessum stórbrotnu, sjónrænu há-
tíðarhöldum.“
Miðað við viðbrögð margra verð-
ur ljósadýrðin minnisstæð fyrir aðrar
sakir en að vera „lýrískt sjónarspil“ og
„sjónræn hátíðarhöld“. Illugi Jökuls-
son, fyrrverandi stjórnlagaráðsmað-
ur, var meðal þeirra sem tjáðu sig um
ljósin á Facebook-síðu sinni. „Biluð
jólasería,“ sagði hann einfaldlega.
Fleiri hafa lýst skoðun sinni á ljós-
unum og fæstir virðast vera á þeirri
skoðun að ljósin séu jafn glæsileg og
Steinunn lýsti í Fréttablaðinu síðast-
liðinn fimmtudag.
Viðbrögðin skýr á netinu
Fleiri taka undir með Illuga og kalla
ljósasýninguna bilaða jólaseríu.
Meðal þeirra eru Gunnar Lárus
Hjálmarsson, sem oftast er kallað-
ur Dr. Gunni, og Jónas Kristjáns-
son, fyrrverandi ritstjóri og bloggari.
Segja þeir báðir að tónlistar- og ráð-
stefnuhúsið hafi verið eins og biluð
jólaljósasería. Alda Sigmundsdóttir,
sem heldur úti vefsíðunni Iceland
Weather Report, tekur þó í annan
streng og líkir húsinu við diskókúlu.
„Fór og horfði á stærstu diskó-
kúlu heims tendraða við sjávarsíðu
Reykjavíkur í kvöld,“ skrifaði hún um
húsið og ljósin á Facebook.
Átti að vera glæsilegur loka-
hnykkur
Kostnaðurinn við að reisa glerhjúp-
inn hleypur á milljörðum króna. Efn-
iskostnaðurinn við hann er metinn á
tæpa þrjá milljarða. Ekki hefur feng-
ist uppgefið hvað Ólafur Elíasson,
hönnuður glerhjúpsins, fær í sinn
hlut. Ljósasýningin átti að vera loka-
hnykkurinn í opnunarferli tónlistar-
og ráðstefnuhússins Hörpu. Gler-
hjúpurinn sem lýstur var upp er eitt
stærsta listaverk í heiminum en gler-
hjúpurinn sjálfur er ekki bara ytra
byrði hússins heldur listaverk í sjálfu
sér. Lýsingin átti að magna upp sjón-
arspilið en glerið í Hörpu er hann-
að með það í huga að umhverfið og
lamparnir lýsi húsið upp á glæsileg-
an hátt. Ekki virðast þó margir hafa
orðið hrifnir af ljósadýrðinni og hef-
ur atriðið og opnunin fengið falleink-
unn hjá ansi mörgum.
Vilja ekki tjá sig um Hörpu
DV hafði samband við nokkra arki-
tekta og hönnuði til að fá viðbrögð
þeirra við uppljómun Hörpu. Enginn
af þeim vildi tjá sig um málið. Sögðu
þeir ýmist að ekki væri tímabært að tjá
sig um málið fyrr en eftir að hafa séð
húsið baðað ljósi oftar en einu sinni
eða að þeir vildu ekki tala illa um
ljósasýninguna og því vildu þeir ekki
tjá sig neitt um málið. Einn arkitekt-
anna samþykkti að tala við DV með
því skilyrði að nafn hans yrði ekki birt.
„Ég hreifst ekki af því í fyrstu en á von
á að það vaxi þegar frá líður og mað-
ur kynnist því betur,“ segir hann og
bætir við að viðbrögð áhorfenda hafi
vakið athygli hans. „Það voru engin
„váá“ viðbrögð og fólk klappaði ekki,
en hins vegar klappaði fólk ákaft fyrir
flugeldasýningunni.“
10 | Fréttir 22. ágúst 2011 Mánudagur
Hvernig fannst
þér tendrun
ljósanna í Hörpu?
„Mér fannst hún bara flott.“
Þórir Gunnarsson
49 ára starfsmaður Volcano House
„Allt í lagi, þetta var ekkert svakalegt. Ég
vissi samt ekki við hverju átti að búast.“
Karl Georg Karlsson
30 ára bílstjóri
„Ég átti nú von á meiru, en mér fannst
þetta flott.“
Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir
35 ára heimavinnandi
„Mér fannst þetta bara mjög glæsilegt,
en ég átti samt von á meiri ljósum.“
Hulda Ragnarsdóttir
55 ára starfsmaður á sambýli
„Mér fannst hún bara mjög flott.“
Valgerður Sif Indriðadóttir
15 ára nemandi
Dómstóll götunnar
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
„Fór og horfði á
stærstu diskókúlu
heims tendraða við sjáv-
arsíðu Reykjavíkur í kvöld.
Milljarðar af skattfé
Kostnaður við glerhjúp Hörpu settur í
samhengi.
Glerhjúpur Hörpu
2,9 milljarðar*
Niðurskurður hjá Landspítalanum 2010
3,4 milljarðar
Laun allra leikskólakennara árið 2010
6,7 milljarðar
Áætlaður rekstrarkostnaður
sjúkrahússins á Akureyri 2011
4,3 milljarðar
* SaMKVæMt SVaRI MenntaMÁlaRÁðuneytISInS VIð fyRIR-
SpuRn MaRðaR ÁRnaSonaR ÞInGMannS. uppHæðIn GetuR
bReySt Í taKt VIð GenGISÞRóun.
n lokahnykkurinn í opnun Hörpu vakti blendin viðbrögð n Hörpu líkt við
diskókúlu og bilaða jólaseríu n ljósadýrðin stóðst ekki væntingar Íslendinga
Vonbrigði Almennt virðist fólk hafa orðið fyrir
vonbrigðum með ljósadýrðina sem glerhjúpur
Hörpu átti að vera baðaður í á Menningarnótt.
Mynd GunnaR GunnaRSSon
„Biluð
jólasería“
Sigurjón egilsson
Facebook
„Finnst Harpa ekki flott.
Og ekki batnar hún. Fór
í anddyrið í dag. Svart
og kalt einsog sorgin.
Ljósaverkið bætir ekkert.“
Illugi Jökulsson
Facebook
„Biluð jólasería.“
Jónas Kristjánsson
Facebook
„Bilaða jólaserían í Hörpu
var vel við hæfi.“
Gunnar lárus
Hjálmarsson
Facebook
„Biluð jólasería vafin utan
um gangstéttarhellu.“
alda Sigmundsdóttir
Facebook
„Fór og horfði á stærstu
diskókúlu heims tendraða
við sjávarsíðu Reykjavíkur
í kvöld.“
egill Helgason
eyjan.is
„Fólkið bjóst líklega við því
að húsið yrði stórkostlega
uppljómað, en verkið er
frekar mínimalískt. Virkar
ekkert sérlega vel sem
skemmtiatriði fyrir mikla
mannmergð.“
Neikvæðni í netheimum