Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2011, Blaðsíða 12
12 | Fréttir 19. september 2011 Mánudagur
Ástralía:
Ákveða kyn
sitt í vega-
bréfum
Fólk sem er líffræðilega hvorki full-
komlega karlkyns né kvenkyns
getur nú valið kynið „X“ í ástr-
ölskum vegabréfum. Þá verður
„ transgender“-fólki gert kleift að
skrá sig sem annað hvort karlkyns
eða kvenkyns í vegabréfinu og fær
að velja kynið sjálft svo fremi sem
læknir styður það val. Það þarf ekki
að hafa gengist undir kynleiðrétt-
ingaraðgerð til að fá slíka skrán-
ingu.
Áströlsk stjórnvöld vonast til
þess að þetta auðveldi fólki ferða-
lög á milli landa, en margir hafa
lent í vandræðum þar sem þeir líta
út fyrr að vera af öðru kyni en skráð
er í vegabréfi þeirra.
Bandarísk stjórnvöld felldu í
fyrra niður ákvæði um nauðsyn
þess að fólk hefði gengist undir
kynleiðréttingaraðgerðir til að fá
kyni sínu breytt í vegabréfum og
feta áströlsk stjórnvöld nú í þeirra
spor.
Samtök fyrir jafnrétti í Ástralíu
segja að fólk ætti nú að geta ferðast
á milli landa án þess að lenda í því
að vegabréfi þess og ytra útliti beri
ekki saman. „Þetta er stórt skref
fram á við. Það hefur verið mjög
neyðarlegt fyrir fólk að hafa verið
kvenkyns í mörg ár, en vegabréf
þeirra segir að viðkomandi sé karl-
kyns, “ segir Martine Delaney, tals-
kona samtakanna. „Þetta er skref
í rétta átt og viðurkenning á því að
við höfum réttindi og eigum að geta
stýrt því sjálf hvernig kyn okkar er
skráð.“
astasigrun@dv.is
B
andarískir göngugarpar
hafa verið í fangelsi í tvö ár
í Íran. Yfirvöld í Íran gruna
þá um að vera njósnara en
þeir sáu fyrir endan á fang-
elsisdvöl sinni í sunnudag. Þeir
fengu þó ekki langþráð frelsi líkt
og þeir vonuðust eftir, því að annar
dómaranna sem átti að skrifa undir
pappírana um lausn þeirra er í fríi.
Lögfræðingur þeirra, Masoud
Shafiei, sagðist ekki geta lokið þessu
máli því einn dómaranna er í fríi til
þriðjudags og undirskrift hans verð-
ur að vera á lausnarpappírunum.
„Ég get ekkert annað gert en að bíða
til þriðjudags,” sagði Shafiei við The
Associated Press.
Fangarnir heita Shane Bauer og
Josh Fattal, báðir 29 ára gamlir. Búið
var að semja um lausn þeirra gegn
einni milljón bandaríkjadala. Þeir
hafa setið inni í tvö ár en mál þeirra
hefur aukið vantraustið á milli
bandarískra og íranskra yfirvalda.
Átta ára fangelsi
Þeir voru handteknir á landa-
mærum Írans og Íraks í júlí árið
2009 ásamt vinkonu þeirra, Sarah
Shourd. Henni var sleppt í fyrra
fyrir hálfa milljón bandaríkjadala.
Bauer og Fattal voru fundnir sekir
um njósnir fyrir Bandaríkin og fyr-
ir að fara ólöglega inn í Íran. Þeir
voru dæmdir í átta ára fangelsi í síð-
asta mánuði. Þeir neituðu báðir sök
í málinu.
Þeir sögðust hafa verið í fjall-
göngu í Írak og hefði óvart farið yfir
landamærin. Utanríkisráðherra Ír-
ans, Ali Akbar Salehi, sagði á laug-
ardag að yfirvöld væru reiðubúin að
milda dóminn yfir þeim á næstunni
sem tákn um góðvild Írana. Hann
minnist þó ekki á hvenær þeim yrði
sleppt úr haldi.
Formaður mannréttindaráðs Ír-
ans, Mohammed Javad Larijani,
sagði mennina hafa ekki bara hafa
farið ólöglega inn í Íran heldur
voru þeir einnig njósnarar á veg-
um Bandaríkjanna. „Við verðlaun-
um ekki njósnara,” sagði Larijani við
fjölmiðla á sunnudag.
AP fréttastofan segir þessi
misjöfnu skilaboð sýna valdabarátt-
una á milli forseta landsins Mahmo-
ud Ahmadinejad og klerka landsins,
sem stjórna dómstólunum. Fyrstu
fregnir af mögulegri lausn Bauer
og Fattal bárust snemma í síðustu
viku frá Ahmadinejad, sem sagði þá
geta fengið frelsi á nokkrum dögum.
Dómsmálayfirvöld sögðu þó að enn
væri verið að fara yfir skilyrði lausn-
ar þeirra.
Hillary vongóð
Talið er að Bandaríkjamennirnir
gætu fengið lausn úr fangelsi á mið-
vikudag. Utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, Hillary Rodham Clinton,
sagði síðastliðinn fimmtudag að
bandarísk yfirvöld vonuðust til þess
að þei yrði sleppt. Hún sagðist hafa
upplýsingar frá heimildarmönnum
að þeir myndu komast heim innan
skamms.
Fjölskyldur þeirra heyrði síðast
í þeim í maí í fyrra þegar mæðrum
þeirra var leyft að heimsækja þá í
Tehran.
n Bandarísku göngugarparnir sjá fram á lausn úr fangelsi í Íran n Verða að
bíða eftir dómara sem er í fríi n Dæmdir fyrir njósnir á vegum Bandaríkjanna
Göngugarpar bíða
eftir dómara í fríi
Birgir Olgeirsson
birgir@dv.is
Íran
Frjáls Sarah Shourd var sleppt úr haldi í fyrra.
Njósnarar? Shane
Bauer og Josh Fattal við
réttarhöld í Íran. MyND ReuteRs
Vinsæll
sjóræningja-
flokkur
Kosningar fóru fram í Berlín, höfuð-
borg Þýskalands á sunnudag. Gengi
Sjóræningjaflokksins svokallaða
vakti þó nokkra athygli, en flokkur-
inn fékk 8,6 prósent atkvæða. Flokk-
urinn berst fyrir ókeypis netaðgangi
fyrir alla, ókeypis almenningssam-
göngum og betri persónuvernd
á netinu. Kristilegir demókratar,
flokkur Angelu Merkel, bætti lítillega
við fylgi sitt í kosningunum. Þrátt
fyrir það segja stjórnmálaskýrendur
að skilaboð kjósenda beri vott um
óánægju með frammistöðu Merkel.
Græningjar stefndu að því að bola
sitjandi borgarstjóra frá völdum, en
tókst það ekki.
Þ
úsundir aðgerðasinna taka
nú þátt í mótmælaaðgerð-
inni „Occupy Wall Street“ eða
„Tökum yfir Wall Street“ sem
hófst með því að settar voru upp
tjaldbúðir í fjármálahverfi New York
á laugardaginn. Skipuleggjendur
mótmælanna segja að mótmæla-
staðan muni standa yfir í tvo mán-
uði en á meðal þess sem verið er að
mótmæla er vaxandi misskipting í
Bandaríkjunum og auðræði stórfyr-
irtækjanna. Mótmælin eru á frétta-
veitunni Al Jazeera sögð vera inn-
blásin af arabíska vorinu.
Á vefsíðu sinni segjast skipuleggj-
endur aðgerðarinnar vera að kalla
eftir byltingu í Bandaríkjunum. „Við
þurfum að endurheimta frelsið sem
hefur verið tekið frá fólkinu,“ seg-
ir meðal annars í tilkynningunni.
Þá segir að breytingar á kosninga-
kerfinu myndu engu breyta um þá
staðreynd að stórfyrirtækin stjórni
samfélaginu. Með því að hafa efna-
hagslega stjórn hafi þau í rauninni
pólitíska stjórn. Þeir sem standa að
aðgerðinni kalla einnig eftir því að
fólk skipuleggi sig og komi saman á
torgum í borgum og bæjum lands-
ins. Mótmælt hefur verið á ýms-
um stöðum í Bandaríkjunum um
helgina, þar á meðal í San Francisco
og höfuðborginni Washington.
Michael Bloomberg, borgarstjóri
New York sagði á laugardag að óeirða
væri að vænta í Bandaríkjunum ef
ekki yrði fundin lausn á því gríðar-
mikla atvinnuleysi sem ríkir í land-
inu. Rithöfundurinn og blaðakon-
an, Anna Lekas Miller, sagði í samtali
við PressTV að áhrif fyrirtækja á
stjórnmál væru orðin stjarnfræði-
lega mikil. Þá sagði hún að stjórnmál
kæmu ekki lengur til móts við þarf-
ir venjulegs fólks. Hún sagði að slíkt
ástand hefði í gegnum söguna kallað
á byltingu.
Taka yfir Wall Street
n Þúsundir koma saman í fjármálahverfi New york í aðgerð innblásinni af arabíska vorinu
Nafnlaus Á meðal þeirra sem taka þátt í mótmælunum eru meðlimir í Anonymous-samtökunum.