Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2011, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2011, Page 13
Fréttir | 13Mánudagur 19. september 2011 Allt á einum stað! Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir Þú færð fría olíusíu ef þú lætur smyrja bílinn hjá okkur Komdu með bílinn til okkar og þú færð fría ástandsskoðun F immtíu og fimm ára grísk- ur karlmaður hellti yfir sig bensíni og bar eld að sér eftir að banki neitaði að semja við hann um lán á húsnæði hans og fyrirtæki. Mað- urinn sagðist ekki geta greitt af láninu áður en hann bar eld að sér fyrir framan bankann á föstudag í Þessalóníku, í Norður-Grikklandi. Lögreglunni tókst að slökkva eld- inn í tæka tíð og var maðurinn fluttur á sjúkrahús með bruna- áverka. Yfirvöld í Grikklandi hafa ekki gefið upp nafn mannsins. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem hann tekur upp á því að kveikja í sjálfum sér. Fyrir fimmtán mánuðum gerði hann slíkt hið sama. Þá kvartaði hann yfir því að geta ekki greitt af lánum vegna fyrirtækjareksturs sem hann lagði í. Óánægðir Grikkir Mikil óánægja er í Grikklandi vegna efnahagsástandsins þar í landi. Fyrr í þessum mánuði komu um tuttugu og fimm þúsund manns saman í höfuðborg Grikk- lands, Aþenu, til að mótmæla nið- urskurði í ríkisfjármálum. Forsætisráðherra Grikklands, George Papandreou, sagði ekki möguleika á að hvika frá niður- skurðinum vegna stöðunnar á evrusvæðinu. Í júlí tilkynntu leið- togar evruríkjanna að Grikkir fengju aðstoð upp á 159 milljarða evra til viðbótar við þá aðstoð sem þeir fengu í fyrra. Dregið verður úr umsvifum ríkisins ásamt því að ríkisfyrirtæki verða seld og breyt- ingar verða gerðar á vinnumark- aði í landinu. Ávaxtasalinn frá Túnis Ekki er annað hægt en að hugsa til Mohameds Bouazizi, 26 ára ávaxtasala í Túnis, sem brá á það ráð að kveikja í sér eftir að hafa verið niðurlægður af embættis- konu í desember á síðasta ári. Ávextirnir voru teknir af Bouazizi í borginni Sidi Bouzid að morgni 17. desembers síðastliðins. Þegar hann heimtaði þá aftur sló emb- ættiskonan hann utan undir. Nið- urlægður fór hann fram á það við yfirmenn hennar að ávöxtunum yrði skilað en honum var neitað um þá og hann barinn. Hann fór þá til ríkisstjórans sem neitaði honum um áheyrn. Um hádegis- bilið fór hann að skrifstofu ríkis- stjórans, hellti yfir sig málningar- þynni, og bar að eld að sér. Níutíu prósent af líkama hans voru hulin brunasárum. Hann lést á sjúkrahúsi 4. janúar síðast- liðinn en þá hafði þjóðin feng- ið nóg og mótmælti yfirvöldum í Túnis. 14. janúar flúði forsetinn, Zine el-Abidine Ben Ali, landið og lauk þar með 23 ára valdatíð hans í landinu. n Bankinn neitaði að semja við hann um lán n Kveikti í sér til að mótmæla bankanum Kveikti í sér öðru sinni til að mótmæla banka Birgir Olgeirsson birgir@dv.is Grikkland „Níutíu prósent af líkama hans voru hulin brunasárum. Óhugnanlegt Ljósmyndari náði myndum af því þegar grískur maður hellti yfir sig bensíni og kveikti í sér svo hann varð alelda á skammri stundu. Lögreglumaður slökkti svo eldinn. Myndir reuTers 1 2 3 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.