Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2011, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2011, Qupperneq 2
2 | Fréttir 28. september 2011 Miðvikudagur Tillaga Sóleyjar Tómasdóttur: Borgin inn- leiðir kynjaða hagstjórn Reykjavíkurborg hefur ákveðið að auglýsa eftir sérfræðingi í kynjaðri hagstjórn og fjárhagsáætlunar gerð. Þetta var ákveðið á fundi borgarráðs á fimmtudaginn. Sóley Tómasdótt- ir, fulltrúi Vinstri grænna í borgar- ráði, bar upp tillögu um að ráðið yrði í stöðuna til eins árs í fyrstu, en borgarráð samþykkti með 5 atkvæð- um að ráða í stöðuna til sex mán- aða með möguleika á endurskoðun starfsins og hugsanlega framleng- ingu. Kynjuð hagstjórn hafði áður verið innleidd í fjármálaráðuneyt- inu, fyrst með einu stöðugildi sem nú er orðin tvö. Í greinargerð Sóleyjar sem hún lagði fram í borgarráði þegar hún bar upp tillöguna segir: „Kynjuð fjárhagsáætlunargerð snýst um að greina áhrif fjárútláta á aðstæður og möguleika beggja kynja og tryggja að forgangsröðunin nýtist bæði körl- um og konum til lengri og skemmri tíma.“ Þá segir Sóley að kynjuð fjárhags- áætlunargerð hafi haft afar jákvæð áhrif á stöðu kynjanna þar sem hún hefur verið innleidd, auk þess sem hún hafi skilað stórbættri nýtingu fjármagns. „Innleiðing kynjaðra áherslna krefst sérþekkingar og tals- verðrar greiningarvinnu. Til að hægt sé að fylgja eftir skýrslu Bryndísar Jóhannsdóttur um þessa vinnu sem kynnt var í borgarráði á haustmán- uðum 2010 er mikilvægt að sér- stakur starfsmaður verði ráðinn til starfa.“ Sóley segir í samtali við DV að það sé ekki síður mikilvægt að borgin ráðist í þetta verkefni en allir aðrir opinberir aðilar og helst einka- fyrirtæki. „Það hefur sýnt sig að þar sem kynjuð fjárhagsáætlunargerð er viðhöfð og gætt að sjónarmiðum beggja kynja hefur nýting fjármagns stórbatnað. Við sjáum þetta í lönd- um sem hafa innleitt þetta og eru komin lengra,“ segir hún og nefnir meðal annars Finnland og Noreg. „Þetta bætir hagstjórnina bæði fyrir karla og konur. Almannafé er betur varið þegar gætt er að þessum sjónarmiðum. Með þessu er ekki átt við að 50 prósent fari í karla og 50 prósent fari í konur heldur að áhrif ákvarðana séu metin svo það sé tryggt að þær gagnist öllu samfé- laginu.“ Aðspurð um dæmi við kynjaða fjárhagsáætlunargerð segir Sóley: „Uppbygging á ákveðinni fram- kvæmd kann að virðast vera karl- læg vegna þess að það eru karlarn- ir sem koma til með að byggja og standa í framkvæmdinni sjálfri, en kemur byggingin þegar hún er risin til með að nýtast á annan hátt? Það þarf að taka það inn í myndina líka. Þetta varðar til dæmis byggingu Landspítala háskólasjúkrahúss og byggingu á leikskólum.“ Það hlýtur að vera mjög stórt og umfangsmikið verkefni fyrir eina manneskju að ætla að fara ofan í saumana á allri fjárhags- ætlunargerð. Sóley segir hins vegar að kynjuð hagstjórn sé mjög ný hugsun og hún verði ekki innleidd á skömmum tíma. „Við ráðum ekki 30 manns til að breyta því hvernig við vinnum fjárhagsáætlun. Þetta er verkefni sem þarf að taka í smá- um skrefum. Starfsmaðurinn byrjar með ákveðin afmörkuð verkefni og síðan verður haldið áfram.“ valgeir@dv.is Á tök brutust út á Hólmavík á mánudag þegar félags- málayfirvöld gerðu tilraun til að fjarlægja fjögur börn af heimili sínu. Félags- málastjóri fór ásamt starfsmanni barnaverndar í skóla og leikskóla og fjarlægði börnin að öðrum börn ásjáandi. Börnin fjögur eru á aldr- inum fimm til fjórtán ára, en grun- ur vaknaði hjá lögreglumanni sem vann í afleysingum á staðnum í sumar um að faðir barnanna beitti þau líkamlegu ofbeldi þegar hann skammaði yngstu dóttir sína að honum ásjáandi. Ók í veg fyrir fulltrúa Elsta barnið, fjórtán ára stúlka, slapp frá starfsmönnum barna- verndar og hljóp heim til sín, þar sem hún tilkynnti föður sínum að taka ætti þau systkinin af heim- ilinu. Faðirinn segist hafa átt erfitt með að greina orðaskil vegna ekka- soga dóttur sinnar sem var í miklu uppnámi. „Hún sagði mér að þau hefðu verið tekin úr skólanum og það hefði átt að fara með þau eitthvert í burtu. Ég keyrði af stað upp í skóla og mætti konunni. Það voru eng- in börn í bílnum hjá henni en hún keyrði í burtu með offorsi og lát- um. Svo miklum látum að hún var næstum því búin að keyra framan á annan bíl. Dóttir mín sagði mér þá að systir hennar væri í öðrum bíl sem var fyrir aftan bifreið fulltrú- ans. Ég náði að aka í veg fyrir hana og stoppa hana. Ég tók fimm ára og níu ára dætur mínar út úr bílnum og fór með þær heim. Konan sem var með börnin í bílnum kom á eftir okkur,“ segir faðirinn. Eftir að heim var komið mættu tveir lögreglubílar á staðinn ásamt barnaverndarfull- trúa. Fjölskyldufaðirinn hringdi þá í lögmann sem stöðvaði aðgerðina. Börnin fengu áfallahjálp Móðir barnanna segir þau vera í áfalli. „Bæði yngsta stelpan og sú elsta köstuðu upp þegar þær komu heim, þær voru í svo miklu upp- námi. Þær titruðu og skulfu. Son- ur minn hafði verið í leyfi frá skóla þann daginn en hann var í ferðalagi með vini sínum og fjölslyldu hans. Þegar hann kom heim brotnaði hann saman þegar hann sá ástand- ið á systrum sínum. Við erum búin að vera í sjokki eftir þetta og erum að fara með börnin í áfallahjálp á eftir.“ Félagsmálastjóri á Ströndum og í Reykhólahreppi er Hildur Jakob- ína Gísladóttir, en hún tók við starf- inu fyrir rúmu hálfu ári. Hún er með BA-gráðu í sálfræði frá Háskólanum í Utrecht í Hollandi og Háskóla Ís- lands, auk þess sem hún hefur meistaragráðu í viðskiptastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík. Hún er því ekki félagsráðgjafi að mennt þó að hún hafi unnið talsvert á sviði barnaverndar. Foreldrar barnanna gagnrýna vinnubrögð Hildar Jakob- ínu og segja aðförina vera harka- lega og í engu samræmi við ástand mála. „Hún bara hlustaði ekki“ Það var síðasta sumar sem lög- reglumaður sem vann á Hólmavík í afleysingum tilkynnti um meint ofbeldi föðurins gegn yngstu dótt- ur sinni. „Dóttir mín hafði verið óþekk og ég skammaði hana. Hún hélt á grjóti í hendinni og gerði sig líklega til að kasta því í átt að syst- ur sinni. Ég tók í höndina á henni og hún lét sig detta. Lögreglu- maðurinn sá þetta og tilkynnti til barnaverndar. Það fór eitthvert ferli í gang en við heyrðum ekkert í einhverjar vikur.“ Þau fengu síðan símhringingu frá Hildi Jakobínu sem boðaði móðurina á fund og tilkynnti henni að upp væri kom- ið nýtt mál. Að faðirinn hefði lagt hendur á fjórtán ára dóttur þeirra. „Hún sagði mér hvenær þetta atvik átti að hafa átt sér stað. Ég sagði henni að það gæti ekki staðist því það kvöld var dóttir mín ásamt nokkrum vinum að undirbúa af- mælisveislu fyrir vin þeirra. Hún var í félagsskap vina og það eru bæði foreldrar barnanna og vinir hennar sem eru til vitnis um það. En hún hlustaði ekki á mig. Þeg- ar ég var búin að segja henni að það væri enginn fótur fyrir því að maðurinn minn legði hendur á börnin sín, spurði hún mig hvort hann beitti mig ofbeldi og hvort ég væri hamingjusöm. Ég sagði henni að ég væri ekki beitt ofbeldi og ég vissi ekki betur en ég væri hamingjusöm. Hún lét mig svara spurningalista, en sagði í lokin á samtalinu að annaðhvort yrð- um við að fara út af heimilinu eða maðurinn minn ef hann leitaði sér ekki sálfræðiaðstoðar. Hún bara hlustaði ekki.“ Börnin fengu áfall n Fjölskylda á Hólmavík sakar félagsmálastjóra um að hafa gengið fram með offorsi í starfi n Börnin fjarlægð úr leikskóla og skóla n Fengu áfallahjálp Hanna Ólafsdóttir hanna@dv.is Úttekt Lögreglan Fylgdist með aðgerðum barnaverndarfulltrúa. Myndin er frá mánudeginum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.