Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2011, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2011, Blaðsíða 14
Vandaðir markaþættir n Lofið fá umsjónarmenn Pepsi- markanna á Stöð 2 Sport, þeir Hörður Magnússon, Hjörvar Hafliðason og Reynir Leósson. „Þó að maður sé ekki alltaf sammála öllu eru þeir ein helsta ástæða þess að ég kaupi áskrift að Stöð 2 Sport. Þættirnir eru vandaðir og maður situr límdur við þá þar til yfir lýkur,“ segir ánægður viðskiptavinur Stöðvar 2 Sport. Dýrar langlokur n Lastið að þessu sinni fær Bakaríið við Brúna á Akureyri. Akureyring- ur sem kaupir reglulega bakkelsi í bakaríinu segir að verð þar sé orðið of hátt. „Þeir eru með frábærar tún- fisklanglokur en mér finnst það orðið fullmikið að borga rúmar 700 krónur fyrir eina langloku. Verðið hjá þeim hefur hækkað full mikið undan- farin misseri og er nú svo komið að ég er farinn að smyrja mér sjálfur,“ segir við- mælandi DV. 14 | Neytendur 28. september 2011 Miðvikudagur E ld sn ey ti Bensín Dísilolía Algengt verð 233,9 kr. 233,9 kr. Algengt verð 233,6 kr. 233,6 kr. Höfuðborgarsv. 233,5 kr. 233,5 kr. Algengt verð 233,9 kr. 233,9 kr. Algengt verð 235,9 kr. 234,0 kr. Melabraut 233,6 kr. 233,6 kr. SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS Lof&Last 100 þúsund króna sekt mun standa Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest úrskurð Neytenda- stofu um að verslanirnar Cosmo og Skóarinn í Kringlunni hafi brotið gegn lögum um eftirlit með við- skiptaháttum og markaðssetningu. Neytendastofa sektaði bæði fyrir- tæki; Skóarann um hundrað þúsund krónur en Cosmo um 50 þúsund krónur, vegna þess að verðmerking- um var ábótavant í verslununum. Höfðu bæði fyrirtæki fengið tækifæri til að koma verðmerkingum í eðli- legt horf, samkvæmt úrskurði sem birtur er á vef Neytendastofu. Fyrir- tækin kærðu ákvörðun Neytenda- stofu en áfrýjunarnefnd hefur sem fyrr segir staðfest ákvörðun hennar. Þ etta kemur verst niður á neytandanum því kostn- aðurinn sem fylgir þessum reglum mun þýða hærra matvöruverð í landinu,“ seg- ir Jón Gerald Sullenberger, eigandi matvöruverslunarinnar Kosts. Ný reglugerð Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráð- herra, um merkingar á erfðabreytt- um matvælum tekur gildi um ára- mótin. Frá og með 1. janúar verður skylda að merkja matvörur sem inni- halda meira en 0,9 prósent af erfða- breyttum efnum, til dæmis hveiti- korn, maís eða soja. Þar á meðal eru þekktar bandarískar matvörur eins og Cheerios og Hunts-tómatsósa. Gætu þurft að hætta með tilteknar vörur DV hafði samband við nokkra af stærstu innflytjendum bandarískra matvæla á Íslandi. Hjá Nathan og Ol- sen, sem flytja til dæmis inn morg- unkornið vinsæla Cheerios frá Gene- ral Mills, fengust þær upplýsingar að unnið væri að því að finna leiðir til að fylgja reglunum en forsvarsmað- ur fyrirtækisins vildi ekkert láta hafa eftir sér um málið. Hjá Innesi fengust þær upplýsingar að verið væri að fara yfir hvort vörurnar sem þeir flytja inn innihaldi erfðabreytt efni. Enn sem komið væri hefði sú ekki verið raun- in en vinnu við athugunina væri ekki lokið. Hjá Aðföngum, sem flytja inn matvæli frá Ameríku fyrir Hagkaup og Bónus, fengust svipaðar upplýs- ingar. Mögulega þyrfti að hætta að flytja inn tilteknar vörur. Einn innflytjandi sagði í samtali við DV að erfitt gæti verið að fram- fylgja reglunum því ekki væri alltaf auðsótt að fá leyfi stórra framleið- enda til að merkja vörurnar á þann hátt sem krafist verður, en á þeim verður að standa skýrum stöfum að varan innihaldi erfðabreytt efni. „Það gæti farið svo að við þyrftum að hætta að flytja inn vörur sem falla undir skilgreininguna,“ sagði einn innflytjandi sem ekki vildi láta nafns síns getið. Ekki væri tímabært að fullyrða um slíkt þar sem hvorki væri ljóst hvort reglugerðin ætti eft- ir að breytast né lægju viðbrögð er- lendra framleiðenda við reglunum fyrir. Ísland eina landið sem merkir ekki Markmið reglugerðarinnar er að neytendur fái réttar og greinargóð- ar upplýsingar um þau erfðabreyttu matvæli sem boðin eru til sölu, aug- lýst eða kynnt með öðrum hætti. Innan allra ríkja Evrópusambands- ins gilda skýrar reglur um merkingu erfðabreyttra matvæla. Þær vörur sem innihalda meira en 0,9 pró- sent af erfðabreyttum efnum ber að merkja á þann veg að skýrt komi fram að varan innihaldi erfðabreytt efni. Neytendasamtökin eru á meðal þeirra sem hafa barist fyrir því að erfðabreytt matvæli verði merkt. „Ís- land er eina landið á EES-svæðinu þar sem ekki þarf að merkja slík mat- væli sérstaklega. Um leið eru íslensk stjórnvöld að taka eðlilegt valfrelsi frá neytendum,“ sagði í frétt frá sam- tökunum í fyrra. Reglugerðin átti að taka gildi 1. september síðastliðinn en sjávarútvegs- og landbúnaðarráð- herra frestaði gildistökunni til ára- móta að ósk innflytjenda. Samtök líf- rænna neytenda sögðu að frestunin væru blaut tuska í andlit neytenda en forsvarsmenn samtakanna sökuðu ráðherra um að verja hagsmuni ör- fárra fyrirtækja sem flyttu inn banda- rískar matvörur. Verðið hækki Jón Gerald, eigandi Kosts, sem flyt- ur inn mikið af vörum frá Bandaríkj- unum, segir í samtali við DV að regl- urnar bitni þannig á sínum rekstri að hann hafi þurft að búa til tvö stöðu- gildi sem einungis muni sjá um að merkja erfðabreyttar vörur. Af orð- um má ætla að margar vörur í versl- uninni innihaldi erfðabreytt efni. „Það vill þannig til að matvöruverð í Bandaríkjunum er 20 til 40 prósent lægra en á evrusvæðinu. Annan dag- inn er á Íslandi talað um hátt mat- vöruverð en hinn daginn eru sett lög og reglur sem munu leiða til þess eins að vörurnar munu kosta meira; með alls kyns merkingum og höft- um. Það er verið að takmarka það svæði þar sem við getum fundið góð- ar ódýrar matvörur, eins og í Banda- ríkjunum,“ segir hann við DV. Hann segir að því miður muni neytandinn á endanum þurfa að borga fyrir þessa vinnu. „Við erum að tala um heila heimsálfu sem er að neyta þessara vara, sem marg- ir þekktustu matvælaframleiðendur heims framleiða,“ segir hann. Hann segir líka að eftirlit með matvælum í Bandaríkjunum sé mjög öflugt og að löggjöfin um matvæli sé svo skýr að stórir framleiðendur myndu aldrei setja á markað vörur sem myndu skaða fólk. „Þetta er ekkert annað en viðskiptahindrun á vegum ESB.“ Gunnar Ingi Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Hagkaups, tók í svip- aðan streng í samtali við DV en sagði þó ekki víst að vinnan við merking- ar myndi skila sér út í vöruverð Hag- kaups. Markaðurinn stýrði verðinu. Hann sagði þó að um væri að ræða aukinn kostnað fyrir verslanir eða innflytjendur. Slíkt gæti í sumum til- fellum haft einhver áhrif á verð. „Það gæti farið svo að við þyrftum að hætta að flytja inn vörur sem falla undir skilgrein- inguna. n Reglugerð um merkingar á erfðabreyttum matvælum tekur gildi um áramót n Öll lönd í ESB og EES merkja erfðabreytt matvæli n Jón Gerald segir að vöruverð gæti hækkað Baldur Guðmundsson baldur@dv.is Matvæli Auknar merkingar hækka vöruverðið Þekktar vörur* Dæmi um vörur sem innihalda erfðabreytt efni* Kellogg’s kornflögur Hunts-tómatsósa Cheerios Special K kornflögur Mars súkkulaði Betty Crocker M&M Snickers Knorr-sósur Coca Cola Pepsi *Af vefsíðunni The True Food Network. Ósáttur Jón Gerald segir að um sé að ræða viðskipta- hindrun á vegum ESB. Erfðabreytt Frá og með 1. janúar næstkomandi verður skylda að merkja matvörur sem innihalda meira en 0,9 prósent af erfðabreytt- um efnum. Þar á meðal er Cheerios.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.