Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2011, Síða 4
4 | Fréttir 28. september 2011 Miðvikudagur
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Reykjavík - Reykjanesbæ
Akureyri - Húsavík
Vestmannaeyjum - Flúðum
Gæða glersteinn
– ótal lausnir
D
agbjartur Heiðar Arnarsson
er nafn drengsins sem svipti
sig lífi í Sandgerði á föstudag,
ellefu ára að aldri. Hann bjó
í Sandgerði ásamt foreldrum
sínum og fjórum systkinum á aldrinum
fjögurra til tólf ára. Hann hafði búið við
einelti frá því að hann hóf skólagöngu
sex ára. Búið var að boða hann á fund
með helstu gerendum í eineltinu og
foreldrum í síðustu viku en fundinum
var frestað til þriðjudags. Hann glímdi
við þunglyndi og einhverfueinkenni,
var viðkvæmur fyrir og þoldi illa breyt-
ingar og áreiti. Hann hafði áður reynt
að svipta sig lífi.
„Skemmtilegur strákur“
Helgi Karl Hafdal, sem er náinn vinur
foreldra Dagbjarts, hefur nú sett af stað
söfnun til styrktar þeim. Hann segir að
Dagbjartur Heiðar hafi verið „ljúfur
drengur og góður. Þetta var skemmti-
legur strákur sem átti það til að vera ör-
lítið stríðinn.
Hann var viðkvæmari en aðrir og
var lagður í einelti frá því að hann byrj-
aði í skóla. Börn eru misgrimm, sum
gerðu ekkert, hjálpuðu hvorki honum
né gerendunum. Ég hugsa að það sé
erfiðast hjá þeim núna.“
Fjölskyldan þarf hjálp
Helgi Karl segir að ástæðan fyrir söfn-
uninni sé einföld. „Faðir hans er gröf-
umaður og mamma hans er heima-
vinnandi húsmóðir en hefur verið í
sjálfboðavinnu við dýrahjálpina.
Þau eiga fjögur börn og fjárhags-
staða þeirra mætti vera betri. Það var
þungur róður hjá þeim áður en nú
leggst það ofan á að faðirinn er heima
og tekjulaus.
Við erum ekki að tala um að gera
þau rík heldur að hjálpa þeim yfir erf-
iðasta hjallann. Að jarða ættingja er
alltaf kostnaðarsamt ef sæmilega á að
standa að því.“
Komið gott
Helgi Karl segir að Dagbjartur hafi
lengi átt erfitt og foreldrar hans sömu-
leiðis. „Ég hef þekkt Dagbjart Heiðar
frá fæðingu og verð að segja að allt
brást í kerfinu sem átti að hjálpa hon-
um. Smæð samfélagsins gerði okkur
erfiðara fyrir og þeir sem vita að þeir
brugðust eiga um sárt að binda, líkt og
aðrir.
Skólastjórinn er niðurbrotinn og
rúmlega það. Kennarar og starfsfólk
skólans líka en það reyndi mikið til
að hjálpa honum. Þeir sitja eftir með
þessar spurningar – hvað ef og hvað ef
ekki?“
Foreldrar hans hafa staðið með
honum og gert allt sem þeir gátu til að
vernda barnið sitt en það dugði ekki
til. Baráttan hefur verið löng, skóla-
samfélagið og samfélagið í heild sinni
hefði þurft að sameinast í þessari bar-
áttu. Við berum öll ábyrgð og þolend-
urnir eru ekki vandamálið. Einelti er
dauðans alvara sem hefur nú þegar
kostað nokkur mannslíf.
Ég slapp en ég var sjálfur þolandi
eineltis sem sneri síðan vörn í sókn
og lagði aðra í einelti. Mér finnst þetta
orðið gott.“
Börn komu færandi hendi
Eins og fram hefur komið glímdi Dag-
bjartur Heiðar við geðraskanir en Helgi
Karl vill síður nota það orð „Þá er eins
og það sé ástæðan fyrir því að hann
svipti sig lífi. En það er aldrei eðlilegt
að ellefu ára gamalt barn svipti sig lífi.
Þunglyndið var tilkomið út af einelt-
inu. Það er engin spurning. Ekkert barn
verður þunglynt ef allt er í lagi.“
Hann segir að það sé þó huggun í
harmi að sjá hvernig börnin bregðast
við núna. „Þau koma til systkina hans
færandi hendi með styttur í sellófani
og krossa. Einn af þeim sem tók þátt í
eineltinu bjó til alveg ofboðslega falleg-
an bréfkross ásamt fleirum. Meiningin
var svo falleg, í raun voru þau að biðjast
fyrirgefningar.“
Gríðarleg sorg
Helgi Karl segir að sorgin sé gríðarleg.
„Það eru fjögur börn á heimilinu sem
eru smám saman að gera sér grein fyr-
ir því sem gerðist. Dagbjartur Heiðar
var næstelstur af fimm systkinum – og
stóri bróðir þeirra er ekki að koma aft-
ur. Þetta er skelfilegt ástand.
Meira að segja ég veit að þó að ég
sé viðræðuhæfur núna þá verður það
ekki svo eftir korter. Drengurinn er dá-
inn, hann á að jarða og ekkert er hægt
að taka til baka.“
Að lokum hvetur Helgi Karl alla sem
vettlingi geta valdið til að styðja við
fjölskylduna, með einum eða öðrum
hætti. Jafnvel frjálsum framlögum en
reikningsnúmerið má sjá hér fyrir ofan.
Sorg samfélagsins
„Samfélagið er enn í sorg,“ segir Sigurð-
ur Grétar Sigurðsson, sóknarprestur í
Útskálaprestakalli, og bætir því við að
samfélagið þurfi sinn tíma til að vinna
úr öllum tilfinningunum sem komi
upp þegar svona gerist. Margir fagaðil-
ar koma að og eru bæði samfélaginu og
einstaklingum til halds og trausts eftir
því sem við á. Þar á meðal er starfsfólk
heilbrigðisþjónustu, sálfræðiþjónustu,
skólans og kirkju. „Allt þetta fólk er að
vinna í því að þjónusta fólk í tengslum
við þetta áfall. Á bænastundinni á
sunnudag og samverustundum í skól-
anum á mánudag höfum við reynt að
vekja athygli fólks á því og hvatt það til
að vera óhrætt við að leita ráðgjafar og
aðstoðar hjá fagaðilum.“
Rætt við nemendur
Samverustundirnar voru liður í sam-
félagslegri áfallahjálp þar sem að hluta
til var um svipaða athöfn að ræða og á
bænastundinni í safnaðarheimilinu
á sunnudag. „Flestir höfðu verið þar
líka. Farið var yfir staðreyndir málsins
og fagfólk var til staðar eftir stundina.
Umsjónarkennari Dagbjarts Heiðars
ávarpaði hópana og hvatti til sam-
stöðu og aukins samstarfs foreldra.“
Í gær voru svo bekkjarfundir í
hverjum bekk með umsjónarkennara
og gengu prestur og skólastjóri í flestar
stofur og áttu stutt samtöl við einstaka
bekki. „Nálgunin var auðvitað mis-
munandi eftir því hvað börnin voru
gömul og hversu nálægt þau stóðu
honum Dagbjarti Heiðari.
En hér ríkir mikil samúð. Skiln-
ingur barnanna er auðvitað mismun-
andi eftir aldri þeirra. Börn þurfa líka
oft langan tíma til að átta sig á því sem
hefur gerst. Þau vinna úr sorg með allt
öðrum hætti en foreldrar þeirra.“
Sum eiga erfitt með svefn
„Ef maður horfir á hóp í frímínútum
þá getur maður eina mínútuna ekki
ímyndað sér að harmleikur hafi átt
sér stað en aðra stundina sér maður
að það ríkir mikil sorg. Þá má eng-
inn skilja það sem svo að börnunum
standi á sama, þau vinna bara svona
úr sorginni, það er eins og þau getið
hólfað lífið niður og eigi auðveldara
með að skipta um gír. Þegar það koma
frímínútur fara þau bara að leika sér.
Flest leika sér eins og þau hafa
venjulega gert. Önnur eru daprari og
með meiri hugsanir. Maður heyrir það
á mörgum að það hefur verið erfitt að
sofa og sumir hafa átt erfitt með að
borða. Það eru eðlileg sorgarviðbrögð,
eðlileg viðbrögð við óeðlilegum að-
stæðum.“
Leitað leiða til að hjálpa gerendum
Eins og komið hefur fram var Dag-
bjartur lagður í einelti og aðspurður
segir Sigurður Grétar að sum börn-
in átti sig á afleiðingum þess. „Mér
er kunnugt um að mörgum líður illa
og sumir hafa samviskubit og sekt-
arkennd af því að þeir gera sér grein
fyrir því að þeir hafa verið leiðinlegir
við hann. Það er eitt af því sem verð-
ur unnið með. Nú er verið að reyna
að kortleggja það hvernig hægt er að
vanda allan stuðning og þjónustu við
þessi börn. Það má ekki skilja það
þannig að nú eigi allir að vorkenna
þeim en það þarf að hjálpa langvar-
andi gerendum eineltis til þess að
horfast í augu við það sem gerst hef-
ur og vinna úr því svo þeir geti haldið
áfram og lagt af ákveðna hegðun. Það
er eining um það að vinna hratt og
örugglega að því.“
Draumsýn barnsins: „Að það væri
aldrei neinn að stríða“
Hann segir að það sé haft að leiðar-
ljósi að hér sé enginn feluleikur. „Hér
er reynt að horfast í augu við hlutina
eins og þeir eru og reynt að takast á
við þetta af æðruleysi og kærleika. Við
erum staðráðin í því að láta þetta böl
snúast til blessunar, það finnur maður
á foreldrum hans líka. Það var ágætis-
athugasemd sem kom frá einu barni,
þessi draumsýn: „Ég vildi að það væri
aldrei neinn að stríða.“
Það væri frábært markmið að skól-
inn væri stríðnislaus og það er mark-
mið sem verðugt er að stefna að, ein-
eltislaus skóli. Ég hef séð hversu mikil
vinna það er að standa vel að þessum
málum. Það eru ákveðnir verkferlar
sem skólinn fylgir og það eru heilu
teymin í skólanum og mjög margir
virkjaðir og sannarlega hefur það skil-
að árangri víða. En svo þurfum við enn
að leita leiða til að uppræta þetta alveg
og þá þurfum við kannski nýjar hug-
myndir og ný verkfæri.“
Fjölskyldan finnur fyrir samúð
Í raun upplifir hann gríðarlega sam-
kennd í skólanum og metnað til að
vanda til verka. „Ég held að svona
mál hristi upp í öllum skólum. Þrátt
fyrir allt upplifi ég ágætan brag. Það
er alltaf gleði og kæti í litlu börnun-
um en margir eru meyrir og börnin
munu örugglega sveiflast upp og nið-
ur á næstu vikum. Mörg þeirra teikn-
uðu fallegar myndir og minntust hans
þannig. Það stendur til að hengja það
upp. Svo hafa börn verið að koma á
heimili Dagbjarts Heiðars með gjafir,
sum hafa búið til kross sjálf. Þannig að
fjölskyldan hefur fundið fyrir mikilli
samúð.“
var ljúfur drengur
n Dagbjartur Heiðar Arnarsson glímdi við einelti n Vinur setur af stað söfnun fyrir fjölskylduna sem á um sárt að binda
n „Við berum öll ábyrgð“ n Enn mikil sorg í Sandgerði n Börn færa fjölskyldunni krossa sem þau hafa búið til sjálf„Við erum staðráðin
í því að láta þetta
böl snúast til blessunar,
það finnur maður á for-
eldrum hans líka. Það var
ágætisathugasemd sem
kom frá einu barni, þessi
draumsýn: Ég vildi að það
væri aldrei neinn að stríða.
Getur þú lagt
fjölskyldunni lið?
Reikningsnúmer: 0147-05-173
Kennitala: 010874-3789
Dagbjartur Heiðar Arnarsson
fæddur 15. febrúar 2000 – dáinn 23. september 2011
Dagbjartur Heiðar
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
ingibjorg@dv.is
Úttekt