Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2011, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2011, Blaðsíða 13
Erlent | 13Miðvikudagur 28. september 2011 Allt á einum stað! Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir Þú færð fría olíusíu ef þú lætur smyrja bílinn hjá okkur Komdu með bílinn til okkar og þú færð fría ástandsskoðun B reskir hermenn í Camp Bastion-herstöðinni í Af- ganistan eru látnir horfa á myndbönd af svívirðilegum morðum á talibönum. Myndböndunum er ætlað að bæta móralinn meðal hermanna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri heimildaþáttaröð, Fighting on the Frontline, en fyrsti þátturinn var sýndur á bresku Channel 4-sjón- varpsstöðinni á mánudagskvöld. Uppljóstrunin hefur vakið margar spurningar um framgöngu breskra hermanna í Afganistan og mikla for- dæmingu á meðal friðarsinna. Niðurlægjandi ummæli Camp Bastion-herstöðin er stað- sett í Helmand-héraði og er mið- stöð breska hersins í Afganistan. Þar eru um 21 þúsund hermenn. Blaða- menn breska blaðsins Independent hafa séð brot úr þáttaröðinni, en á þeim má sjá hermenn koma sam- an á það sem á íslensku mætti kalla drápskvöld (e. Kill TV Night). Herfor- ingi að nafni Andy Farmer brýnir fyr- ir hermönnum áður en myndbandið er sýnt að tala ekki um það sem þeir sjá. „Það sem þið sjáið er ekki til um- ræðu fyrir utan þetta herbergi. Það er ekki vegna þess að við höfum gert eitthvað vitlaust, heldur vegna þess að við gætum hafa gert eitthvað vit- laust.“ Og á sjálfum myndböndunum sjást afganskir ríkisborgarar verða fyrir loftskeytaárásum Apache-her- þyrlna, þar á meðal konu sem flug- menn kalla „snák með brjóst.“ Þeir gleðjast líka Í þáttaröðinni er einnig viðtal við herforingjann og ver hann sýn- inguna á myndböndunum. „Fólk horfir á þetta og hugsar með sér að þarna séu ungir menn að skemmta sér yfir dauða óvinarins. En ég veit ekki hvort talibanarnir geri eitt- hvað svipað, en ég er viss um að þeir gleðjast þegar þeir drepa einn af okkur,“ segir hann. Ekki stendur á svarinu þegar hann er spurður hvað hann haldi að fari um huga upp- reisnarmanna talibana þegar þeir sjá Apache-þyrlu nálgast: „Vonandi 30 millímetra byssukúla.“ Hann er vígreifur þegar hann er spurður út í veru breska hersins í Afganistan. „Við erum hér til að sinna ákveðnu verk- efni. Mér er alveg sama hvort þeim [talibönum] finnist við vera ósann- gjarnir. Ef þeir vilja vígbúast og berj- ast við okkur, þá óska ég þeim góðs gengis.“ Misheppnuð vera hersins Andrew Burgin hjá samtökunum Stop the War fordæmir sýninguna á myndböndunum. „Það, að bresk- ir hermenn séu látnir horfa á það sem kalla mætti „snuff“-myndir, sýnir fullkomlega hversu misheppn- uð vera hersins í Afganistan er.“ In- dependent greinir frá því að sýning þáttaraðarinnar muni gera það að verkum að aðgengi utanaðkomandi aðila, eins og heimildamyndagerð- armanna, að hermönnum í Afganist- an verði takmarkað héðan í frá. n Breskir hermenn í Afganistan horfa á myndbönd af morðum til að bæta móralinn n Smán breska hersins fullkomnuð, segir friðarsinni„Ef þeir vilja vígbú- ast og berjast við okkur, þá óska ég þeim góðs gengis. Misheppnað stríð Andrew Burgin gagnrýnir sýningu myndbandanna harðlega. Skemmta sér yfir myndum af morðum Apache-her- þyrla Á mynd- böndunum sjást sams konar þyrlur og á myndinni hér að ofan skjóta talibana til bana. Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is Afganistan Fangar vilja meiri fótbolta Hópur fanga sem situr á bak við lás og slá í fangelsi í Suður-Wales á Bretlandseyjum hefur lagt inn form- lega kvörtun til fangelsisyfirvalda. Ástæðan er sú að þeir fá einungis að horfa á eina fótboltastöð, Sky Sports 1, en vilja einnig fá aðgang að Sky Sports 2 og 3. Sú ákvörðun fanganna að kvarta formlega var tekin eftir að þeir misstu af leik Brighton og Liverpool í enska deildabikarnum í síðustu viku, en kornið sem fyllti mælinn var þegar þeir misstu af leik Manchester City og Everton í ensku úrvalsdeild- inni á laugardag. David Davies, þingmaður á svæð- inu, segir í samtali við breska blaðið Telegraph að hann eigi erfitt með að vorkenna föngunum vegna meints knattspyrnuleysis og bendir á að fjölmargir hafi ekki einu sinni efni á að kaupa sér áskrift að stöðvunum. Samkvæmt frétt Telegraph er afar ólíklegt að föngunum verði að ósk sinni um fleiri fótboltastöðvar. Tíu svipuhögg fyrir að aka bíl Dómstóll í Sádi-Arabíu hefur dæmt konu til að þola tíu svipuhögg fyrir að aka bifreið. Konan, sem kölluð er Shama, var handtekin í júlí í sumar í borginni Jeddah, en samkvæmt lögum í landinu mega konur ekki aka bifreiðum. Samkvæmt frétt BBC hefur Shama áfrýjað dómnum. Ekki alls fyrir löngu voru stofnuð samtök í landinu, Women2drive, en þau berj- ast fyrir því að konur fái að taka bíl- próf. Dómur yfir konunni féll aðeins tveimur dögum eftir að Abdullah konungur tilkynnti að konur fengju að kjósa í fyrsta skipti árið 2015.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.