Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1914, Page 26
24
verðið. Það sjest nú líka, þegar borin er saman þyngd helstu vöru-
tegundanna í viðskiftunum við Danmörku og Noreg, eins og hún er
tilfærð í íslensku skýrslunum og í skýrslum Dana og Norðmanna,
að munurinn verður ekki nærri eins mikill á þyngdinni sem á verð-
inu. En munurinn er samt töluverður. Bæði af saltfiski og síld er
miklu minna talið flutt hjeðan til Noregs í íslensku skýrslunum
heldur en í þeim norsku og sama máli er að gegna um fleiri úl-
flutningsvörur hjeðan, þó munurinn sje minni. Aftur á móti er
miklu meira talið flutt til Danmerkur af saltfiski og sild og töluvert
meira af fleiri útflutningsvörum i íslensku skýrslunum heldur en
talið er í dönsku skýrslunum. Sama máli er að gegna um ýmsar
aðfluttar vörur, að meir er talið af þeim frá Danmörku í íslensku
skýrslunum heldur en i þeim dönsku, en aftur minna frá Noregi
heldur en í þeim norsku. Þetta sýnir, að ýmsar vörur eru í íslensku
skýrslunum taldar keyptar í Danmörku eða seldar til Danmerkur,
sem í rauninnni eru keyptar í Noregi eða seldar til Noregs. Ef því
sem þannig er ofaukið í Danmerkurdálkinum væri bætt við Noreg
mundi ósamræmið milli íslensku skýrslnanna annarsvegar og dönsku
og norsku skýrslnanna hinsvegar minka mikið, en alveg mundi það
samt ekki hverfa.
Verslunarskýrslur Svía fyrir árið 1912 eru enn ekki komnar
hingað og verður því ekki sagl um, hve vel þær koma heim við ís-
lensku skýrslurnar. En árið á undan, 1911, töldu þær töluvert
meira aðfiutt af síld frá íslandi heldur en íslensku verslunarskýrsl-
urnar og er þvi ekki ólíklegt, að hið sama verði upp á teningnum
1912. Það virðist svo sem allur sá fiskur og öll sú síld, sem hjeðan
er ílutt, komi ekki fram i útflutningsgjaldsreikningunum. En vera
má, að mismunurinn stafi af því, að Norðmenn og Svíar telji það i
skýrslum sinum aðfiutt frá íslandi eða eitthvað af því, sem íiskað
er af Norðmönnum og Svíum hjer við land, en aldrei lagt á land
og því aldrei greitt neitt útflutningsgjald af.
Verslunarskýrslur Breta telja viðskiftin við ísland og Grænland
i einu lagi, en mestalt, ef ekki alt, sem þar er talið, mun eiga við ísland,
því að grænlenska verslunin er einokunarverslun og öll í höndum
Dana. Verslunarskýrslurnar bresku telja aðflutt frá íslandi og Græn-
landi 1912 fyrir 3,4 milj. kr., og útfiutt til íslands og Grænlands fyrir
4,4 milj, kr., en íslensku skýrslurnar telja ílutt til Bretlands fyrir 3,2
milj. kr. og frá Bretlandi fyrir 5,5 milj. kr. Er þar ekki sjerlega
mikið ósamræmi á milli, en bendir þó helst til, að i íslensku skýrsl-
unum sjeu lleiri vörur taldar undir Bretlandi, en þar eiga að vera.