Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1914, Qupperneq 32
30*
X. Siglingar.
Navigalion.
A. Skipakomur frá útlöndum.
Entrées des nauires dc Vctranger.
\ töilu X og XI (hls. 76—79) sjesl, hve mörg skip hafa komið
frá útlöndum árið 1912 á hverja höfn á landinu. Fj'rri taflan svar-
ar til skýrslna þeirra, sem áður hafa verið gerðar um skipakomur
frá útlöndum, en hún er að því leyti frábrugðin þeim, að nú er tal-
in ákvörðunarhöfnin eða aðalhöfnin, sem skipið kom á, en áður
var talin fyrsta höfnin, sem skipið kom á, hvort sem skipið álti
þangað mikið eða lítið erindi. Afleiðingin af þessari breytingu verð-
ur sú, að skipin sem koma frá útlöndum skiftast nokkuð öðru vísi
niður á hafnirnar heldur en áður. Þannig eru nú miklu fleiri skip
lalin koma frá útlöndum til Reykjavikur heldur en áður, en aftur
miklu færri til Vestmannaeyja, vegna þess að skip koma þar svo oft
fyrst við á leiðinni frá útlöndum til Reykjavíkur, en miklu eðlilegra
er að lelja skipin komin til Reykjavíkur, sem er aðalákvörðunarstaður
þeirra, heldur en til Vestmannaeyja, þar sem þau koma aðeins
snöggvast við á leiðinni. Stundum gelur verið töluverðum efa und-
irorpið, hverja höfn beri að telja ákvörðunarhöfnina, þegar skipin
ílytja farni á margar hafnir í sömu ferðinni, en þá er valin sú höfn-
in, sem það ílytur mestan farm til, að svo miklu leyti sem upplýs-
ingar hafa verið fyrir liendi um það.
XI. tallan er nokkurskonar viðauki við X. töfluna, því að hún
sýnir, hve oft skip þau, sem talin eru i fyrri töflunni, hafa komið
við á öðrum höfnum en þeim, sem taldar eru ákvörðunarhöfn
þeirra, á leiðinni frá eða til útlanda. Áður hafa þessar viðkomur
verið taldar sem skipakomur frá innanlandshöfnum, en það er vill-
andi, þvi að venjulega llytja skip þessi ekki farm hafna á miili að
neinu ráði heldur aðeins frá eða lil útlanda.
8. talla sýnir tölu og farmrými skipa þeirra, sem komið hafa
árlega hingað til Iands frá útlöndum siðan 1886, bæði í heild sinni
og gufuskipa og seglskipa sjer í lagi. Ef sama skipið kemur oftar
en einu sinni er það talið í hvert skifti sem það kemur. Skipa-
komunum frá úllöndum hefur ekki fjölgað mikið á siðari árum, en
aftur á móti liefur smálestatalan aukist mikið. Flestar urðu skipa-
komurnar árið 1907, en fækkaði síðan til 1909. Síðan 1909 hafa
þær aflur fjölgað nokkuð. Frá því á árunum 1891—95 þangað til