Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2011, Page 21
Sport | 21Mánudagur 24. október 2011
Úrslit
Enska úrvalsdeildin
Wolves - Swansea 2-2
0-1 Danny Graham (23.), 0-2 Joe Allen (35.),
1-2 Kevin Doyle (84.), 2-2 Jamie O’Hara (86.).
Aston Villa - WBA 1-2
1-0 Darren Bent (22. víti), 1-1 Jonas Olsson
(45.), 1-2 Paul Scharner (57.).
Bolton - Sunderland 0-2
0-1 Stéphane Sessegnon (82.),0-2 Nicklas
Bendtner (90.+3).
Newcastle - Wigan 1-0
1-0 Yohan Cabaye (81.).
Liverpool - Norwich 1-1
1-0 Craig Bellamy (45.+1), 1-1 Grant Holt (59.).
Arsenal - Stoke 3-1
1-0 Gervinho (27.), 1-1 Peter Crouch (33.), 2-1
Robin van Persie (72.), 3-1 Robin van Persie
(82.).
Fulham - Everton 1-3
0-1 Royston Drenthe (3.), 1-1 Bryan Ruiz (66.),
1-2 Louis Saha (89.), 1-3 Jack Rodwell (90.+3).
Man. United - Man. City 1-6
0-1 Mario Balotelli (22.), 0-2 Mario Balotelli
(59.). 0-3 Sergio Agüero (69.), 1-3 Darren
Fletcher (81.), 1-4 Edin Dzeko (88.), 1-5 David
Silva (90.+1), 1-6 Edin Dzeko (90.+3).
n Jonny Evans, Man. United (47.)
Blackburn - Tottenham 1-2
0-1 Rafael Van der vaart (15.), 1-1 Mauro
Formica (28.), 1-2 Rafael Van der Vaart (53.).
QPR - Chelsea 1-0
1-0 Heiðar Helguson (10. víti).
n Jose Bosingwa, Chelsea (33.), Didier
Drogba, Chelsea (40.).
Staðan
1 Man. City 9 8 1 0 33:7 25
2 Man. Utd 9 6 2 1 26:12 20
3 Chelsea 9 6 1 2 20:10 19
4 Newcastle 9 5 4 0 12:6 19
5 Tottenham 8 5 1 2 15:13 16
6 Liverpool 9 4 3 2 12:10 15
7 Arsenal 9 4 1 4 15:18 13
8 Norwich 9 3 3 3 11:12 12
9 Stoke 9 3 3 3 7:11 12
10 QPR 9 3 3 3 7:14 12
11 Aston Villa 9 2 5 2 11:11 11
12 WBA 9 3 2 4 9:11 11
13 Everton 8 3 1 4 10:12 10
14 Sunderland 9 2 3 4 12:10 9
15 Swansea 9 2 3 4 9:14 9
16 Wolves 9 2 2 5 8:14 8
17 Fulham 9 1 4 4 11:12 7
18 Bolton 9 2 0 7 12:24 6
19 Wigan 9 1 2 6 6:15 5
20 Blackburn 9 1 2 6 10:20 5
Enska B-deildin
Peterborough - Leeds 2-3
Blackpool - Nott. Forest 1-2
Cardiff - Barnsley 5-3
Coventry - Burnley 1-2
Hull - Watford 3-2
Ipswich - Crystal Palace 0-1
Leicester - Millwall 0-3
Middlesbrough - Derby 2-0
Portsmouth - Doncaster 3-1
Reading - Sothampton 1-1
Staðan
1 Southampton 13 8 3 2 28:14 27
2 Middlesbrough 13 6 6 1 16:8 24
3 Cr.Palace 13 7 2 4 18:12 23
4 West Ham 12 6 3 3 22:11 21
5 Leeds 12 6 3 3 24:18 21
6 Derby 13 6 3 4 17:16 21
7 Hull 12 6 3 3 12:11 21
8 Cardiff 13 5 5 3 23:19 20
9 Ipswich 13 6 2 5 18:20 20
10 Peterborough 13 6 1 6 26:22 19
11 Blackpool 13 5 4 4 19:16 19
12 Brighton 12 5 4 3 17:15 19
13 Leicester 13 5 4 4 15:14 19
14 Birmingham 10 5 2 3 17:13 17
15 Reading 13 4 5 4 15:14 17
16 Portsmouth 13 4 3 6 15:15 15
17 Burnley 12 4 3 5 15:16 15
18 Barnsley 13 3 6 4 14:16 15
19 Nottingham F. 13 4 2 7 14:23 14
20 Millwall 13 2 6 5 12:16 12
21 Coventry 13 2 5 6 10:16 11
22 Watford 13 2 4 7 11:23 10
23 Doncaster 13 2 2 9 8:22 8
24 Bristol City 13 1 3 9 9:25 6
Tæpt en það tókst
n Íslensku stelpurnar lögðu Ungverja ytra
Í
slenska kvennalandslið-
ið í knattspyrnu vann afar
þýðingarmikinn sigur á
Ungverjalandi, 1–0, í und-
ankeppni EM 2013 en liðin
mættust ytra á laugardaginn.
Það var Dóra María Lárus-
dóttir sem kom íslenska lið-
inu til bjargar með marki á 68.
mínútu en hún fylgdi þá eftir
skalla Margrétar Láru Viðars-
dóttur. Dóra María kom inn á
sem varamaður fyrir Laufeyju
Ólafsdóttur við upphaf seinni
hálfleiks.
Samkvæmt lýsingu á
heimasíðu KSÍ fór leikurinn ró-
lega af stað en Ísland hafði þó
yfirhöndina í leiknum. Færin
voru þó af skornum skammti.
Heimastúlkur sóttu í sig veðr-
ið undir lok fyrri hálfleiks og
þurfti Þóra Björg Helgadótt-
ir einu sinni að taka á honum
stóra sínum til þess að koma í
veg fyrir ungverskt mark.
Sigurinn var afar mikil-
vægur fyrir íslenska liðið eftir
jafnteflið óvænta gegn Belgíu á
Laugardalsvellinum í lok sept-
ember. Það jafntefli kom í kjöl-
far frábærs sigurs á hinu sterka
liði Noregs, 3–1. Ísland hefur
nú tíu stig í riðlinum þegar lið-
ið hefur lokið fjórum leikjum.
Belgía er í öðru sæti með fjög-
ur stig sem og Noregur en bæði
lið hafa einungis lokið tveimur
leikjum.
Á miðvikudaginn mætir ís-
lenska liðið Norður-Írlandi á
útivelli. Norður-Írland lék sinn
fyrsta leik í riðlinum á laugar-
daginn er liðið mætti Búlgaríu.
Það hafði sigur á útivelli, 1–0,
og er því með þrjú stig í riðlin-
um. Til samanburðar þá valt-
aði Ísland yfir Búlgaríu í fyrsta
leik sínum í riðlinum, 6–0.
Efsta liðið í riðlinum kemst
beint á EM sem haldið verður
í Svíþjóð árið 2013. Liðið sem
lendir í öðru sæti fer í umspil
en það var einmitt þannig sem
Ísland komst á EM í Finnlandi
árið 2009. Þá lagði Ísland Ír-
landi í tveimur umspilsleikjum
en Sigurður Ragnar Eyjólfsson
hefur sagt að liðið stefni beint
á EM í þetta skiptið. Hetjan Dóra María tryggði sigurinn. Mynd Karl Peterson
S
telpurnar okkar í ís-
lenska kvennalands-
liðinu í handbolta ætla
heldur betur Krýsuvík-
urleiðina á EM í Hol-
landi árið 2013. Þær töpuðu
öðrum leik sínum í undanriðl-
inum gegn Úkraínu í Laugar-
dalshöllinni á sunnudaginn,
20–21, en fyrsta leiknum töp-
uðu þær gegn Spáni, ytra, á
fimmtudaginn var. Stelpurnar
eru því án stiga eftir fyrstu tvo
leikina og eiga eftir útileik-
inn gegn Úkraínu. Úkraínsku
stelpurnar fögnuðu eins og
óðar væru eftir leikinn enda
dýrmæt tvö stig í höfn hjá þeim
auk þess sem þær komu fram
hefndum fyrir umspilsleikina
í sumar. Þar valtaði Ísland yfir
Úkraínu í tveimur leikjum og
tryggði sér farseðilinn á HM í
Brasilíu sem hefst í byrjun des-
ember. Ætli Ísland sér á þriðja
stórmótið í röð þurfa stelpurn-
ar að fara hysja upp um sig.
Frábærar 20 mínútur
Það stefndi í öruggan sigur Ís-
landi í Höllinni á sunnudag-
inn en liðið lék fyrstu tuttugu
mínúturnar nær óaðfinnan-
lega. Þær höfðu yfir, 8–3, og allt
gekk upp hvort sem það var
sókn, vörn eða markvarsla.
Gestirnir fóru þó að sækja á og
voru búnir að minnka muninn
í þrjú stig þegar flautað var til
hálfleiks, staðan 11–8, en allt í
góðum málum.
Það var svo í seinni hálfleik
að erfiðleikarnir fóru virkilega
að gera vart við sig hjá Íslandi,
sérstaklega sóknarlega. Liðið
skoraði aðeins fimm mörk á
fyrstu tuttugu mínútum seinni
hálfleiks og komst Úkraína yfir,
16–17, þegar ellefu mínútur
voru eftir. Úkraína komst svo
í 16–18 áður en Ísland skoraði
loks aftur mark en þær höfðu
þá misst forskotið úr 16–13 og
ekki skorað mark í sjö mínútur.
tveimur góðum færum
klúðrað
Sóknarleikurinn gekk mjög
illa og voru íslensku stelpurn-
ar annað hvort að fara illa með
góð færi eða hreinlega ekki að
skapa sér nægilega góð færi.
Baráttuna vantaði þó ekki
hjá okkar stelpum og héldu
þær í við þær úkraínsku. Ísland
fékk svo tækifæri til að jafna
leikinn úr vítakasti þegar rétt
ríflega ein og hálf mínúta var
eftir af leiknum. Staðan þá 20–
21 fyrir Úkraínu. Hrafnhildur
Skúladóttir fór á punktinn og
skaut á sama stað og hún hafði
skoraði úr tveimur vítum áður.
Í þetta skiptið sá markvörður
Úkraínu við henni.
Íslenska vörnin stóð þó
sókn gestanna af sér og fékk
síðustu sóknina í leiknum.
Þegar tíu sekúndur voru eft-
ir stillti Ísland upp í aukakast,
manni fleiri, og hafði tíma í eitt
kerfi. Fyrirliðinn, Rakel Dögg
Bragadóttir, ákvað þó að taka
skotið strax utan af velli en það
var varið og tapið staðreynd,
20–21.
sóknarleikurinn varð
okkur að falli
Ágúst Jóhannsson, þjálfari Ís-
lands, var eðlilega sársvekkt-
ur með úrslitin í Höllinni. „Ég
er mjög ósáttur. Við áttum að
vinna þennan leik,“ sagði hann
í samtali við Eddu Sif Pálsdótt-
ur á RÚV. „Sóknarleikurinn
varð okkur að falli. Við slútt-
uðum illa. Við vorum að skapa
okkur fín færi en fórum illa
með þau. Það vantaði ekkert
upp á grimmdina en við vor-
um bara að fara illa með færin.
varnarleikurinn var góður all-
an leikinn og marvarslan fín.
Að halda Úkraínu í 21 marki
er fínt en sóknarleikurinn var
ekki nægilega góður. Það er
ljóst að nú erum við á eftir
áætlun en þetta er langt frá því
að vera búið,“ sagði Ágúst Jó-
hannsson.
n Íslenska kvennalandsliðið í handbolta tapaði naumlega gegn Úkraínu, 20–21
n Byrja undankeppnina á tveimur töpum n Úkraína launaði Íslandi lambið gráa
Mörk Íslands: Karen Knúts-
dóttir 4, Rakel Dögg Bragadóttir
4, Dagný Skúladóttir 3, Hanna
Guðrún Stefánsdóttir 3/1,
Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 3/2,
Birna Berg Haraldsdóttir 2, Sól-
veig Lára Kærnested 1.
Varin skot: Guðný Jenný
Ásmundsdóttir 11.
Ísland - Úkraína 20 - 21
Tómas Þór Þórðarson
tomas@dv.is
Handbolti
Úkraína kom
fram hefndum
tæpt var það
Íslensku stúlkurnar
hafa nú tapað
báðum leikjum
sínum í keppninni.
Þær eru því stiga-
lausar í riðlinum.
Mynd eyþór árnason
FARÐU
AFTUR
Í BÍÓ
Í FYRSTA
SINN
www.bioparadis.is
hverfisgötu 54 / 101 reykjavík