Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2012, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2012, Page 2
2 Fréttir 18. janúar 2012 Miðvikudagur Þú borðaðir iðnaðarsalt n Ætla má að nánast allir Íslendingar hafi neytt iðnaðarsalts n Hér sérðu í hvaða vörur saltið var notað n Sumir notuðu saltið bara á bílaplanið„Ætla má að stór hluti Íslendinga hafi jafnvel daglega neytt iðnaðarsalts upp að ein- hverju marki. M iklar líkur eru á að hver einasti Íslendingur, eða í það minnsta þorri Ís­ lendinga, hafi neytt iðn­ aðarsalts á undanförn­ um árum. Saltið var notað í hvers kyns bakstur, pítsur, mjólkurvörur og kjötvörur, svo dæmi séu tekin. Matvælastofnun og Ölgerð­ in sendu í byrjun vikunnar út lista yfir þau fyrirtæki sem fengu afgreitt iðnaðarsalt hjá Ölgerðinni sem hef­ ur undanfarin 13 ár selt iðnaðar­ salt sem notað hefur verið til matar­ gerðar, þrátt fyrir að saltið væri ekki framleitt fyrir slíka notkun. Á listan­ um eru nokkur af stærstu matvæla­ fyrirtækjum landsins. Saltið hefur verið tekið úr umferð en í einhverj­ um tilvikum geta enn verið í umferð vörur sem innihalda iðnaðarsaltið. Formaður neytendasamtakanna, Jóhannes Gunnarsson, segir vinnu­ brögðin forkastanleg og vill að all­ ar vörur sem innihalda iðnaðarsalt séu opinberaðar. „Það er alveg for­ kastanlegt að fyrirtækin leggi ekki spilin á borði. Við höfum lagt fram kröfur um að það sé ekki nægjan­ legt að aðeins sé greint frá því hvaða fyrirtæki það voru sem notuðu þetta heldur þarf að greina frá því í hvaða vörur þetta fór nákvæmlega. Þá geta neytendur skilað þessu eins og hverri annarri gallaðri vöru,“ segir hann. DV gerir í dag tilraun til að varpa ljósi á hvaða vörur innihalda, eða innihéldu, iðnaðarsalt. Flestir hafa borðað iðnaðarsalt Ætla má að stór hluti Íslendinga hafi jafnvel daglega neytt iðnaðarsalts upp að einhverju marki. DV hafði samband við fjölmörg fyrirtæki á lista matvælastofnunar vegna máls­ ins og fékk frá sumum þeirra lista yfir þau matvæli sem hafa verið framleidd og innihaldið iðnaðar­ salt. Í mörgum tilfellum virðast fyr­ irtæki ekki hafa gert sér grein fyr­ ir því að saltið var ekki gæðavottað og voru margir forsvarsmenn þeirra mjög reiðir vegna málsins og sagði eigandi Hamborgarabúllunnar, Tómas Tómasson, meðal annars að hann teldi sig hafa verið blekktan. Framkvæmdastjóri Norðan fisks, Pétur Þorleifsson, var mjög ósáttur vegna málsins. „Okkur þykir þetta mjög leiðinlegt og við erum mjög ósáttir við að hafa ekki fengið að vita þetta fyrr en í fréttatíma RÚV,“ segir hann. Mörg fyrirtæki hafa breytt starfs­ reglum sínum um gæðavottun á hráefni, til dæmis Sláturfélag Suð­ urlands, SS, sem fer nú fram á gæðavottun beint frá framleiðanda en ekki aðeins frá byrgjum, eins og áður. SS hætti notkun á iðnaðarsalt­ inu í mars í fyrra. Neytendur forviða Jóhannes segir að neytendur hafi sett sig í samband við samtökin og lýst yfir furðu sinni vegna málsins. Réttur neytenda virðist vera nokkuð takmarkaður vegna iðnaðarsaltsins, en þeir neytendur sem geta bent á vörur og sagt að í vörunni sé iðnað­ arsalt, geta skilað þeim. Erfiðara sé hins vegar að fá skaðabætur vegna málsins. Neytandinn þurfi þá að sanna að iðnaðarsaltið hafi valdið skaða. „Málið getur verið mjög snú­ ið fyrir neytandann ef það kemur í ljós að saltið sé ekki skaðlaust, þá þarf neytandinn að sækja rétt sinn á grundvelli laga um skaðsemis­ ábyrgð og hann þarf að sanna að þetta salt hafi valdið honum ein­ hverju ákveðnu líkamstjóni. Það getur verið mjög erfitt að sýna fram á það og sanna – það getur verið þrautin þyngri,“ segir Jóhannes og segir að þetta geti verið mjög flók­ ið fyrir neytandann sérstaklega þar sem ekki liggur nákvæmlega fyrir hvaða matvæli innihalda iðnaðar­ salt. Hér á síðunni má sjá lista yfir þær vörutegundir sem fyrirtæki hafa viðurkennt að hafi á einhverjum tíma­ punkti innihaldið iðnað­ arsalt. Einnig má sjá lista yfir öll þau fyrirtæki sem keyptu iðnaðarsalt af Öl­ gerðinni. Listinn yfir fyrir­ tækin byggir á þeim lista sem Matvælastofnun sendi til heilbrigðiseftirlita sveit­ arfélaga. Aðrir kaupendur iðnaðarsalts: Veitingastaðir/mötuneyti n A. Hansen n Gamla pósthúsið n Grund - eldhús n Gullhamrar veitingahús ehf. n Háskólabaunin ehf. n Hótel Reykjavík Natura eldhús n Lostæti - Austurlyst ehf. n Mexico (Pengs ehf.) n Múlakaffi n Mörk v/hjúkrunarheim eldhús n Passion n Rub v/K6 ehf. n Strikið n Verkmenntaskólinn Önnur fyrirtæki n Agnar Ludvigsson ehf. (Royal) n B.M. Vallá ehf. n Frjó Quattro n Kf. Steingrímsfjarðar N1 n N1 Bílanaust Bíldshöfða n Samhentir n Samkaup v/Hyrnan veitingar n Skeljungur hf. / yfirkúnni n Skeljungur, VH Kletturinn Kjötvörur Þessir keyptu iðnaðarsalt: n Fjallalamb n Kjarnafæði n Norðlenska ehf. Kjötv./Akurey n Sláturfélag Suðurlands n Esja Kjötvinnsla ehf. n Kjötpól ehf. n Gæðafæði ehf. n Fram Foods Ísland hf. n Matfugl ehf. n Icelandic Byproducts ehf. n NOKK ehf. n Sólfugl ehf. Fór í reyktan mat og saltkjöt Sláturfélag Suðurlands hætti notkun á saltinu í mars 2011. Þar fengust þær upplýsingar að saltið hefði meðal annars verið notað í reyktan mat, hangikjöt, saltkjöt og bjúgu. Fyrirtækið kaupir hluta af kryddblöndum sínum tilbúnum og því eru margar vörutegundir sem SS saltar ekki sjálft. Töldu saltið öruggt Matvælafyrir- tækið Norðlenska segist hafa notað iðnaðarsaltið meðal annars í kjötfars, danska ofnsteik og Cordon Bleu-matvæli. Saltið er ekki í notkun lengur og segir gæða- stjóri fyrirtækis- ins að samstarf hafi verið í gangi við Matvælastofnun um fæðuöryggi og að stofnunin hafi tilkynnt þeim að saltið væri öruggt. Engu að síður er það ekki í notkun lengur hjá Norðlenska. „Þetta er mjög leiðinlegt. Við tókum þetta úr umferð um helgina,“ segir Sigurgeir Höskuldsson. Allir mjög berskjaldaðir Kjarnafæði notaði iðnaðarsalt í saltkjöt og hangikjöt, en fyrirtækið keypti alls sextán tonn af iðnaðarsalti frá Ölgerðinni. „Okkur er mikið niðri fyrir og maður veit ekki hvers lags afleiðingar þetta hefur,“ sagði Gunnlaugur Eiðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Kjarnafæðis, en fyrir- tækið keypti sextán tonn af iðnaðarsalti frá Ölgerðinni og er búið að skila megninu af því að hans sögn. „Mér skilst að Ölgerðin hafi selt fimm hundruð tonn í það heila. Þannig að ég held að við séum allir mjög berskjaldaðir og opnir fyrir sárum hvað þetta varðar,“ segir Gunnlaugur. Notað í fjölda ára Þrjár gerðir af kjúklinga- strimlum voru framleidd- ar með iðnaðarsalti í hjá Matfugli, en fyrirtækið hefur notað saltið líkt og mörg önnur í fjölda ára. Notkun þess var hætt um leið og fyrirtækið fékk upplýsingar um hvers konar salt var um að ræða. Sveinn Jónsson framkvæmdastjóri segist skilja viðbrögðin. „Við skiljum þessi viðbrögð alveg enda erum við erum hætt að nota þetta og gerðum það um leið og við fengum upplýsingar um þetta í síðustu viku. Við höfum líklega verið að nota þetta frá 2003 þegar Matfugl var stofnaður. Það er því búið að nota þetta salt í fjölda ára,“ segir hann Saltið notað í sviðasultu Fyrirtækið Fjalla- lamb segist hafa notað iðnaðarsalt aðallega til gærusöltunar. Framkvæmdastjóri þess, Björn Víkingur Björnsson, segir að saltið hafið verið notað í framleiðslu en því hafi nú þegar verið hætt. „Þetta var í sviðasultu hjá okkur en hefur nú verið tekið úr framleiðslu. Við notuðum saltið sáralítið og því var auðvelt að taka það úr umferð,“ segir Björn. Skyndibiti Þessir keyptu iðnaðarsalt: n Express Pizza n Gallery Pizza n H.A Veitingar Madonna Pizza n Hamborgarabúllan B5 n Hamborgarabúlla Tómasar n Kentucky Fried, Selfossi* n Pizzafjörður ehf. n Pizzan n Rizzo Express n Rizzo Pizza n Wilsons Pizza* n Pizza Pronto n Italiano ehf. Skaðinn er skeður Hamborgarabúlla Tómasar verslaði við Ölgerðina eftir að fyrirtækið Dreifing sameinaðist henni fyrir nokkru síðan. Tómas Tómasson, eigandi Hamborg- arabúllu Tómasar, segist hafa verið blekktur. „Að sjálfsögðu vorum við blekktir. Við erum búnir að skipta út öllu saltinu núna en skaðinn er skeður og það liggur ljóst fyrir að hefði maður áttað sig á þessu þá hefði maður aldrei komið nálægt þessu,“ segir Tómas. „Vissulega þykir mér þetta ákaflega leiðinlegt,“ segir hann en á þessum tíma, eða tæpu ári, hefur hefur búllan keypt salt fyrir 3.600 krónur að sögn Tómasar. Hann bendir á að salt sé mjög ódýr vara. „Maður er ekkert að spara neitt með það. Það getur verið að þeir séu að spara á innkaupunum,“ segir Tómas. Notað í pítsur „Við erum hætt að nota þetta og vorum hætt að gera það áður en þetta kom í fréttunum. Þetta var notað í pítsudeigið. Ég hafði ekki grun um að þetta, í fyrsta skipti sem ég heyrði um þetta var í fréttunum. Ölgerðin seldi okkur þetta og vissi í hvað við notuðum þetta,“ segir framkvæmdastjóri Rizzo Pizza, Sigríður Bjarnadóttir. Bakkelsi Þessir keyptu iðnaðarsalt: n Aðalbakarinn ehf. Siglufirði n Al-Bakstur / Almar Bakarí n Bakarameistarinn Suðurveri n Bakarinn Ísafirði n Björnsbakarí Austurströnd n Brauð- og kökugerðin ehf. n Brauða- og kökugerðin ehf. n Brauðgerð Kr. framl. Hrísal. n Bæjarbakarí ehf. n Fellabakarí n Fellabakstur ehf. n Gamla bakaríið ehf. n Harðarbakarí n Heimabakarí n Hérastubbur bakari n Hjá Jóa Fel - Holtagörðum n Hornabrauð ehf. n Kökulist Hafnarfirði n Kökuval n Mitt Bakarí (Grensásvegi) n Nýja bakaríið Keflavík n Reynir bakari n Sveitabakarí sf. n Vaxið brauðgerð ehf. „Á að geta treyst byrgjunum“ Bakaríakeðjan Bakarameistarinn segir að iðnaðarsalt hafi verið notað í flest öll brauð og rúnstykki að undanskildu sætabrauði, hjá fyrirtækinu. „Við notuðum þetta í flest allt brauð, megnið af því. En það eru þrjár vikur síðan við hættum að nota það, þegar við fengum upplýsingar um að þetta væri iðnaðarsalt. Við vorum alls ekki sáttir og bara hundsvekktir. Maður á að geta treyst byrgjunum sínum. Þetta á alls ekki að líðast. Við erum að breyta okkar ferlum og viljum nú fá upprunavottorð frá framleiðanda en ekki frá byrgjum,“ segir Andri Sigþórsson, framkvæmdastjóri Bakarameistarans. Bakarí Jóa Fel er einnig á lista yfir þá sem keyptu iðnaðarsalt. Jóhannes Felixson segir að hann hafi talið að saltið væri til matariðnaðar og segist hafa talið að fyrirtæki hans væri iðnaðarfyrirtæki og væri að kaupa salt til iðnaðar. Hann taldi þó að viðbrögð almennings væru nokkuð ýkt og að málið væri stormur í vatnsglasi. „Hefði þetta verið blandað með öðrum efnum sem eru óæskileg til matvælaiðnaðar þá hefði maður verið alveg brjálaður,“ segir Jói en bætir við að bakarar séu hættir að nota saltið. Ásta Sigrún Magnúsdóttir blaðamaður skrifar asta@dv.is Baldur Guðmundsson blaðamaður skrifar baldur@dv.is Notuðu saltið á stéttir Tvö fyrirtæki sem DV ræddi við, Wilsons Pizza og KFC á Selfossi, höfðu bæði keypt saltið en þegar þeir sáu merkingar á pökkunum áttuðu þeir sig á því að saltið var ekki ætlað til matvælaiðnaðar. „Við keyptum tvo pakka af þessu á sínum tíma. Ég tók sjálfur við þessu salti og við sáum að þetta var iðnaðarsalt. Við kunnum ensku,“ sagði hann í samtali við DV. Hann segist hafa notað saltið á planið hjá sér en megnið af því sé enn uppi í hillu. Hann geti sýnt reikninga fyrir því að hann hafi alltaf keypt annað salt líka – sem hann hafi notað í pítsudeigið. Forsvarsmenn fyrirtækisins Eðalfisks íhuga nú rétt sinn gagnvart Matvæla- stofnun, en þeir eru ósáttir við að vera bendlaðir við innkaup á saltinu og segja að listi MAST gefi til kynna að saltið hafi verið notað við framleiðslu. Það hafi þeir ekki gert, heldur notað það á hálkubletti. Fyrirtækin sem hér eru nefnd eiga það sameiginlegt að hafa nýtt saltið til að salta stéttir í hálku. Ekki er útilokað að fleiri fyrirtæki á listanum hafi gert slíkt hið sama en tilkynningar þess efnis hafa ekki borist.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.