Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2012, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2012, Blaðsíða 6
6 Fréttir 18. janúar 2012 Miðvikudagur Á pallborði með Michael Moore n Ræðir framtíð Occupy-hreyfingarinnar B irgitta Jónsdóttir, þingkona Hreyfingarinnar, er frummæl- andi á pallborði Revolution Truth-samtakanna. Fjallað verð- ur um bylgju mótmæla um allan heim undanfarna mánuði og áhrif hennar. Birgitta verður í góðum félagsskap en meðal þátttakenda í pallborðsumræð- unum er kvikmyndagerðarmaðurinn Michael Moore, sem meðal annars skrifaði bókina Reiðir hvítir karlmenn og leikstýrði heimildamyndinni Faren- heit 9/11. Myndin er tekjuhæsta heim- ildamynd allra tíma. Auk Moore tekur Chris Hedges, blaðamaður og rithöfundur, þátt en hann skrifaði meðal annars bókina Heimurinn eins og hann er, þar sem fjallað er um utanríkisstefnu Banda- ríkjanna. Í bókinni er meðal annars fjallað um stríðið gegn hryðjuverkum og hertöku Ísrael á landsvæði Palest- ínu. Sérstök áhersla verður á Occupy- hreyfinguna en fjallað verður um flókna sjálfsmynd hreyfingarinnar. Tekist verður á um styrk hennar og veikleika. Gerð verður tilraun til að kafa ofan í merkingu Occupy-hreyf- ingarinnar fyrir þátttakendur henn- ar og skoðanir þeirra á hvert skuli stefna. Þá verður fjallað um arab- íska vorið og þær breytingar sem því fylgdu. Revolution Truth eru samtök stofnuð til varnar uppljóstrurum og samtökum á borð við Wikileaks. Samtökin voru stofnuð í febrúar í fyrra en á dögunum var tilkynnt að sjálfboðaliðar samtakanna ynnu nú að heimildamynd um málsóknina gegn Julian Assange, en hann hefur verið kærður fyrir að nauðga konu og beita aðra kynferðislegu ofbeldi. Áhugasamir geta fylgst með pall- borðinu á vef Revolution Truth, revolu- tiontruth.org/live. Umræður hefjast klukkan tíu að kvöldi miðvikudagsins en þátttakendum um allan heim gefst færi á að spyrja Birgittu og félaga spjör- unum úr. Byggingaverktaki ákærður: 51 milljón í skattaskuld Sérstakur saksóknari hefur ákært karlmann á fimmtugsaldri fyrir meiri háttar brot gegn skatta- lögum „framin í starfi hans sem framkvæmdastjóri og stjórnar- formaður einkahlutafélagsins A & V ehf. (nú þrotabú),“ eins og það er orðað í ákæruskjalinu. Félagið starfaði í byggingariðnaði áður en það fór í þrot. Honum er gefið að sök að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatt- skýrslum á lögmæltum tíma á árunum 2008 og 2009. Heildar- upphæð virðisaukaskatts sem maðurinn er sakaður um að hafa ekki borgað nemur samtals um 43 milljónum króna. Þá er maðurinn einnig ákærð- ur fyrir að hafa ekki staðið skil á skilagreinum vegna staðgreiðslu opinberra gjalda á réttum tíma á árunum 2008 og 2009. Heild- arupphæð vangoldinnar stað- greiðslu nemur tæpum 8,4 millj- ónum króna. Sérstakur saksóknari krefst þess að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaður. H ann er þrítugur en komst fyrst í kast við lögin sextán ára. Rán, þjófnaður, gripdeild- ir og eignaspjöll eru á saka- skránni. Hann hefur tekið bíl ófrjálsri hendi og ekið án þess að vera fær um að stjórna bifreið vegna fíkniefnaneyslu. Hann hefur fengið dóm fyrir líkamsárás – þá réðst hann á mann sem svínaði fyrir hann í um- ferðinni. Seinna fékk hann dóm fyrir þátttöku í vopnuðu ráni. Í dómsorði segir að sakaferilinn megi að stórum hluta rekja til fíkniefnaneyslu hans, enda eru fíkniefnabrotin ófá. Nú er Birgir Rúnar Benedikts- son kominn aftur fyrir dóm en í þetta skiptið er hann ákærður með kærust- unni sem er tólf árum yngri en hann, en hún varð átján ára síðasta haust. Stúlkan er ein af þeim sem kom við sögu í umfjöllun DV um týndar stúlk- ur í fyrra. Á unglingsárunum lét hún sig reglulega hverfa af heimili sínu og týndist þá í undirheimunum. Leitað af lögreglunni Hún var aðeins fimmtán ára gömul þegar lögreglan lýsti fyrst eftir henni í október 2008. Í apríl 2011 lýsti lögregl- an eftir henni á ný en þá hafði ekkert spurst til hennar í þrjár vikur. Barna- vernd hafði mál hennar til meðferðar allt frá árinu 2007 og það var að kröfu Barnaverndar sem lögreglan hóf leit að stúlkunni. Við það tilefni sagð- ist móðir hennar vona að það tækist að stoppa hana af í tæka tíð, áður en stúlkan næði átján ára aldri og væri þar með of gömul til að njóta verndar Barnaverndar. Þá voru sex mánuðir til stefnu. Móðir hennar vildi ekki tjá sig nú þegar blaðamaður hafði samband en málið virðist ekki hafa tekið þá stefnu sem hún vonaðist eftir. Stúlkan trúlof- aðist Birgi Rúnari í desember en sam- kvæmt Facebook-síðu hennar virðist hún hafa slitið tengsl við fjölmarga vini sína og þar af alla karlkyns. Skiptu gróðanum Nú er stúlkan ákærð fyrir að hafa framið ýmis brot sem flest voru framin í slagtogi við Birgi Rúnar. Samkvæmt ákærunni sammæltust þau um að fremja brotin en oftar en ekki fram- kvæmdi stúlkan brotin á meðan Birg- ir Rúnar beið álengdar. Gróðanum skiptu þau hins vegar á milli sín. Ekki það, hann var einnig ákærð- ur fyrir ýmis brot sem hún kom hvergi nærri, eins og það að hafa í þrígang dælt bensíni á bílinn sem hann borg- aði ekki fyrir, innbrot þar sem tveimur 42 tommu flatskjáum var stolið ásamt Stüssy-bolum og derhúfu, stuld á súr- mjólk úr 11-11 og það að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna en í eitt skiptið fannst MDMA í blóðinu og metýlfenídat í annað. Þá var hann á bíl sem hann hafði tekið ófrjálsri hendi og skipt um skráningarmerki til að blekkja lögregluna. Áður hafði hann stolið skráningarmerkjunum af bíl á bílasölu með stúlkunni samkvæmt ákærunni. Hún á einnig að hafa tekið þátt í að blekkja starfsfólk Intersport með framvísun á debetkorti og svíkja út vörur fyrir rétt tæpar 90.000 krónur. Gamlar konur meiddust Stúlkan þurfti hins vegar að svara fyr- ir það fyrir dómi síðastliðinn föstudag að hafa veist að konum á aldrinum 71–84 ára með það að marki að hrifsa af þeim handtöskuna. Það tókst í fjór- um tilvikum af fimm en ágóðinn var mismikill. Til dæmis innihélt ein task- an ekkert nema sundföt og skóhorn. Í annarri voru hins vegar 15.000 krónur og í flestum bankakort. Einn daginn er stúlkunni gefið að sök að hafa ráðist að tveimur konum, annan dag á hún að hafa opnað fremri farþegahurð á bíl, nappað handtösku ökumannsins sem sat við stýrið og hlaupið burt eftir að hafa veist að konu. Ein konan hlaut brot á miðhand- arbeini og blóðnasir við átökin, önn- ur fékk mar á hægri handlegg og sú þriðja braut tvö rifbein auk þess sem hún hlaut eymsli á öxl. Öll brotin áttu sér stað í október í fyrra. Þess ber að geta að ekki náðist í Birgi Rúnar eða stúlkuna við vinnslu fréttarinnar. Týnd sTúlka fyrir dómi n Leitað á síðasta ári n Barnavernd vildi ná til hennar áður en það yrði of seint n Trúlofaðist afbrotamanni n Ákærð fyrir að ræna gamlar konur Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is Leitað af lögreglu Barnavernd setti af stað leit í fyrra þar sem vonast var til þess að hægt væri að ná til stúlkunnar áður en hún næði átján ára aldri. Nú er stúlkan fyrir dómi þar sem hún er ákærð fyrir að hafa framið brot í slagtogi við sér eldri mann en maðurinn er kærasti hennar. SkjÁSkOT af faceBOOk Tónlistarskóli Árbæjar tonarb@heimsnet.is 12 vikna söngnámskeið! Söngnámskeið fyrir hressa krakka á aldrinum 9-16 ára Syngdu með undirleik og lærðu í leiðinni allt um raddbeitingu, sviðsframkomu, hljóðnematækni og annað sem söngvari þarf að vita. 4-5 í hóp. Upptaka á geisladisk og lokatónleikar setja svo punktinn yfir i-ið í lok námskeiðsins. Kennt í Tónlistarskóla Árbæjar Kennari: Erla Stefánsdóttir söngkona Námskeiðið hefst fimmtudaginn 19.janúar Nánari upplýsingar er að finna á www.tonarb.net og í síma 861-6497 og 587-1664 (14.00-16.00 virka daga) Brást rétt við Karlmaður reyndi að tæla dreng á áttunda ári upp í bíl á Seltjarnar- nesi seinnipartinn á mánudag. Atvikið átti sér stað í Grænumýri. Stjórnendur grunnskóla Seltjarn- arness sendu foreldrum og for- ráðamönnum póst vegna atviksins en í honum kemur fram að dreng- urinn hafi brugðist hárrétt við með því að hlaupa í burtu og svara ekki manninum. Var málið kært til lögreglu og gat drengurinn gefið góða lýsingu á manninum og bílnum. Sagði drengurinn að þetta hefði verið eldri maður á stórum bíl. „Við viljum biðja ykkur um að ræða við börn ykkar og ítreka við þau að fara aldrei upp í bíl hjá ókunnug- um,“ segir í póstinum. Á undan- förnum misserum hafa fjölmörg sambærileg dæmi komið upp án þess að lögreglu hafi tekist að handtaka gerendur. Birgitta jónsdóttir Tekur þátt í pall- borðsumræðum með Michael Moore um framtíð Occypy-hreyfingarinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.