Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2012, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2012, Page 8
É g er að ganga út af lögreglu- stöðinni og er búin að kæra þetta atvik,“ segir tónlistar- konan Ellen Kristjánsdóttir. Nágranni hennar kom fyrir kívíávexti á girðingarstólpa við inn- gang fjölbýlishúss sem þau búa í, vitandi að 14 ára sonur Ellenar er með bráðaofnæmi fyrir ávextinum að hennar sögn. Ellen hefur átt í ára- löngum erjum við nágrannahjón í húsinu sem hún og fjölskylda henn- ar búa í, við Skaftahlíð 7. Hún seg- ist hafa reynt að leiða leiðindin hjá sér hingað til, en nú sé nóg komið. „Þetta er búið að ganga svo lengi og maður vorkennir þeim. Nú er bara of langt gengið og málið of alvarlegt til að maður geti ekki tekið þessu alvar- lega.“ „Það munaði bara rosalega litlu DV.is greindi fyrst frá kívíárásinni á mánudag. „Þau komust að því að 14 ára sonur minn er með lífshættu- legt bráðaofnæmi fyrir kíví. Maður- inn hafði heyrt hann segja vinkonum systra hans frá því fyrir utan hjá okk- ur,“ sagði Ellen á mánudaginn. Eyþór Gunnarsson, maður Ellenar, og dóttir þeirra hjóna sáu manninn koma kívíávextinum fyrir á sunnu- daginn, að sögn Ellenar. „Þau fóru út og spurðu hvers vegna hann væri að setja kíví þarna og bentu á að strák- urinn væri með ofnæmi. Þá fór hann að hlæja og spurði: „Það er nú spurn- ingin.““ Ef kívíinn hefði með einhverju móti borist í drenginn hefði hann ver- ið í lífshættu, en bráðaofnæmi getur valdið miklum öndunarerfiðleikum vegna bjúgs og bólgu í öndunarfær- um. „Það munaði bara rosalega litlu. Við sáum það hjá lögreglunni því við gerðum skýrsluna svo nákvæmlega,“ segir Ellen til útskýringar. Íbúðin komin á sölu Ellen segir lögreglu taka málið mjög alvarlega. Hún segir vel hafa verið tekið á móti sér á lögreglustöðinni og að nú sé málið komið í ferli. Líkt og kemur fram hér að framan er Ellen orðin langþreytt á deilunum sem hafa staðið alveg frá því fjölskyldan flutti inn á aðra hæð hússins. Þá æxluðust málin þannig fyrir tilviljun að dóttir Ellenar og fjölskylda hennar keyptu kjallaraíbúð í húsinu. Þannig hafi fjöl- skyldan verið komin í meirihluta í húsinu en Ellen segir nágrannahjón- in hafa verið vön að vera ríkjandi þar. „Það var eiginlega hálflosandi að gera þessa skýrslu. Maður varð svo gáttað- ur og þetta var eins og að skrifa dag- bók,“ segir Ellen og vísar til skýrsl- unnar sem hún gaf hjá lögreglu vegna kærunnar. Íbúð Ellenar og fjölskyldu í Skafta- hlíð hefur verið á sölu nú í nokkurn tíma. Hefur ekki skýringar DV ræddi við nágrannakonu Ellenar sem sagði þau hjónin ekkert vilja tjá sig um málið fyrr en ljóst væri hvert framhaldið yrði. Hún benti á að Ellen hefði sagt í fjölmiðlum að hún ætlaði að kæra þau og hún biði bara eftir því. Nágrannakonan vildi ekki gefa skýr- ingar á því hvers vegna þau komu fyrir kívíi við inngang hússins og sagði al- menningi ekki koma það við. Ellen segist sjálf ekki hafa fengið nein viðbrögð frá nágrönnunum eftir fréttaflutning af málinu. Nágrannahjónin töpuðu dóms- máli Nágrannadeilurnar í Skaftahlíð náðu nýjum hæðum í desember síðastliðn- um þegar nágrannahjónin töpuðu dómsmáli fyrir Héraðsdómi Reykja- víkur sem húsfélagið í Skaftahlíð 7 höfðaði gegn þeim. Hjónin neituðu að taka þátt í kostnaði við framkvæmdir á lóð húss- ins árið 2009, sem samþykktar höfðu verið á fundi húsfélagsins. Í dómnum kemur fram að þau hafi talið ástæðu- laust að mæta á boðaða húsfundi vegna erfiðleika í samskiptum við aðra íbúðaeigendur í húsinu. Þá neit- uðu þau að færa bifreið sína úr inn- keyrslu við húsið og hindruðu þannig að verktakar gætu unnið verk sitt. Bíl- inn var að lokum fjarlægður á kostnað þeirra eftir mikið þref. Nágrannahjónin voru dæmd til að greiða tæpar 260 þúsund krónur af kostnaði við framkvæmdirnar, sem og 390 þúsund krónur í málskostnað. 8 Fréttir 18. janúar 2012 Miðvikudagur FLÍSAÚTSALA 20-50% afsláttur Bæjarlind 4 - Kópavogi Njarðarnes 9 - Akureyri www.vidd.is Mikil fjölgun hjá Fjölskylduhjálp Tæplega tíu þúsund einstakling- ar, eða 9.900, nutu aðstoðar Fjöl- skylduhjálpar Íslands í desember síðastliðnum. Í desember 2010 var fjöldinn rúmlega fimm þúsund. Þetta er hátt í hundrað prósenta aukning á milli ára. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fjölskyldu- hjálp Íslands. Í tilkynningunni kemur fram að mun fleiri öryrkjar hafi leitað á náðir samtakanna en áður, en þeim fjölgaði um 115 prósent. Þá fjölgaði eldri borgur- um um 205 prósent samanborið við desember 2010 samkvæmt til- kynningu samtakanna. „Við teljum að þetta sé aðeins toppurinn á ísjakanum því úti í þjóðfélaginu eru þúsundir ein- staklinga sem ná ekki endum saman í mánuði hverjum en hafa sig ekki í að leita aðstoðar og svo hinir sem hafa engin tök á að koma og vitum við til þó nokkurra dæma þar sem einstaklingar nær- ast dögum saman nær eingöngu á vatni. Við höfum miklar áhyggj- ur af geðheilsu fólks við þessar aðstæður,“ segir Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskyldu- hjálparinnar. „Nú undir búum við okkur fyrir árið 2012 sem við gerum ráð fyrir að verði mjög erfitt og gerum jafnframt ráð fyrir gríð- arlegri fjölgun í hópi þeirra sem neyðast til að leita til okkar,“ segir Ásgerður að lokum. Öxi, sverð og kannabis Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu upprætti kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í vesturborginni aðfaranótt þriðjudags. Þar lagði hún hald á yfir annan tug plantna. Þar að auki fann hún stóra öxi og sverð. Eigandinn og ræktandinn var heima þegar lögregla kom á staðinn og viðurkenndi hann ræktunina og var sleppt að yfir- heyrslum loknum. n Nágranni Ellenar Kristjánsdóttur kom fyrir kíví við inngang fjölbýlishúss sem þau búa í n 14 ára sonur er með lífshættulegt bráðaofnæmi fyrir kívíi n Vorkennir nágrönnunum EllEn kærir í kíví álinu Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður skrifar solrun@dv.is Kívíinn Þegar ljósmyndara DV bar að garði var kívíávöxturinn enn við inngang hússins. Búin að kæra Ellen Kristjánsdóttir tónlistarkona hefur kært nágranna­ hjón sín fyrir að hafa komið kíví fyrir við inngang fjölbýlishúss sem þau búa í. Einkenni bráðaofnæmis Húð: Kláði, bjúgur, ofnæmisútbrot, roði. Öndunarvegur: Kláði, hnerri og nef­ rennsli, hæsi, raddbandakrampi, hósti, öndunarörðugleikar, verulegir öndunar­ erfiðleikar geta átt sér stað vegna bjúgs og bólgu. Augu: Kláði, tárarennsli, roði, bjúgur, bjúgur í kringum augun getur orðið það mikill að þau lokist. Meltingarvegur: Kláði og bjúgur í munn­ holi, almenn vanlíðan, kviðverkir, ógleði og uppköst, niðurgangur.„Það var eiginlega hálf losandi að gera þessa skýrslu. Maður varð svo gáttaður og þetta var eins og að skrifa dagbók.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.