Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2012, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2012, Side 9
Fréttir 9Miðvikudagur 18. janúar 2012 Sprengdi meirihlutann n Hjálmar ósáttur við vinnubrögð og gekk út É g styð ekki hvernig staðið var að því að segja bæjarstjóranum upp. Þetta snýst fyrst og fremst um vinnubrögð, ekki málefna- legan ágreining, heldur hvernig að þessu var staðið,“ segir Hjálmar Hjálmarsson, bæjarfulltrúi Næst besta flokksins í Kópavogi, sem á þriðjudag gekk úr meirihlutasam- starfinu í Kópavogi. Meirihlutinn í bænum er því sprunginn og við er tekið mikið kapphlaup um myndun nýs meirihluta. Í samtali við DV segir Hjálmar að hann hafi hreinlega ekki haft umboð frá aðstandendum framboðsins til þess að styðja þá ákvörðun að víkja Guðrúnu Pálsdóttur bæjarstjóra úr embætti. Hjálmar vill þó aðspurður ekki ræða nákvæmlega hvað það var við vinnubrögðin sem hann er ósátt- ur við í ljósi þess að Guðrún sé enn bæjarstjóri og ekki enn búið að ræða starfslok hennar til hlítar. Hann seg- ir aðeins að ákvörðunin um að víkja bæjarstjóranum úr starfi hafi verið frá Samfylkingunni komin og Guð- ríður Arnardóttir, oddviti Samfylk- ingarinnar og formaður bæjarráðs, hafi farið fyrir þessu máli. Aðspurður kveðst Hjálmar ætla að halda áfram störfum sínum fyrir bæinn þar til annað kemur í ljós. „Ég er ekkert í því að mynda meirihluta eða í einhverri pólitískri refskák. Ég mun ganga til þeirra verka sem ég er kjörinn til sem bæj- arfulltrúi og þarf að vinna. Svo verð- ur allt annað bara að koma í ljós.“ Eftir kosningarnar 2010 mynd- uðu Samfylkingin (3), Vinstri græn (1), Næst besti flokkurinn (1) og Listi Kópavogsbúa (1) meirihluta en í minnihluta sátu sjálfstæðismenn með fjóra fulltrúa og framsóknar- menn einn. Það gæti því legið beinast við að leifar meirihlutans leituðu til Fram- sóknarflokksins varðandi mynd- un nýs meirihluta. Og það útilokar Guðríður Arnardóttir ekki þó hún viðurkenni að óvissa ríki um fram- haldið. „Það liggur algjörlega fyrir núna að það eru allar leiðir opnar. Nú setjast menn bara niður og velta fyrir sér hvaða samstarfsmöguleik- ar eru í stöðunni. Það er alveg ljóst að samstarfinu við Hjálmar Hjálm- arsson er lokið. Það eru 11 bæjar- fulltrúar og það þarf 6 til að mynda meirihluta.“ mikael@dv.is S ættir hafa tekist með Hirti Júlíusi Hjartarsyni, sem var sagt upp störfum á RÚV á dögunum, og Eddu Sif Páls- dóttur íþróttafréttamanns. Lögmenn Hjartar og Eddu Sifjar sendu á þriðjudag frá sér sameigin- lega tilkynningu þessa efnis. Eins og áður hefur verið greint frá kærði Edda Sif Hjört fyrir líkamsárás sem átti sér stað á Grand Hótel fyrir tæpum tveimur vikum. Í tilkynn- ingunni segir að Hjörtur hafi viður- kennt fulla ábyrgð í þessu máli og beðið Eddu Sif fyrirgefningar. Harmar framkomu sína „Hjörtur harmar mjög framkomu sína umrætt kvöld sem var með öllu óafsakanleg. Edda mun aftur- kalla kæru sína hjá lögreglu í mál- inu. Aðilar eru sammála um að tjá sig ekki frekar um málið,“ segir orð- rétt í tilkynningunni en undir hana skrifa Vilhjálmur Hans Vilhjálms- son, lögmaður Hjartar, og Lúðvík Bergvinsson, lögmaður Eddu Sifjar. Hirti var sagt upp störfum í síð- ustu viku hjá Ríkisútvarpinu vegna atviksins, en hann hafði starfað þar sem íþróttafréttamaður síðan 2007. Líkamsárásin átti sér stað eftir að val á íþróttamanni ársins hafði farið fram fyrr um kvöldið, en þar stjórnaði Hjörtur beinni útsend- ingu frá samkomunni. Gleðskap- urinn hélt áfram eftir miðnætti og þar voru samankomnir flestir af íþróttafréttamönnum landsins. Ryskingar í kjölfar ummæla Samkvæmt heimildum DV átti árásin sér stað inni á salerni staðar- ins, eftir að ummæli sem Hjörtur á að hafa látið falla og beint til Eddu, vöktu hjá henni reiði. Í kjölfarið kom til ryskinga þeirra á milli sem enduðu með því að Hjörtur ýtti við Eddu Sif með þeim afleiðingum að hún skall í gólfið. Hjörtur og Edda höfðu áður átt í ástarsambandi sem endaði illa. Samstarfsfélagi Eddu Sifjar og Hjartar fylgdi Eddu á bráðamót- töku þar sem hún fékk áverkavott- orð og lagði í kjölfarið fram kæru, sem hún hefur nú dregið til baka. Berglind Guðrún Bergþórsdótt- ir, starfsmannastjóri RÚV, hafði ekki heyrt að sættir hefðu náðst á milli Eddu og Hjartar þegar blaða- maður náði tali af henni síðdeg- is á þriðjudag. Aðspurð hver staða Hjartar varðandi uppsögnina væri í kjölfar sáttanna, og hvort mögu- leiki væri á að hann fengi starf sitt aftur sagðist hún ekki geta tjáð sig um málið. Ekki náðist í Pál Magn- ússon útvarpsstjóra vegna máls- ins. Smugan.is hafði eftir Kristínu Hörpu Hálfdánardóttur á þriðjudag að sættirnar myndu engu breyta. Samkvæmt því mun Hjörtur ekki fá starfið sitt aftur en DV náði ekki tali af Kristínu á þriðjudagskvöld. RÚV segist vera í fullum rétti Ljóst er að uppsögn Hjartar er á gráu svæði en málið á sér engar hliðstæður þar sem RÚV er nú sjálf- stætt hlutafélag í 100 prósenta eigu ríkisins og óljóst hvort lög um rétt- indi og skyldur ríkisstarfsmanna eigi við um starfsmenn RÚV. Sam- kvæmt þeim lögum hefði Hjörtur Júlíus fyrst átt að fá skriflega áminningu og tækifæri til að bæta ráð sitt áður en honum var sagt upp störfum, þar sem brottrekstur hans tengist ekki niðurskurði. Hins vegar hefur aldrei reynt á það áður hvaða réttindi starfsmenn RÚV hafa í mál- um sem þessum. RÚV telur sig þó vera í fullum rétti og svaraði fyrir- spurn DV á þá leið að fyrirtækinu sé ekki skylt að fara eftir lögum um réttindi og skyldur starfsmanna rík- isins. „Er Hjörtur sagður harma mjög fram- komu sína umrætt kvöld sem var með öllu óafsak- anleg. Edda mun aftur- kalla kæru sína hjá lög- reglu í málinu. Hanna Ólafsdóttir blaðamaður skrifar hanna@dv.is Sættir Samkomulag hefur tekist milli Hjartar Júlíusar Hjartarsonar og Eddu Sifjar Pálsdóttur, að því er fram kemur í sameigin­ legri tilkynningu frá lögfræðingum þeirra. Einar „Boom“ áfram í haldi Hæstiréttur hefur staðfest gæslu- varðhaldsúrskurð héraðsdóms yfir forseta Hells Angels, Einari „Boom“ Marteinssyni, sem var handtekinn síðastliðinn föstudag. Einar er grunaður um að hafa fyrirskipað árás á konu, en alls sitja fimm í gæsluvarðhaldi í tengslum við málið. Í DV á mánudag var fjallað um málið en í umfjöllun blaðsins kom fram að árásin hefði verið með þeim að hætti að par braut sér leið inn í íbúð konunnar í fjölbýlishúsi og misþyrmdi henni á grófan hátt. Meðal annars eiga þau að hafa reynt að klippa af konunni fingur. Kona sem var gestkomandi í íbúð- inni hringdi á lögreglu eftir að parið lét sig hverfa og var konan flutt meðvitundarlítil á slysadeild. Parið var handtekið skömmu síðar og fært í gæsluvarðhald þar sem það situr enn. Krafðir um 30 milljarða Slitastjórn Landsbankans hefur stefnt sjö fyrrverandi stjórnendum Landsbankans og eru þeir krafðir um 30 milljarða króna í skaða- bætur. Mun þetta vera vegna nærri 34 milljarða króna sem runnu úr bankanum áður en hann féll í október 2008. RÚV greindi frá þessu á þriðjudag og herma heim- ildir Ríkisútvarpsins að slitastjórn- in hafi stefnt bankastjórunum Sigurjóni Þ. Árnasyni og Halldóri J. Kristjánssyni. Auk fjögurra fyrr- verandi bankaráðsmanna, þeim Kjartani Gunnarssyni, Þorgeiri Baldurssyni, Svöfu Grönfeldt og Andra Sveinssyni. Jón Þorsteinn Oddleifsson, fyrrverandi forstöðu- maður fjárstýringar Landsbank- ans, mun vera sjöundi maðurinn. Þar sem Björgólfur Guð- mundsson, fyrrverandi formaður bankaráðsins, er gjaldþrota og ekkert til hans að sækja lengur er honum ekki stefnt í málinu. Slitastjórnin mun hafa birt sumum stefnurnar í dag en látið aðra vita af því að þeir gætu átt von á stefnu. Stungið á dekk Tilkynnt var um tjón á tveimur bílum á höfuðborgarsvæðinu á mánudag en stungið hafði verið á öll dekk þeirra. Bílarnir voru á sama bifreiðastæðinu og tjónvaldurinn því væntan- lega sá hinn sami í báðum til- vikum. Umráðamaður bílanna hafði ákveðinn aðila grunaðan og sagði þetta snúast um ástir og afbrýðisemi. Mál af sama toga hafa áður komið á borð lögreglu. n Hjörtur Hjartarson bað Eddu Sif Pálsdóttur afsökunar n Edda mun afturkalla kæruna sem hún lagði fram n Hjörtur fær líklega ekki aftur starfið á RÚV Edda fyrirgaf Hirti Missti Hjálmar Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, mis­ bauð Hjálmari Hjálmarssyni í bæjarstjóra­ málinu og sagði hann skilið við meiri­ hlutann.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.