Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2012, Page 10
A
ndstæðingum þingsálykt-
unartillögu Bjarna Bene-
diktssonar um afturköllun
landsdómsákæru á hendur
Geir H. Haarde, fyrrverandi
forsætisráðherra, hefur að öllum lík-
indum tekist að safna nægum stuðn-
ingi til að fella tillöguna. Fylkingarn-
ar eru hnífjafnar en 32 þingmenn eru
sagðir ætla að greiða atkvæði gegn
því að fallið verði frá ákæru á hend-
ur Geir H. Haarde. Þrjátíu þingmenn
eru sagðir styðja hana en óvissa er
um afstöðu Höskulds Þórhallsson-
ar, þingmanns Framsóknarflokksins.
Höskuldur situr í saksóknarnefnd
Alþingis, fimm manna þingnefnd
sem fylgist með máli gegn ráðherra
út af embættisrekstri hans og er ætl-
uð saksóknara Alþingis til aðstoð-
ar. Hann svaraði engu og rauf sam-
bandið þegar DV hafði samband við
hann á þriðjudag.
Þeir sem þar sitja eru almennt
sagðir fylgjandi því að málið verði
leitt til lykta ef frá er talinn fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, Birgir Ármanns-
son, sem greiddi atkvæði gegn öllum
ákærum. Þá er þingmaðurinn Atli
Gíslason sagður ætla að styðja frá-
vísunartillögu Bjarna. Atli er sagður
gríðarlega reiður og ósáttur við Sam-
fylkinguna fyrir að hafa ekki staðið
heil að baki niðurstöðu þingmanna-
nefndar sem fjallaði um hugsanleg
málaferli á hendur fyrrverandi ráð-
herrum.
Ekkert má út af bregða
Mikill titringur er á þinginu vegna
málsins. Báðar fylkingar eru sagð-
ar halda þétt utan um sinn hóp. Þá
má greina nokkra tortryggni hjá
mönnum. Guðbjartur Hannesson
velferðarráðherra er í sjúkraleyfi en
Arna Lára Jónsdóttir verður á þingi í
hans stað. Arna Lára er náin vinkona
Ólínu Þorvarðardóttur og er af and-
stæðingum tillögu Bjarna talin nokk-
uð öruggt atkvæði gegn því að fallið
verði frá málinu.
DV hefur heimildir fyrir því að
Magnús M. Nordal lögmaður verði
kallaður á þing fyrir Katrínu Júlí-
usdóttur iðnaðarráðherra áður en
greidd verða atkvæði um málið. Þeg-
ar DV náði tali af Magnúsi hafði hann
ekki fengið beiðni um að taka sæti.
Hafa verður í huga að Katrín hef-
ur undanfarið unnið heiman frá sér
enda langt kominn á leið og ólétt að
tvíburum.
Varaþingmennirnir breyta
nokkru
Hvorki Katrín né Guðbjartur hafa op-
inberlega gefið upp afstöðu sína til
atkvæðagreiðslunnar um málið. Þau
greiddu bæði atkvæði gegn öllum
ákærum á sínum tíma. Viðmælendur
DV voru flestir sammála um að bæði
hölluðust þau frekar að því að ósann-
gjarnt væri að Geir H. Haarde stæði
einn uppi fyrir landsdómi. Það breyti
því miklu um niðurstöðu atkvæða-
greiðslunnar að þau ákveði að kalla
inn varamenn sína.
Össur og Björgvin fjarverandi
Það er sagt líklegt að Össur Skarphéð-
insson utanríkisráðherra og Björgvin
G. Sigurðsson verði fjarverandi þegar
tillagan verður til umræðu á föstu-
dag. Össur á samkvæmt dagskrá ut-
anríkisráðuneytisins að vera erlendis
á þessum tíma. DV gat þó ekki fengið
upplýsingar um hvert yrði haldið og
hvers vegna þegar leitað var eftir því.
Málið er langt frá því að vera auð-
velt fyrir Björgvin sem er einn þeirra
sem Alþingi greiddi á sínum tíma
atkvæði um hvort stefna ætti fyrir
landsdóm. Erfitt verður fyrir hann að
styðja Bjarna Benediktsson og hvað
þá mæla gegn því að fallið verði frá
ákæru í ljósi þess að sjálfur slapp
hann naumlega. Ákveði Björgvin að
sitja hjá er ljóst að hann á varla von
á góðu. Viðmælendur DV voru sam-
mála um að það gæti orðið skásta
niðurstaðan fyrir Björgvin að vera
fjarverandi eða kalla inn varaþing-
mann líkt og hann gerði þegar kær-
urnar voru upphaflega til umræðu á
þinginu. Anna Margrét Guðjónsdótt-
ir sat þá sem varamaður hans. Hún
greiddi atkvæði gegn því að nokkur
skyldi ákærður. Við það tilefni sagði
Anna Margrét ábyrgð stjórnmála-
manna vegna hrunsins mikla. Hún
efaðist þó um að ábyrgð ráðherranna
sem til umræðu voru gæti talist meiri
en ráðherranna sem áður sátu. „Því
tel ég rangt að höfða sakamál á hend-
ur þeim en leyfa hinum að sleppa,“
sagði hún um atkvæði sitt. Björgvin
hefur ekki óskað eftir því að vara-
maður verði kallaður inn í hans stað.
Málinu verði vísað frá
Fari svo að bæði Össur og Björg-
vin verði fjarverandi er ljóst að þeir
þrjátíu þingmenn sem sagt er öruggt
að styðji rökstudda dagskrártillögu
hafa fyrir henni meirihluta. Í þing-
sköpum Alþingis er ekkert til sem
heitir frávísunartillaga en rökstudd
dagskrártillaga er það sem næst
kemst slíku. Helsti munurinn er
þó að ólíkt frávísunartillögu sem af-
greidd er strax og án efnislegrar um-
ræðu um fyrir lagða þingsályktunar-
tillögu er dagskrártillagan afgreidd í
lok umræðu.
Að svæfa í nefnd
Vegna þess að bein frávísunartillaga
er ekki til í þingsköpum eru nokkr-
ar leiðir í boði til að láta þingmál
hverfa. Þekktasta aðferðin er án efa
að svæfa þau í nefnd. Þúsundir þing-
mála hafa í sögu þingsins horfið með
þeirri aðferð. Reglur þingsins kveða
á um að leggja verði mál að nýju fyr-
ir nýtt þing hafi það ekki verið af-
greitt úr nefnd á yfirstandandi þingi.
Um þingsályktunartillögur eru ávallt
tvær umræður. Fari svo að meiri-
hluti þingmanna veiti tillögu Bjarna
10 Fréttir 18. janúar 2012 Miðvikudagur
Geir sleppur ekki
Ekki fallið frá málinu
Geir H. Haarde þarf að
sanna sakleysi sitt fyrir
landsdómi.
n 32 andvígir tillögu Bjarna Benediktssonar
n Fjarvera Össurar og Björgvins skiptir sköpum„Þrálátur orðrómur
er á kreiki um að
hópur þingmanna Sam-
fylkingarinnar hafi skilyrt
stuðning sinn við breytta
ráðherraskipan ríkisstjórn-
arinnar við loforð um að
fari tillaga Bjarna Bene-
diktssonar fyrir nefndina
verði hún kæfð þar.
Atli Þór Fanndal
blaðamaður skrifar atli@dv.is 30 styðja tillöguna
Með Á móti
n Atli Gíslason
n Árni Johnsen
n Ásbjörn Óttarsson
n Birgir Ármannsson
n Bjarni Benediktsson
n Einar K. Guðfinnsson
n Guðlaugur Þór Þórðarson
n Illugi Gunnarsson
n Jón Gunnarsson
n Kristján Þór Júlíusson
n Ólöf Nordal
n Pétur H. Blöndal
n Ragnheiður E. Árnadóttir
n Ragnheiður Ríkharðsdóttir
n Tryggvi Þór Herbertsson
n Unnur Brá Konráðsdóttir
n Þorgerður K. Gunnarsdóttir
n Ásmundur Einar Daðason
n Gunnar Bragi Sveinsson
n Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
n Sigurður Ingi Jóhannsson
n Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
n Jón Bjarnason
n Ögmundur Jónasson
n Árni Páll Árnason
n Ásta R. Jóhannesdóttir
n Björgvin G. Sigurðsson
n Kristján L. Möller
n Sigmundur Ernir Rúnarsson
n Össur Skarphéðinsson
Alls 30
Guðmundur Steingrímsson n
Lilja Mósesdóttir n
Birgitta Jónsdóttir n
Margrét Tryggvadóttir n
Þór Saari n
Birkir Jón Jónsson n
Eygló Harðardóttir n
Siv Friðleifsdóttir n
Vigdís Hauksdóttir n
Álfheiður Ingadóttir n
Árni Þór Sigurðsson n
Björn Valur Gíslason n
Katrín Jakobsdóttir n
Steingrímur J. Sigfússon n
Svandís Svavarsdóttir n
Þráinn Bertelsson n
Þuríður Backman n
Arna Lára Jónsdóttir n
Helgi Hjörvar n
Jóhanna Sigurðardóttir n
Jónína Rós Guðmundsdóttir n
Magnús M. Nordal n
Lilja Rafney Magnúsdóttir n
Lúðvík Geirsson n
Magnús Orri Schram n
Mörður Árnason n
Oddný G. Harðardóttir n
Ólína Þorvarðardóttir n
Róbert Marshall n
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir n
Skúli Helgason n
Valgerður Bjarnadóttir n
Alls 32
n Sjálfstæðisflokkurinn n Framsóknarflokkurinn n Hreyfingin
n Samfylkingin n Vinstri grænir n Utan þingflokka
n Höskuldur
Þórhallsson
G
reina má mikla reiði
meðal almennra flokksfélaga
stjórnarflokkanna tveggja sem
og stuðningsmanna Hreyf-
ingarinnar. Fréttavefurinn Smugan,
sem er að hluta í eigu VG, fjallaði
ítarlega um málið á þriðjudag. Mikil
reiði er sögð innan flokksins. Þá er
vitnað í Kolbein Stefánsson háskóla-
kennara sem reglulega skrifar á vefinn.
„Á sínum tíma varð til sá misskilningur
að órólega deildin svokallaða væri
fulltrúar nýrra vinnubragða í stjórn-
málum. Að þau væru róttæklingar sem
berðust fyrir gagnsæi og nýja Íslandi
og hvað það nú heitir allt,“ skrifar
Kolbeinn sem segir Ögmund Jónasson
innanríkisráðherra og Guðfríði
Lilju Grétarsdóttur hafa algjörlega
afhjúpað sig sem fulltrúa samtrygg-
ingarkerfis stjórnmálastéttarinnar
með stuðningi sínum við að fallið verði
frá kæru.
Ögmundur segi af sér
Þingmenn og stuðningsmenn
Hreyfingarinnar hafa verið ósparir á
yfirlýsingar vegna málsins. „Það er
ekki oft sem ég verð orðlaus,“ sagði
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyf-
ingarinnar, í samtali við DV um leið og
hún hvatti Ögmund til að segja af sér
vegna afstöðu sinnar til málsins. „Ég
skil ekki hvernig manninum er stætt
á að sitja sem dómsmálaráðherra ef
hann ætlar að styðja tillögu um það
að Alþingi hafi afskipti af máli sem er
komið fyrir dóm.“
Svikin loforð um uppgjör
Stjórn Samfylkingarfélagsins í
Reykjavík sendi seint á þriðjudag frá
sér ályktun þar sem þingmönnum
Samfylkingarinnar eru lagðar línurnar.
Í ályktun stjórnarinnar segir að verði
ákæran dregin til baka sé Alþingi að
bregðast fyrirheitum um rannsókn
og uppgjör eftir hrun. Stjórn félagsins
væntir þess að allir þingmenn Sam-
fylkingarinnar greiði atkvæði gegn
þingsályktunartillögunni.
„Með því væri gamla samtrygg-
ingarkerfið leitt til öndvegis á ný í
íslenskum stjórnmálum, öfugt við
málflutning Samfylkingarinnar við
síðustu alþingiskosningar og raunar
allt frá stofnun flokksins fyrir tólf
árum,“ segir í ályktuninni.
Landsdómsmálið
liður í uppgjöri
Stjórn VG í Reykjavík hvetur þing-
menn flokksins til að vera samkvæm-
ir sjálfum sér og greiða atkvæði gegn
því að fallið verði frá kæru. „Meðferð
málsins fyrir landsdómi er mikilvægur
liður í uppgjöri þjóðarinnar við m.a.
frjálshyggjuna og bankahrunið,“ segir
í ályktun stjórnar VGR.
Reiði vegna málsins
n Skiptar skoðanir um landsdómsmálið