Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2012, Blaðsíða 20
Skoraði í 8 þúsund króna skóm
n Scholes keypti sér nýja takkaskó fyrir endurkomuna
P
aul Scholes, miðju-
maður Manchester
United, fullkomnaði
endurkomu sína um
síðustu helgi þegar hann
skoraði á heimavelli í 3–0
sigri á Bolton. Scholes var
nokkuð ryðgaður til að byrja
með en fyrstu tveir leikir
hans, gegn Manchester City
og Bolton, hafa sannað að
rauðbirkni sendingameistar-
inn átti aldrei að hætta.
Eftir sex mánaða fjarveru
frá ensku úrvalsdeildinni
geta ýmis vandamál komið
upp, sérstaklega fyrir 37 ára
leikmenn. Scholes þurfti að
passa að hann væri í nægi-
lega góðu formi til þess að
geta hlaupið í bestu deild í
heimi og einnig þarf að hann
að passa orðspor sitt.
Það voru þó ekki vanda-
málin sem Scholes rak sig á
heldur vantaði hann skó til
þess að spila í. Samkvæmt
breska blaðinu Daily Mirror
vantaði Scholes nýja tak-
kaskó þar sem hann gaf sína
eftir að hann hætti. Scholes
er af gamla skólanum og not-
ar sömu skóna lengi.
Margir hefðu snúið sér að
styrktaraðila liðsins, í þessu
tilfelli Nike, og beðið um skó
eða látið félagið redda sér. En
ekki hinn hógværi Scholes.
Hann fór sjálfur út í búð,
nánar tiltekið JJB-íþrótta-
vöruverslunina í miðborg
Manchester, og keypti sér
nýja takkaskó fyrir bikarleik-
inn gegn Manchester City.
Þurfti hann að punga út heil-
um 40 pundum fyrir skóna
eða átta þúsund krónum.
Hann ætti nú að hafa efni á
því eftir að hafa spilað með
Manchester United undan-
farna tæpa tvo áratugi.
20 Sport 18. janúar 2012 Miðvikudagur
Nú er Scholes á nýju skónum
Paul Scholes hringdi ekki í
styrktaraðilana heldur fór sjálfur
út í búð og keypti sér skó.
Suðurnesja
slagur í Keflavík
Seinni helmingur Iceland
Express-deildarinnar í körfu-
bolta hefst á fimmtudaginn
þegar tólfta umferðin fer í
gang með þremur leikjum.
Stórleikurinn verður í Slátur-
húsinu í Keflavík þar sem
heimamenn mæta grönnum
sínum úr Grindavík, toppliði
deildarinnar. Sama dag tekur
Stjarnan á móti Tindastóli og
Njarðvík fær Val í heimsókn.
Allir leikirnir hefjast klukkan
19.15.
Henry biðst
afsökunar
Thierry Henry, framherji
Arsenal, hefur beðist afsök-
unar á því að blóta stuðn-
ingsmanni liðsins sem lét
ljótum orðum rigna yfir
hann og liðið eftir tapið gegn
Swansea á sunnudaginn.
„Ég skyldi ekki þessa andúð
í garð liðsins. Ég vildi segja
einum stuðningsmanninum
að við þyrftum stuðning, ekki
baul. Eftir á að hyggja hefði
ég getað vandað orðavalið
betur. Ég vil því vera fyrstur
til þess að biðjast afsökun-
ar á ljótum orðum mínum í
garð þessa stuðningsmanns.
Nú þurfum við öll að standa
saman gegn Manchester
United næsta sunnudag,“
segir Henry.
Harry kaupir
Falque
Tottenham hefur gengið frá
kaupum á spænska U21 árs
landsliðsmanninum Yago
Falque frá Juventus. Falque
hefur verið á láni hjá Totten-
ham á þessu tímabili og komið
aðeins við sögu í Evrópudeild-
inni og enska bikarnum. Harry
Redknapp ákvað þó að lána
Falque til Southampton sem
leiðir ensku Championship-
deildina. Redknapp sér hann
þó sem framtíðarmann og hef-
ur því fest hann til frambúðar.
Íslendingar eru með
tak á Norðmönnum
n Ísland þarf að minnsta kosti einn sigur til að fara í milliriðla n Noregur og Slóvenía
næstu andstæðingar n Guðmundur ekki tapað gegn þeim eftir endurkomuna
Ekki hér í
gegn, vinur
Sverre heldur
aftur af Erlend
Mamelund, stór-
skyttu Noregs.
E
kki frekar en fyrri dag-
inn tókst Íslandi að
vinna fyrsta leik sinn á
EM en strákarnir okkar
töpuðu fyrir Króötum á
mánudaginn, 31–29, í hörku-
leik. Aðeins einu sinni hefur
það gerst að Ísland hafi unnið
fyrsta leik sinn á stórmóti en
það gerðist á EM í Sviss árið
2006. Þá vann Ísland sameig-
inlegt lið Serbíu og Svartfjalla-
lands, 36–31, undir stjórn Vig-
gós Sigurðssonar. Ísland mætir
næst Noregi í dag, miðvikudag,
og svo Slóvenum á föstudag-
inn og þarf að minnsta kosti
einn sigur til að komast í milli-
riðla. Bæði þessi lið eru mjög
sterk þó það íslenska eigi að
heita betra á pappírnum góða.
Eftir endurkomu Guðmundar
Guðmundssonar sem lands-
liðsþjálfara árið 2008 hefur
hann leikið fimm sinnum við
Noreg og einu sinni við Sló-
vena og aldrei tapað.
Tveir sigrar á stórmótum
Ísland og Noregur hafa mæst
á síðustu tveimur stórmótum
sem strákarnir okkar hafa far-
ið á. Bæði á EM í Austurríki
og svo á HM í Svíþjóð í fyrra.
Í báðum leikjum hafði Ísland
sigur. Ísland vann nauman sig-
ur, 35–34, í spennuleik í Aust-
urríki fyrir tveimur árum en
þægilegan, sjö marka sigur,
29–22, í Svíþjóð fyrir ári. Snorri
Steinn Guðjónsson, sem leikur
ekki með á mótinu, var marka-
hæstur gegn Noregi í fyrra með
sjö mörk og Ólafur Stefáns-
son skoraði þrjú. Í Austurríki
var það Arnór Atlason sem dró
vagninn með tíu mörk.
Ísland og Noregur mættust í
miklum spennuleikjum í und-
ankeppni EM 2010 þar sem
þau gerðu tvívegis jafntefli. Alla
undankeppnina var íslenska
liðið þó þjakað af meiðslum
en meðal annars vegna þeirra
fékk Þórir Ólafsson, horna-
maðurinn knái, tækifæri sem
hann nýtti vel. Guðmundur og
hans hópur hafa því vanalega
staðið í spennuleikjum gegn
Noregi en aldrei tapað.
Reynir að nýta sér leikina
Aðeins einu sinni hefur Guð-
mundur Guðmundsson tekist
á við Slóveníu en það var fyrir
ellefu dögum. Þá mættust Ís-
land og Slóvenía á æfingamóti
í Herning í Danmörku þar sem
strákarnir okkar höfðu bet-
ur, 29–26, eftir að jafnt hafði
verið í hálfleik, 13–13. Guð-
mundur sagði í viðtali við DV
að það væri óhjákvæmilegt að
spila stundum æfingaleik við
lið sem eru með manni í riðli á
stórmóti.
„Það eru allir að spila á móti
öllum. Danir spiluðu þarna við
Pólverja en þeir eru saman í
riðli. Þessi mót eru ákveðin
með margra mánaða fyrirvara
þannig að ef við ætluðum okk-
ur eitthvað bíða eftir mótum
þar sem hugsanlega væru eng-
ir mótherjar okkar á stórmót-
um værum við bara heima á
skerinu að spila við pressulið-
ið. Þetta er óhjákvæmilegt en
maður reynir bara að nýta sér
þetta.“
Í leiknum gegn Slóvenum
fóru hornamennirnir á kostum
en Guðjón Valur Sigurðsson
skoraði ellefu mörk og Þór-
ir Ólafsson átta. Guðjón hóf
mótið af krafti gegn Króatíu og
skoraði átta mörk en Þórir var
rólegri og skoraði tvö mörk.
Árangur Guðmundar gegn Noregi
Dagsetning Mót Úrslit
20. jan. 2011 HM í Svíþjóð 29–22
8. des. 2010 Æfingaleikur 35–29
28. jan. 2010 EM í Austurríki 35–34
14. jún. 2009 Undankeppni EM 34–34
1. nóv. 2008 Undankeppni EM 31–31
Árangur Guðmundar gegn Slóveníu
Dagsetning Mót Úrslit
7. jan. 2010 Æfingaleikur 29–26
Tómas Þór Þórðarson
tomas@dv.is
Handbolti