Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2012, Qupperneq 15
Neytendur 15Mánudagur 23. janúar 2012
Atvinnuleysi
3,1% Norðmanna án atvinnu í lok árs 2011
6.0% Íslendinga án atvinnu í janúar 2012
Skattar
Noregur
7,8% af brúttólaunum
9% og 12% svokallaður þrepaskattur en fer
eftir árstekjum
28% almennur tekjuskattur
Ísland
22,90% af stofni frá 0 til 230.000 króna
25,80% af stofni frá 230.001 til 704.366
króna
31,80% af stofni yfir 704.367 krónum
Meðalútsvar: 14,44%
Töluverður launamunur
Noregur Ísland Munur í %
695.000 kr. 430.000 kr. 38,13%
Störf iðnaðarmanna og
sérhæfðs iðnverkafólks
916.000 kr. 583.000 kr. 36,35%
Sérfræðistörf við almannatengsl,
markaðsmál og upplýsingamiðlun
678.000 kr. 358.000 kr. 47,20%
Þjónustu-, umönnunar- og sölustörf
926.000 kr. 624.000 kr. 32,61%
Tækni- og rannsóknarstörf í verkfræði
og raungreinum (fyrir utan líffræði)
529.000 kr. 394.000 kr. 25,52%
Hótel, veitingastaðir og ferðaskrifstofur
626.000 kr. 614.000 kr. 1,92%
Sérfræðistörf í viðskiptageiranum
749.000 kr. 434.000 kr. 42,06%
Kennslustörf
770.000 kr. 404.000 47,53%
Opinberir starfsmenn
Kaupmannahöfn
Mjólk 1 l 150 kr.
1 stk franskbrauð 414 kr.
Egg 12 stk 453 kr.
Ostur 1 kg 1.819 kr.
Kjúklingabringur 1.469 kr.
Epli 1 kg 469 kr.
Appelsínur 1 kg 589 kr.
Kartöflur 1 kg 202 kr.
Vínflaska (0,5 l) 1.590 kr.
Bjór - innlendur 245 kr.
Bjór - erlendur 302 kr.
Samgöngur (innanbæjar)
Stakt fargjald 522 kr.
Mánaðarkort 8.425 kr.
Leigubíll - startgjald 620 kr.
Leiguverð:
(1 herbergi) í miðborginni 137.130 kr.
(1 herbergi) í úthverfi 108.322 kr.
(3 herbergi) í miðborginni 268.655 kr.
(3 herbergi) í úthverfi 189.611 kr.
Íbúðaverð:
Verð á fermetra í miðborginni 650.928 kr.
Verð á fermetra í úthverfi 416.280 kr.
Helstu útgjöld 21.245 kr. V
ið fluttum út 11. maí 2010
en hefðum sennilega far-
ið um mitt ár 2009 hefði ég
ekki átt seinni veturinn eft-
ir í MA-námi við Háskóla
Íslands. Flutningurinn var í raun
ákveðinn með næstum árs fyrir-
vara,“ segir Atli Steinn Guðmunds-
son en hann og kona hans Rósa Lind
Björnsdóttir búa í Stafangri í Noregi.
Hann segir að í ljósi þess ástands sem
ríkti á Íslandi misserin eftir hrun hafi
þau séð þann kost vænstan að forða
sér til lands þar sem þau hefðu bæði
vinnu og þjóðfélagið væri í sæmilega
eðlilegu ástandi. „Við höfðum engan
áhuga á að vera á bótum, fullfrískt
fólk, heldur viljum við vinna og helst
sem mest að hætti Íslendinga.“
Fullt af tækifærum
Þau eru ánægð í Stafangri þrátt fyr-
ir að sakna Íslands, vina og ættingja.
„Hins vegar verður að segjast eins og
er að norskt þjóðfélag gengur upp,
vinnumarkaðurinn hérna er opinn,
sveigjanlegur og fullur af tækifær-
um, fólkið alveg fádæma þægilegt
að umgangast og gildin eru öðruvísi
og afslappaðri. Það er dálítill afa og
ömmu hugsunarháttur hérna, fólki
finnst sjálfsagt að spara fyrir hlut-
unum frekar en að taka lán og yfir-
dráttarheimild er bara á pari við að
selja úr sér líffæri. Hafirðu ekki efni á
að kaupa eitthvað fyrir launin þín þá
kaupirðu það ekki.“
Dýrt að búa í Noregi
Aðspurð um muninn á því að búa í
Noregi miðað við Ísland segir Rósa
að kaupmátturinn sé ekkert ósvipað-
ur fyrir fólk með meðallaun. Það sé
dýrt að búa í Noregi en á móti komi
að launin séu hærri en á Íslandi. „Það
er brauðstrit hér eins og alls staðar
annars staðar. Mér finnst munurinn
einkum liggja í því að lægstu laun
duga fyrir framfærslu hér, engu lúx-
uslífi kannski en Norðmenn eru ekki
eins uppteknir af því og Íslendingar.
Hérna þykir fólki mun meira virði að
vera komið snemma heim úr vinnu
á daginn og eiga tíma með fjölskyld-
unni en að kaupa sér Range Rover
eða fellihýsi. Kaupmátturinn er svip-
aður hér og á Íslandi en hins vegar
er auðvitað mjög þægilegt að kíkja
til Íslands um jól eða í sumarfrí með
norskar krónur eins og gengið er
núna,“ segir Atli Steinn.
Rafmagnið rándýrt
Flestir hlutir eru dýrari í Noregi en
húsaleigu- og rafmagnsreikningar
eru það sem kom þeim mest á óvart.
„Við borgum 13.000 krónur fyrir 120
fermetra raðhús alveg við miðbæinn.
Það er rándýrt en leigan hérna sveifl-
ast mjög mikið eftir staðsetningu.
Rafmagnið er líka rándýrt hérna en
staðan á rafmagnsframleiðslu hér
fer alveg eftir því hve mikið rignir
þar sem regnvatni er safnað í risastór
svokölluð magasín. Á sumrin hrynur
rafmagnsreikningurinn niður í ekki
neitt en svo rýkur hann upp úr öllu
í vetrarkuldum. Allt vatn hér er hitað
með rafmagni og ekki er óalgengt að
sæmileg sturta kosti 420 til 620 krón-
ur í rafmagn. Við erum mjög með-
vituð um þetta og förum eiginlega
aldrei í sturtu heima heldur bara í
ræktinni. Þannig höfum við senni-
lega sparað drjúgt. Svo er varmadæla
fyrirbæri sem lækkar rafmagnsreikn-
inginn mikið og hitar bara býsna vel.“
Líf í olíunni
Atli Steinn og Rósa byrjuðu á því að
skúra á Háskólasjúkrahúsinu í Staf-
angri í sumarafleysingum og unnu
svo á haustvertíð í sláturhúsi. Eft-
ir það fengu þau bæði stjórnunar-
stöður á sjúkrahúsinu, hvort í sinni
deildinni. „Við ákváðum þó fljótlega
að sniðugast væri að leita gæfunn-
ar í olíubransanum, það er ljóst að
þar verður nóg að gera að minnsta
kosti til 2050 og þá verðum við far-
in á eftirlaun. Það er mikið líf í olí-
unni og bara núna upp á síðkastið
hafa orðið til 1.200 nýjar stöður sem
þarf að manna.“ Nú starfar Rósa hjá
flutningafyrirtækinu Logi Trans þar
sem stór hluti verkefna snýst um að
senda tæki og útbúnað út á olíubor-
pallana. Atli starfar hjá NorSea Gro-
up sem er þjónustuaðili fyrir olíu-
fyrirtækin í landi og tengiliður milli
þeirra og borpallanna. Hann er nú
frá áramótum leigður út til Cono-
coPhillips og annast meðal annars
afgreiðslu birgðaflutningaskipa fyr-
irtækisins.
Grunnlaun Atla eru 656.000 krón-
ur. „Þetta er há upphæð í íslenskum
krónum en þá má líka benda á að
hérna kostar mjólkurlítrinn rúmar
300 íslenskar krónur. Meðallaun í
Noregi árið 2010 voru 763.000 krón-
ur fyrir skatt svo þetta eru engin for-
stjóralaun en ágæt þó. Svo erum við
náttúrulega bæði í aukavinnu. Ís-
lenska vinnualkagenið deyr seint og
illa.“
Atli Steinn og Rósa búa í 120 fer-
metra raðhúsi í 15 mínútna göngu-
fjarlægð frá miðbæ Stafangurs og
fyrir það borga þau 270.000 krónur
á mánuði.
Fegin að hafa drifið
sig til Noregs
Þau segja að viturlegast sé fyrir þau
að vera áfram í Noregi og starfa sem
lengst því lífeyrismál séu mjög hag-
stæð. „Okkar fyrirtæki bjóða til dæm-
is mjög góð lífeyriskjör en í Noregi
er algengt að vinnuveitendur sjálf-
ir ákveði að gera betur við starfsfólk
en lágmarksreglurnar bjóða. Ég vona
auðvitað allt það besta fyrir hönd ís-
lenskrar þjóðar og þeirra sem eiga
ekki til hnífs og skeiðar. Öll él birtir
væntanlega upp um síðir en ég verð
að segja að ég er feginn að hafa drifið
mig hingað,“ segir Atli að lokum.
Fer ekki í
sturtu heima
n Norðmenn ekki uppteknir af lúxuslífi
Atli Steinn og Rósa
Fluttu til Noregs í
kjölfar hrunsins.
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
„Barnabætur eru
ekki tekjutengdar
og eru rúmlega 20.000 á
mánuði fyrir hvert barn.
London
Mjólk 1 l 185 kr.
1 stk franskbrauð 213 kr.
Egg 12 stk 438 kr.
Ostur 1 kg 1.390 kr.
Kjúklingabringur 1.481 kr.
Epli 1 kg 305 kr.
Appelsínur 1 kg 283 kr.
Kartöflur 1 kg 270 kr.
Vínflaska (0,5 l) 1.290 kr.
Bjór - innlendur 282 kr.
Bjór - erlendur 319 kr.
Samgöngur (innanbæjar)
Stakt fargjald 612 kr.
Mánaðarkort 19.928 kr.
Leigubíll - startgjald 566 kr.
Leiguverð:
(1 herbergi) í miðborginni 253.146 kr.
(1 herbergi) í úthverfi 174.921 kr.
(3 herbergi) í miðborginni 499.650 kr.
(3 herbergi) í úthverfi 331.623 kr.
Íbúðaverð:
Verð á fermetra í miðborginni 1.544.941 kr.
Verð á fermetra í úthverfi 941.579 kr.
Helstu útgjöld 27.620 kr.
Stokkhólmur
Mjólk 1 l 146 kr.
1 stk franskbrauð 363 kr.
Egg 12 stk 409 kr.
Ostur 1 kg 1.402 kr.
Kjúklingabringur 1.450 kr.
Epli 1 kg 312 kr.
Appelsínur 1 kg 323 kr.
Kartöflur 1 kg 114 kr.
Vínflaska (0,5 l) 1.337 kr.
Bjór - innlendur 290 kr.
Bjór - erlendur 290 kr.
Samgöngur (innanbæjar)
Stakt fargjald 550 kr.
Mánaðarkort 12.650 kr.
Leigubíll - startgjald 696 kr.
Leiguverð:
(1 herbergi) í miðborginni 139.638 kr.
(1 herbergi) í úthverfi 80.590 kr.
(3 herbergi) í miðborginni 210.850 kr.
(3 herbergi) í úthverfi 138.215 kr.
Íbúðaverð:
Verð á fermetra í miðborginni 943.068 kr.
Verð á fermetra í úthverfi 553.341 kr.
Helstu útgjöld 20.056 kr.
Winnipeg
Mjólk 1 l 201 kr.
1 stk franskbrauð 218 kr.
Egg 12 stk 319 kr.
Ostur 1 kg 1.568 kr.
Kjúklingabringur 1.323 kr.
Epli 1 kg 372 kr.
Appelsínur 1 kg 269 kr.
Kartöflur 1 kg 213 kr.
Vínflaska (0,5 l) 1.607 kr.
Bjór - innlendur 345 kr.
Bjór - erlendur 420 kr.
Samgöngur (innanbæjar)
Stakt fargjald 293 kr.
Mánaðarkort 9.152 kr.
Leigubíll - startgjald 433 kr.
Leiguverð:
(1 herbergi) í miðborginni 87.113 kr.
(1 herbergi) í úthverfi 89.465 kr.
(3 herbergi) í miðborginni 149.790 kr.
(3 herbergi) í úthverfi 147.730 kr.
Íbúðaverð:
Verð á fermetra í miðborginni *
Verð á fermetra í úthverfi *
Helstu útgjöld 14.546 kr.
Hærri laun en dýrara að lifa
Atvinnumál
Norðmenn Hærri laun, minna
atvinnuleysi en dýrara að lifa.