Listin að lifa - 01.12.2015, Page 4

Listin að lifa - 01.12.2015, Page 4
Aðalfundur LEB 2015: Ný stjórn LEB til næstu tveggja ára Ný stjórn Landssambands eldri borgara tók við á aðalfundi sem haldinn var í Kópavogi 5.-6. maí í vor. Miklar breyt- ingar urðu á stjórninni að þessu sinni þar sem flestir úr fyrri stjórn höfðu setið í fjögur ár sem er hámarkstími stjórnarsetu eins og lög LEB mæla fyrir um. Haukur Ingibergsson FEB í Reykjavík var kjörinn nýr formaður LEB, en kjörið var á milli hans og Ell- erts B. Schram. Sex af átta stjórnarmönnum, Sigríð- ur, Astbjörn, Guðrún María, Sigurður, Anna Sigrún og Baldur Þór eru for- menn sinna félaga þannig að stjórnin er vel tengd grasrótinni. Stjórnarmenn eru úr öllum landshlumm og kynjahlutfall er jafnt innan stjórnarinnar. Stjórn LEB 2015. Frá vinstri: Anna Sigrún Mikaelsdóttir meöstjórnandi, FEB Húsavík, Sigurður Jónsson varamaður, FEB Suöurnesjum, GuÖrún María Harðardóttir, meðstjórnandi, FEB Borgar- nesi, Astbjörn Egilsson gjaldkeri, FEB Garðaba, , Haukur Ingibergsson formaður, FEB Reykjavík, Elísabet I/algeirsdóttir ritari, FEB Hafnarfirði, Baldur Þór Baldvinsson, vara- maðurFEB Kópavogi, Sigríður J. Guðmundsdóttir varaformaður, FEB Selfossi. 2016 Á Sparidögum 2016 verður vegleg dagskrá likt og fyrri ár. Þetta árið sér Laddi um Arkarteikhúsið, farið verður í Friðheima auk þess sem Hellisheiðarvirkjun verður heimsótt. Aðrir fastir dagskráriiðir verða á sinum stað. Bókanir fara fram hjá umsjónarmanni félags eldri borgara á hverjum stað. Einnig er hægt að hafa samband við Hótel Örk þar sem starfsfólkiö veitir allar nánari upplýsingar í síma 483 4700 eða á heimasíðu hótelsins á slóðinni www.hotelork.is/sparidagar. Innifalið alla Sparidaga - gisting í 5 nætur í tveggja manna herbergi - - morgunverðarhlaðborð og kvöldverður - - og fjölbreytt dagskrá - Verð 49.900 á mann m.v. tveggja manna herbergi HOTBL ORK Breiðumörk 1c, 810 Hveragerði - info@hotelork.is - sími: 483 4700 - www.hotelork.is 4

x

Listin að lifa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.