Listin að lifa - 01.12.2015, Side 5

Listin að lifa - 01.12.2015, Side 5
Mikilvæg atriði um ellilífeyri frá Tryggingastofnun (TR) Hverjir eiga rétt á ellilífeyri? • Þeir sem eru 67 ára eða eldri. • Hafa átt lögheimili á Islandi í minnst þrjú ár á aldrinum 16-67 ára. • Eru með tekjur undir ákveðnum mörkum. (Sérstakar reglur gilda ef viðkomandi hefur búið erlendis. Sjá nánar á tr.is) Þarf að sækja um ellilífeyri þegar réttur myndast við 67 ára aldur? Já — það þarf að sækja um ellilífeyri hjá TR. Þó þurfa þeir sem fá örorkulífeyris- greiðslur þegar þeir verða 67 ára ekki að sækja um ellilífeyri. En þeir þurfa að láta TR vita ef þeir vilja nýta sér frest til töku ellilífeyris. Hvernig sæki ég um ellilífeyri? Tryggingastofnun sendir öllum sem verða 67 ára bréf þar sem bent er á mögulegan rétt til ellilífeyris. I bréfinu er greint frá helstu atrið- um varðandi réttindi til ellilífeyris. Umsókn er hægt að skila af Mínum síðum eða fylla út umsóknareyðublað og skila til TR. Umsókn þurfa að fylgja eftirfarandi gögn: • Tekjuáætlun. Hægt að skila af Mín- um síðum. • Staðfesting á áunnum réttindum eða réttleysi frá lífeyrissjóði. • Viðeigandi fylgiskjöl ef sótt er um heimilisuppbót eða uppbætur á h'feyri, kemur fram í umsókn. • Lífeyrisþegar sem vilja nýta skatt- kort sitt hjá TR þurfa jafnframt að skila því. Afgreiðslutími ellih'feyris er um fimm vikur miðað við að öll gögn hafi borist. Hvað er tekjuáædun? Tekjuáætlun er áætlun umsækjanda um eigin tekjur á árinu, s.s. launa-, k'feyris- sjóðs- og fjármagnstekjur. A grundvelli hennar eru greiðslur ársins reiknaðar. Ef tekjur breytast er nauðsynlegt að breyta tekjuáætluninni til að greiðslur verði sem réttastar. Greiðslur eru end- urreiknaðar árlega á grundvelh skatt- framtals. Inneignir eru greiddar út og skuldir innheimtar. Get ég frestað því að fara á ellilífeyri? Mögulegt er að fresta töku ellilíf- eyris. Ellih'feyrir, tekjutrygging og heimihsuppbót hækka þá um 0,5% fyrir hvern mánuð fram til 72 ára aldurs, eða að hámarki um 30%. Þegar sótt er um ellilífeyri fellur réttur til frestunar niður. Hvaða tekjur hafa áhrif á ellilífeyri? Lífeyrissjóðstekjur hafa ekki áhrif á grunnk'feyri, kr. 36.337 á mánuði. Þær hafa hins vegar áhrif á tekjutryggingu og heimilisuppbót ef þær fara yfir kr. 328.800 á ári. Atvinnutekjur hafa áhrif á útreikning lífeyris ef þær eru hærri en kr. 1.315.200 á ári. Það má því vinna fyrir kr. 109.600 á mánuði án þess að það hafi áhrif á greiðslur. Þar með eru allar tekjur tengdar atvinnustarfsemi s.s. reiknað endurgjald vegna eigin aU'innurekstrar. Fjármagnstekjur hafa áhrif á út- reikning h'feyris ef þær eru hærri en kr. 98.640 á ári. Þar undir falla t.d. vextir og verðbætur, söluhagnaður og leigutekjur. Fjármagnstekjur hjóna og sambúðar- fólks eru skráðar sameiginlega. Ef allar tekjur, að meðtöldum skatt- skyldum tekjum frá TR, eru undir fram- færsluviðmiði er það sem upp á vantar greitt sem sérstök uppbót til framfærslu. Allar tekjur hafa áhrif á útreikning sér- stakrar uppbótar til framfærslu. Auðvelt er að setja forsendur inn í reiknivél h'feyris á tr.is eða bráða- birgðaútreikning á Minar síður til að skoða áhrif tekna á greiðslur. Kynningarfundir um töku ellilífeyris TR býður upp á kynningarfundi fyrir þá sem eru að hefja töku ellik'feyris og vilja kynna sér réttindi sín, útreikning h'feyrisgreiðslna og gerð tekjuáætlana. Einnig verður farið yfir hvaða þjón- usta er í boði á Mínum síðum m.a. hvern- ig hægt er að sækja um réttindi og gera /breyta tekjuáætlun. Gott er að hafa með sér fartölvu, spjaldtölvu eða snjall- síma og íslykil eða rafræn skilríki fyrir innskráningu á Mínar síður. Fundirnir verða haldnir í sal BSRB, Grettisgötu 89, Reykjavík. Skráning á fundina eru á tr.is eða á nam@tr.is. Upplýsingar um dagsetningar fundanna er á tr.is. Hvað eru Mínar síður hjá TR? A tr.is getur hver og einn farið inn á eigið vefsvæði á Mínum síðum. Þar er m.a. hægt að gera og breyta tekjuáætlun, nálgast rafræn skjöl, fá bráðabirgðaú- treikning og skoða greiðsluskjöl. Nota þarf Islykil eða rafræn skilríki til að komast á Mínar síður. Hægt er að panta Islykil hjá Þjóðskrá og fá hann annað hvort sendan í netbanka eða í bréfpósti á lögheimili. Hvar fæ ég frekari upplýsingar? A tr.is eru greinargóðar upplýsingar um almannatryggingakerfið. Þér er einnig velkomið að hafa samband eftir þeirri þjónustuleið sem hentar þér. Þjónustu- miðstöð á Laugavegi 114 er opin frá kl. 10-15.30 aha daga nema föstudaga 10- 12. Símaráðgjöf er opin frá kl. 9-15.30 aUa dag. Hægt er að senda fyrirspurnir á tr@tr.is eða í gegnum Mínar síðar. Umboð TR eru um aUt land. 5

x

Listin að lifa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.