Listin að lifa - 01.12.2015, Síða 12

Listin að lifa - 01.12.2015, Síða 12
Viðtal við formann Öidungaráðs Reykjavíkurborgar: Öldungaráðið stimplað inn í borginni Öldungaráð var skipað í Reykjavík eftir áramótin á þessu ári og fyrsti fundurinn var haldinn 11. mars s.l. Guðrún Agústs- dóttir er formaður ráðsins og Listin að lifa tók hana tali um störf ráðsins og við spurðum hana fyrst hvernig til hefði tekist? „Eg tel það mjög mikilvægt að sveit- arfélögin hafi sérstök Öldungaráð. Það skiptir máli að geta ráðgast við fólkið sem er í þessum aldurshópi sjálft og fengið frá því góð ráð. Nú er það svo að þessi aldurshópur spannar stórt og mikið bil, þ.e. frá 65 til 100 eða jafn- vel lengur. Þeir sem eru yngstir aldraðir eiga ekkert endilega mikið sameiginlegt með elsta hópnum, sem ekki ósjaldan eru foreldrar þeirra yngri öldruðu. Þegar ég fæddist seint á fimmta áramg síðustu aldar, þá gám karlar búist við því að ná sextugsaldri. Nú hefur bæst við hálfur annar áramgur. Sá er eldurinn heitasmr sem á sjálfúm brennur.“ Hefurþetta skMað eldri borgurum einhverju nú þegar? „Það er ef til vill of snemmt að tala um hverju starfsemi Öldungaráðsins hefur skilað, þó hefúr okkur tekist að vekja at- hygli á málefnum aldraðra innan borgar- kerfisins sem utan og mjög vel heppnaður formaður Öldungaráðs Reykjavíkurborgar opinn sameiginlegur borgarstjórnarfúnd- ur með Öldungaráðinu, stimplaði okkur nokkuð rækilega inn í borgarkerfið. Við finnum að við getum verið mikilvægur tengiliður milli borgar og ýmissa hópa og samtaka aldraðra og það er ailtaf til gagns. Tilurð ráðsins hefúr vakið athygli víða og orð eru til alls fyrst. Markmið okkar er að gera gagn fyrir þann hóp sem hér um ræðir í samfélaginu sem verður stöðugt stærri,“ segir Guðrún. Er ávinningur af þessu fyrir sveitarfélögin, eins og Eeykjavíkurborg íþessu tilviki? „Tvímælalaust. Samvinna og sam- starf er alltaf til góðs og við eigum að geta komið til skila því sem mikilvægast er og þarfast hverju sinni. Jafnframt tökum við þátt í stefnumótun í mál- efnum aldraðra og höfum þar vonandi margt fram að færa.“ Hvernig meettigera starf ráðsins enn betra? „Starf ráðsins verður betra og betra eftir því sem við kynnust kjörum aldraðra betur í borginni og lærum að þekkja þá fjölmörgu staði sem þeim nú sinna allt frá félagsstarfi til hjúkrunar aldraðra. Við förum reglulega í vett- vangsferðir og kynnumst þá bæði fólki sem vinnur við þjónustuna og þeirra sem hennar njóta. Það er mikilvægt.“ Eitthvað að lokum sem þú vilt taka fram og á erindi í tímarit LEB? „Við í Öldungaráðinu viljum endilega hvetja fólk sem vill koma á framfæri við okkur hugmyndum og almennum ábendingum að hafa samband við okkur. Okkur þykir mjög vænt um þær ábendingar sem komið hafa til okkar hingað til. Endilega hafið samband á netfangið: oldungarad@reykjavik.is Öldruö kona kom til læknis síns og hann hafði á orði að það væri langt síðan hún hefði komið. Henni brá við en sagði: Þú verður að afsaka mig góði læknir, en það er bara svo langt síðan ég hef verið veik. Er blaðið að skila sér? Ef þú veist til þess að Listin að lifa hafi ekki skilað sér til félagsmanna í þínu nágrenni, þá endilega hafðu samband beint við póstdreifingu. Tengiliður þar er: Þórunn Ása Þórisdóttir Beinn sími er 585 8312 Gsm er 669 8312 Netfang: thorunn@postdreifina.is 12

x

Listin að lifa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.