Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2013, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2013, Blaðsíða 19
Lífsstíll 19Miðvikudagur 27. febrúar 2013 Háþróaður svefnbúnaður duxiana.com DUXIANA Ármúla 10 S-5689950 Kynnum nýjar gerðir af dýnum frá DUX. 50% afsláttur * af höfuðgöflum og rykföldum við kaup á nýju gerðunum. Uppskriftir að ferskum skyndibita Jón Arnar Guðbrandsson gefur lesendum DV uppskrift að grilluðu brauði með tómötum og mozzarella-osti og bragðgóðu heilsu- bústi með eplum, engifer og mintu. Grillbrauð með tómötum og mozzarella n Tvær sneiðar Lemon-brauð eða eitthvert heilkorna brauð n 1 tómatur n 1 mozzarella-stykki n Pestó n Basil n Sjávarsalt og pipar Brauðið er grillað, síðan er pestói smurt á báðar sneiðar, því næst eru tómatsneiðum og mozzarella-sneiðum raðað á brauðið og kryddað til með salti og pipar, brauðið skorið horn í horn og dassað með ólífuolíu, sjávarsalti og grófum pipar stráð yfir. Pestó-uppskrift n Furuhnetur 25 gr n Hvítlaukur 2 rif n Kasjúhnetur 25 gr n Basil einn bakki n Ólífuolía 2 dl n Salt og pipar Allt sett í blandara þar til það er orðið vel mjúkt Heilsusafi með eplum, engifer og mintu n 2 stk. Pink Lady-epli n 2 cm bútur af engifer n 5 lauf af mintu n 4 stk. klakar Eplin og engifer er sett í safapressu, síðan sett í blandara með mintu og klaka og blandað vel saman. Dóttir Bubba í brúnni Féllust í faðma Bubbi og Hallgrímur Helgason heilsuðust með virktum og ræddust við. Hollustan í fyrirrúmi Egill Einarsson rennir bráðina hýru auga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.