Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2013, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2013, Blaðsíða 3
deilur enda í dómsal Áralangar fjölskyldu- Fréttir 3Miðvikudagur 10. júlí 2013 n Eigendur Milestone og forstjórinn ákærðir fyrir kaup félagsins á hlutabréfum Ingunnar í fyrirtækinu n Ekki á að fjölga aðstoðarfólki eða ráðgjöfum Ingunn átti síðar eftir að þakka Guðmundi Ólasyni sérstaklega fyr- ir hans aðkomu að því að samn- ingar tókust á milli hennar og bræðranna. Í tölvupósti til hans þann 9. desember 2005 sagði hún við Guðmund: „PS. Ég vil þakka þér þinn þátt í að samningar náðust á milli okkar bræðra.“ Guðmund- ur hefur nú verið ákærður ásamt bræðrunum vegna aðkomu sinnar að Ingunnarmálinu. Áttu erfitt með að greiða Eftir að búið var að komast að samkomulagi við Ingunni um hvernig bræðurnir myndu kaupa hana út úr Milestone, með pening- um félagsins sjálfs, fékk hún greitt frá Milestone í mörgum greiðslum á árunum 2006 til 2007. Fyrsta greiðslan var hins vegar há, einn milljarður króna, og var innt af hendi í desember 2005. Í tölvupósti frá Guðmundi Óla- syni til Arnars Guðmundssonar, fjármálastjóra Milestone, laugar- daginn 3. desember 2005 minnti Guðmundur hann á að hann ætti að greiða Ingunni einn milljarð króna tveimur dögum síðar: „Heill og sæll. Bara að láta þig vita að ÞÚ átt að borga 1 þúsund milljónir nk. mánudag til Ingunnar nokkurr- ar Wernersdóttur. Þú spáir í þetta. Heyrumst GÓ.“ Milestone virðist hins vegar ekki hafa átt þennan milljarð til- tækan á þessum tíma, líkt og kom fram í svari Arnars til Guðmund- ar: „Sæll. Eigum rúmar 400 laus- ar. Verðum að taka restina út úr stóra ISB samningnum. Kv. Arn- ar.“ Guðmundur stakk þá upp á því að fjármunirnir yrðu teknir úr er- lendu dótturfélagi Milestone. „Við erum víst að tala um 905.585.556 mkr. Hvað með gamla góða ltd. kv. GÓ“. Með orðunum sínum vís- aði Guðmundur til eins af dóttur- félögum Milestone erlendis. Arn- ar sagði hins vegar að lítið væri þar af peningum í dótturfélaginu: „Það er orðið lítið af peningum þar. Kv. Arnar“. Lán frá Íslandsbanka notað Greiðslan til Ingunnar virðist hins vegar á endanum hafa komið í gegnum lánasamning sem Mile- stone hafði gert við Íslandsbanka þar sem Guðmundur og Arn- ar ræddu ekki málið frekar sín á milli. Milestone var á þessum tíma einn stærsti hluthafi Íslandsbanka og sátu bæði Karl og Guðmund- ur í stjórn bankans. Milestone hélt þessari stöðu í Íslandsbanka þar til í apríl 2007 þegar FL Group, og tengd félög, urðu ráðandi í bank- anum. Lögmaður Ingunnar, Sigurð- ur G. Guðjónsson, ýtti svo á eftir greiðslunni og fékk staðfestingu á því að hún hefði verið innt af hendi í kjölfar eftirfarandi tölvupóst- samskipta Guðmundar og Arnars: „Pay and smile ... kr. 905.585.556 kv. GÓ“; „Greitt. Kv. Arnar“ Nærri 1.000 milljónir króna fóru því lík- lega frá Íslandsbanka, í gegnum Milestone og þaðan til Ingunnar Wernersdóttur til að greiða henni fyrir hlut hennar í félaginu sem varð í kjölfarið eign bræðra henn- ar. Ingunn fékk svo hundruð millj- ónir króna á mánuði frá Milestone á árunum 2006 og 2007 þar til búið var að greiða henni fyrir hlutinn í Milestone, samtals um 5 millj- arða króna. En í upphafi árs 2006 spurðist Arnar fyrir um það hvort hann ætti að greiða þessar afborg- anir inn á sama reikning Ingunn- ar og síðast: „Hæ. Á að borga inn á sama reikning og síðast á IW? Kveðja, Arnar“ . Þessi viðskiptaflétta er nú kom- in fyrir dóm og er fyrsta málið þar sem eigendur og stjórnendur Mile- stone eru ákærðir í kjölfar banka- hrunsins. Eftir standa fleiri mál sem hafa verið til rannsóknar, með- al annars meint misferli með bóta- sjóð tryggingafélagsins Sjóvár. n „PS. Ég vil þakka þér þinn þátt í að samningar náðust á milli okkar bræðra Ráðherrann kostar 90 milljónir króna Þ að kostar ríkissjóð um 90 milljónir á kjörtímabil- inu að fjölga um einn í ráð- herraliðinu. Þetta má lesa úr skriflegu svari Bjarna Benediktssonar fjármála- og efna- hagsráðherra við fyrirspurn Stein- gríms J. Sigfússonar VG. Steingrím- ur vildi fá að vita hvað það kostaði að fjölga ráðherrum um tvo á kjör- tímabilinu. Ráðherrar í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur voru átta þegar stjórnin fór frá. Níu ráðherrar sitja í ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar en rætt hefur ver- ið um að þeim verði fjölgað um einn. Ráðherrarnir gætu því orðið tíu í stað átta á síðasta kjörtímabili. Í svari Bjarna er miðað við að ráðherrum fjölgi um tvo og það myndi hafa um 180 milljóna kostnað í för með sér á fjórum árum. Í svarinu segir að eini viðbótarkostnaðurinn sem öruggt sé að falli til séu laun ráðherra og að- stoðarmanna. Ekki sé gert ráð fyr- ir fjölgun annarra starfsmanna þótt ráðherrum fjölgi. Né heldur er gert ráð fyrir að húsnæðiskostnaður né ferðakostnaður aukist. Aðstoðarmenn kosta 25 milljónir Laun ráðherra og þingmanna eru ákveðin af Kjararáði. Þau saman- standa af þingfararkaupi sem Alþingi greiðir og launum fyrir störf ráðherra. Ráðherrahlutinn nemur rúmum 480 þúsund krónum á mánuði að við- bættum launatengdum gjöldum sem eru 22 prósent. Það er því áætlað að viðbótarkostnaður ríkissjóðs vegna fjölgunar ráðherra um tvo nemi 14,5 milljónum á ári. Það er Kjararáð sem ákvarðar laun aðstoðarmanna ráðherra. Aðstoðarmaður ráðherra kostar um 12,5 milljónir á ári, tveir nýir aðstoðarmenn auka því kostnað ríkissjóðs um 25 milljónir. Ráðherraritarar gætu kostað 15 milljónir Í svari Bjarna kemur fram að heildar- launakostnaður vegna tveggja ritara sé áætlaður um 15 milljónir á ári. Það sé hins vegar ekki víst að ráðið verði í þær stöður með tilheyrandi viðbótar- kostnaði. Þá er ekki gert ráð fyrir að ráðherrabílstjórum verði fjölgað þó ráðherrunum fjölgi. Ekki eru uppi áætlanir um að fjölga ráðgjöfum eða öðrum starfsmönnum og í svarinu segir enn fremur að ekki liggi fyr- ir neinar ferðaáætlanir ráðherra og því sé óvíst að heildarferðakostnaður aukist þó að ráðherrum fjölgi. Breytingar sem gerðar voru á hús- næði í kjölfar ríkisstjórnarskiptanna í maí nam 15 milljónum króna og ekki er gert ráð fyrir frekari kostnaði vegna breytinga á húsnæði. Biðlaun gætu numið 30 milljónum Steingrímur vildi líka svör við því hver yrði viðbótarkostnaður vegna biðlauna ef stjórnarskipti yrðu á kjör- tímabilinu eða í lok þess og viðkom- andi ráðherrar og þeir starfsmenn sem þeir hafa ráðið sérstaklega hyrfu úr starfi eða þægju biðlaun. Í svari Bjarna kemur fram að biðlaun jafn- há ráðherralaunum séu greidd í þrjá mánuði frá þeim degi að ráðherra lætur af störfum. Sá sem gegnt hef- ur ráðherraembætti í eitt ár sam- fellt eða lengur á rétt á biðlaunum í hálft ár. Aðstoðarmenn ráðherra eiga þriggja mánaða biðlaunarétt. Aðrir eiga ekki rétt á biðlaunum. Áætlaður kostnaður vegna biðlauna yrði rétt um 30 milljónir króna segir í svari fjármála- og efnahagsráðherra. n Jóhanna Margrét Einarsdóttir blaðamaður skrifar johanna@dv.is „Ekki gert ráð fyrir auknum húsnæð- iskostnaði. Fjölgun ráðherra Hver nýr ráðherra kostar ríkissjóð tugi milljóna. Þ eir sem eiga lögheimili erlend- is og sitja í bankaráði Seðla- banka Íslands fá greiddan allan ferðakostnað samkvæmt upplýsingum frá Seðlabanka Íslands. Ólöf Nordal var kosin í bankaráð Seðlabankans í vikunni en hún býr í Genf í Sviss. Hún á raunar enn lög- heimili á Íslandi, samkvæmt þjóð- skrá, en eiginmaður hennar er skráð- ur í Sviss. Sjálf hefur hún lýst því í blaðavið- tölum að hún sé flutt til Sviss. Banka- ráð Seðlabankans heldur fundi tvisvar í mánuði og samkvæmt sam- kvæmt lauslegri athugun kostar á bil- inu 98 til 120 þúsund að fljúga á milli landanna báðar leiðir ef valin eru ódýrustu flugfargjöldin. Kostnaður við flugfargjöld yrðu því 196 til 240 þúsund krónur á mánuði fyrir Ólöfu. Á ári yrði gæti kostnaðurinn við ferð- ir á fundi verið á bilinu 2,3 til 3 millj- ónir króna. Seðlabankinn skoðaði sérstak- lega hvort honum bæri að greiða ferðakostnað á milli landa þegar Daniel Gross doktor í hagfræði var kosinn í bankaráðið 2009 en hann átti lögheimili erlendis. Niðurstaða bankans var að honum bæri að greiða ferðakostnað hans. Seðla- bankinn greiðir líka innlendan ferðakostnað bankaráðsmanna sem búa utan Stór-Reykjavíkursvæðis- ins. Felast greiðslurnar í greiðslu fyrir kílómetragjald bifreiðar, flug- fargjöld innanlands og fæðiskostn- að í hálfan dag samkvæmt ákvörðun ferðakostnaðarnefndar ríkisins. n johanna@dv.is Seðlabankinn greiðir fargjöld n Flug fyrir Ólöfu Nordal gæti kostað 3 milljónir á ári Flutt til Sviss Kostnaður Seðlabanka Íslands vegna flugfargjalda Ólafar Nordal gæti numið nærri þremur milljónum á ári.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.