Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2013, Blaðsíða 13
Fréttir 13Miðvikudagur 10. júlí 2013
Hafna kosn-
ingaboði
Bræðralag múslima í Egyptalandi
hefur hafnað tímaáætlun sem
settur forseti, Adly Mansour, hef-
ur kynnt til að kjósa nýjan forseta.
Bræðralagið, sem stóð að baki
forsetanum fallna Mohammed
Morsi, segir að um ólögmætt
kosningaboð sé að ræða.
Eins og kunnugt er, tók herinn
yfir stjórn landsins í síðustu viku
eftir að blóðug mótmæli höfðu
verið í marga daga. Mótmælun-
um virðist ekki ætla að linna, því
51 lét lífið í nágrenni höfuðstöðva
hersins á mánudag, í útjaðri Kaíró.
Þar er Mansour er talinn halda
til. Bræðralagið hefur kallað eft-
ir byltingu í landinu og það hef-
ur hvatt alþjóðasamfélagið til að
grípa inn í. Að öðrum kosti gæti
ástandið orðið eins og í Sýrlandi.
Fangar í
hungurverkfall
Rúmlega þrjátíu þúsund fangar
í Kaliforníu í Bandaríkjunum
neyttu ekki matar á mánudag.
Er það sagt geta markað upphaf
viðamesta hungurverkfalls í sögu
Bandaríkjanna. Með þessu hyggj-
ast fangarnir mótmæla skilmálum
fangelsisyfirvalda þegar kemur
að einangrun fanga. Þetta kemur
fram í Los Angeles Times.
Að auki hefur fjöldi fanga
neitað að mæta í vinnu og skóla.
Fangarnir sitja inni í 20 af 33
fangelsum Kaliforníuríkis en
um 11 þúsund fangar tóku þátt í
samskonar hungurverkfalli í ríkinu
árið 2011. Því lauk þannig að fang-
elsisyfirvöld samþykktu að endur-
skoða reglur um einangrun fanga.
Skipuleggjendur mótmælanna
er hópur fanga í Pelican Bay-
ríkisfangelsinu. Hópurinn gaf
út sérstakan kröfulista á mánu-
daginn þar sem meðal annars er
farið fram á að ekki verði hægt að
setja fanga í ótímabundna ein-
angrun, stundum áratugalanga,
vegna tengsla við glæpagengi.
Spilling eykst
Rúmlega helmingur telur að
spilling í heiminum hafi auk-
ist á undanförnum tveim-
ur árum. Þetta eru niðurstöð-
ur könnunar sem Transparency
International gerði í 107 löndum.
Meira en 114.000 manns tóku þátt
í könnuninni en almennt telur
fólk að spilling sé til staðar í öllum
löndum.
Með óþekktan sjúkdóm
n Tveggja ára drengur fæddist afmyndaður
L
æknar í Bretlandi eru ráðþrota
vegna áður óþekktra einkenna
sem hrjá tveggja ára dreng, Ai-
dan Jackoviak Smith. Hann
fæddist átta vikum fyrir settan tíma,
afmyndaður í andliti, á fæti og á
baki. Þriggja vikna gamall fékk hann
sitt fyrsta flog, sem hefur haft áhrif á
heilastarfsemi hans allar götur síð-
an. Læknar vita ekki sitt rjúkandi ráð
en freista þess að komast að því hvað
hrjáir barnið með því að beita útilok-
unaraðferðinni.
Gerðar hafa verið ótal rannsókn-
ir á drengnum en hvert sýnið af öðru
skilar neikvæðum niðurstöðum. Á
meðal þess sem útilokað hefur ver-
ið er prótevs-heilkennið en það er
hið sama og fílamaðurinn (Joseph
Carey Merrick) glímdi við á sínum
tíma. „Núna halda þeir að þetta sé
CLOVES-heilkenni,“ sagði móðir
drengsins, Vikki, í sjónvarpsviðtali
nýverið. Um er að ræða arfgengan
sjúkdóm sem um 130 einstaklingar í
heiminum þjást af og greindist fyrst
árið 2006.
Meðganga Vikki var tíðindalítil,
að því er Daily Mail greinir frá. Vegna
þess að hann var fyrirburi var hann
strax tekinn frá móður sinni eftir
fæðinguna. Foreldrarnir vissu ekki
annað en að barnið þeirra væri heil-
brigt þar til læknar færðu þeim frétt-
irnar. Það varð þeim mikið áfall að
heyra af heilaskaðanum, segir faðir
drengsins, Karl Smith.
Ástandið sem Smith, drengur-
inn ungi, þjáist af kemur í veg fyrir að
hann geti talað og gengið. Flogin hafa
leitt til heilaskaða og ekki er víst að
drengurinn geti nokkru sinni lært að
bjarga sér sjálfur eða tjá sig. Læknar
hafa sagt að ekki sé víst að barnið geti
þekkt foreldra sína. Vikki er þess þó
fullviss. Drengurinn ljómi þegar hún
komi heim úr vinnunni og hlæi. „Við
vonumst til þess að hann geti lært að
tala og labba,“ segir hún. n
baldur@dv.is
Afmyndaður Drengurinn
með föður sínum og bróður.
Fyrir hvað
stendur CLOVES?
Congenital Lipomatous Overgrowth
Vascular Malformations Epidermal Nev-
is Spinal/Skeletal Anomalies/Scoliosis.
R
annsókn eftir rannsókn sýnir
þann mikla vanda sem kór-
alrif sjávar standa frammi
fyrir. Vegna mengunar og
hlýnunar sjávar eiga kóra-
lar sífellt erfiðara með að þrífast og
þessara áhrifa er þegar farið að gæta
víða. Í nýrri rannsókn kemur fram að
ef ekki dregur úr losun gróðurhúsa-
lofttegunda muni kóralrif deyja út
fyrir lok 21. aldarinnar.
Geta ekki varist
Það voru vísindamennirnir Katharine
Ricke og Ken Caldeira hjá Carnegie-
vísindastofnuninni í Bandaríkjunum
sem fór fyrir rannsókninni en niður-
stöður hennar birtust á miðvikudag í
tímaritinu Environmental Research
Letters. Þar kemur fram að með því
að reikna út efnasamsetningu sjávar
út frá flóknu reiknilíkani sem var búið
til, kemur í ljós að við aldamótin 2100
verða hvergi í hafinu að finna ákjós-
anlegt búsvæði fyrir kórala.
Vandinn er sá að kóralar nota
steinefnið aragónít til að framleiða
sína náttúrulega skel. Efnið er ann-
að tveggja sem myndar kalsíum-
karbónat og vinna kóralarnir efnið
þaðan. Hins vegar þegar sjórinn tek-
ur til sín koltvísýring, CO2, úr and-
rúmsloftinu breytist efnasamsetn-
ing sjávar og sýrustig hans hækkar.
Þær breytingar gera það að verk-
um að kóralarnir eiga erfiðara með
að mynda skelina sem er þeim lífs-
nauðsynleg.
Mengun skyggir á sólu
Í annarri grein sem birtist í Nat-
ure Geoscience í apríl kom fram að
rannsóknir fjölþjóðlegs teymis vís-
indamanna leiddu í ljós að loft-
mengun, aðallega vegna bruna kola
og eldgosa, skyggja á kórala í hafinu.
Rannsóknir sýndu að aukin loftslags-
mengun hefði slæm áhrif á kórala.
Þá hefur verið birtur fjöldinn allur
af rannsóknum undanfarin ár og ára-
tugi sem sýna afleiðingar mengun-
ar, veiða, úrgangslosunar og annars
rasks af manna völdum á kórala.
Katharine Ricke hjá Carnegie-vís-
indastofnuninni gengur svo langt að
halda því fram að ef ekki verði dregið
strax verulega úr losun koltvísýrings
og annarra gróðurhúsalofttegunda
verði kórulum ekki bjargað.
Skæðir vírusar
Ekki er þó öll sagan sögð því það er
fleira en mennirnir sem ógna til-
vist kórala. Í júlí 2012 birtu rann-
sakendur frá Háskólanum í Oregon
í Bandaríkjunum niðurstöður rann-
sóknar sem sýndu að tveir vírus-
ar, annar áður óþekktur, herja á líf-
verurnar.
Þá hafa enn aðrar rannsóknir
sýnt að ofvöxtur þörunga sé held-
ur ekki góður fyrir kórala en kóralar
lifa flóknu samlífi með þörungum
og treysta lífverurnar hvor á aðra.
Hækkandi hitastig sjávar er á með-
al þess sem veldur því að þörunga-
blómi eykst og verður að lokum
hættulega mikill fyrir kórala.
Fjölbreyttustu vistkerfi sjávar
Kóralrif eru ekki bara mikið sjón-
arspil heldur eru þetta flóknustu og
fjölbreyttustu vistkerfi sjávar. Allt að
fjórðungur allra lífvera sjávar treysta
á kóralrif að einhverju leyti. Hvort
sem er til fæðuöflunar, samlífis eða
skjóls frá öðrum tegundum. Þetta
flókna og magnaða fyrirbæri sjávar
spilar því mun veigameiri rullu í líf-
ríki hafsins en flesta grunar.
Flestar niðurstöður virðast benda
til þess að ef ekki verða breytingar á
mengun frá ríkjum heimsins verði
þessum lífríkjum ekki bjargað. n
Kóralrif Eru ekki bara eitt
magnaðasta sjónarspil ver-
aldar heldur eitt flóknasta
vistkerfi jarðar.
Kóralrifin munu
hverfa í lok aldar
n Fjölmargar rannsóknir sýna hættuna n Kórölum blæðir út vegna mengunar
Ásgeir Jónsson
blaðamaður skrifar asgeir@dv.is
Mikilvæg vistkerfi Allt að 25 prósent sjávarlífvera treysta á kóralrif til að lifa af.