Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2013, Blaðsíða 23
Syngur Sín þekktuStu lög
Menning 23Miðvikudagur 10. júlí 2013
Extreme Chill fer fram um helgina
Íslenskt brimbrettarokk
H
ljómsveitin Bárujárn hefur
verið starfandi í nokkur ár en
sendir nú frá sér sína fyrstu
breiðskífu í fullri lengd. Skíf-
an heitir Bárujárn og á henni eru
átta frumsamin lög ásamt einni
ábreiðu. Bárujárn kemur út í tak-
mörkuðu upplagi og liggur mik-
il vinna að baki umslagi disksins.
Umslögin eru handgerð með silki-
prenti af hljómsveitarmeðlimum
sjálfum og hönnuðinum Atla
Rúnari Bender. Sindri Freyr Steins-
son, gítarleikari og söngvari Báru-
járns, segir hljómsveitina spila
kraftmikið og melódískt brim-
brettarokk með íslenskum textum.
Útgáfutónleikarnir verða haldnir
þann níunda ágúst næstkomandi á
Ellefunni. n
Dionne ung í stúdíói Hóf feril sinn sem
bakraddasöngkona.
n Söngkonan Dionne Warwick kemur fram í Hörpu í kvöld n Bað sérstaklega um íslenskar lambakótilettur
Þorsteinn Stephensen tónleika-
haldari Segir gesti mega búast við því að
Dionne Warwick taki sína stærstu smelli.„Þessir tónleikar
hefðu aldrei orðið
að veruleika ef Harp-
an væri ekki til staðar.
Þetta er hárréttur staður
fyrir tónleika af þessari
stærðargráðu.
I
ndísveitin fræga Skátar sneri
aftur á föstudagskvöld til að
heiðra minningu Björns Kol-
beinssonar, fyrrum bassaleik-
ara sveitarinnar, sem lést í köf-
unarslysi í Silfru á Þingvöllum í
des ember. Auk Skáta komu fram
Bloodgroup, Grísalappalísa, Jan
Mayen og Sigtryggur Berg Sigmars-
son flutti barnvænan gjörning.
Skátar lögðu upp laupana fyrir
nokkrum árum og var það óneit-
anlega mikill missir fyrir íslensku
tónlistarsenuna. Skátar voru beint
framhald af spila- og tilraunagleði
pönksins, sem kom þó nokkrum
árum of seint til Íslands eins og
flestir óþjóðlegir hlutir. Munurinn
á Skátum og eldri pönksveitum
var hins vegar sá að Skátar voru
hin sanna íslenska síðpönkhljóm-
sveit, því þar höfðu hinar ýmsu
tónlistarstefnur fengið að malla á
milli áranna og þar smullu þess-
ir ýmsu hljóðheimar loks saman
í skemmtilega kaótískum hræri-
graut. Stíl Skáta mætti lýsa sem
bræðingi úr því besta af tón-
list 20. aldarinnar. Hljómsveitin
hafði sinn eigin stíl sem var bæði
hressilegur og óvenjulegur.
Andlát Bjössa Skáta, sem var
einnig þekktur sem El Buerno,
var mikið áfall fyrir íslensku tón-
listarsenuna. Honum var lýst sem
miklum öðlingi með persónu-
töfra og ævintýraþorsta. Í minn-
ingargreinum um Björn kem-
ur fram að hann hafi verið helsti
drifkrafturinn í Skátum og límið
sem hélt hljómsveitinni saman.
Minningartónleikarnir voru svo
sannarlega honum sæmandi.
Skátar rokkuðu sokkana af öllum
viðstöddum og sýndu enn og aft-
ur að Skátar eru án efa besta síð-
pönkhljómsveit Íslands. n
Skátar á sviði Bjössi mundar
bassann, lengst til hægri.
MynD Sigríður Ella FríMannSDóttir
Skátar heiðra El Buerno
Tónleikar
Þórður Ingi Jónsson
thordur@dv.is
Skátar
Besta síðpönksveit landsins
Björn Kolbeinsson Bjössa Skáta verður
sárt saknað.