Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2013, Blaðsíða 16
Algengt verð 247,9 kr. 245,9 kr.
247,7 kr. 245,7 kr.
Höfuðborgarsvæðið 247,6 kr. 245,6 kr.
Algengt verð 247,9 kr. 245,9 kr.
Algengt verð 252,8 kr. 247,9 kr.
Melabraut 247,7 kr. 245,7 kr.
Eldsneytisverð 11. ágúst
Bensín Dísilolía
Svangur fékk
að borða
n Lofið fær útibú Kaupfélags Stein-
grímsfjarðar í Norðurfirði. Í vik-
unni sem leið bar þar að garði
svangan blaðamann að sunnan
sem var nýkominn úr strandveiði-
túr á miðunum út af Norðurfirði.
Vildi hann verða sér út um snarl
fyrir heimferðina til Reykjavík-
ur sem hann þurfti að aka einn að
næturlagi að veiðiferðinni lokinni.
Þetta gerðist um níuleytið að kvöldi
en venju samkvæmt hafði kaupfé-
lagið lokað fjórum klukkustundum
fyrr og voru því góð ráð dýr. Það var
hugul semi útibússtjórans sem varð
blaðamanninum til happs.
Hún sá aumur á sunnan-
manninum svanga og
opnaði sérstaklega fyrir
hann. Keypti hann gult
Pringles-snarl
og karamellu-
súkkulaði frá
Nóa Síríus og var
því vel nestaður
fyrir heimferðina.
Hreyfiseðill
hluti af endur
hæfingar áætlun
n Tryggingastofnun sem er með
nýtt úrræði í sjúkraþjálfun sem
kallast hreyfiseðill. Það fer þannig
fram að þú skráir hreyfingu þína
inn á síðu hreyfiseðils og fylgst er
með hvort þú sért að stunda þá
hreyfingu sem var lagt upp með í
upphafi með aðstoð sjúkraþjálf-
ara. Nema hvað, Tryggingastofn-
un neitar að greiða þeim sem nýta
sér þetta úrræði að einhverju leyti
sjúkrabætur eða lífeyri á meðan á
þessari endurhæfingu stendur.
Málið var borið undir
Tryggingastofnun og þaðan barst
þetta svar.
Hreyfiseðlar eru hluti af endur-
hæfingaráætlun, sem þarf að
liggja fyrir og framfylgja þegar
greiddur er endurhæfingarlífeyr-
ir. Með umsókn um endurhæf-
ingarlífeyri þurfa að fylgja ákveðin
gögn. Hvernig sótt
er um og hvaða
gögn þurfa að
fylgja með um-
sókn er farið yfir
á vef Trygginga-
stofnunar, tr.is.
Sjá hér: tr.is/al-
menn-rettindi/endur-
haefingarlifeyrir/
hvernig-er-sott-um-
endurhaefingarlifeyri/
Lof og last
Sendið lof eða last á neytendur@dv.is
16 Neytendur 12. ágúst 2013 Mánudagur
Hvernig er best að kvarta við leigusala
n 736 erindi bárust leigjendaaðstoðinni
L
eigjendaaðstoðinni bárust
736 erindi fyrstu sex mánuði
þessa árs sem er svipaður
fjöldi og í fyrra. Margir þeirra
sem eru á leigumarkaði vita
ekki hvert þeir eiga að snúa sér þegar
upp koma vandamál varðandi hús-
næði sem þeir leigja eða í samskipt-
um við leigusala. Starfsfólk Leigj-
endaaðstoðarinnar reynir eftir bestu
getu að greiða úr þeim vandamálum.
Á heimasíðu Neytendasamtak-
anna kemur fram að mest er spurt
um ástand og viðhald eignar, hver
eigi að sinna hverju, hvernig best sé
að kvarta við leigusala og hvaða úr-
ræði standi til boða í kjölfar kvört-
unar. Þar á eftir koma svo erindi sem
snúa að uppsögn samnings, hvaða
reglur gildi um uppsagnir, hvenær
uppsögn þurfi að berast, hvenær hún
taki gildi. Svo er töluvert spurt um at-
riði eins og þinglýsingu, húsaleigu-
bætur, útburð, úttektir á leigu-
húsnæði og þess háttar mál. Þótt
Leigjendaaðstoðinni sé aðeins ætlað
að aðstoða leigjendur er þó nokkuð
um að erindi berist frá leigusölum.
Í þeim tilvikum er leigusölum veitt-
ar almennar upplýsingar enda er það
einnig í þágu leigjenda að leigusalar
séu meðvitaðir um lög og reglur.
Leigjendaaðstoðin er rekin af
Neytendasamtökunum samkvæmt
þjónustusamningi við velferð-
arráðuneytið. Hún er öllum opin.
Fólk getur kynnt sér starfsemi Leigj-
endaaðstoðarinnar á heimasíðunni
leigjendur.is. Þar er að finna margs
konar fróðleik um flest það er lýtur
að leigusamningum. n
johanna@dv.is
T
il að kanna hvort að lögum
og reglugerðum um notkun
skordýraeiturs, sveppalyfja
og illgresiseyða við fram-
leiðslu á grænmeti og ávöxt-
um sé fram fylgt tökum við um 270
sýni á ári. Þar af tökum við um 60
sýni úr íslensku grænmeti,“ segir
Ingibjörg Jónsdóttir sérfræðingur hjá
Matvælastofnun. „Við getum mælt
magn 61 tegundar af skordýraeitri
sem notað er við matvælafram-
leiðslu. Það eru hins vegar miklu
fleiri tegundir af eitri sem eru not-
aðar í heiminum við matvælafram-
leiðslu en við höfum ekki fjármagn
eða tæki, eins og er, til að mæla hvort
þessar eiturtegundir eru í óleyfilegu
magni í ávöxtum og grænmeti sem
flutt er til landsins, sem er alls ekki
nógu gott,“ segir Ingibjörg.
strádrepur hunangsflugur
Nokkrum sinnum á ári erum við
minnt á notkun skordýraeiturs í mat-
vælum oftast þegar Matvælastofnun
mælir of mikið af eiturefnum í ein-
hverri tegund grænmetis og ávaxta.
Þá er send út tilkynning um að ein-
hver vara sé ekki talin neysluhæf. Ný-
lega var innkallað spínat úr verslun-
um vegna þess að magn permetríns
mældist of hátt í því en það er eitt
þeirra eiturefna sem mælt er fyrir hér
á landi. Það er ekki hættulegt fólki í
litlum skömmtum en það getur skað-
að vatnalífverur komist það út í nátt-
úruna og það strádrepur hunangsfl-
ugur. Af þessum sökum er það eitt af
þeim varnarefnum sem Evrópusam-
bandið hefur ákveðið að banna.
eitrið þvæst ekki burt
Evrópusambandið hefur ákveðið
að veita Íslendingum 300 milljóna
króna styrk til að kaupa tæki til að
mæla magn varnarefna í ávöxtum og
grænmeti. Þegar tækjabúnaðurinn
verður kominn í gagnið verður hægt
að mæla fyrir um 300 eiturefnum í
matvælum og fylgjast með hvort að
þau mælist yfir viðmiðunarmörkum.
Hvað varðar innlendu framleiðsluna
segir Ingibjörg að það sé auðveldara
að fylgjast með hvaða efni séu not-
uð. Umhverfisstofnun gefur út leyfi
fyrir innflutningi á varnar efnum.
Stofnunin hefur því nákvæma skrá
yfir þau eiturefni sem notuð eru í
landbúnaði. Margir halda að það
sé nóg að skola grænmeti og ávexti
til að hreinsa burt varnarefni. Ingi-
björg segir að það sé alltaf til bóta að
skola grænmeti og ávexti þó ekki sé
til annars en að losna við bakteríur,
ryk og skít sem kemur með þessum
vörum frá fjarlægum löndum.
„Ávextir og grænmeti er úðað
með varnarefnum en þau er líka að
finna í jarðvegi og plönturnar geta
tekið þau upp í gegnum rótarkerfið.
Þá finnast þau í blöðum, fræjum og
holdi ávaxta,“ segir Ingibjörg.
Tortryggin á innflutt grænmeti
Doktor Sigmundur Guðbjarnarson
telur að eftirlit með notkun skor-
dýraeiturs í innfluttu grænmeti sé
ekki nógu og gott.
„Vandamálið er að við höfum ekki
hugmynd um hversu mikið hefur
verið notað af eiturefnum við ræktun
grænmetis og ávaxta sem flutt eru til
landsins. Ég er tortrygginn gagnvart
þessum innfluttu vörum. Framleið-
endurnir eru víða um heim og græn-
meti og ávöxtum er safnað saman í
umskipunarhafnir. Við fáum megn-
ið af okkar grænmeti og ávöxtum í
gegnum Holland og menn nota alls
konar eiturefni til að verja vörur sín-
ar gegn meindýrum og til að reyna
að lengja líftíma þeirra,“ segir Sig-
mundur. Hann skrifaði fyrir ekki svo
löngu grein á Eyjuna um áhrif skor-
dýraeiturs á fólk, þar segir hann
meðal annars:
„Rannsóknir sýna að skordýra-
eitur getur stuðlað að myndun
krabbameina, til dæmis hormóna
næmra krabbameina en það eru
brjóstakrabbamein og blöðruháls-
kirtilskrabbamein. Á Vesturlönd-
um og einnig hér á Íslandi hefur
verið marktæk aukning á þessum
tegundum krabbameina. Krabba-
mein tengjast mjög lífsstíl svo sem
mataræði, hreyfingu og fleira. Á
meðal þeirra efna sem við höfum
fengið í vaxandi mæli í matnum eru
ýmis efni sem virka sem hormón-
ar og kallast hormónahermar eða
hormónaspillar. Efni þessi hafa oft
estrogen-virkni, líkja eftir virkni
kvenkynshormóna og rugla starf-
semi hormónakerfisins. Efni þessi
hafa í vaxandi mæli verið notuð við
framleiðslu á matvælum, t.d. sem
skordýraeitur til að vernda grænmeti
og ávexti fyrir skaðlegum skordýrum.
Sett hefur verið fram sú tilgáta að
þessi aukning á hormónatengdum
krabbameinum sé afleiðing af auk-
inni neyslu mengandi efna svo sem
skordýraeiturs og annarra horm-
ónaherma í umhverfinu. Unnt er
og æskilegt að framleiða heilnæma
ávexti og grænmeti án þessara meng-
andi efna.“ n
Skortir fé og tæki
til eiturmælinga
n Einungis tekin 270 sýni á ári n Tortrygginn gagnvart innfluttu grænmeti
Jóhanna Margrét Einarsdóttir
blaðamaður skrifar johanna@dv.is
eiturefni Neytendur hafa litla hugmynd um hvaða eiturefni geta verið í ávöxtum og
grænmeti sem þeir neyta. Matvælastofnun fylgist með magni rúmlega 60 varnarefna í
grænmeti og ávöxtum en miklu fleiri efni eru notuð við ræktun þeirra . MynD: KrisTinn Magnússon
Á leigumarkaði Leigjendaaðstoðin reynir að greiða úr vandamálum milli leigusala og
leigjenda. MynD: sigTryggur ari
„Rannsóknir sýna
að skordýraeitur
getur stuðlað að myndun
krabba meina, til dæmis
hormóna næmra krabba
meina en það eru brjósta
krabba mein og blöðru
háls kirtils krabba mein.