Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2013, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.2013, Side 19
E ins og komið hefur í ljós undanfarin ár og áratugi fer því fjarri að allir íþrótta- menn ráði við það með góðu móti að ljúka ferlinum og takast á við raunveruleikann í allri sinni dýrð. Það á við um nánast all- ar íþróttagreinar og hvarvetna má finna hörmulegar sögur af frækn- um köppum sem tókst vel upp í sportinu en misstigu sig svo herfi- lega á fjölum lífsins. NBA engin undantekning Körfuboltadeildin NBA er þar engin undantekning. Þar fá margir eld- skírnina afar ungir og eru orðn- ir þjóð- og heimsþekktir mjög fljót- lega ef þeir standa fyrir sínu eða eru á mála hjá þekktum liðum. Peningarnir streyma fljótt inn og frægðin stígur mörgum til höfuðs á skömmum tíma. Menn þurfa sterk bein og vera kristalklárir í hausnum til að gera sér grein fyrir að frægðin og peningarnir eru tímabundin fró- un. Það er kannski ástæða þess að Penny Hardaway hefur ekki náð að fóta sig vel eftir feril sinn. Að því er fram kemur hjá ESPN hefur hann meira og minna lifað af peningum sem hann fær reglulega frá Nike vegna skósamnings sem hann gerði á hátindi ferilsins. En hann hefur reyndar nýtt hluta þeirra fjármuna til góðra verka. Hinn mjög svo lit- ríki Dennis Rodman hefur ekki gert góða hluti eftir að ferli hans lauk. Hann er alkóhólisti og hefur fátt gert annað undanfarin ár en taka pen- inga fyrir að láta sjá sig í veislum og gefa eiginhandaráritanir. Svo skaut honum upp í Norður-Kóreu fyrir skömmu þar sem hann dásamaði land og þjóð. Scottie Pippen hefur tekist að halda ágætu yfirmanns- starfi hjá sínu gamla liði Chicago Bulls en mun meira fer fyrir fregnum af hinu ljúfa lífi hans og átökum við hina og þessa á stundum. Antoine Walker er atvinnulaus og skuldug- ur í smábæ í Idaho og búinn að selja allt undan sér vegna fíknar. Larry Johnson berst við að greiða meðlög með sínum fimm börnum með fjór- um konum og bætir víst reglulega við. Shawn Kemp veit enginn neitt um annað en hann er stórskuldugur og eignalaus. Hlutastörf hjá mörgum Ótrúlegur fjöldi fyrrverandi stjörnu- leikmanna NBA hefur þá einu at- vinnu að lýsa körfuboltaleikjum eða gefa sérfræðiálit á hinum ýmsu leikjum. Það er kannski óvitlaust enda lítil vinna og góðir peningar og flestir vita þeir hvað þeir eru að tala um. Meðal gamalla kempa sem starfa við slíkt vestanhafs má nefna Gary Payton, Clyde Drexel, Charles Barkley og Reggie Miller. Enn aðrir koma nálægt þjálf- un eða eru í aðstoðarstarfi hjá ein- hverjum af sínum gömlu liðum. Það á við um Hakeem Olajuwon sem þó er skráður til heimilis í Jórdaníu og eyðir þar mestum tíma sínum. Patrick Ewing reynir að koma liði Charlotte á skrið og við hlið hans er annar þekktur kappi frá síðustu öld; Mark nokkur Price. Þá er hinn eftirminnilegi Muggsy Bogues, sem ávallt vakti aðdáun vegna getu sinn- ar þrátt fyrir smæð að þjálfa há- skólalið í Miðvestur ríkjunum. Fáir standa upp úr Auðvitað eru þó ýmsir sem kunna fótum sínum forráð. Vart þarf að minnast á Michael Jordan sem ávaxtar peninga sína vel og ekki gengur illa hjá Larry Bird né Magic Johnson sem báðir reka fyrirtæki sem ganga smurt. Karl Malone rakar inn peningum á verktaka- og arki- tektafyrirtæki sínu og sömuleiðis hefur David Robinson komist í álnir og fjárfest vel. n Sport 19Mánudagur 12. ágúst 2013 Lífið eftir NBA ekki alltaf dans á rósum n Fjöldi gamalla stjarna í tjóni eftir farsælan feril í körfuboltanum Albert Örn Eyþórsson blaðamaður skrifar ritsjorn@dv.is Upprunalega Draumaliðið Lífið hefur farið afar misjafnlega með hinar gömlu stjörnur NBA-körfuboltans. Samkeppni fyrir Aron Einar Harðjaxlinn Aron Einar Gunnars- son hjá Cardiff fékk nokkuð óvænt heljarmikla samkeppni um stöðu sína í velska liðinu í vikunni þegar stjóri liðsins gekk frá samningi við Gary Medel. Sá er nagli líka og hefur spilað sömu stöðu og Aron Einar bæði hjá sínu fyrra liði Sevilla á Spáni og einnig með landsliði Chile og farnast vel. Hann er ekki eins fljótur eða teknískur og Ís- lendingurinn en hann tekur stíf- ar á mönnum á miðjunni sem oft þykir kostur. Hvort þetta þýði að Aron verði að berjast meira fyrir sæti sínu eða hvort tilfæringar innan liðsins séu á döfinni ligg- ur ekki fyrir en kemur brátt í ljós enda keppni í úrvalsdeildinni í Englandi að hefjast. Viðhaldsfríar ÞAKRENNUR Smiðjuvegi 4C Box 281 202 Kópavogur Sími 587 2202 Fax 587 2203 hagblikk@hagblikk.is www.hagblikk.is Varmaskiptasamstæður loftræstistokkar og tengistykki Hágæða HAGBLIKK ehf. Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur. Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0,9 mm áli og tærast ekki, ryðga, né brotna. Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun. Litir til á lager: Svartar, hvítar, rauðbrúnar og ólitaðar. A u g l. Þ ó rh ild ar 1 4 6 0 .2 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.