Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2013, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2013, Síða 17
Þ að er allt brjálað að gera hjá okkur. Okkar tími kom en Jó- hönnu tími er liðinn,“ segir Hafþór Edmund Byrd skó- smiður í Garðastræti. Það styttist í að fimm ár séu liðinn frá hruni. Margir ákváðu í kjölfar hruns- ins að nýta föt og skó betur. Liður í því var að fara með skóna í viðgerð í stað þess að kaupa nýja og láta gera við föt eða breyta þeim í stað þess að kaupa ný. Spurningin er hins vegar hvort þetta borgar sig. Svarið er hik- laust já ef hluturinn er vandaður og dýr en ávinningurinn er lítill sem enginn ef flíkin eða skórnir eru ódýr fjöldaframleiðsla. „Fólk kemur í hópum með gömlu skóna sína til okkar til að láta gera við þá. Við segjum fólki hins vegar hik- laust hvort við teljum að viðgerðin borgi sig eða hvort betra sé losa sig við skóna og fá sér nýja. Við reynum alltaf að segja fólki hvað viðgerðin komi til með að kosta,“ segir Hafþór. Það kostar 3.000–10.000 krónur að gera við skó. Sem dæmi get ég tekið að það er hægt að fá góða viðgerð á dýra kvenskó til dæmis frá Prada fyr- ir 7.000–8.000 krónur. Inni í því dæmi væri að skipta um plötur á hælum, sóla skóna, setja nýja leppa í þá og djúpnæra skinnið. Að því loknu myndu skórnir líta út eins og nýir,“ segir Hafþór Viðgerð á meðan beðið er Svipuðu máli gegnir um karlmanns- skó. Hafþór tekur dæmi um dýra karlmannsskó frá Lloyd‘s. Hann segir að það gæti kostað um 9.000 krónur að gera við þá. Inni í þeirri upphæð væri að sóla þá, setja nýjar plötur undir hælana og nýja leppa og pússa þá og þeir myndu líta út líkt og þegar þeir voru teknir úr pakkanum. Haf- þór segir að gert sé við skó á meðan fólk bíður til dæmis ef það sé einföld viðgerð á hæl, það taki lengri tíma ef það þurfi að sóla skó en yfirleitt sé reynt að gera það samdægurs. Stærri viðgerðir og breytingar á skóm taki lengri tíma. Það sé þó reynt að hafa biðtímann sem stystan. „Fólk á að skipta um skó að minnsta kosti tvisvar á dag. Konur fara yfirleitt betur með skóna sína en karlar. Þær skipta oftar um skó yfir daginn og það skiptir miklu máli ef fólk ætlar að láta skóna endast að skipta oft um skó. Karlar eiga það til að gagna í sömu skónum allan daginn, dag eftir dag. Það fer ekki vel með skó. Það þarf að bera reglulega á skó og koma með þá í viðgerð áður en þeir eru orðnir skemmdir af sliti,“ segir Hafþór. Eftirspurnin minnkar ekki „Eftir hrun fór fólk að hugsa um að halda lengur í fötin sín. Það varð al- gengara að fólk kæmi með föt í við- gerð eða til láta breyta þeim. Eftir- spurnin hefur síst minnkað á þeim tæpu fimm árum sem liðin eru frá hruni. Það er frekar aukning ef eitt- hvað er. Fólk kemur með allt sem það heldur að komist undir vélina,“ seg- ir Auður Þórisdóttir, kjólameistari og eigandi saumastofunnar Saum- sprettunnar. „Það er líka mikið um að fólk komi með nýjar útsöluvörur og vilji láta breyta þeim.“ Fólk verður að vega og meta hvort það borgar sig að gera við föt eða breyta þeim. Sem dæmi má taka að það kostar 2.700 krónur að stytta buxur, 2.200 krónur kostar að stoppa í gat, að stytta ermar á jakka kostar 5.500 krónur. Ein algeng viðgerð er að skipa um rennilás í buxum það kostar 3.800 krónur og er rennilásinn inni í þeirri upphæð. Á heimasíðu Saumsprettunnar er hægt að skoða verðskrána nánar. Eins og áður sagði er nokkuð algengt að fólk kaupi sér föt á útsölum og vilji svo láta breyta þeim, það gæti hins vegar verið gott að skoða hvað breytingarnar kosta áður en fjárfest er í flíkinni. Er flíkin orðin of lúin „Við segjum fólki hvort við teljum að flíkin sé orðin það gömul og lúin að það borgi sig ekki að gera við hana. Minni viðgerðir reynum við að af- greiða eins hratt og við getum en ef það þarf að skipta um rennilás í úlpu eða stytta ermar á þykkum ullarjakka getur fólk orðið að bíða í allt að þrjár vikur eftir viðgerð eða fatabreytingu,“ segir Auður. n Neytendur 17Miðvikudagur 14. ágúst 2013 Ekki kaupa niðursneitt Matarkarfan ein þeirra síða á netinu sem gefa góð ráð um hvern- ig við getum sparað tíma og pen- inga og hér eru nokkur sparnað- arráð í boði Matarkörfunnar. n Körfu ekki kerru Næst þegar þú ferð í búðina skaltu ekki aka kerru um búðina heldur burðast með körfu. Ósjálfrátt forðastu að kaupa óþarfa varning þar sem karfan þyngist við það. n Líta neðar í hilluna Verðin neð- ar í hillunni eru oft hagstæðari en þau sem blasa beint við augum. Kaupmenn vita að augun eru um það bil í augnhæð og setja því dýr- ari vörur í augnhæð í hillurnar. n Ekki kaupa niðursneidda ávexti eða annað niðursneitt Það er dýrara að kaupa niður- sneitt og pakkað en bara hrátt og ótilbúið. Drýgðu nauta- hakkið Hér eru þrjú ráð um hvern- ig Matarkarfan leggur til að nautahakkið sé drýgt á tímum neikvæðs hagvaxt- ar, gjaldeyrishafta, fallandi gengis og verðbólgu. n Kartöflur Stappaðu kartöflur og settu í hakkið. (Matarkarfan hefur tekið eftir að það er raunar gert við nautahakkið sem selt er í Krónunni og ef til vill fleiri verslunum.) n Grænmeti Maukaðu grænmeti í matvinnsluvél. Það má til dæm- is mauka kál, gulrætur, spergilkál, papriku og sellerí. Það má einnig nota maukaðar (niðursoðnar) linsubaunir eða soðin hrísgrjón. n Gamalt brauð Rífðu gamla brauðið í smáa bita og hrærðu eggi og kryddi eftir smekk út í. Bollur og borgarar hanga betur saman með brauði út í og kjötið drýgist. n Hrossakjöt Hrossakjöt er vitaskuld einnig kostur þegar drýgja þarf nautahakk. En til hvers? Af hverju ekki bara hafa hrossakjöt eða -hakk á borðum öðru hvoru? Íslendingar hafa alltaf borðað hrossakjöt, ólíkt til dæmis Bandaríkjamönnum sem leggja það sér ekki til munns frekar en hundakjöt. Láttu gera við dýrmætin þín n Hrunið breytti hugsunarhætti n Konur fara betur með skó en karlar Jóhanna Margrét Einarsdóttir blaðamaður skrifar johanna@dv.is Minn tími kom „Fólk á að skipta um skó að minnsta kosti tvisvar á dag. Konur fara yfirleitt betur með skóna sína en karlar,“ segir Hafþór Edmund Byrd. MynD Kristinn MaGnússon „Það kostar 2.700 krónur að stytta buxur, 2.200 krónur kostar að stoppa í gat, að stytta ermar á jakka kostar 5.500 krónur. „Við segjum fólki hiklaust hvort við teljum að viðgerðin borgi sig eða hvort betra sé losa sig við skóna og fá sér nýja. Láta fötin endast „Eftir hrun fór fólk að hugsa um að halda lengur í fötin sín. Það varð algengara að fólk kæmi með föt í viðgerð eða til láta breyta þeim,“ segir Auður Þórisdóttir kjólameistari. MynD: © DV / Kristinn MaGnússon n Borgin greiðir 160 þúsund n Síðasta tækifærið til að láta af stéttarmun Bakteríur í vatnsúða Matís hefur nú hafið mælingar fyr- ir legionellu-bakteríusmiti. Fáir vita að í vatnsúða geta leynst legi- onella-bakteríur, sem eiga það til að valda hermannaveiki. Slíkt er þó óalgengt hér á landi og almennt lít- il hætta á að bakterían geri vart við sig, þar sem lítið er um uppsöfn- un á vatni í tönkum. Þó er vitað um tilfelli eftir svifúðamyndun út frá gufu- og rakagjafa í grænmetisborð- um í matvöruverslunum eða út frá heitum nuddpottum, en smit á sér oftast stað í heitara loftslagi þar sem kæliturnar og loftkæling er víða. Hér á landi hafa greinst eitt til tíu tilfelli legionellu-sýkingar á ári, ýmist af innlendum uppruna eða eftir dvöl á hótelum erlendis.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.