Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1933, Side 11
Verzlunarskýrslur 1931 9*
1927 1928 1929 1930 1931
Smjörlíki 125 99 120 149 92
NiÖursoðin mjólk 284 278 368 408 297
Ostur 111 111 147 99 55
Egg 56 60 57 96 97
Hart brauð 91 134 133 112 118
Kringlur og tvíbökur 21 22 17 13 14
Kex og kökur 178 194 228 262 168
Jarðepli .. 2 093 1 778 1 864 2 298 2 500
Epli ný 142 187 205 206 197
Glóaldin (appelsínur) 165 176 277 284 240
Rúsínur 132 140 153 148 140
Sveskjur 120 151 147 154 139
Kartöflumjöl 110 174 156 138 152
Avextir niðursoðnir 44 67 115 119 117
Avaxtamauk (syltetöj) 60 90 125 129 120
Sagógrjón og sagómjöl .. . 94 99 97 105 109
lAunaðarvörur hafa verið kallaðar þær neyzluvörur, sem ekki hafa
verið taldar nauðsynjavörur, svo sem kaffi, te, súkkulað, sykur, tóbak,
áfengir drykkir, gosdrykkir o. fl. Þetta eru þær vörur, sem tollarnir hafa
aðallega verið lagðir á, enda þótt sumar þeirra megi nú orðið telja
nauðsynjavörur, svo sem sykur. Af þessum vörum nam innflutningurinn
árið 1931 3.8 milj. kr. eða nál. 8 o/o af öllum innflutningnum.
2. yfirlit (bls. 10*) sýnir árlega neyzlu af helztu munaðarvörunum
á hverju 5 ára skeiði síðan um 1880 og á hverju ári síðustu 5 árin,
bæði í heild sinni og samanborið við mannfjölda. Er þar eingöngu um
innfluttar vörur að ræða, þar til síðustu árin að við bættist innlend fram-
leiðsla á öli og kaffibæti. Brennivín var talið með vínanda meðan það
fluttist inn, þannig að lítratala brennivínsins var helminguð, þar eð það
hefur hérumbil hálfan styrkleika á við hreinan vínanda, svo að tveir lítrar
af brennivíni samsvara einum lítra af vínanda.
Á yfirlitinu sést, að árið 1931 hefur aukist neyzla af öllum þessum
munaðarvörum, nema sykri og vínanda.
Innflutningur á sykri hefur vaxið afarmikið á síðustu 50 árum.
Neyzla á mann hefur fimmfaldast og er nú orðin 40 kg á mann. Er það
mikið samanborið við önnur lönd. Árið 1931 var hún minni í flestum
löndum Norðurálfunnar, nema Danmörku (51 kg) og Bretlandi (44 kg).
í Bandaríkjunum og Nýja Sjálandi var hún líka meiri (44 og 48 kg).
Neyzla af kaffi og kaffibæti hefur aukist töluvert síðan um 1890.
1886—90 komu ekki nema 4 kg á mann að meðaltali, en 1916-20
meira en 7 kg. Síðustu árin hefur innflutningurinn þó verið heldur lægri,
en þar við hefur bætzt nokkur innlend framleiðsla á kaffibæti, sem er
tekin með í töflunni. Nam hún 25 225 kg árið 1931.